SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Page 47

SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Page 47
5. september 2010 47 LÁRÉTT 1. Svari í seinni hluta febr. fyrir atvinnugrein. (6) 4. Skoti hendið í veslinginn. (8) 8. Rám kól einu sinni í stofnun. (7) 9. Spé missir aðeins í endursögn Gunnars Illuga og skopútgáfu hans. (10) 11. Klukka í strigapoka kámi. (7) 12. Aumingi drepur vesæla önd. (10) 13. Stari ruglaður vegna óps hjá manni með sér- stakt starfsheiti. (6) 14. Heldur ágengar. (6) 16. Aðalvatnsból er á mörkum jarðar. (7) 18. Ef lasinn nú þá er það einhvers konar kvefpest- in. (10) 20. Hvílum ruglaðan gaur á örvæntingu. (8) 22. Fjöldi andi inn og renni saman í djöflinum. (8) 24. Dýraríki afhjúpi mann með hlutverk. (8) 27. Þolin með baktali nær að þrjóskast. (8) 28. Alltaf geymir fyrir vinnu. (8) 29. Með Hjalta nær að rista flan á myndverkinu. (13) 30. Ó, minni má gefa algleymi. (6) 32. Sjá ekki á eftir mataríláti á tímabili. (9) LÓÐRÉTT 1. Bless, vitsmunaskortur í þýskri mállýsku. (9) 2. Haf þúsunds í Los Angeles er mælt með lengd- armálseiningu. (7) 3. Kippti í fés að sögn í uppgjöri. (8) 5. Drepur út á götu. (5) 6. Lögregla hitti kú í 75% eigu stjórnmálamanns. (9) 7. Þar mitt liggur ein sól hjá bandi. (8) 10. Náðin liggur í suður-norður hjá drengnum. (7) 11. Kona fær næstum ugg út af baði. (7) 14. Fjandi fær kú til að snúa sér bálreiða. (8) 15. Gnístir Númi einhvern veginn á tímabili. (11) 17. Ó, svíf ennþá drengur þótt þú sért frekari. (9) 19. Viðurnefni þess sem drap mótorhjólasamtök? (10) 20. Fær hafra í bendi frá nothæfum á sjó (8) 21. Það kemur fyrir að Landhelgisgæslan sýni var- kárnina. (8) 23. Bauja sem drengur fær fyrir að vera daðrari. (7) 25. Það er ennþá til efs að rótt sé hjá því sem er vel- vaxinn líkamshluti. (8) 26. Sé ljóð fyrir slöngu sem ytra snið ljóðs. (8) 31. Glæpur með umsögn. (4) Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátt- tökuseðilinn ásamt úrlausninni í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 5. sept- ember rennur út fimmtudaginn 9. september. Nafn vinningshafans birtist í blaðinu 12. september. Heppinn þátttak- andi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi krossgát- unnar 29. ágúst er Erla Ásmundsdóttir. Hún hlýtur í verðlaun bókina Aðþrengd í Odessu eftir Janet Skeslien Charles. JPV gefur út. Krossgátuverðlaun Ekki er neinum blöðum um það að fletta að frændur okkar Norðmenn standa nú fremstir Norðurlandaþjóðanna á skák- sviðinu, þökk sé Magnúsi Carl- sen sem á nýbirtum stigalista FIDE trónir langefstur með 2.826 elo-stig. Í 2. sæti er Venselin Topalov með 2.803 elo-stig og sá þriðji er heimsmeistarinn An- and með 2.800 elo-stig. Stiga- listinn er birtur ársfjórðungs- lega. Allt er það gott og blessað og enn spyrja menn hvort stigin gefi eðlilega