SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Side 54

SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Side 54
54 5. september 2010 L ykillinn að góðri glæpa- sögu felst gjarnan í markvissri uppbygg- ingu, söguþræði sem heldur lesandanum við efnið, baráttu yfirvalda við sakamann- inn eða sakamennina og sigri hins góða á hinu illa. Réttlætið sigrar og glæpamenn fá makleg málagjöld. Glæpir eftir Þjóðverj- ann Ferdinand von Schirach er ekki venjuleg glæpasaga, eins og lesendur þekkja úr þeim bálki bókmenntanna, heldur er um frásagnir að ræða af óvenju- legum afbrotum og glæpum, sem höfundur hefur kynnst í starfi sínu sem lögfræðingur, refsingum, sem fljótt á litið virð- ast ekki vera í nokkru samhengi við eðli brotanna, og örlögum viðkomandi. Bókin samanstendur af 11 sönnum en mismunandi af- brotasögum úr raunveruleik- anum sjálfum en áður en að sög- unum kemur er vísbending um það sem koma skal og vitnað í Werner K. Heisenberg: „Þegar öllu er á botninn hvolft er raun- veruleikinn aldrei raunveruleik- inn sem um ræðir.“ Sögurnar eru hver með sínu sniði en þær eiga það sameig- inlegt að vera átakanlegar og rista djúpt. Þótt afbrotin og glæpirnir virðist vera harðsvíruð býr meira að baki en afbrotið sem slíkt og í sumum tilfellum er ekki annað hægt en hafa samúð með brotamanninum vegna þess sem hann hefur mátt þola. Það á til dæmis við um frásögnina af þýska lækninum Friedhelm Fä- hner, sem mátti búa við andlega kúgun á heimili sínu í nær hálfa öld áður en hann lét til skarar skríða. „Fyrsta höggið rauf höf- uðkúpuna og var banahögg. Öx- in braut sér áfram leið og keyrði beinflísar langt inn í heilann, ax- arblaðið klauf andlit Ingiríðar í tvennt. Hún dó samstundis. Fä- hner barðist síðan við að losa öx- ina úr höfði hennar og steig um leið öðrum fætinum á háls konu sinnar. Það þurfti tvö kröftug axarhögg til viðbótar til þess að skilja höfuðið frá bolnum. Rétt- arlæknirinn lét þess getið að Fä- hner hefði höggvið sautján sinn- um enn, fyrr hefði honum ekki tekist að skilja handleggi og fæt- ur frá búknum.“ Svo sannarlega krassandi frá- sögn og í flestum saka- málasögum hefði gerandinn varla sloppið með vægari refs- ingu en lífstíðarfangelsi og jafn- vel dauðadóm, en raunveruleik- inn er stundum ótrúlegri en raunveruleikinn sjálfur sem um ræðir. Það er sama hvar borið er nið- ur; ákveðinn sjarmi er yfir hverri sögu. Frásögnin af Eþíóp- íumanninum sýnir til dæmis óréttlæti heimsins í hnotskurn en lýsir um leið óbilandi þraut- seigju, góðmennsku, kærleika og ást. Sögurnar eru vel skrifaðar og halda lesandanum vel við efnið. Þær eru stuttar og þess eðlis að gera má því skóna að lesendur láti sér ekki nægja að lesa eina sögu í einu heldur haldi áfram með þá næstu og svo koll af kolli þar til yfir lýkur. Það eru ekki slæm meðmæli. Óvenjulegir glæpir og brotamenn njóta samúðar Bækur Glæpir bbbmn Sannar afbrotasögur Eftir Ferdinand von Schirach. Bjarni Jónsson íslenskaði. Bjartur 2010. Þýski lögfræðingurinn Ferdinand von Schirach. Steinþór Guðbjartsson Lesbók Þjóð verður til lykilgripur fyrstu alda Íslands- byggðar á sýningunni, en þá var heiðinn tími á Íslandi. Það er lítið mannslíkan úr bronsi frá um 1000, sem er talið sýna Þór, guð norrænna manna í heiðnum sið, en er hugsanlega Kristsmynd. Líkneskið heldur báðum höndum um Þórshamar eða kristinn kross. Lykilgripur tímabilsins eftir kristnitöku árið 1000, tíma frumkristni á Íslandi, er fagurlega útskorin róða eða Kristslíkneski af krossi, Upsa- kristur. Myndin er skorin úr íslensku birki í rómönskum stíl, talið frá því um 1200. Hún hefur verið máluð og sjást enn leifar af upphaflegum litum ef vel er skoðað. Hin þekkta Valþjófsstað- arhurð er lykilgripur tímabils- ins 1200-1400, tíma kaþólsku miðaldakirkjunnar. Hin stór- brotna kirkjuhurð, frá Val- þjófsstað í Fljótshlíð, er með fögrum útskurði í rómönskum stíl, og talin skorin út á Ís- landi. Kenningar eru um að hurðin hafi