Morgunblaðið - 13.11.2009, Side 43
Minningar 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Antík
Antík í Maddömunum á Selfossi
Komnar með mánaðarbollana aftur!
Ýmislegt fallegt í jólapakkana. Opið
föstudag 13-18 og eftir samkomulagi.
Sími 483 3083 og 866 9269.
Gisting
AKUREYRI
Sumarhús (140 fm) til leigu við
Akureyri. TILBOÐ Á LEIGU - Sun -
Fim. verð 45 þús.
Glæsilegt útsýni yfir Akureyri.
www.orlofshus.is eða Leó, sími
897 5300.
Veitingastaðir
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Verslun
Vönduð frönsk armbandsúr á
góðu verði. Pierre Lannier úrin eru
margverðlaunuð og nú er (þrátt fyrir
allt) tækifæri til að eignast eigulegt
úr á skaplegu verði. ERNA, Skipholti
3, s. 552 0775, www.erna.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi af fólki
og veiti ég góð ráð. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns.
Upplýsingar á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13. Verið velkomin.
Halló
Eldri konu langar að kynnast
ferðafélaga eða ferðafélögum
í sólina janúar 2010.
Upplýsingar í síma 697 4567.
Fyrirtæki
Til sölu glæsilegur
matsölustaður
Matsölustaður/veisluþjónusta,
rekstur sem stendur vel og byggir að
mestu á hádegismat og veislu-
þjónustu. Ýmis skipti koma til greina.
Sendið fyrirspurn með upplýsingum
og síma á 3dveitingar@gmail.com
Ýmislegt
Velúrgallar
Innigallar
Bómullar- og velúrgallar
fyrir konur á öllum aldri.
Stærðir S - XXXL
Sími 568 5170
TILBOÐ
Dömuskór úr leðri. verð: 3.500.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18,
lau. 10 -14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Teg. 6544 - vel fylltur í BC skálum á
kr. 3.950,- boxerbuxur í stíl á
kr. 1.950.
Teg. 21255 - mjúkur og yndislegur í
CD skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á
kr. 1.950.
Teg. 62304 - rosalega fallegur í BC
skálum á kr. 3.950,- flottar buxur í stíl
á kr. 1.950.
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Mjúkir og þægilegir dömuskór
úr leðri, skinnfóðraðir.
Litur: svart.
Stærðir: 37 - 41. Verð: 16.575.-
Sérlega fallegir og hlýir götuskór
úr leðri, fóðraðir með flís.
Stærðir: 37 - 41. Verð: 17.500.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18,
lau. 10 -14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Bílar
VW Golf Syncro 4x4 árg. '98
Ek. 140 þ. km, bsk., station, skoðaður
´10, vetrar- og 2 umg. sumardekk, ný-
yfirfarinn bíll í toppstandi. Verð 390
þ. Uppl. jgj@snilli.is - 896 8989.
TILBOÐ ÞESSA VIKU
hjá Bóni & þvotti, Vatnagörðum 16.
Gæðaþvottur + bón + felgur sýru-
þvegnar á 2500 kr. + þrif að innan,
saman á 5500 kr. Eins minnum við á
aðra þjónustu. www.bonogtvottur.is,
sími 445-9090, gsm 615 9090.
Bílar óskast
Óska eftir að kaupa bíl. Má kosta í
kringum 1.400 þús. Það sem kemur til
greina er: VW Transporter, verður að
vera nýskoðaður og í góðu lagi. Aðrir
bílar koma til greina, ekki eldri en
árgerð ´04. Uppl. í s. 864-4229.
Bílaþjónusta
!
"
#
$%&
'
( ) * +
!" # $% # &
# '( &' #" #
Húsviðhald
Tökum að okkur að leggja PVC
dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands-
byggðinni einnig. Erum líka í
viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598.
Sisal teppi
Strönd ehf. Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík. s. 533 5800,
www.strond.is
Hreinsa þakrennur fyrir
veturinn. Næ í bíla heim eða í
vinnuna og skipti yfir á vetrar-
dekk. Set upp jólaskraut o.fl. o.fl.
Uppl. í s. 847 8704.
Elsku Dúý frænka
hefur fengið hvíldina
og er farin á vit nýrra ævintýra.
Mig langar að þakka Dúý frænku
fyrir skemmtilega samfylgd, hún er
einn af þessum föstu punktum í líf-
inu sem hafa bara alltaf verið og
því skrítið til þess að hugsa að hún
sé ekki lengur á meðal okkar. Dúý
frænka var uppeldissystir pabba og
Jóhönnu frænku og var mikill sam-
gangur og samband á milli þeirra
systkina. Ef einhver veisla var í
sveitinni, t.d. fermingarveisla, þá
mætti Dúý frænka með kökur og
brauðrétti og hjálpaði til við allt
sem gera þurfti.
Afmælisveislurnar í Barðavogin-
um eru líka mjög minnisstæðar,
heitt súkkulaði og drekkhlaðið borð
af kræsingum. Dúý hafði mjög mik-
Guðríður Ásta
Björnsdóttir
✝ Guðríður ÁstaBjörnsdóttir
fæddist á Kolbeins-
stöðum í Kolbeins-
staðahreppi 29. apríl
1930. Hún lést á
hjúkrunardeild
Hrafnistu H-2 við
Brúnaveg 2. nóv-
ember síðastliðinn og
fór útför hennar fram
frá Áskirkju 10. nóv-
ember.
inn áhuga á allskyns
bakstri og var iðinn
að veita ráðleggingar
í sambandi við það og
að segja manni hvað
væri í þessari og
hinni kökunni, og
hvernig væri best að
gera þetta til að út-
koman yrði fullkomin.
