Morgunblaðið - 13.11.2009, Side 23

Morgunblaðið - 13.11.2009, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009 Mundar hnífinn Hann er ekki árennilegur maðurinn með keðjusögina. Mikill niðurskurður hjá hinu opinbera er staðreynd og spurning hvort niðurskurðarhnífurinn er hér mundaður í bókstaflegri merkingu. Embætti sérstaks saksóknara er tiltölulega nýtt og vart við því að búast að þar verði mikið skorið. Þá má velta því fyrir sér á hvaða leið maðurinn með hnífinn er! Golli ÞAÐ er grátlegt að horfa upp á tímann sem eytt hefur verið á und- anförnum mánuðum í lítil og fá skref til fram- fara fyrir heimilin. Það er deginum ljósara að þessar smáskammta- lækningar duga skammt. Þessu virðist m.a. Benedikt Sigurð- arson, samfylking- armaður að norðan, sammála: „Greiðsluaðlögun – og nú síðast „greiðslujöfnun“ eru algerlega mis- heppnaðar aðgerðir; – og sl. föstu- dag komu fulltrúar frá ASÍ og Íbúðalánasjóði og fleiri fram í fjöl- miðlum og réðu fólki frá því að nýta sér greiðslujöfnun verðtryggðra lána – af því hún væri „ekki lausn“. Árni Páll Árnason verður að stíga til baka; biðjast afsökunar – og kalla aðila til efnislegs samráðs um skjóta og skilvirka „endurskipulagningu verðtryggðra skulda heimilanna“ – ef félagsmálaráðherrann er ekki reiðubúinn til að bregðast við þess- ari afhjúpun AGS – þá á hann líklega ekki annarra kosta völ en segja af sér ráðherradómi.“ Þetta eru orð samflokksmanns forsætisráðherra og félagsmálaráð- herra. Ljóst er að ríkisstjórnin hefur ekki leyst verkefnið sem fyrir hana var lagt en það er svo sem ekki ný- lunda á þeim bænum. Samkvæmt skýrslu AGS hljóðar afskriftarþörf fjármálafyrirtækja vegna skulda heimilanna upp á um 600 milljarða. Málið er gríðarlega stórt og snúið og verður að leysa án þess að tortryggni eða reiði verði ráðandi. Skynsamlegasta leiðin til þess að takast á við skuldavanda heimilanna er að ná sem allra fyrst breiðri sátt, samfélagslegri og stjórnmálalegri. Sú leið mun fyrst og fremst styrkja stöðu heimilanna og fjölskyldnanna í landinu. Við sjálf- stæðismenn lögðum þetta til í sumar og gerum það enn. Við erum reiðubúin í slíka vinnu. Heimilin þurfa skýrari svör, réttlátari nálgun. Eða er forsætisráðherra búinn að gleyma sín- um félagslegu rótum? En það er ekki bara óvissan og tafapólitík ríkisstjórnarinnar sem veldur áhyggjum heldur ekki síður þær klyfjar sem lands- menn þurfa að taka á sig skv. stefnu vinstri stjórnarinnar. Fjármálaráðherra mætir glaðbeittur í viðtal og boðar hækkun staðgreiðslu upp í allt að 50%. Það þýðir að frá því að þessi ríkistjórn tók við völdum mun fólk með 500 þúsund krónur í mán- aðarlaun missa ein mánaðarlaun til viðbótar til ríkisins. Og það á sama tíma og matarreikningar hafa hækk- að, húsnæðislánin hafa hækkað og erfitt ástand ríkir á fasteignamark- aði. Venjulegt fólk, með venjuleg heimili, vill fá að njóta tekna sinna til að standa undir skuldbindingum sín- um. Fólk gerir sér mætavel grein fyrir að það þurfa allir að axla ábyrgð en þær klyfjar sem rík- isstjórnin leggur á fólk og fyrirtæki mega ekki verða til þess að fólk kikni undan þeim, geti ekki meir. Hættan er að umsvifin í atvinnulífinu dragist saman og skatttekjur þar af leiðandi minnki. En það er líka deginum ljósara að þótt ekkert hrun hefði verið þá hefði þessi vinstri stjórn hoggið í sama knérunn, hún hefði alltaf hækkað skatta, það er henni einfaldlega í blóð borið. Hér heima erum við nú rækilega minnt á roðann í austri, það er kaldhæðnislegt þegar á sama tíma er minnst falls Berlínarmúrsins fyrir 20 árum og þeirrar hug- myndafræði sem hann var tákn- mynd fyrir. En fyrir 20 árum voru Steingrímur og Jóhanna líka í rík- isstjórn. Við erum nefnilega í baráttu við klisjukennda hugmyndafræði og kreddupólitík, ekki síst á sviði rík- isfjármála og atvinnumála. Á svona tímum þegar skuldavandi ein- staklinga og fyrirtækja er allt að því yfirþyrmandi þá eru meiri byrðar með hærri sköttum ekki lausnin – þá verður að leita allra leiða áður en sú vegferð er farin. Allra. Við sjálfstæð- ismenn höfum í þessu skyni lagt fram lausnir. Við