SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Blaðsíða 32

SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Blaðsíða 32
B esta leiðin til að móta stefnu í Brussel sér í vil er að hafa áhrif á almenningsálitið með vel út- færðri almannatenglaherferð. Sú nálgun er árangursríkari en að reyna að hafa bein áhrif á embættismennina. Hún er líka lúmsk. Frægt dæmi er þegar evrópskir hagsmunaaðilar í textíliðn- aðinum settu af stað herferð fyrir rétt- indum barna, í því skyni að koma í veg fyrir innflutning á varningi til sambands- ins frá ríkjum þar sem grunur lék á barnaþrælkun. Hvergi í Evrópu er að finna jafn þétt- riðið hagsmunanet þjóðríkja jafnt sem stórfyrirtækja og í Brussel og áætlar Rinus van Schendelen, höfundur bókarinnar More Machiavelli in Brussels, að þar sinni á þriðja þúsund skrifstofur hags- munagæslu fyrir umbjóðendur hvaðan- æva úr veröldinni, frá Sikiley til Súdans. Enginn viti með vissu hversu margir hagsmunaverðir séu í borginni. Þá séu mun fleiri þrýstihópar með höfuðstöðvar annars staðar. Áætla megi að fjöldi sérfræðinga í um tvö þúsund sérfræðinganefndum á vegum sambandsins sé ríflega 100.000 (þetta er ekki prentvilla) og koma þeir bæði úr einkageiranum og frá hinu opinbera í aðildarríkjunum. Af breskum siðapostulum Áður en lengra er haldið er vert að doka ögn við titil bókarinnar, nánar tiltekið þriðju útgáfu hennar. Eins og kunnugt er að þá er Ítalinn Nic- colò Machiavelli þekktastur fyrir rit sitt Furstinn, einskonar leiðarvísi fyrir ítölsku valdastéttina á endurreisnartím- anum að auknum völdum og áhrifum. Og eins og alkunna er leit Machiavelli svo á að stjórnmál snerust um þaulhugsaðar fléttur í valdatafli þar sem einskis skyldi látið ófreistað. Orðið machiavellískur hefur því orðið að skammaryrði, afstaða sem van Schendelen harmar og kennir breskum siðapostulum á 18. öld um. Telst þessi söguskýring athyglisverð. Þegar Machiavelli stakk niður penna var Ítalía samansafn af furstadæmum og Evrópusambandið ekki til. Má því líta á bók van Schendelen sem Fursta okkar tíma, einskonar leiðsögn um völundarhús Evrópusambandsins. Eins og van Schendelen bendir á er ekki sama hvernig staðið er að verki. Lítum á ráðleggingar hans. Melódían skapar músíkina Van Schendelen segir hagsmunaverði geta unnið fólk á sitt band með fjárframlögum, smjaðri og kurteisi. Hefur hann orðið mútur innan sviga á eftir fyrsta orðinu. Að hans mati mótar laglínan, ekki söngtextinn, tónlistina sem dansað er eft- ir. Því geti hagsmunaverðir unnið málum sínum fylgi með því að breyta orðræð- unni. Með því að tengja fæðuframleiðslu við neyðaraðstoð, svo dæmi sé tekið, megi óbeint slá vopnin úr höndum and- stæðinga aukinna niðurgreiðslna í land- búnaði. Hver vill neita blásnauðum um mat? Með líku lagi megi tryggja stuðning við málaflokka með því að klæða þá í búning háleitra hugsjóna. Jafnframt geti um- kvartanir fyrirtækja í garð samkeppn- isaðila til framkvæmdastjórnar sam- bandsins vakið samúð á réttum stöðum og beintenging persónulegra hagsmuna Machiavelli í Brussel Hollenski stjórnmálafræðiprófessorinn Rinus van Schendelen þjálfar hagsmunaverði í Brussel. Hann hefur einnig skrifað kennslubók um hags- munagæsluna í höfuðið á höfundi Furstans. Baldur Arnarson baldura@mbl.isMinnt á eitt af hlutverkum sam- bandsins í ESB--hverfinu. Tákngervingur sameiginlegs gjaldmiðils við Evrópuþingið. Fánar aðildarríkjanna við Evrópuþingið. Ein fjölmargra bygginga sam- bandsins í stjórnsýsluhverfinu. Fólk á ferð við Evrópuþingið. Van Schendelen er prófessor í stjórnmálafræði við Erasmus-háskóla í Rotterdam en hann er jafnfrant einn stofnenda rannsóknarsetursins European Cent- er for Public Affairs við Oxford-háskóla. Hann er eftirsóttur fyrirlesari og hefur miðlað fyrir- tækjum, verkalýðsfélögum, óháðum samtökum og stjórnvöldum, sveitarstjórnum jafnt sem ríkis- stjórnum, um hvernig þau eigi að bera sig að við hagsmunagæslu í stjórnsýsluhöfuðborginni Brussel. Fram kemur á vefsíðu hans að meðal viðskiptavina séu stórfyrirtækin Shell og Philips og lyfjarisinn Glaxo, auk stjórnvalda í Kína, Finnlandi, Ungverja- landi, Óman og Hollandi. Hann hefur komið að útgáfu nærri 30 bóka og hátt í 200 fræðigreina. Tekið skal fram að van Schendelen er þeirrar hyggju að með víðtækri og vel útfærðri hags- munagæslu geti hagsmunaaðilar stuðlað að auknu lýðræði innan Evrópusambandsins, þá væntanlega með því að tryggja að tekið sé tillit til sem margbreyti- legustu sjónarmiða við stefnumótun hverju sinni. Hagsmunaverðirnir eru hins vegar ekki kosnir í lýð- ræðislegri kosningu, auk þess sem blaðamaður varð ekki var við styttu af Machiavelli í námunda við höfuð- stöðvar ESB er hann var þar á ferð í sumarlok. More Machiavelli in Brussels er hins vegar á áber- andi stað í bókabúðinni handan við Schuman-torgið. Sú greining van Schendelen að hagsmunagæsla aðildarríkja sambandsins sé lítt kannað fræðasvið vekur athygli en sjálfur býður hann upp á lauslegt yfir- lit yfir einkenni í nálgun einstakra ríkja með vísan til þjóðareinkenna hverju sinni. Draga má þá ályktun af lestri bókarinnar að hags- munavörðum fari fjölgandi í Brussel. Rekur van Schendelen þannig hvernig Pólverjar, Tékkar, Slóvakar og Ungverjar hafi verið búnir að setja upp 160 skrifstofur þegar árið 2008. Bendir það til að skrifstofum fjölgi eftir því sem hagsmuna- net nýrra aðildarríkja dreifir úr sér svo ekki sé minnst á fyrirhugaða fjölgun aðildarríkja. Til samanburðar hafði ítalska stjórnkerfið 120 skrifstofur árið 2006. Þjálfar hagsmunaverði Van Schendelen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.