SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Side 52

SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Side 52
52 5. september 2010 Jonathan Franzen er umdeildur og dáður. F áar bækur hafa vakið eins mikla eftirvæntingu undanfarin ár og Freedom, ný skáldsaga Jonathans Franzens sem kom út sl. þriðjudag. Löngu áður en bókin kom út byrjuðu að birtast um hana lof- samlegar umsagnir og Franzen komst á forsíðu fréttatímaritsins Time, en það er fáheyrt að rithöfundur komist þangað. Meira að segja New York Times, sem hefur haft horn í síðu Franzens, kallaði bókina meistaraverk, dæmdi hana reyndar tvisvar á einni viku, og óhætt að gera því skóna að Franzen eigi eftir að velta James Patterson úr efsta sæti metsölulistans, þótt það verði kannski ekki nema um stundarsakir. (Á Amazon náði Freedom að velta unglingabókinni Mockingjay í annað sætið á fimmtu- dagskvöld.) Franzen er á sextugsaldri, fæddur í Chicago, en ólst upp í úthverfi St. Louis og býr nú í New York. Hann sendi fyrstu bókina frá sér 1988, The Twenty- Seventh City, og gerist í St. Louis þar sem indversk kona tekur við sem lög- reglustjóri í borginni og tekur að glíma við glæpamenn og eins við ýmsa borg- arbúa sem setja spurningarmerki við aðferðir hennar. Fjórum árum síðar kom út bókin Strong Motion, sem fléttar saman frá- sögn af skjálftavirkni á vesturströnd Bandaríkjanna og sögu af fjölskyldu í kreppu. Franzen sló síðan í gegn með The Corrections, sem kom út 2001. Hún fékk frábæra krítík og fjölda verðlauna, meðal annars National Book-verðlaunin og James Tait Black-minningarverð- launin, aukinheldur sem hún var til- nefnd til Pulitzer-verðlaunanna. The Corrections seldist mjög vel, ekki síst eftir að sjónvarpskonan Oprah Winfrey valdi hana í bókaklúbb sinn sem þá var gríðarlega vinsæll og áhrifa- mikill. Í fyrstu tók Franzen valinu vel og mætti í mikið viðtal til Oprah, en síðan runnu á hann tvær grímur og um haustið birtist grein eftir hann þar sem hann lýsti áhyggjum sínum af valinu. Í greininni segist hann óttast að það að Oprah hafi valið bókina geri að verkum að menn telji hana vera bók sem sér- staklega sé ætluð konum, enda hafi það gerst hvað eftir annað eftir valið og við- talið að karlkyns lesendur hafi sagt honum að þeir hafi lesið bókina þrátt fyrir það að hún væri skrifuð fyrir kon- ur. Þessi grein fór heldur illa í Oprah og boð til Franzens um að koma aftur í viðtal var afturkallað. Mikið umtal spannst af þessu og flestra mat að það hafi ýtt verulega undir sölu á bókinni og gerði The Corrections að einu mest selda skáldverki síðasta áratugar vestan hafs í flokki fagurbókmennta. Eftir því var og tekið að þegar Franzen tók við National Book-verðlaununum þakkaði hann Oprah sérstaklega fyrir þá athygli sem hún sýndi bókinni. Næstu bækur Franzens voru rit- gerðasöfn og minningabók, fyrst How to Be Alone, sem kom út 2002 og fjallar meðal annars um bækur og bóklestur. Meðal ritgerðanna er einig fræg og um- deild grein Franzens úr tímaritinu Har- pers frá 1996, hét þar „Perchance to Dream“, en „Why Bother?“ í safninu, þar sem hann fjallar á mjög gagnrýninn hátt um bókmenntir þess tíma. The Discomfort Zone kom svo út 2006 og var eins konar minningabók þar sem Franzen veltir fyrir sér æskunni og því hvernig uppeldi og menningar- umhverfi æsku hans hefur mótað hann sem rithöfund. Alla jafna tóku menn þessum bókum vel, nema að aðal- gagnrýnandi New York Times, Michiko Kakutani, fór svo hörðum orðum um bókina og höfund hennar að eftir því var tekið – hún sagði meðal annars að bókin drægi upp ógeðfellda mynd af sjálfsánægðum, þráhyggjukenndum, sjálfbirgingslegum og sjálfselskum kjána. Getur nærri að þessi harkalegi dómur hafi aukið vægi umsagnar Kakutani um Freedom þar sem hún lofar bókina, og höfund hennar, í hástert. Fran- zen- æði Sjaldan hefur bók verið eins lofuð áður en hún kom út og ný skáldsaga Jonathans Franzens, Freedom, sem margir segja bestu skáldsögu áratugarins. Árni Matthíasson arnim@mbl.is F yrir stuttu dró ég fram safnplötu með bresku ska-sveitinni