mynd af styrkleika manna og hvort sá geigvænlegi munur sem er á toppskákmönn- unum og ýmsum öðrum sé endilega „réttur“. Af einhverjum ástæðum rifj- uðust upp fyrir manni þeir ótví- ræðu yfirburðir sem Kasparov hafði yfir kynslóð núverandi heimsmeistara þegar aðalstyrkt- araðili Magnúsar, norski fjár- festingabankinn Arcitc sec- urities, hélt fjögurra manna atskákmót í bænum Kristian- sund í Noregi á dögunum með þátttöku Anands, Magnúsar Carlsen, Juditar Polgar og nýj- asta liðsmanns Taflfélags Vest- mannaeyja, Jons Ludvigs Hammers. Þar fóru úrslitin flest eftir bókinni; Anand tók að sér að vinna undanrásirnar, hlaut fimm vinninga af sex mögu- legum, Magnús kom næstur með 3½ vinning, Hammer í 3. sæti með 2 vinninga og Judit Polgar hlaut 1½ vinning. Svo tefldu Anand og Magnús tveggja skáka einvígi um 1. verðlaun en þá snerist dæmið við, Magnús vann 1½:½. Svo er það taflmennskan: Hún var oft furðu slök og maður hlýtur að draga þá ályktun að þegar Kasparov hætti keppni fyrir fimm árum hafi síðasti skákrisinn gengið í björg. Hammer – Anand Þótt tímafyrirkomulagið, 20- 10, sé afar krefjandi þá hefði Kasparov aldrei misst af leik á borð við 29. … De6! sem vinnur strax, 30. Hxe2 strandar á 30. … Hd1+ og 31. … Hh1 mát. Anand hirti peðið, 29. … Dxa2?? og vann eftir nokkur mistök til viðbótar. Sjá stöðumynd 2 Carlsen – Hammer Í þessari skák vann hvítur peð upp úr byrjuninni og úrvinnslan hefði ekki átt að vefjast fyrir stigahæsta skákmanni heims. Það fór á annan veg. Í þessari stöðu voru báðir í tímahraki og Magnús lék 39. Hd2??. Nú átti Hammer 39. … Hc1+ sem vinnur. En hann lék umsvifalaust 39. … Hhxd2?? og tapaði eftir 73 leiki. Þegar út í úrslitakeppnina var komið tókst Magnúsi loks að sýna klærnar og vann sannfær- andi sigur. Anand reyndi ekki að vinna seinni skákina og bauð jafntefli eftir 28 leiki. Það hefði Kasparov aldrei gert: Fyrsta einvígisskák: Magnús Carlsen – Wisvana- than Anand Grunfelds – vörn 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rf3 Bg7 4. g3 0-0 5. Bg2 c6 6. 0-0 d5 7. Rbd2 Bf5 8. b3 Re4 9. Bb2 Ra6!? 10. Rh4 Rxd2 11. Dxd2 Be6 12. Hac1 Dd7 13. Rf3 Hfd8 14. Hfd1 Rc7 15. Da5 Re8 16. e3 Bg4 17. Hd2 Bxf3 18. Bxf3 e6 19. Hdc2 Rd6 20. a4 f5 21. De1 a5 22. Bc3 dxc4 23. Bxa5 cxb3 24. Hb2 Hdc8 25. Hxb3 Bf8 26. Hcb1 Ha7 27. Kg2 Rc4 28. Bb4 Bxb4 29. Hxb4 Rd6 30. Dc3 Hca8 31. Dc2 Ha6 32. h4 h5 33. e4 H8a7 34. exf5 Rxf5 35. He1 Ha5 36. Db3 Kf7 37. He4 Re738. Dc2 Rd5 39. Hc4 Ha8 40. He5 Re7 41. Bxh5 Hxe5 42. dxe5 Dd5+ 43. Bf3 Dxe5 44. He4 Dd6 45. h5 Hf8 46. Db2 b5 47. axb5 cxb5 48. Dxb5 Rf5 49. Db7+ Kf6 50. Dh7 gxh5 51. Bxh5 Dd5 52. Bf3 Dd2 53. g4 Rg7 54. g5+ – og Anand gafst upp. Helgi Ólafsson helol@simnet.is Magnús Carlsen lagði Anand að velli Skák Nafn Heimilisfang Póstfang

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.