Morgunblaðið - 20.01.2010, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 20. DAGUR ÁRSINS 2010
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
! " #
$ $
!
%& '!& ! (
)*+
*,+-,.
)*)-+*
*/-,0
*)-10)
)0-.20
)*)-*.
)-30.1
)1.-*/
)01-)+
456
4 )1" 7
85 *,),
)*+-3
*,+-+.
)*)-22
*/-)/
**-,3.
)0-031
)*)-.
)-32,1
)1.-2*
)01-.+
*3/-)//
%
9: )*+-.
*,.-,.
)**-*/
*/-*)
**-),)
)0-01)
)*)-1/
)-32/1
)10-/
)2,-)+
Heitast 10°C | Kaldast 4°C
Suðaustan 8-15 m/s
en hvessir heldur í
kvöld. Rigning vestan
til og talsverð rigning
suðaustanlands. »10
Kristín Heiða Krist-
insdóttir fær ekki
fullþakkað fyrir
kvikmyndahátíðir
hér á landi, stórar
sem smáar. »31
AF LISTUM »
Hallelúja og
húrrahróp
FÓLK»
Eru ekki saman en sáust
kela á stórhátíð. »35
Leikarar í sýning-
unni Tilbrigði við
stef gefa allir vinnu
sína. Frumsýning
verður í Iðnó á
sunnudaginn. »27
LEIKLIST»
Óeigingjarnt
starf leikara
TÓNLIST»
Lily Allen fékk þrjár
Brit-tilnefningar. »29
TÓNLIST»
Góður hljómburður
í Fríkirkjunni. »28
Menning
VEÐUR»
1. Andlát: Guðmundur Lárusson
2. Karlmaður lést í vinnuslysi
3. Sneri á keppinautinn
4. Jafntefli gegn Serbum
Íslenska krónan hélst óbreytt
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Bækurnar um
litla og stóra
skrímslið, eftir
Áslaugu Jóns-
dóttur, Rakel
Hemsdal og
Kalle Güett-
lerum, koma
brátt út í Finnlandi, Frakklandi og á
Spáni en spænska útgáfan kemur
líka út í S-Ameríku og Bandaríkj-
unum. Fimm bækur hafa komið út
um skrímslin á Íslandi, í Svíþjóð,
Færeyjum og Danmörku. Fyrsta
bókin, Nei! sagði litla skrímslið,
hlaut Dimmalimm - Íslensku mynd-
skreytiverðlaunin.
BÓKMENNTIR
Litla og stóra skrímslið
gleðja börn víða um heim
Enginn faglegur
ágreiningur um
dagskrárstjórn er
sagður liggja að
baki uppsögn
Þórhalls Gunn-
arssonar, dag-
skrárstjóra inn-
lendrar þáttagerðar Sjónvarpsins. Í
bréfi sem Þórhallur sendi til sam-
starfsmanna segir að hann hafi
ákveðið að láta af störfum af per-
sónulegum ástæðum. Þórhallur hef-
ur einnig ritstýrt Kastljósi Sjón-
varpsins um árabil og mun Sigmar
Guðmundsson taka við því starfi til
að byrja með.
SJÓNVARP
Þórhallur Gunnarsson
segir upp störfum á RÚV
Útvarpsþáttur-
inn Party Zone,
dansþáttur þjóð-
arinnar, mun ljúka
göngu sinni á Rás 2
laugardaginn 30.
janúar nk. eftir
tuttugu ár í loftinu.
„Það eru einhverjar breytingar í
gangi á Rás 2 núna, þeir eru eitthvað
að reyna að hysja upp hlustunina,
hafa einhverjar áhyggjur af sam-
keppninni við Bylgjuna líklega, ég
veit ekki af hverju við lentum allt í
einu í skotlínunni,“ segir Helgi Már
Bjarnason, annar þáttarstjórnenda
Party Zone. | 32
TÓNLIST
Party Zone hættir á laugar-
dagskvöldum á Rás 2
Morgunblaðið/RAX
Útnefning Tómas Guðmundsson situr á bekknum og Halla Gunnarsdóttir brosir breitt með blómvönd í fanginu.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
TILLAGA Höllu Gunnarsdóttur
myndlistarmanns varð fyrir valinu í
samkeppni borgarinnar um styttu af
Tómasi Guðmundssyni skáldi og
verður verkið sett upp við Reykja-
víkurtjörn í vor.
Dómnefnd greindi frá niður-
stöðum sínum í gær. Halla Gunnars-
dóttir lagði til að Reykjavíkur-
skáldið sæti á bekk við suðurenda
Reykjavíkurtjarnar, og horfði yfir
Kvosina. Hún sagði að eftir að hafa
kynnt sér Tómas, lesið ljóð hans og
viðtöl við hann auk þess að hafa tal-
að við góðan vin hans, hefði sér fund-
ist við hæfi að hann horfði á yrkis-
efni sín eins og Menntaskólann í
Reykjavík og Fríkirkjuna, sem hann
unni mjög. „Hann hugsaði mikið til
MR-áranna,“ sagði hún.
