Morgunblaðið - 20.01.2010, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 20.01.2010, Blaðsíða 25
20. janúar 2002 Guðni Tyrfingsson arkitekt og danskir samstarfsmenn hans unnu fyrstu verðlaun í hug- myndasamkeppni um skipulag tónlistarhúss, ráðstefnu- miðstöðvar og hótels við höfn- ina í Reykjavík. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Dagbók 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2010 Sudoku Frumstig 7 9 6 3 4 6 9 8 7 9 2 4 1 7 6 1 1 6 7 3 4 8 3 4 2 1 3 2 4 1 7 8 4 5 3 2 9 5 1 4 8 3 1 5 2 4 8 9 7 2 4 2 6 9 2 9 3 7 7 1 2 9 6 2 8 7 8 3 6 4 2 1 3 4 7 6 9 7 4 6 5 2 1 8 3 8 5 6 9 3 1 4 7 2 1 3 2 8 7 4 5 6 9 2 6 5 7 4 8 9 3 1 3 8 7 5 1 9 6 2 4 4 9 1 2 6 3 8 5 7 7 1 3 4 8 6 2 9 5 6 4 9 3 2 5 7 1 8 5 2 8 1 9 7 3 4 6 8 7 3 9 5 1 6 4 2 5 4 9 7 6 2 8 1 3 1 6 2 8 3 4 5 7 9 4 2 7 6 1 8 3 9 5 3 8 5 4 9 7 2 6 1 9 1 6 5 2 3 7 8 4 6 3 8 1 4 5 9 2 7 7 5 1 2 8 9 4 3 6 2 9 4 3 7 6 1 5 8 7 2 1 6 3 8 4 9 5 6 5 9 1 7 4 2 8 3 8 3 4 5 2 9 1 7 6 4 9 7 3 1 5 6 2 8 2 8 3 7 9 6 5 1 4 1 6 5 4 8 2 9 3 7 5 1 8 2 6 7 3 4 9 9 4 2 8 5 3 7 6 1 3 7 6 9 4 1 8 5 2 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er miðvikudagur 20. janúar, 20. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast? (Sl. 27, 1.) Rúmlega 40 manns hafa veriðhandteknir í Íran vegna ábend- inga, sem bárust eftir að lögregla birti myndir af þátttakendum í mót- mælum á hátíðardeginum Ashura í lok desember. Lögreglan í Teheran greindi frá þessu í gær. Birtar voru nærmyndir af mótmælendum í sér- útgáfu af blaði lögreglunnar og á vef- síðu hennar og voru dregnir rauðir hringir utan um andlit þeirra kvenna og karla, sem yfirvöld höfðu sér- stakan hug á að ná í. Átta manns létu lífið þegar öryggissveitir létu til skar- ar skríða gegn mótmælendum. Mahmoud Ahmadinedjad, forseti Íraks, sem hefur átt undir högg að sækja vegna ásakana um að hann hafi haft rangt við í kosningunum í fyrrasumar, hefur sakað Bandaríkja- menn og Ísraela um að skipuleggja mótmælin. x x x Aðferðir Írana vekja margarspurningar. Greinilegt er að lögreglan notar myndir með þessum hætti og slær árangrinum upp til þess að fá stjórnarandstæðinga til að hugsa sig um tvisvar áður en þeir mótmæla á götum úti. Hún vill sýna mótmælendum hvað þeir eiga í vændum hafi þeir sig ekki hæga. Þessar aðferðir eru ekki aðeins um- hugsunarefni fyrir almenna borgara í Írak, heldur einnig fjölmiðla um allan heim. Athygli umheimsins veitir írönskum stjórnvöldum aðhald og verður vonandi til að þau haldi aftur af sér. Áhrifin verða meiri þegar myndir fylgja umfjöllun um ólguna í Íran. x x x Myndir af mannhafi mótmælendaí Teheran í fyrrasumar opnuðu án efa augu margra fyrir víddum íransks samfélags. Ef það var ekki ljóst fyrir þarf nú að hafa í huga þeg- ar myndir eru birtar í fjölmiðlum að þær geta verið tæki lögreglu til að handtaka fólk og ofsækja. Þá getur myndbirtingin hjálpað til við að kveða niður þau öfl, sem henni er ætl- að að styrkja. Líta má á aðgerðir lög- reglunnar í Íran sem tilraun til að knýja fram sjálfsritskoðun fjölmiðla um allan heim. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 rakka, 4 kletts, 7 dáin, 8 hegna, 9 óhróður, 11 skylda, 13 ímyndun, 14 svínakjöt, 15 legubekkur, 17 ótta, 20 hvíldi, 22 bárur, 23 borga, 24 konungborinn maður, 25 nes. Lóðrétt | 1 falin, 2 veið- arfærið, 3 bráðum, 4 húsgagn, 5 skott, 6 stólpi, 10 kýli, 12 skyld- menni, 13 keyrðu, 15 greind, 16 ól, 18 ekki djúp, 19 vitri, 20 atlaga, 21 vont. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 renningur, 8 eyjan, 9 yndis, 10 náð, 11 nýrna, 13 annar, 15 hatts, 18 öflug, 21 tin, 22 fiska, 23 unnur, 24 saklausar. Lóðrétt: 2 erjur, 3 nunna, 4 neyða, 5 undin, 6 senn, 7 ás- ar, 12 net, 14 nef, 15 hafs, 16 tuska, 17 stagl, 18 önuðu, 19 lunga, 20 garð. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Be2 e6 7. 0-0 Be7 8. f4 0-0 9. Be3 a6 10. a4 Dc7 11. Kh1 He8 12. Bf3 Bd7 13. Rb3 b6 14. g4 Bc8 15. g5 Rd7 16. Bg2 Bf8 17. Hf3 g6 18. Hh3 Hb8 19. Dg4 b5 20. axb5 axb5 21. Dh4 h5 22. Bf3 Bg7 23. f5 Rde5 Staðan kom upp á stórmeistaramóti MP-banka og CCP sem var haldið fyrir skömmu, m.a. í tilefni af 110 ára afmælisári Taflfélags Reykjavíkur. Jóhann Hjartarson (2.585) hafði hvítt gegn Þresti Þórhallssyni (2.426). 24. Bxh5! gxh5 25. f6 Rg6 26. Dxh5 Kf8 27. Dh7! og svartur gafst upp enda yrði hann mát eftir 27. … Bh8 28. Dxh8+ Rxh8 29. Hxh8#. Jóhann deildi öðru sæti á mótinu með Helga Ólafssyni en Jón L. Árnason varð hlutskarpastur á því. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Upplagt spil. Norður ♠ÁG94 ♥ÁK8 ♦10 ♣ÁD865 Vestur Austur ♠7 ♠D10832 ♥D109532 ♥G76 ♦64 ♦875 ♣G972 ♣K10 Suður ♠K65 ♥4 ♦ÁKDG932 ♣43 Suður spilar 7♦. „Ég á þetta allt saman.“ Um leið og útspilið dettur á borðið leggur suður upp og segist eiga alla slagina. And- stæðingarnir horfa nokkra stund á báðar hendur, en ná ekki að telja nema upp í tólf slagi. „Keppnisstjóri!“ Hann reynist vant við látinn, en vestur telur sig vel heima í lögunum og tekur stjórnina í sínar hendur: „Þú verður að toppa alla liti og mátt engu spili svína.“ Makker hans maldar í móinn og segir þetta alltof strangt skilyrði, en vestur stendur fastur á sínu: „Lög eru lög.“ Grautfúll tekur sagnhafi hjartaútspilið með ás, hendir laufi í ♥K, spilar næst trompunum um hríð, tekur ♠Á og ♠K, stingur hjarta og klárar trompin. Í tveggja spila endastöðu á blindur ♣ÁD, en heima á sagnhafi ♠6 og ♣4. Og austur? Hann horfir drápsaugum á makker sinn. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú ættir að taka ákvörðun í dag sem er heilsunni í hag. Nú er komið að því að leyfa öðrum að annast þig. Þér er óhætt að tala um þínar innstu tilfinningar. (20. apríl - 20. maí)  Naut Nýtt samband er áhugavert og spennandi en mun fyrr en seinna kólna. Spennandi ferðalag er framundan. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Segðu það sem þú meinar því meiningin skín hvort eð er í gegn. Líklega er þetta einstakt tækifæri, því eitt skipti er alveg nóg. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Smámunasemin er alveg að fara með þig þessa dagana. Fylgstu með hegð- un annarra, lærðu af henni og reyndu að gera betur. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Það reynir á trúnaðinn og ákveðnina, þegar taka þarf ákvarðanir í viðkvæmum málum. Skipuleggðu tíma þinn svo þú komist yfir verkefnin. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú gætir fengið góðar fjáröflunar- hugmundir í dag. Mat þitt er hugsanlega óraunsætt. Að fjárfesta í öðrum þýðir að vita hvenær maður á að leyfa fólki að klára sitt upp á eigin spýtur. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Haltu þétt utan um budduna ef ekki á illa að fara. Ef hjarta þitt er hreint og þú hefur velferð allra að leiðarljósi verða breytingarnar sem framundan eru nánast sársaukalausar. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Varastu öll gylliboð, sem eiga að færa þér hamingju og auðæfi í einu vetfangi. Með réttum viðbrögðum kemstu hjá vandræðum í umferðinni. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Nú virðist allt ganga þér í hag- inn og er það vel því þú átt viðurkenningu skilið fyrir dugnað þinn og framtakssemi. Reynsla þín, álit og tilfinningaþroski komu þér á þennan stað. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Einhver verður þér ósammála í dag og þú tekur það óstinnt upp. Tæki- færin sem þú færð krefjast visku, ekki lífsleiða, fágunar, ekki þreytu. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þér hefur fundist þú aðþrengd/ ur að undanförnu. Jafnvel þótt þú hafir rétt fyrir þér er þá öll fyrirhöfnin þess virði? Er ekki betra að halda friðinn? (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það kann ekki góðri lukku að stýra að láta fjármálin reka á reiðanum. Him- intunglin boða upphaf nýs sambands. StjörnuspáDemantsbrúðkaup Lilja Magnúsdóttir og Baldvin Steindórsson eiga sextíu ára brúð- kaupsafmæli í dag, 20. janúar. Þau eru að heiman. Demantsbrúðkaup Hjónin Guðrún H. Waage og Sig- urður S. Waage, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sanitas hf., eiga sextíu ára brúðkaupsafmæli í dag, 20. janúar. HANDKNATTLEIKSKAPPINN, framhalds- skólaneminn og leikskólaleiðbeinandinn Jónatan Vignisson er tvítugur í dag. Það heyrir þó varla til tíðinda hjá honum enda lítið afmælisbarn og sök- um álags eru litlar líkur á að haldið verði upp á áfangann í bráð. „Ég ætla nú bara að byrja á því að fara í skólann, eftir hann hefst svo undirbún- ingur fyrir æfingarleik sem ég tek þátt í og fer fram um kvöldið,“ segir Jónatan sem leikur í stöðu skyttu með ÍR og vonast auðvitað eftir sigri. ÍR leikur í 1. deild og er hörð barátta í jafnri deild. Þar sem Íslandsmótið er að hefjast á ný og lið Jónatans á erfiðan leik fyrir höndum á sunnudag gegn Aftur- eldingu og svo aftur um miðja næstu viku gegn Víkingi er ekki útlit fyrir að hann fagni áfanganum fyrr en í fyrsta lagi eftir tvær vikur. Jónatan segist ekki hafa lagst í neina skipulagsvinnu enn sem kom- ið er og einbeiti sér að öðru, en fyrir utan handboltann nemur hann á félagsfræðibraut við Menntaskólann í Sund og sinnir starfi sínu á leik- skólanum Geislabaugi. Þar fyrir utan segist hann sjaldnast gefa af- mælisdegi sínum gaum og haldi hann upp á afmæli sé frekar um að ræða óundirbúin teiti. Jónatan Vignisson nemi er tvítugur Fagnar vonandi með sigri Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Frú Sólveig Sigríður Ósk- arsdóttir, hjúkr- unar- og for- stöðukona, Arnarhóli Sand- gerði, er áttræð í dag, 20. janúar. Hún ætlar að eyða deginum með fjölskyldu sinni í Flórída. 80 ára

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.