upphaflega verið um þriðjungi hærri, og á henni er silfursleginn járnhringur með innlögðu mynstri. Guðbrandsbiblía er lyk- ilgripur tímabilsins 1400-1600, tíma breytinga og siðaskipta á Íslandi. Prentlistin barst snemma til Íslands og nánast frá upphafi var flest prentað á H inn 1. september voru liðin sex ár frá því að Þjóð- minjasafn Íslands var opnað á ný eftir viðamikl- ar endurbætur. Þegar Þjóð- minjasafnið var stofnað fyrir um 150 árum vó það þungt í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Safninu var ætlað að efla sjálfsvitund Íslendinga. Spurt var: „Hver erum við og hvað- an komum við? Hvert viljum við stefna? Enn spyrjum við sömu spurninga. Á sýningum Þjóðminjasafnsins gefst tæki- færi til að hugsa, læra og end- urmeta. Á grunnsýningu þess „Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár“ er menn- ingarsaga Íslands rakin á tveimur hæðum safnhússins. Á sýningunni gefst gestum kost- ur á að kynnast fólkinu sem byggt hefur Ísland til þessa dags. Gripir safnsins eru settir í sögulegt samhengi, en hver gripur endurspeglar atburði og líf kvenna, karla og barna. Á sýningunni er safngestum boðið í ferðalag í gegnum ald- irnar, sem hefst í knerri land- námsmanns sem sigldi yfir op- ið haf til nýrra heima og lýkur ferðalaginu í flughöfn nú- tímans. Hvert tímabil Íslands- sögunnar er auðkennt með sérstökum lykilgrip, merkum safngrip, sem um leið verður nokkurs konar varða í gegnum sýninguna. Lítum nánar á þessar þjóðminjar í tímaröð. Þórslíkneskið er okkar þekktasti forngripur en það er Þórslíkneski sem er meðal lykilgripa fyrstu alda Íslandsbyggðar. ’ Á sýningunni er safngestum boðið í ferðalag í gegnum aldirnar, sem hefst í knerri landnámsmanns, sem sigldi yfir opið haf til nýrra heima, og lýkur ferðalaginu í flughöfn nútímans. íslensku. Guðbrandur biskup Þorláksson lét fyrstur prenta biblíu á Hólum 1584, sem þyk- ir enn eitt fegursta prent á ís- lensku. Lykilgripur tímabilsins 1600-1800, þegar Íslandi var orðið hluti af Danmörku, er fagurlega útskorið drykkjar- horn lögréttumanns þess tíma. Drykkjarhornið er verk hins haga myndskera Brynjólfs Jónssonar bónda í Skarði í Landsveit, sem telst til fyrstu íslensku myndlistarmanna sem með verkum sínum hafa orðið þjóðkunnir. Hin útskornu ís- lensku drykkjarhorn eru ein- stakir listgripir í alþjóðlegu samhengi og eru fá slík varð- veitt. Táknrænn fyrir 19. öldina er fagur skautbúningur, sem hannaður var af Sigurði Guð- mundssyni málara. Hann hafði mikinn hug á öllu því sem laut að íslenskri þjóðmenningu og var einn af frumkvöðlum að stofnun Þjóðminjasafnsins. Þegar kemur að 20. öld- inni, tíma breytinga og sjálf- stæðisbaráttu, er lykilgripur sýninginnar hvítbláinn, fáni sem skipherra á dönsku her- skipi gerði upptækan við Reykjavíkurhöfn 1913. Um 1900 vildu margir Íslendingar eignast þjóðfána og árið 1915 fengu Íslendingar eigin fána, en þá var rauður kross lagður inn í hvíta krossinn. Á ferðalagi í gegnum Ís- landssöguna varða lykilgripir grunnsýningar Þjóðminja- safnsins leiðina. Þessir ein- stöku safngripir eru dæmi um þann menningararf, sem varð- veittur er í Þjóðminjasafni Ís- lands. Allir eru þeir til vitnis um samfélagsskipan, samskipti við umheiminn, hagleik, feg- urðarskyn og menningu þjóð- arinnar. Á sýningunni má upplifa atburði og litríka sögu í 1200 ár á Íslandi, sögu sem um leið er samofin sögu ná- grannalanda okkar og um- heimsins. Nú þegar haustar færist daglegt líf í fastar skorður. Þá fer vel á því að staldra við og njóta þess að heimsækja söfnin í nágrenninu, kynnast menn- ingararfi okkar og velta fyrir okkur spurningunni hver við erum og hvert við viljum stefna. Hver á sinn hátt, á eig- in forsendum. Það hefur sjald- an átt betur við en nú.Þankar um þjóðminjar Margrét Hallgrímsdóttir margret@thjodminjasafn.is Höfundur er þjóðminjavörður og formaður safnaráðs. Sjá nánar á www.thjodminjasafn.is.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.