Halla segir að eftir að hún hafi
komist að niðurstöðu um staðsetn-
inguna við göngustíginn hafi hún
ákveðið að láta styttuna sitja á bekk
og þannig verði Tómas hluti mann-
lífsins. Það hefði hann líka örugg-
lega viljað sjálfur.
Skemmtilega útfært verk
Haustið 2008 samþykkti borgar-
stjórn tillögu Kjartans Magnús-
sonar um að gerð yrði myndastytta
af Tómasi og henni komið fyrir á
áberandi stað í borginni. Menning-
ar- og ferðamálaráð ákvað síðan að
halda lokaða samkeppni með forvali
og var auglýst eftir tillögum í júní í
fyrra. Þriggja manna forvalsnefnd
valdi þrjá myndlistarmenn úr inn-
sendum umsóknum til þess að vinna
tillögur og skiluðu þeir tillögum sín-
um í október sem leið.
Í umsögn dómnefndar segir að
verðlaunaverkið sé „skemmtilega
útfært með skýra vísun til Reykja-
víkur sem felst meðal annars í borg-
arbekknum sem styttan er látin sitja
á. Mótun styttunnar er fíngerð og
nákvæm og lýsir Tómasi vel sem
hinu unga glæsimenni sem hann var
á þeim tíma sem Fagra veröld kom
út, léttklæddur eins og að vori. Tóm-
as situr afslappaður en íhugull á
Reykjavíkurbekknum og býður
gestum að koma og setjast hjá sér,
beina sjónum að Kvosinni og þar
með sögu Reykjavíkur.“
Halla lauk MBA-námi í París í
fyrrasumar og er nýflutt til Íslands
eftir að hafa búið erlendis í 15 ár.
Tómas hluti mannlífsins
Reykjavíkurskáld-
ið á bekk við
Tjörnina í vor
ÍSLENSK börn verða nú ekki þau
einu sem fá að njóta leikgleði stalln-
anna Skoppu og Skrítlu, því þær
hyggja nú á útrás vestur um haf.
„Það er eins og hver annar happ-
drættisvinningur að þetta fólk hafi
áhuga á að vinna með manni, því
það fær fjölda tilboða í hverri
viku,“ segir Hrefna Hallgríms-
dóttir, sem ásamt Lindu Ásgeirs-
dóttur er höfundur tvíeykisins.
Frumkynning á markaðssetningu
Skoppu og Skrítlu hefur fengið
mjög jákvæð viðbrögð í Bandaríkj-
unum. Þær hafa nú ráðið til sín
fyrrverandi forstjóra Warner
Brothers sem listrænan stjórnanda
úti og fjárfestar eru þegar komnir
inn í verkefnið.
Settur hefur verið saman hópur
sérfræðinga í Los Angeles til að
annast þróun á alþjóðaútgáfu
byggðri á íslenskum ævintýrum
þeirra Skoppu og Skrítlu, en nýtt
leikrit um þær verður frumsýnt í
Borgarleikhúsinu í febrúar.
Morgunblaðið/ÞÖK
Skemmtilegar Skoppa og Skrítla
eiga sér stóran aðdáendahóp.
Skoppa og Skrítla stefna
á Bandaríkjamarkað
„ÉG er gítarnörd. Algjör. Og mig
langaði til að setja fram rödd þessa
hljóðfæris með afgerandi hætti,“
segir Björn Thoroddsen gítarleikari.
Hann stendur fyrir Gítarveislu
Bjössa Thor í Salnum í Kópavogi um
næstu helgi þar sem fjöldinn allur af
gítarleikurum kemur fram.
„Þetta eru allt gítarleikarar sem
hafa haft áhrif á mig á einn eða ann-
an hátt, bæði þeir sem eru eldri en
ég og þeir sem eru yngri,“ segir
Björn. | 30
Algjör
gítarnörd
Hver var Tómas Guðmundsson?
Tómas Guðmundsson (1901-1983)
hefur oft verið kallaður Reykjavíkur-
skáldið enda einna fyrstur til þess
að yrkja af aðdáun og áhuga um líf-
ið í Reykjavík.
Er til stytta af skáldinu?
Reykjavíkurborg fékk Sigurjón
Ólafsson til þess að gera brjóst-
mynd á stalli af skáldinu 1974 og
var henni komið fyrir í Austurstræti
við Reykjavíkurapótek. Vegna fram-
kvæmda var hún tekin niður á tí-
unda áratugnum og sett í geymslu.
Þegar aðalsafn Borgarbókasafnsins
var flutt í Tryggvagötu árið 2000
var brjóstmyndinni komið fyrir í
anddyrinu á svokölluðu Reykjavíkur-
torgi framan við glerlistaverk eftir
Leif Breiðfjörð sem heitir Fagra
veröld, til heiðurs samnefndri bók
Tómasar.
S&S