SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Side 28

SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Side 28
28 5. september 2010 Þ að var hráslagalegt loftið og grátt í Moskvu snemma morg- uns. Við félagarnir Sveinn M. Sveinsson kvikmyndagerð- armaður vorum að bíða eftir flugi heim til Íslands. Við ætl- uðum að finna einhvern stað þar sem hægt var að kaupa sér eitthvað að borða og röltum út á götu, það var allt óætt á hótelinu sem við vorum á, nánast öruggt að drepast úr matareitrun við að borða matinn þar. Við röltum um og skoðuðum það sem fyrir augu bar. Allt í einu, al- gjörlega óvart, vorum við komnir í röð af fólki og áttuðum okkur ekki á því strax að þetta var röð að grafhýsi Leníns. Við nenntum nú ekki að hanga í röð og horfa á steindauðan kall sársvangir. Við ákváðum að fara úr röðinni og til baka. Það var um hálftíma bið eftir því að komast inn. Það skipti engum togum að hermaður með byssu kom að okkur þar sem við ætluðum að yfirgefa röðina og skipaði okkur að fara aftur á sama stað – þetta væri einstefna. Við vorum sammála um það að vera ekkert að æsa hermanninn upp, hann var algerlega svipbrigðalaus. Það hefði ekkert þýtt hvort sem var. Við biðum í röðinni, sem mjakaðist áfram á hraða snigilsins. Fyrir aftan okkur var lágvaxinn amerískur ferðamaður með rússneskan túlk og líf- vörð sér til halds og trausts, greinilega vel stæður með Rolex-úr og hringi á flestum fingrum. Ameríski ferðamaðurinn var í svarthvítum köflóttum buxum og var alltaf að röfla yfir því að ég væri með myndavél á öxlinni, það mætti ekki taka myndir af Lenín í grafhýsinu, og hótaði að segja her- manninum frá því að ég væri með myndavél, við yrðum handteknir ef við færum inn með hana. Maðurinn var sínöldrandi, nánast yfir öllu í umhverfinu. Hann gat nú ekki hitt á meira hrekk hvíslaði að honum grafalvarlegur að ég ín, væri ráðinn til þess af stjórnvöldum „Ussssss segðu engum frá því …“ Honum leist eiginlega ekkert á þetta vildi ekki vera nálægt þessum útsenda inlega var. Hermaðurinn með byssuna kom ask röðina á sama stað. Ég glotti og rétti þu hermanninum og nikkaði til hans. Hann nikkaði til baka og glotti út í a aður,“ sagði ég við karlinn í köflóttu b þú hagar þér svona.“ Nú var karlinum hann var alveg viss um að við værum n vindi og kvartaði og bölvaði við túlkin hlátri, en hélt í sér. Eftir því sem nær dró grafhýsinu svi skipti sem ég leit við blikkaði ég hann Litla barnið með harmonikkuna Sagan bak við myndina Ragnar Axelsson rax@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.