SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Page 33

SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Page 33
embættismanna og tiltekinna fjárveitinga gert embættismennina leiðitamari en ella. Mikilvægi upplýsinga Van Schendelen segir brýnt að afla auk- innar vitneskju um eðli og atferli óvin- arins. Í gegnum þriðja aðila megi afla mikilvægra gagna og upplýsinga. Upplýs- ingasöfnunin skuli fara leynt og þess gætt að ekki sé hægt að rekja slóðina. Forðast beri að vekja eftirtekt enda sé upplýs- ingum aflað með augum og eyrum en aldrei tungunni. Að lokum skuli ávinn- ingi þess að fara að vilja hagsmunavarð- arins haldið á lofti í samskiptum við þá sem málið varða, enda hafi fólk mestan áhuga á að vita hvað það geti sjálft borið úr býtum. Hljóta lesendur að staldra hér við þá samfélagssýn van Schendelens að um tví- tugt sé flestum eðlislægt að beita brögð- um hagsmunavarðarins, svo sem per- sónutöfrum og slægð, til að koma ár sinni fyrir borð en að margir glati þeim eig- inleikum síðar á lífsleiðinni. Hann segir auðveldara að sigla með straumnum en á móti honum. Því tryggi góðir hagsmunaverðir máli sínu meðbyr áður en ýtt er úr vör. Aðeins viðvaningar hefji taflið án leikáætlunar. Fari hins vegar svo að mál njóti ekki til- ætlaðs stuðnings megi reka fleyg í raðir andstæðinganna, líkt og franskir hags- munahópar hafi gert með góðum árangi á Evrópuþinginu um miðjan síðasta áratug í deilu sem varðaði reglugerðir um maís. Margir um hituna Van Schendelen sækir líkingu í dýraríkið er hann segir ekki nógu marga brauðmola fyrir fuglana sem sæki í matarholur sam- bandsins. Því sé baráttan um molana jafnan óvægin. Hann dregur baráttuna saman með þeim orðum að þótt flestir hags- munahópar geti vænst þess að fyrr eða síðar verði málamiðlun samþykkt sem henti hagsmunum þeirra geti færustu sérfræðingar brugðið á það ráð að flækja slóðina í gangverki sambandsins, með þeim árangri að lakari hagsmunaverðir eigi erfitt með að fóta sig í framandi um- hverfinu. Prófessorinn hvetur hagsmunaverði einnig til að hafa góðar gætur á þróun reglugerða, allt frá upphafi, þannig að fyrir liggi hverjir fari fyrir stefnumót- uninni. Þá beri að fylgjast með aðstoð- armönnum þeirra og kortleggja ólíka að- komu þeirra og áhugamál, allt í þágu málstaðarins. Hinir hæfustu lifa af Hann segir að líkt og hæfustu fulltrúar hverrar tegundar í lífríkinu í þróun- arkenningu Darwins lifi bestu og færustu hagsmunaskrifstofurnar af í baráttunni um brauðið í Brussel. Fólk í fram- kvæmdastjórn sambandsins gegni lyk- ilhlutverki í nær öllum reglugerðum. Því kalli hinn mannlegi þáttur á öflun upp- lýsinga í ætt við það sem að framan grein- ir, þar sem yfirsýn er aflað yfir pólitíska afstöðu, menntun og fyrri störf málsaðila. Persónulegt gildismat og áhugamál eru ekki undanskilinn. Öldurhúsin séu hentug leið til að styrkja tengslanetið og nefnir Van Schendelen sérstaklega tvær írskar krár þar sem írskir embættismenn venja komu sínar. Með fylgir ítarlegur listi yfir þá sem ber að vingast við í stjórnkerfinu. Spili með málskilninginn Brussel er borg margra tungumála og hvetur Van Schendelen hagsmunaverði til að velja þau orð af kostgæfni sem mest ber á í málafylgjunni með tilliti til þess hvernig þau verði þýdd á helstu tungu- mál. Einnig geti vísvitandi ögranir í formi rangrar hugtakanotkunar komið and- stæðingnum úr jafnvægi og byrgt honum sýn á ögurstundu. Andstætt því sem margir halda er skrifræðisbáknið í Brussel lítið að um- fangi í samanburði við mörg evrópsk ríki og segir