Organistablaðið - 01.11.1970, Side 23
ELÍAS BJARNASON,
yfirkennari
Elías Bjarnason yfirkennari
andaðist í Reykjavík 4. jan. 1970'
rúmiega níræður að aldri. Hann
var fæddur i Hörgsdal á Síðu
17. júní 1879.
Elías var landskunnur maður
fyrir kennslustörf sín og reikn-
ingsbækur þær sem hann samdi
og gaf út og lengi 'hafa verið
og eru enn notaðar.
Kirkjutónlistin átti hauk í
horni þar sem Elías var. Sr.
Bjarni Þorsteinsson segir svo á
einuin stað í rili sínu íslenzk
þjóðlög: „....hefur Elías Bjarnason organisti í Hörgsdal sett
þau (lögin) á nótur eftir því sem hún (Rannveig Sigurðardóttir)
söng þau.“ Elías Bjarnason segir sjálfur svo frá því er hann bvrjaði
að læra á harmonium: Fvrir nálægt 32 árum síðan var ég í
fyrsta sinn sendur að lieiman til sjóróðra á Eyrarbakka. Þar verða
Jafnan, sem kunnugt cr, margir landlegudagar á vertíðum og þá daga
Var ekkerl sérstakt við að vera fyrir ungling á minu reki, annað en að
slæpast. Frænda átti ég á Bakkanum, og til hans hvarflaði ég oftast,
þegar ekkert var að gera. Ekki leið á löngu að frændi minn tæki
eftir Jjví, að mér leiddist iðjuleysið, og vildi úr því bæta. Einu sinni,
'þegar ég var hjá honum, scgir hann við mig: „Farðu til Jóns Páls-
sonar“ (síðar bankaféhirðis) „og lærðu að spila á orgel; — Jni
gerir ckki annar) Jmrfara.“ Þessu ráði hlýddi ég tafarlaust og reyndist
'það heillaráð þá strax — og ætíð síðan. — Jón Pálsson reyndist mér
prýðilega í hvívetna. Hjá honum lærði ég undirstöðuatriðin í harm-
eníumspili. .. . “
Síðar jók Elías miklu við leikni sína og kunnáttu á þessu sviði.
Meðan Elías var kennari á Síðunni var hann organleikari við
1 restsbakkakirkju og var fyrsti organisti við þá kirkju, og eftir að
l'ann fluttist til Reykjavíkur og varð kennari við Barnaskóla Reykja-
vikur var liann um árabil organisti við Viðeyjarkirkju þangað til
ORGANISTABI.AÐIÐ 23