Þær eru t.d. óteljandi
púðursykurkökurnar
sem hún bakaði fyrir
fólk út um allan bæ
og hafði yndi af.
Dúý var sterk og
skemmtileg persóna með yndisleg-
an húmor, hún sá spaugilegu hlið-
arnar á lífinu og hafði mjög gaman
af hnyttnum tilsvörum. Hún hafði
líka sterkar skoðanir og var ekkert
endilega að liggja á þeim ef hún
var ósátt við eitthvað. Hún hafði
yndi af fallegum hlutum og átti fal-
legt heimili, hún hafði mikinn
áhuga á vönduðum fötum, átti mik-
ið af fallegum skóm og notaði flotta
hatta, og var rauður alltaf hennar
uppáhaldslitur. Tónlist var henni
hugleikin, hún spilaði á píanó og
gítar og hafði yndi af söng og hefur
sungið í fjölmörgum kórum. Dúý
var mjög handlagin og vandvirk og
liggja eftir hana margir fallegir út-
saumaðir munir.
Undanfarin ár eftir að heilsunni
fór aðeins að hraka höfum við verið
í góðu sambandi og við mæðgur
eigum margar ljúfar og skemmti-
legar minningar með henni. Það
var ljúft að gefa Dúý af tíma okkar
og ná kannski að endurgjalda að
einhverju leyti öll hennar elskuleg-
heit frá barnæsku. Mjög ljúflega
var tekið á móti okkur í hvert sinn
og heilsað með sæl elskan, sæl
elskan. Það var nú oft gaman hjá
okkur, Katla Rún og Dúý spiluðu á
hljóðfæri og við sungum, fórum í
göngutúra og bíltúra og svo nátt-
úrulega spjallað um hitt og þetta.
Kötlu Rún fannst gaman að hjálpa
Dúý, sækja eitthvað að drekka,
þurrka af borðinu hennar, leiða
hana í göngutúrunum og keyra
hana í stólnum. Dúý hafði mjög
gaman af börnum og gaf þeim góð-
an gaum, hún hafði yndi af því að
biðja Kötlu Rún að dansa fyrir sig
og spila og hvatti hana áfram og
hrósaði henni hvað hún væri dug-
leg stelpa. Það var ekki slæmt að
eiga svona aðdáanda eins og Dúý
frænku!.
Við mæðgur viljum þakka Dúý
frænku fyrir allar stundirnar sem
við höfum átt saman, þær eru okk-
ur nú dýrmætar og skemmtilegar
minningar.
Elsku Dúý frænka, hjartans
þakkir fyrir allt.
Þínar
Valgerður Solveig
og Katla Rún.
Með virðingu og söknuði kveð ég
elskulega vinkonu mína Guðríði
Ástu. Við kynntumst fyrir rúmlega
sextíu árum í rútu á leið frá Borg-
arnesi til Varmahlíðar í Skagafirði.
Förinni var heitið á Húsmæðra-
skólann á Löngumýri. Við vorum
þrjátíu og átta ungar og bjartsýnar
stúlkur sem stunduðum nám við
skólann þennan vetur. Tólf hafa nú
kvatt þetta líf. Við Gurrý, en það
var hún alltaf kölluð, urðum her-
bergisfélagar og vinkonur. Hefur
sú vinátta haldist alla tíð. Gurrý
var traust og alltaf tilbúin til að
rétta mér hjálparhönd þegar ég
þurfti þess með. Hún var tónelsk,
spilaði á píanó og gítar og söng í
kórum. Hún átti fallegt heimili þar
sem handavinnan hennar naut sín
vel. Það var ávallt tilhlökkunarefni
að heimsækja hana enda var hún
höfðingi heim að sækja og einstak-
lega gestrisin. Gurrý vann mikið
utan heimilis við verslunarstörf og
fleira. Hún átti við erfið veikindi að
stríða hin síðari ár. Nú er þeirri
baráttu lokið og komið að kveðju-
stund. Ég kveð mína kæru vinkonu
með ljóðinu sem hún skrifaði í
minningabók mína fyrir rúmlega
sextíu árum.
Allar stundir okkar hér
er mér ljúft að muna.
Fyllstu þakkir flyt ég þér
fyrir samveruna.
(Har. S. Mag.)
Ég votta Ásgrími, börnum hans
og öðrum ættingjum samúð mína.
Blessuð sé minning Guðríðar Ástu
Björnsdóttur.
Lára Guðmundsdóttir.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni
til Morgunblaðsins – þá birtist val-
kosturinn Minningargreinar ásamt
frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Greinar, sem berast eftir að útför
hefur farið fram, eftir tiltekinn skila-
frests eða ef útförin hefur verið gerð
í kyrrþey, eru birtar á vefnum,
www.mbl.is/minningar. Æviágrip
með þeim greinum verður birt í
blaðinu og vísað í greinar á vefnum.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að
senda lengri grein. Engin lengdar-
mörk eru á greinum sem birtast á
vefnum. Hægt er að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15
línur. Ekki er unnt að tengja við-
hengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og
hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram.
Minningargreinar