SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Qupperneq 4
4 5. september 2010
Ljósanótt er menningar- og fjöl-
skylduhátíð Reykjanesbæjar sem
haldin er fyrstu helgina í september
ár hvert. Líkt og vanalega er dag-
skráin afar fjölbreytt og á henni að
finna ýmiss konar viðburði eins og
myndlistarsýningar, tónleika og
íþróttaviðburði. Þá eru vinnustofur
hönnuða og listamann opnar en
þeirra á meðal er vinnustofa og sýn-
ingarrýmið Magdalena Sirrý Design, í
Fischershúsi. Þar sýnir Magdalena
Sirrý ýmiskonar textílvörur og hand-
verk auk þess sem handverks- og
listakonan Gegga (Helga Birg-
isdóttir) sýnir verk sín. Magdalena
Sirrý hannar meðal annars fallegar
prjónahúfur, bæði á börn og full-
orðna.
Þá verða einnig opnar vinnustofur
Spiral-hönnunar, Sossu og Línu Rut-
ar, svo aðeins fáeinar séu nefndar.
2.-5. september Ljósanótt í Reykjanesbæ
Prjónahúfur eru meðal þess sem
Magdalena Sirrý hannar.
Í tilefni af LÓKAL, alþjóðlegri
leiklistarhátíð sem nú stendur
yfir í Reykjavík, verður efnt til
pallborðsumræðna um norrænt
samtímaleikhús í Norræna hús-
inu laugardaginn 4. september
kl. 13:00 til 15:00. Hátíðin er
nú haldin í þriðja sinn og að
þessu sinni er lögð sérstök
áhersla á nýjar og spennandi
leiksýningar frá Norðurlönd-
unum. Það er Steinunn Knúts-
dóttir leiklistarkona sem stjórn-
ar umræðum en í þeim taka þátt
Egill Heiðar Pálsson, leikstjóri
sýningarinnar Dværgen (Teater
Får 302/Kaupmannahöfn), Kari
Holtan, leikstjóri Drömmen (De
Utvalgte/Osló) og Jörgen Dahlqvist, dramatúrg og leikhússtjóri Teatr
Weimar í Malmö. Aðgangur er öllum opinn og verður boðið upp á léttar
veitingar í lok dagskrár.
4. september Pallborðsumræður um leiklist
Afturgöngur Ibsens ganga aftur á leiklist-
arhátíðinni Lókal.
Í Algjörum Sveppa og dularfulla hótelherberginu lenda Sveppi, Villi og Gói
í ævintýrum þar sem þeir eru gestir á sveitahóteli á Íslandi. Alltaf ná þeir
að koma sér í klandur en finna sniðugar og skemmtilegar leiðir til að
bjarga málunum.
„Myndin er draugaleg en samt á jákvæðan hátt og ég held að enginn
ætti að verða mjög hræddur við drauginn sem er mjög hress. Það er frek-
ar að krakkarnir verði hræddir við Gullu sem er mjög pirruð kona. Ég eig-
inlega leiddist út í þessa kvikmyndagerð, það stóð ekki til en hentar mér
ágætlega enda finnst mér gaman að bulla í krökkunum,“ segir Sverrir Þór
Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, en hann skrifar hand-
ritið ásamt Braga
Þór Hinrikssyni
ásamt því að leika eitt
aðalahlutverkanna.
Kvikmyndin verður for-
sýnd hinn níunda sept-
ember og þá segir Sveppi
að ætlunin sé að vera
með gala-forsýningu
og reyna að skapa
Hollywood-stemningu
en á staðnum verða margir
karakterar sem krakkarnir ættu
að kannast við, Karíus og Bak-
tus, Lína Langsokkur, Skoppa
og Skrítla og Solla, stirða svo
nokkrir séu nefndir.
9. september Algjör Sveppi snýr aftur
Við mælum með …
Þ
að er ekkert hefðbundið við danshópinn
Muscle And Hate Crew, hvorki nafnið né
verk hans, Waterfalls. Það er byggt á
Svanavatninu en undir leikur íslenska
metalhljómsveitin Momentum. Í hópnum eru hin
bandaríska Elizabeth Ward, hin ítalska Valentina
Desideri og Svíarnir Minna Kiper og Susanna
Leibovici. Verkið verður sýnt á Reykjavík Dance
Festival laugardaginn fjórða september.
Dansandi anarkó-pönkarar
Hópurinn hóf samstarf í Gautaborg árið 2009.
„Ég og Minna höfðum unnið saman í rúm fimm
ár og fórum á þessum tíma að velta fyrir okkur
hvernig við gætum nýtt okkur ballett og frásagn-
arlist. Við hittum Elizabeth og komumst að því að
við höfðum sameiginlega ástríðu fyrir metal-
tónlist, pönki og ballett og síðan bættist Valentina
við hópinn. Þótt óvenjulegt sé að setja metal-
tónlist, pönk og ballett undir einn hatt er viss orka
í öllum þessum hlutum og þeir hafa tengst lífi
okkar í gegnum tíðina. Ég og Elizabeth eigum
okkur bakgrunn í anarkó-pönki en allar höfðum
við lært ballett í bland við nútímadans, líkt og
venjan er í Svíþjóð,“ segir Susanna Leibobici um
tilvist og bakgrunn hópsins.
Verk sem fær að breytast og þróast
Þetta er í fyrsta sinn sem dansararnir sýna Water-
falls allir saman. Valentina fór með sýninguna til
Frakklands og Elizabeth til New York, Los Angeles
og Massachusetts þar sem listamenn á hverjum
stað voru fengnir til að vera með. Þannig hefur
sýningin breyst og þróast þannig að hvorki dans-
ararnir né áhorfendur vita í raun hverju má búast
við. „Í grunninn er verkið byggt á Svanavatninu
sem er saga ástar og mikilla tilfinninga og við höf-
um unnið með það rómantíska tímabil sem verkið
var búið til á. Við höfum líka velt því fyrir okkur
hvort Ísland gæti verið okkar týnda Atlantis. Ann-
ars er verkið unnið út frá sjónarhorni hvers dans-
ara og notast við hljómsveitar- og listamenn í
hverju landi þannig að verkið breytist og þróast
sífellt,“ segir Susanna. Fylgjast má nánar með
danshópnum á vefsíðunni http://water-
fallremix.wordpress.com.
Þungarokkarar og ballerínur
„Það var haft samband við okkur og sagt að þessi
danshópur væri að leita að þungarokkssveit til að
vera með í þessu. Við sögðum já strax án þess að
vita í raun hvað við vorum að fara út í en fannst
þetta of gott tækifæri til að sleppa því. Við spilum
undir hluta verksins en lögin sem við spilum eru
af nýútkominni plötu okkar. Þannig að um er að
ræða samstarf þar sem þær dansa við okkar lög. Ég
sá einmitt vídeó af flutningnum frá Gautaborg og
þar voru þrír listamenn sem komu fram, píanó-
leikari og þungarokks- og pönkband. Ég held að
þetta verði skemmtilegt samstarf,“ segir Hörður
Ólafsson, söngvari og bassaleikari Momentum.
4. september Waterfalls á Reykjavík Dancefestival
Danshópurinn Muscle And Hate Crew er bæði alþjóðlegur og nýstárlegur.
Svanavatnið við
metal-undirleik
Fjórir dansarar sýna verk sitt í fyrsta sinn
saman og vita hvorki þeir né áhorfendur í
raun við hverju má búast.
Metalsveitin Momentum greip tækifærið og leikur
lög af nýrri plötu sinni, Fixation at Rest, á sýningunni.