Morgunblaðið - 20.01.2010, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 20.01.2010, Blaðsíða 35
Menning 35FÓLK MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2010 Í SUMAR barst sú frétt að leik- ararnir Jennifer Aniston og Gerard Butler væru að draga sig saman þeg- ar þau léku saman í myndinni Bounty Hunter. Þau þvertóku bæði fyrir það og ekkert hefur sést til þeirra saman á undanförnum mánuðum þar til á sunnudagskvöldið. Aniston og Butler sáust nefnilega kela á Golden Globe- verðlaunahátíðinni. Eftir hátíðina komu þau öllum bak- sviðs á óvart með innileika. „Eftir að þau kynntu og afhentu verðlaun sam- an fengu þau sér kampavín baksviðs. Þau voru föst saman á mjöðmunum allt kvöldið og sást meira að segja til þeirra kela í eldhúsinu. Þau höguðu sér eins og þau væru par,“ segir heimildarmaður New York Post. Aniston og Butler voru fyrst sögð eiga í rómantísku sambandi í júlí en þau neituðu því bæði. Butler sagði í nýlegu viðtali að hann væri að leita að ástinni. Spurður að hverju hann leitaði í draumakon- unni svaraði Butler: „Það er ómögu- legt að segja því ég er ekki viss um að ég viti hver hún er fyrr en ég sé hana. Ég laðast að alls konar ólíkum kar- akterum,“ sagði Butler. Reuters Rafmagnað Jennifer Aniston og Gerard Butler á Golden Globe. Saman eða sundur? BRESKA fyrirsætan Kate Moss og unnusti hennar Jamie Hince eru sögð trúlofuð. Á Hince að hafa flog- ið til hennar þar sem hún var við vinnu á eyjunni Mustique í Kar- íbahafinu. Þar á hann að hafa beðið um hönd Moss á 36 ára afmæli hennar á laugardaginn. Herma heimildir að þau séu sam- stiga í lífinu, búi saman og séu sam- mála um að eyða ævinni saman. Á kaupsýslumaðurinn Philip Green að hafa aðstoðað Hince við valið á demantshringnum en Hince og Moss eru búin að vera saman frá árinu 2007. Moss vinnur fyrir Green en hann er aðaleigandi Tops- hop og er Moss meðal hönnuða hjá keðjunni. Lofuð Kate Moss og Jamie Hince. Moss trúlofuð MEL Gibson ætlar ekki að giftast unnustu sinni og barnsmóður, Oks- ana Grigorieva, á næstunni. Hann segist vera mjög hamingjusamur með rússnesku söngkonunni en þau hafi enga áætlun um að ganga í hjónaband. Grigorieva sé upptekin við að sinna dóttur þeirra, Luciu sem fæddist í október „Sem betur fer er Lucia líkari móður sinni en mér. Hún er engill sem á yndislega móður sem yrði líka yndislega eiginkona en sem stendur er hún móðir,“ sagði Gib- son í viðtali hjá sjónvarpsþættinum Access Hollywood. Hann viður- kenndi líka að hann hefði ekki verið auðveldur í sambúð undanfarna mánuði eftir að hann hætti að reykja. „Fyrstu dagana var ég hræðileg- ur í skapinu en ég hætti að reykja og missti nokkur kíló að draga and- ann núna, það er allt annað,“ sagði Gibson. Hann lét líka í veðri vaka að honum gengi miklu betur að hafa betur í glímunni við Bakkus. „Það er gott að vera edrú og það eru að verða komin fjögur ár hjá mér sem er ekki slæmt.“ Ásamt nýfæddu dótturinni á Gib- son sjö börn, hin með fyrrverandi eiginkonu sinni Robyn, en þau standa nú í skilnaði. Gibson á réttri braut Saman Mel Gibson og Oksana Grigorieva. Reuters Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Patti Húsgögn Landsins mesta úrval af hornsófum SWS horntungusófi boston lux horntunga Boston delux tunga aspen paris boston-lux Bonn Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 man-75 leður bogasófi p-8185 Hornsófi 2H2 295.1 10 kr Verð áður 327.9 00kr 299.9 00 kr Verð áður 469.0 00kr ASPEN Endalausir möguleikar paris bonn horntunga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.