Organistablaðið - 01.11.1970, Page 14
PÁLMAIi ÍSÓLFSSON
sjötugur
Pálmar Isólfsson, liinn þjóð-
liagi smiður og hljóðfærastill-
ingameislari átti sjötugsafmæli
hinn 28. júlí síðastliðinn. Pálmar
hefur í rúmlega 'hálfa öld verið
maðurinn að >baki flestum þeim
listasigruin, sem unnir 'luifa vcrið
í hljómleikasölum 'borgarinnar af
erlendum og innlendum hljóm-
listarmönnum.
Undirstaða allra afreka áhljóm-
leikapallinum er liinn hreini,
tæri og fagri tónn, ef liann hregst,
er hinn færasti hljómlistamaður
magnlaus, túlkun hans nær ekki tilgangi sínum. Það er hér sem hinn
hægláti og hlédrægi hljóðfærastillingameistari vinnur sína listasigra,
og af því meiri alúð og ynnileika, sem kröfur hljóðfæraleikaranna til
hans eru meiri.
Pálmar ísólfsson er fæddur i ísólfsskála á Stokkseyri árið 1900.
Foreldrar hans voru ísólfur Pálsson organisti og hljóðfærasmiður og
kona hans, Þuríður Bjarnadóttir. Hann er því af hinni merku Bergs-
ætt, sem flestir hinir músikalskari Árnesingar eru komnir af.
F.ftir að foreldrar Pálmars fluttust til Reykjavíkur fór hann fljót-
lega að vinna með föður sínum við liljóðfæraviðgerðir og stillingar
og sýndi það mikla hæfileika, að sjálfsagt þótti að hann færi til út-
landa til frekari náms. Var Pálmar 1920 til 1924 í Danmörku hjá
Hornung & Möller, Hermann Pedersen o. fl. við nám í hljóðfæra-
smíði og stillingum. En mest og 'bezt veganesti 'hlaut hann þó hjá
vini sínum góðum, Hartenberg að nafni, sem var konserthljóðfæra-
stillir í Kaupmannahöfn á þeim árum.
Eftir heimkomuna stofnaði Pálmar sitt eigið verkstæði. Smíðaði
hann nokkur píanó og um 100 orgelharmonium, sem hann seldi
bæði í kirkjur og heimahús. Árið 1924 voru pípuorgel aðeins til í
14 ORGANISTABLAÐIÐ