höfum t.a.m. bent á að afnema núverandi frestun á skatt- lagningu séreignarsparnaðar en sú ráðstöfun ein mundi skila um 115 milljarða kr. eingreiðslu til hins op- inbera á næsta ári; um 75 milljörðum til ríkisins og 40 til sveitarfélaganna en þau eiga verulega á brattann að sækja við að standa undir þeirri grunnþjónustu sem gerð er krafa um. Það er einnig lykilatriði að fjölga störfum. Best væri nú að byrja á því að ríkisstjórnin stæði við gerða samninga. Með því að fjölga störfum um 5000 aukast tekjur ríkissjóðs um 15 milljarða árlega við það að at- vinnulaust fólk fer að greiða skatta og opinber gjöld. Ríkisstjórnin á að gera sér það ljóst að Íslendingar vilja vinna, þeir vilja vera sjálfbjarga og leggja sitt af mörkum við uppbyggingu sam- félagsins. Þeir vilja ekki að sér stillt upp við vegg. Þeir vilja að á þá sé hlustað. Umhverfisráðherra segir í út- varpsviðtali að það þýði ekki að tala um að annað hvort sé það álver eða dauði. Hver hefur verið að tala þann- ig, hver segir það og í hvaða búning er verið að setja málin? Kreddurnar í ríkisstjórninni eru að stoppa fram- farir og fjölbreytt atvinnutækifæri hvort sem það er á sviði nýsköpunar, stóriðju eða ferðamannaiðnaðar. Svo einfalt er það. Fólkið á Suð- urnesjum fór í kröfugöngu á sunnu- daginn því það vill atvinnu strax, það hefur ekki tíma til að bíða eftir spunameisturum stjórnarflokkanna til að réttlæta aðgerðarleysi rík- isstjórnarinnar. Forsætis- og fjár- málaráðherra þurftu ekki endilega að mæta í gönguna til að skynja þessa æpandi þungu kröfu þótt fjar- vera þeirra hafi verið fyrirsjáanleg. En það var svo sem eftir öðru. Það er skylda allra stjórnmála- manna að veita fólkinu von, rík- isstjórnin hefur alla möguleika til að hætta þessum þvergirðingshætti sem einkennir hennar vinnubrögð, hún getur farið að hlusta á fólkið í landinu, forsvarsmenn atvinnulífs- ins og sitt eigið fólk, vel að merkja. Það væri að minnsta kosti góð byrj- un. Eftir Þorgerði Katr- ínu Gunnarsdóttur »… þær klyfjar sem ríkisstjórnin leggur á fólk og fyrirtæki mega ekki verða til þess að fólk kikni undan þeim … Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Höfundur er alþingismaður. Breiða sátt fyrir heimilin ÝMSIR eiga sér þann draum að Ísland verði „norrænt velferð- arríki“. Þeir sem ég þekki og búa „meira að segja í Svíþjóð“ þekkja ekki þennan draumkennda veru- leika. Ekki birtist hann heldur á síðum dönsku blaðanna þegar maður rekst á þau. En draum- veruleikinn lifir a.m.k. á ýmsum fréttastofum hér heima. Maður sem er sérfræðingur á mörgum ólíkum sviðum og varð ráðherra fyrir vill fá norrænar skattapró- sentur. Nú er það svo að skattbyrði verður ekki reiknuð með skat- taprósentu einni saman þótt hún sé hluti af dæminu. Menn verða sem sé líka að huga að því hvaða undir Norðurlandabúa á þúsundir ofan hafa flutt heimili sitt til Lundúna, stærstu skattaparadísar heims. Það þarf bara flugsæti til að flytja þjónustufyrirtæki í heilu lagi milli landa. Hvernig væri að fá háskólakennara í starfsleyfi, sem er meira að segja innan seilingar, til að slá máli á tekjutap næstu ára, bara af þessum sökum? Í þetta sinn gætu spádómsorðin komið fyrirfram, ekki eftirá. Skattstigar eru nefnilega þeirrar gerðar að það er auðveldara að fara upp en aftur ofan. – Það er nú svo. frádráttarliðir séu heimilir í hverju landi og hver sé per- sónufrádráttur eða afsláttur. Taka þarf með millifærslur af öllu tagi, svo sem barna- og fjölskyldubæt- ur. Að lokum skoðast nið- urgreiðslur á þjónustu (t.d. á leik- skólum), endurgreiðslur námslána og vaxtabyrði heimila til að fá sem besta mynd af raunverulegri greiðslubyrði. Ég legg til að þingið láti setja upp töflu með svona út- reikningum á eitt blað. Það er ekki svo langt síðan maður hóf aftur störf í fjármálaráðuneytinu sem er allra manna flinkastur í svoleiðis. Að lokum þetta: Ætlunin er væntanlega sú að afla ríkissjóði aukinna tekna til langframa. Þús- Einar S. Hálfdánarson Brattir skattstigar Höfundur er hæstaréttarlögmaður og löggiltur endurskoðandi. 23

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.