Organistablaðið - 01.06.1995, Page 5
verið hægt að minnka atvinnuleysi. Kirkjan hefur lagt aukna áherslu á kristindóms-
fræðslu en skólar minnkuðu fræðsluna. Innflytjendur hafa mjög mismunandi trúarlegan
bakgrunn þeir hafa gert þessa fræðslu enn þarfari. 70-80 organistar með minna próf eru
útskrifaðir á ári. Ráðning fleiri tónlistarmanna við kirkjuna byggir á óskinni um meira
og blómlegra tónlistarlíf.
Vaxandi áhugi fyrir kirkjunni og hærri staðall tónlistarmenntunnar er Dönum mikið
ánægjuefni.
Bo Svensson, forseti sænska organistafélagsins sagði að 500 organistar væru í fullu starfi
í Svíþjóð, en færi heldur fækkandi þrátt fyrir lög sem segja að öil prestaköll eigi að hafa
organista í starfi. Tilhneiging þar er að ráða frekar kantora. Þeir eru minna menntaðir og
ódýrari starfskraftur. Þetta þykir organistum að sjálfögðu mjög miður.
Mikið var rætt um þann tíma sem færi til organistastarfsins. Meðalmat á guðsþjónustu í
Svíþjóð er 6 tímar, minnst 4, mest 8.
Svíar hafa þróað með sér tímakerfi sem fara má eftir. Finnar spurðu um reynslu Svía af
kerfinu. Bo Svensson svaraði og sagði að í fyrstu hefðu menn talið kerfið gott en reynslan
sýndi að menn væru of bundnir af því og gætu þá síður nýtt tímann til enn þarfari starfa,
t.d. undirbúning tónleika.
Egon Mortensen taldi danska kerfið betra en það sænska. Það gæfi organistum frjálsari
möguleika til að nýta tímann sem best miðað við mismunandi aðstæður. Kjartan skaut
því að að á Islandi mætum við 100% útreikning stöðu sem 70% vinnuframlag vegna
þess að vinnan færi fram mikið á álagstímum.
Steinar Mogen starfar hjá norska organistafélaginu. Hann telur að tímaútreikningar séu
hættulegir því þeir leiði til lægri faglegs staðals. Norðmenn höfðu með sér hefti með
upplýsingum unt kjaraútreikninga, vinnuaðstöðu og allt ntögulegt annað.
Hluti norsku sendinejhdarinnar.
5 ORGANISTABLAÐIÐ