Morgunblaðið - 20.01.2010, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 0. J A N Ú A R 2 0 1 0
STOFNAÐ 1913
15. tölublað
98. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«DAGLEGTLÍF
ÞORP NÆGJUSEMI OG
ENDURNÝTINGAR
«GRÍNLAND
Verslingar með
nýjan grínþátt
6
Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson
Hveragerði Talið var að enn væri sprengihætta á slysstaðnum í gærkvöldi.
Eftir Önund Pál Ragnarsson
og Silju Björk Huldudóttur
TUTTUGU og þriggja ára gamall
karlmaður slasaðist alvarlega þeg-
ar rörasprengja sprakk í Hvera-
gerði laust eftir klukkan átta í
gærkvöldi. Lögregla og sjúkra-
flutningamenn fóru strax á vett-
vang. Hinn slasaði var fluttur til
móts við þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar sem flutti hann á slysadeild
Landspítalans í Fossvogi. Annar
maður sem var á vettvangi var
fluttur á Heilbrigðisstofnun Suður-
lands á Selfossi til aðhlynningar,
en reyndist óslasaður. Hann er 21
árs gamall.
Með slæma höfuðáverka
Á tólfta tímanum í gærkvöldi
fengust þær upplýsingar hjá lækni
á slysadeild að hinn slasaði væri
enn í aðgerð, þungt haldinn og með
mikla höfuðáverka.
Nágranni sem kom að slysinu
segir að heyrst hafi tveir hvellir frá
bílskúrnum, sá seinni mun öflugri
en sá fyrri. Fyrstu fregnir hermdu
að sprengjan hefði sprungið í
höndum mannsins.
Sprengjusérfræðingur frá sér-
sveit ríkislögreglustjóra var kall-
aður á vettvang til að tryggja að
ekki væri lengur sprengihætta á
slysstaðnum. Ekki var hægt að
greina nánar frá tildrögum slyssins
í gærkvöldi, en lögreglan á Selfossi
rannsakar málið.
Karlmaður fluttur með þyrlu á Landspítalann eftir að rörasprengja sprakk í íbúðarhúsi í Hveragerði
Slasaðist í sprengingu
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÉG tel að það skynsamlegasta í
stöðunni væri að taka málið upp í
Evrópudómstólnum […] Það er svo
sannarlega engin skýr lagaleg
skylda þar um. Ég byggi þetta á
yfirferð yfir hagfræðileg gögn og
lagatexta sem varða skuldbindingar
evrópsku tilskipunarinnar. Það
fyrsta sem ber að gera er að lýsa
því yfir að þetta sé deila milli Evr-
ópuríkja sem beri að leysa fyrir
evrópskum dómstóli,“ segir Jan
Kregel, fyrrverandi stefnumótunar-
stjóri hjá Efnahags- og félagsmála-
deild Sameinuðu þjóðanna (UN-
DESA), um Icesave-málið.
Kregel var prófessor í hagfræði
við nokkra háskóla, þar á meðal
hinn virta Johns Hopkins-háskóla í
Bandaríkjunum, en hann hefur
veitt stjórnvöldum á Norðurlöndum
ráðgjöf í Icesave-málinu.
Kregel segir aðspurður aðgerðir
breskra og hollenskra stjórnvalda
til að fá fé sitt til baka í deilunni
„ólöglegar“ og að Wouter Bos, fjár-
málaráðherra Hollands, hafi ekki
rétt til að senda Íslendingum reikn-
inginn.
Deilan vekur víða athygli og eru
vísbendingar um að vægi hennar í
norskum stjórnmálum muni aukast
á næstu vikum og mánuðum.
Meðal þeirra sem hafa kvatt sér
hljóðs er Heming Olaussen, for-
maður samtaka norskra Evrópu-
sambandsandstæðinga, Nei til EU,
en hann og félagar hans í samtök-
unum hafa þrýst á norska stjórn-
málaflokka að taka upp hanskann
fyrir Íslendinga í deilunni. Það sé
útbreidd skoðun í Noregi að „komið
sé fram við Ísland af ósanngirni“.
Kristilegir demókratar, sem eru í
stjórnarandstöðu, taka undir slík
sjónarmið en þeir fóru þess á leit á
norska Stórþinginu í gær að skorið
yrði á tengsl Icesave og lánafyr-
irgreiðslu Norðmanna til Íslands.
Þá má nefna að fjölmargir Norð-
menn hafa sett sig í samband við
norska dagblaðið Klassekampen
vegna viðtals við Evu Joly.
Íslandi er ekki skylt | 12
Ber að vísa Icesave-málinu
til Evrópudómstólsins
Fyrrverandi stefnumótandi hjá SÞ
telur lögin gölluð Óánægja í Noregi
ÍSLENDINGAR misstu nokkuð góða stöðu gegn Serbum niður í jafntefli í
fyrsta leiknum á Evrópumótinu í handknattleik í Austurríki í gærkvöldi.
Lokastaðan varð 29:29, eftir að Serbar skoruðu fjögur síðustu mörkin.
Snorri Steinn Guðjónsson gat skorað sigurmark úr vítaskoti í lokin en
markvörður Serba ver hér á ögurstundu. Í sama riðli unnu Danir Austur-
ríkismenn en heimamenn eru næstu andstæðingar Íslands. | Íþróttir
MISSTU UNNINN LEIK NIÐUR Í JAFNTEFLI Á EM
Morgunblaðið/Kristinn
ÚTGERÐARMENN, sjómenn,
fiskvinnsla og bæjaryfirvöld í Vest-
mannaeyjum standa fyrir fundi á
fimmtudagskvöld til að mótmæla
m.a. fyrningarleið og útflutnings-
álagi. Elliði Vignisson bæjarstjóri
segir að boðuð breyting á skötusels-
kvóta ein og sér kosti hagkerfi
Eyjanna um 400 milljónir króna á
ári og útflutningsálagið kosti samfé-
lagið í Vestmannaeyjum um 200
milljónir. „Fyrningarleiðina þarf
ekki að ræða því fyrirtækin og sam-
félagið hér færu lóðbeint á hausinn
með slíkum aðgerðum,“ segir Elliði.
Yfirskrift fundarins er „Fyrnum
fyrningarleiðina“. »4
Baráttufundur í Eyjum
gegn fyrningu og álagi
ENGINN ber
fulla persónulega
ábyrgð á skuld-
bindingum sam-
lagsfélaga, sem
njóta nú aukinna
vinsælda eftir að
skattar á einka-
hlutafélög voru
hækkaðir fyrir jól. Að öllu jöfnu á
einn aðili að samlagsfélagi að bera
fulla ábyrgð á því á meðan aðrir
bera takmarkaða ábyrgð. Það leysa
menn í dag með því að láta einka-
hlutafélag bera alla ábyrgðina.
Skattalegt hagræði fæst því fram en
ábyrgðin eykst ekki neitt. »16
Komast undan persónulegri
ábyrgð á samlagsfélögum
ENGAR ákvarðanir voru teknar
um málefni 1998 ehf., móðurfélags
Haga, á stjórnarfundi Arion banka í
gær. Á fundinum var m.a. rætt um
tilboð Jóhannesar Jónssonar,
stjórnenda 1998 ehf. og erlendra
fjárfesta um fjárhagslega endur-
skipulagningu félagsins. Ekki var
ákveðið hvenær málefni 1998 ehf.
kæmu næst fyrir stjórnina.
Stjórnarmaður kvaðst í samtali við
Morgunblaðið telja að félagið yrði
fljótlega rætt á ný. bjarni@mbl.is
Ekkert ákveðið með mál
Haga á stjórnarfundi