Mad- ness en hún var áberandi árin ’79 til ’82 og dældi hún út slög- urum með jöfnu millibili í heimalandinu Bretlandi. Ég var fimm ára þegar brast á með Madness-æði og það var hátíð þegar eitt af hennar galgopalegu myndböndum var sýnt í sjónvarpinu. Hlustandi á þetta rúmum 30 árum síðar greindi ég þó að það hékk meira á spýtunni en einskær fíflalæti. Og þá vil ég sérstaklega tiltaka tvö lög, „Grey Day“ og „Cardiac Arrest“ þar sem hryggð hins sorgmædda trúðs Pagliacci er umbreytt í þriggja mínútna popplög. Madness var uppi á þeim tíma er Tatc- her-tíminn svokallaði gekk í garð, með tilheyrandi lokunum verksmiðja og al- mennri grámósku. Samtíðarsveit Mad- ness, The Specials, brást við með dumb- ungslegu listasmíðinni „Ghost Town“ en síamstvíburi þess lags hlýtur að vera Grey Day, þar sem ömurðin er naglfest með línum á borð við: „In the morning I awake/My arms my legs my body aches/The sky outside is wet and grey/ So begins anot- her weary day.“ Í laginu er engin von! Eilífar endurtekningar Nietzsche og Kierkegaard koma óhjá- kvæmilega upp í hugann þó að óvíst sé að höfundarnir hafi haft þessa meistara í huga. Eða hvað? Í „Cardiac Arrest“ fylgj- umst við svo með skrifstofumanni sem er yfirbugaður af stressi. Hann rekur raunir sínar í versunum en í viðlaginu stappa Madness-liðar í hann stálinu og segja honum að slappa af. Allt kemur fyrir ekki og endirinn er sorglegur. En meðlimir sýna okkur fordæmi með því að vera ekki meðvirkir en sú sýki leggst á fólk í dag af miklum krafti: „We thought we made it clear/We all voiced our inner fears/We left it up to you/There’s nothing we can do.“ Í alþýðu- og dægurtónlist gefst mönn- um jafnan færi á að tjá upplifun sína af umhverfinu beint og milliliðalaust, á tungutaki sem fólk skilur og getur sam- samað sig við. Og þegar rýnt er í sprelli- gosasveit eins og Madness sést skýrt að hún stóð fyrir annað og meira en ábyrgð- arlausan bjánaskap. Á þessum tíma var hún sem spegill á samtímann, hitti landa sína í hjartastað með glúrnum at- hugasemdum um vandamál hins daglega lífs og smurðu um leið á sárin með fölskvalausri, lífsfyllandi gleði. Er því ekki lag fyrir hina íslensku Madness að stíga fram, nú á þessum viðsjárverðu tímum? Tár trúðsins Orðanna hljóðan Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is ’ Eilífar end- urtekn- ingar Nietzsche og Kierkegaard koma óhjá- kvæmilega upp í hugann þó að óvíst sé að höf- undarnir hafi haft þessa meistara í huga. Lesbók Þótt gagnrýnendur séu almennt í skýj- unum yfir Freedom hafa þó ekki allir tekið bókinni vel, eða réttara sagt tekið umfjöllun um hana vel. Mikla athygli vakti þegar rithöfundarnir Jodi Picoult og Jennifer Weiner létu hnúturnar fljúga. Picoult reið á vaðið með því að tísta um að New York Times hefði farið á líming- unum yfir nýju Franzen-bókinni: „Er einhver hissa? Mikið væri gaman ef NYT myndi falla í stafi af hrifningu yfir rithöf- undi sem ekki er hvítur karlmaður og eftirlæti bókabéusa.“ Weiner tísti í sama streng og í kjölfarið spunnust miklar umtræður um það hvort og þá hvernig blaðið gerði upp á milli karla og kvenna; tölfræðin sýnir að karl- ar fá frekar umsagnir um bækur sínar og eins að oftar eru skrifaðar um þá sér- stakar greinar og tekin viðtöl. (Í slíkri greiningu er ekki lagt mat á hugsanleg gæði bókanna sem fjallað er um en rétt að geta þess að þeir karlar sem skrifa spennu- og glæpasögur fá frekar um- fjöllun en konur sem skrifa álíka bækur.) Sumir hafa svo rakið óánægju þeirra Picoult og Weiner til þess er Franzen móðgaði Oprah og kvenlesendur sína al- mennt, eins og greint er frá hér fyrir of- an, og víst að Weiner hefur lýst því yfir á bloggi sínu að hún muni ekki lesa Free- dom þar sem Franzen vilji greinilega ekki að konur lesi bækur sínar. Picoult leggur þó áherslu á það að hún sé ekki að líkja sér við Franzen og alls ekki að gera lítið úr bókinni – hún sé einfaldlega að benda á staðreynd sem fáir virðist láta sig skipta. Deilt um viðtökur Af hvítum körlum

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.