Van Schendelen manneklu í framkvæmdastjórninni fela í sér einstakt tækifæri fyrir hagsmunahópa, enda þurfi stjórnin að reiða sig á utanaðkomandi ráðgjöf. Ekki einskorðað við Brussel Aðferðirnar sem Van Schendelen nefnir til sögunnar eru ekki einskorðaðar við stjórnsýsluhverfið í Brussel. Handan Atlantshafsins er að finna þús- undir hagsmunavarða í Washington og fara hagsmunir þeirra og almennings ekki alltaf saman. Þegar olían tók að leka í Mexíkóflóa og ráðamenn stóðu ráðþrota fengu hags- munaverðir beggja vegna borðsins, olíu- félagamegin og í umhverfisgeiranum, óvænt uppgrip. Almannatenglar keppinauta olíurisans BP hafa einnig haft í nógu að snúast, svo sem sjá má á auglýsingaskiltum á flug- vellinum í Brussel. Eins dauði er annars brauð. Það ber einnig að hafa í huga að í mannhafinu er að finna einstaklinga sem eru knúnir áfram af raunverulegum hug- sjónum og embættismenn sem bera al- mannahagsmuni einlæglega fyrir brjósti. Það er hins vegar hætt við að þeir hinir sömu lendi fyrr eða síðar í þeirri stöðu að vera óafvitandi þátttakendur í sviðsettri atburðarás lærisveina Machiavellis. Það er að minnsta kosti skoðun van Schendelens að síharðnandi hagsmuna- barátta í Brussel kalli á stöðugt færari hagsmunaverði. Stórfyrirtæki eiga mikið undir reglugerðum sambandsins. Við innganginn að Evrópuþinginu. Sporvagn á ferð í einu úthverfa borgarinnar. Morgunblaðið/Baldur Arnarson Við höfuðstöðvar sambandsins í Brussel. Van Schendelen sækir líkingamál í knattspyrnuna er hann segir þá bestu skipa sér í úrvalsdeild hags- munavarða. Þar fari fólk sem láti lítið á sér bera og kanni sviðið til hlítar áður en látið er til skarar skríða. Hann lýkur lofsorði á Frakka fyrir að koma sér upp greinagóðu skjalasafni um allt það sem varðar hags- munabaráttu þeirra í Brussel. Aðgengilegar upplýs- ingar um fyrri orrustur nýtist vel á vígvellinum. Eftir að hafa fylgst lengi með hagsmunahópum kemst hann að þeirri niðurstöðu að flestir starfi við- vaningslega og að hrokinn sé veikleiki margra. Hann segir góðan undirbúning skilja á milli þeirra sem ná árangri og þeirra sem fari halloka og nefnir hvernig flugfélögunum Lufthansa og Air France hafi tekist að verja flugstæði sín með því að virkja réttu embættismennina, áður en keppinautar á borð við Virgin og Lauda Air tóku að krefja sambandið um endurúthlutun stæðanna. Van Schendelen mælir með samskiptum við blaða- menn, enda séu þeir í góðu sambandi við áhrifamenn innan sambandsins og geti því reynst gagnleg náma upplýsinga þegar á reynir. Hann varar við því að fara of geyst í þrýstingi á em- bættismenn og bendir á að með því að halda til- teknum sjónarmiðum ítrekað á lofti geti það orðið til að fæla viðtakendur frá málstaðnum. Áreitið er mikið. Hann segir Alman Metten, hollenskan sósíalista á Evrópuþinginu, hafa fengið hátt í 150 bréf frá hags- munavörðum á þriggja mánaða tímabili árið 1991. Ekki er hægt að skilja við Machiavelli án þess að geta þess hvaða umsögn hann fær í Íslensku alfræði- orðabókinni. Segir þar að Machiavelli dragi í bók sinni Furstinn upp mynd af stjórnmálalífi endurreisnar- tímans og lýsi þeim brögðum sem fursti þurfi að beita til að ná völdum og tryggja þau. „Hann segir einnig að almenn siðferðislögmál nái ekki til stjórnmála heldur megi valdhafar beita öllum tiltækum ráðum til að gæta hagsmuna ríkisins (machiavellismi). Nafn Machiavelli er jafnan tengt klækjum og samviskuleysi í stjórnmálum …“ Láti lítið á sér bera Bókin góða. Machiavelli.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.