Organistablaðið - 01.11.1970, Side 32
sett af Pnitoriusi. Á undan hverju lagi
las sóknarpresturinn, sr. Jón M. GuS-
jónsson, ýmist ljóð eða biblíutexta.
Kirkjukór Akraheskirkju
efndi til skemmtunar í Bíóhöllinni á
Akranesi sunnudaginn 8. marz s.l. með
fjölbreyttri efnisskrá — upplestri og
söng.
Útlendar fréttir.
Hljómsveitarstjórinn heimskunni, Sir
John Barbirolli, lézt í Londan 28. júlí
s.l. sjötugur að aldri.
Nils Grevillius, hinn víðkunni sænski
hljómsveitarstjóri, lézt að Marienfred
í ágúst s.l. 77 ára að aldri.
Arið 1969 gengu undir próf á veg-
um samtaka brezkra tónlistarskóla
213.177 nemendur. Þeim hafði fjölgað
um 20 |iúsiind frá árinu áður.
Schott-músikforlagið i Mainz, sem er
200 ára í ár, undirbýr heildarútgáfur
tónverka Wagners, Schönbergs og
Mindemiths.
Við uppfærzlu á „Carmen" í hring-
leikahúsi í Verona, skeði það i sumar,
að hestur féll af sviðinu ofari á fiðlar-
ana í hljómsveitinni og segir ekki frek-
ar af sýningu þann daginn.
Erling Kjelsen
framkvæmdastjóri norska organista-
sambandsins lézt 17. mai síðastliðinn.
Hann var um langt árabil drif-
fjöðrin í samtökum norskra organleik-
ara og sjálfsagður fulltrúi þeirra við
öll mót, undirbjó og stjórnaði.
Okkur íslendingum er hann einh-
ar minnisstæður frá 5. N.K.T.-mótinu
hér á Jslandi árið 1952. Hann gaf okk-
ur holl ráð og margar góðar bending-
ar um framkvæmdir er við vorum að
undirbúa okkar fyrsta mót. Hann var
lika fjörlegur og skemmtilegur félagi,
góður, greindur og nákvæmur.
Ilann var í miðjum undirbúningi að
þátttöku Norðmanna í mótinu hér, er
hann var skyndilega burt kallaður, og
var það þungt áfallt fyrir okkar norsku
kollega.
Við minnumst hans með þökk og
virðingu fyrir margar góðar samveru-
stundir. P. Kr. P.
Ýmsar fréttir.
Úr bréfi frri Steingrími Sigfússyni,
orgunleikara, Fáskrúðsfirfii.
„... .organleikarinn og tónskáldið
Gunnar Thyrestam, Gávle, Sviþjóð, er
mikill Islandsvinur og hefur gert mik-
ið að 'því að kynna íslenzka tónlist í
kirkjum Svíþjóðar, m. a. hefur hann
oft flutt orgelverk eftir mig bæði við
messur og á hljómleikum og er það
nokkur uppörvun, þegar tekið er til-
lit til þess að hér á landi heyrast þau
aldrei.
Domkyrkomusiken i Uppsölum bauð
liinn 25. felbr. 1970 tónskáldinu Gunn-
ari Thyrestam, Gávle, að flytja eigin
tónverk fyrir orgel. Naut liann að-
stoðar söngkonunnar Leilu Ljungberg,
sem söng Thyrestam-tónverk fyrir söng
og orgel. Ummæli voru mjög lofsamleg.
í Önnu-sal annexiukirkju þrenning-
arkirkjunnar heldur tónskáldið Gunn-
ar Thyrestam tónlistarkvöld með að-
stoð söngkonunnar Leilu Ljunberg,
32 ORGANISTABLAÐIÐ