SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Page 36

SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Page 36
36 5. september 2010 F yrsta keppnin í samhæfðu sjósundi á Íslandi var haldin í Nauthólsvík nýverið en það var skemmtinefnd Sjósunds- og sjóbaðsfélags Reykjavíkur sem stóð fyrir keppninni. Sjósund hefur synt hratt upp á við í vinsældum síðustu ár en þarna birtist alveg ný nálgun á íþróttina. „Við fengum þessa hugmynd og ákváðum bara að kýla á þetta,“ segir Ragnheiður Valgarðsdóttir, einn skipuleggjenda keppn- innar, um hvernig þetta kom til. Alls tóku sex lið þátt í keppninni en það var liðið Bleikir fílar sem bar sigur úr býtum, skipað foringjum úr sumarbúðunum Vindáshlíð. Ragnheiður lét sér ekki nægja að skipuleggja og horfa á heldur tók þátt með þriggja manna liðinu Haf Haf. Hugmyndavinna í pottinum Hugmyndin kom upp í pottinum í Nauthólsvíkinni, en Ragnheiður hefur sjálf stundað sjósund í tvö ár og fannst samhæft sjósund geta verið skemmtileg nýjung. „Þetta er svo tignarlegt og minnir jafnvel á hafmeyjur,“ segir hún en gamanið var þó ekki langt undan. „Við vorum með splatter-atriði við lag úr Kill Bill,“ segir hún en tvær þeirra voru alltaf í takt en sú þriðja út úr kú. Haf Haf fékk verðlaun fyrir óvæntustu uppákomuna enda lauk atriðinu með „morði“ á ósamhæfðu sundkonunni. Hún er viss um að keppni í samræmdu sjósundi verði haldin á næsta ári því stemningin hafi verið góð og keppnin lukkast í alla staði. Bráðavaktin í sundi Sólveig Birna Jósefsdóttir, kölluð Birna, var ein níu manna liðsins Ídívanna, sem er allt skipað starfsfólki á Landspítalanum. „Í liðinu eru hjúkrunarfræðingar, sjúkraliði, lögfræðingar, viðskiptafræðingur og hag- fræðingur. Við hjúkrunarfræðingarnir erum á bráða- sviði,“ segir Birna þannig að hægt er að ímynda sér að liðsfélagarnir geti verið nokkuð öruggir með sig í sjón- um í kringum þær stöllur. „Við syndum alltaf á hverjum mánudegi, hlaupum fyrst og förum svo í sjóinn og erum búnar að gera þetta í allan vetur,“ segir Birna. Eins og fleiri góðar hugmyndir kom hugmyndin að samhæfðu sjósundsatriði Ídívanna upp í pottinum í Nauthólsvíkinni. „Við sáum auglýsinguna og fannst til- valið að prófa eitthvað nýtt. Þá hófust æfingar og skipu- lagning. Þetta þróaðist allt í spjalli í pottinum eftir sjó- sundið,“ segir hún en atriðið gekk út á að gera „góðlátlegt grín að dívum“ og var lagið „Stanslaust stuð“ með Páli Óskari spilað undir. „Það var virkilega skemmtileg stemning á staðnum og líka nokkra daga á undan,“ segir Birna sem er ánægð með framtakið. Verðlaunin fyrir annað sætið voru innrammaður silf- urfiskur en gullverðlaunahafarnir fengu lifandi gullfisk í búri. En hvað skyldi sjósundið gera fyrir Birnu og félaga? „Við höldum að sjósundið geri okkur andlega og lík- amlega hraustari og hressari og svo er þetta líka fé- lagslegt.“ Þær eru ekki hættar í samhæfða sjósundinu. „Við er- um strax farnar að skipuleggja atriðið fyrir keppnina á næsta ári!“ Siglingamálastofnun fylgdist með Önnur lið voru Fljótandi fegurð (garpar úr Breiðabliki), sem lenti í þriðja sæti, Himneskar bólur, en liðið fékk verðlaun fyrir búninga – liðsfélagar voru í nunnubún- ingum – og þriggja manna fjölskylduliðið Sjóselirnir, en í því var stúlka sem var valin bjartasta vonin. Dómnefndina skipuðu starfsmenn Nauthólsvíkur, Hafdís Hrund Gísladóttir og Óskar Hálfdánarson, auk yfirdómarans, Guðmundar Guðmundssonar, gæðastjóra Siglingamálastofnunar Íslands. Fljótandi fegurð, blandað lið sundgarpa úr Breiðabliki, lenti í þriðja sæti. Þríeykið í dómnefndinni, Óskar, Hafdís Hrund og Guðmundur, lá ekki á skoðunum sínum. Landspítalaliðið Ídívurnar lenti í þriðjia sæti. Birna er þessi dökk- hærða í miðri röð- inni.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.