SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Side 2

SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Side 2
2 5. september 2010 6 – 8 Röndótt veggfóður en skrifborðið það sama Innréttað á ný fyrir Obama og hermönnum fækkað í vikuspeglum. 10 Dansað í gegn um daginn Dagur í lífi Jóns Péturs Úlfljótssonar, dansara og danskennara 18 Vive la Révolution! Blaðamaður settur skyndilega í embætti Frakklandsforseta. 24 Talar við látna eins og vini sína Tískulöggan Svavar Örn í helgarviðtali. 27 Skólameistari opnar albúmið Lífshlaup Tryggva Gíslasonar í myndum. 28 Litla barnið með harmóníkuna Raxi á hráslagalegum morgni í Moskvu. 32 Álitið mótað Hagsmunaverðir þjálfaðir í Brussel. 40 Íslensk bein í franskri fold Grafa tveggja íslenskra hermanna vitjað í Frakklandi. Lesbók 49 Með viljann að vopni Íslenskar konur í öndvegi á Kjarvalsstöðum. 52 Gagnrýnendur segja Freedom Meistaraverk Ný bók Jonathans Franzens lofuð í hástert. Tvær í takt en sú þriðja út úr kú 34 Augnablikið V andfundið er leikrit sem togar sam- félagið meira sundur og saman í háði og spotti en Hamskiptin í uppfærslu Vest- urports í Þjóðleikhúsinu. Það gildir einu þó að við lokum á ljótleikann í tilverunni, eða bara það sem stingur í stúf eða sker sig úr, það sem við skiljum ekki – það bankar upp á fyrr eða síðar. Kannski er það óhjákvæmilegt að fólk sé alltaf að loka augunum fyrir hinu ljóta í tilverunni. Hvernig ætti fólk að komast í gegnum lífið ef það væri stöðugt að hugsa til allra sem ekki hafa í sig og á – ef fólk væri stöðugt að setja sig í spor þeirra sem líða hungur og bíða hörmungar. Á sama tíma er gerð krafa um að fólk sé ham- ingjusamt og nái árangri. Faðirinn snýr baki við fjölskyldunni og fer út í horn til að telja pen- ingana. Þar sem er lykt af peningum, þar dafnar hégóminn. „Ef hún sæi nú hvernig við búum,“ segir móðir Gregors við sjálfa sig. Og þetta er ofurvenjuleg fjölskylda á yfirborð- inu. „Hér á öllum að vera frjálst að tala bara án um- hugsunar,“ lýsir faðirinn yfir. En ekki segja of mikið samt. „Við verðum að þagga niður í honum. Fólk gæti komist að þessu. Það má bara ekki!“ Sami maðurinn sem talar. Að einhverju leyti gerir lífið þær kröfur til fólks að það gleymi sér í amstri dagsins. Það ræður sjaldnast ferðinni, heldur berst stjórnlaust með straumnum og svamlar í öldurótinu. Á það eru lagðir skattar og skyldur og það berst í bökkum við að ná endum saman. Smám saman þrengist sjóndeildarhringurinn, fólk horfir meira og meira til síns nærumhverfis, lokar augunum fyrir því sem stendur í veginum eða ýtir því í burtu – og það er kallað að fullorðnast. Þá fyrst verður Gréta að ungri „konu“ í leikritinu þegar hún hefur kast- að sakleysinu og fordómaleysinu – sinni barnslegu einfeldni. Það eru forréttindi listarinnar að geta afhjúpað grimman veruleika með því einu að setja sögu á svið, sem rennur að því er virðist áreynslulaust í gegnum skilningarvit áhorfenda, og lætur þá síðan um að vinna úr honum þegar komið er út í harðan veruleikann. Eins og leigjandinn segir beisklega: „Það þarf kjark og þor til að standa af sér það fár- viðri sem örlögin sulla yfir mann.“ pebl@mbl.is Úr uppfærslu Vesturports á Hamskiptunum í Þjóðleikhúsinu. Fárviðri örlaganna HLH-flokkurinn ók í fylgd tveggja vélhjólalögreglumanna um götur Reykjavíkur hinn 20. apríl 1979 til að kynna nýja plötu sína Í góðu lagi. Á plöt- unni er m.a. að finna lögin „Seðill“ og „Riddari götunnar“. Numið var staðar við Há- skólabíó þar sem sýnd var kynningarkvikmynd með tveimur lögum sveitarinnar. Var myndin sýnd sem aukamynd með mynd um Ofurmennið sem var páskamynd Háskólabíós. Myndin var í anda sjötta áratug- arins, bæði hvað varðar tónlist og klæðaburð. Úr myndasafni Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Allt í góðu lagi Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Ernir Eyjólfsson. Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags- moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hugrún Halldórsdóttir, Hólmfríður Gísladóttir, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson. 38 www.noatun.is Nóatúni Nýttu þér nóttina í Verslanir Nóatúns eru opnar allan sólarhringinn

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.