Organistablaðið - 01.05.1969, Qupperneq 35

Organistablaðið - 01.05.1969, Qupperneq 35
Hvítadal, Vor og Ætti ég hörpu viS ljóð eftir FriSrik Hansen. Flest lögin eru samin 4 árunum 1924—’30. Ut- gefandi er dóttir tónskáldsins, Sigrún Pétursdóttir. Nótnagerð, prentun og pappír er óvenju vandað. Fæst í nótna- og bókaverzlunum. HeiSursmerki. Hinn 17. marz sl. veitti forseti ís- lands dr. Páli lsólfssyni stórriddara- kross Fálkaorðunnar. Kirkjuvika í Lágajellskirkju. Fyrsta kirkjuvikan í Lágafellskirkju var 1960. Síðan hafa þær verið árlega. Ætíð er byrjað með messu, sem sókn- arpresturinn, organleikari og kór kirkj- unnar annast. Siðan eru samkomur tvö kvöld í röð, en kirkjuvikunni lýkur með föstuguðsþjónustu og er venja að fá prest, organleikara og kór frá öðrum kirkjum til að sjá um þá guðs- þjónustu. 1 vetur byrjaði kirkjuvikan 16. marz með messu eins og venjulega. Á mánu- dag og þriðjudag voru samkomur með fjölbreyttri dagskrá, en á miövikudag lauk kirkjuvikunni með guðsþjónustu. Hjalti Þórðarson organleikari við Lága- feliskirkju, Árni Arinbjarnarson og Guðmundur Gilsson léku á orgelið. Margar ræður og erindi voru flutt og einsöngvarar, kórar og hljóðfæraleik- arar fluttu mörg kirkjuleg tónverk. Kirkjuvika á Akureyri’. Kirkjuvika var haldin í Akureyrar- kirkju 3.-9. marz í vetur. Birgir Helga- son organleikari hafði samið lag, sem tileinkað var kirkjuvikunni og var sung- ið þar. Á hverju kvöldi voru samkomur eða messur og komu þar fram margir ræðumenn og listamenn. — Jakob Tryggvason organleikari við Akureyr- arkirkju og Konráð Konráðsson léku á orgelið. Þetta var 6. kirkjuvikan í Akureyrarkirkju. Hin fyrsta var 1959. Bartímeus blindi, helgileikur eftir dr. Jakoh Jónsson, var fluttur í Há- teigskirkju sunnud. 11. maí. — I leik- byrjun flutti séra Jón Þorvarðarson stutt ávarp og gat þess m. a., að helgileikur þessi hefði fyrst verið fluttur í Bessastaðakirkju 1958, einnig í Akureyrarkirkju og á nokkrum stöðum erlendis. Síðan söng söngfólk úr Kirkjukór Háteigskirkju sálm. — Lcikstjcri var Ævar R. Kvaran en nemendur úr leikskóla hans fluttu leikinn. Prestsþjónustu fyrir altari ann- aðist dr. Jakob Jónsson. Organleikari var Gunnar Sigurgeirsson. FÉLAG ÍSL. ORGANLEIKARA STOFNAÐ 17. JÚNÍ 1951 Stjórn: Formaður: Páll Kr. Pálsson, Álfo- skeiði 111, Hafnarfirði. sími 50914. Ritari: Jón G. Þárarinsson, IJáaleitis- braut 52, Rvík, sími 34230. Gjaldkeri: Haukur Gu8laugsson. Há- teig 16, Akranesi, sími 93-1908. ORGANISTABLAÐIÐ. Útgefandi: Félag íslenzkra organleikara. Ritnefnd: Gunnar Sigurgeirsson, Drápuhlí'S 34, R., Simi 12626, Páll Halldórssnn, DrápuhlíS 10, R., Sími 17007, Ragnar Björnsson, Ljósheimum 12, R., Sími 31357. Afgreiðslumaður: Gunnar Sigurgeirsson. ORGANISTABLAÐIÐ 35

x

Organistablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.