Morgunblaðið - 20.01.2010, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2010
SÖNGKONAN Madonna, sem er 51
árs að aldri, þráir að eignast fleiri
börn og ætlar að reyna að koma
unnustanum, Jesus Luz, á þá skoð-
un að þau eigi að fjölga börnum
heimsins. Vinur Madonnu segir í
samtali við The Sun að Madonna
geri sér grein fyrir því að það geti
orðið erfitt að verða þunguð á hefð-
bundinn hátt en hún sé í gríðarlega
góðu formi og reiðubúin til þess að
taka áhættuna.
Madonna á fyrir fjögur börn;
Lourdes, 13 ára, Rocco, níu ára, og
David og Mercy, sem eru bæði fjög-
urra ára.
Jesus Luz, 22 ára, er sagður taka
vel í þá hugmynd að eignast barn
með unnustu sinni. Hann er sam-
kvæmt heimildum yfir sig ástfang-
inn af Madonnu og þykir afar vænt
um börn hennar. Hann á að þrá að
eignast börn sjálfur og á að hafa
sagt við Madonnu að hann vilji
eignast börn með henni.
Reuters
Glæsileg Madonna er falleg.
Madonna þráir
fleiri börn
Ég fæ ekki fullþakkað fyrirkvikmyndahátíðir hér álandi, stórar sem smáar. Að
vera boðið upp á úrval mynda sem
koma annars staðar frá en úr svo-
kallaðri Hollywoodmaskínu (sem
sumar eru auðvitað líka góðar)
vekur ekki ósvipaðar kenndir og í
æsku þegar maður komst í namm-
iskál (sem var afar sjaldan á mínu
bernskuheimili).
Þessa dagana er frönsk kvik-
myndahátíð í Háskólabíói og þar er
margt nammið til að gæða sér á.
Til dæmis má þar finna gullmola
sem segir frá honum Nikulási litla
sem fyllist ógnarskelfingu þegar
hann heldur að von sé á litlum
bróður. Hann grípur til ýmissa
ráða og það er skemmst frá því að
segja að ég og afkvæmi mín (20 ára
og 11 ára), sem og salurinn allur,
veltumst um af hlátri.
Við þrjú vorum sammála um það
þegar út var komið að þetta væri
frábær mynd.
Eftir á fór ég að velta fyrir mérhvað það væri sem gerði
þessa mynd svona góða. Það er
ekki bara að húmorinn í henni sé
dásamlegur og hugmyndaflugið í
handritinu eins og best verður á
kosið, heldur er svo margt annað
sem kemur til.
Myndatakan og sjónarhornið er
mjög oft úthugsað og frumlegt og
kemur verkinu til skila á annan
hátt en annars hefði verið. En fyrst
og fremst gerir það upplifun áhorf-
andans að veislu.
Sviðsetning, litir, klæði og leik-
munir, allt á það líka þátt í að gera
þessa mynd að bragðgóðum
nammimola.
Leikararnir eru einnig óborgan-
lega góðir. Strákarnir, allir sem
einn, eru sem skapaðir í hlutverk
sín. Sjálfsagt fer þar saman góð
leikstjórn og meðfæddir hæfileikar
piltanna, í það minnsta er unun að
fylgjast með þessum snillingum á
tjaldinu.
Það er eins og þeir hafi ekkert
fyrir þessu, þeir skila sínu alger-
lega tilgerðarlaust.
Fullorðnir leikarar myndarinnar
skila sínu líka einstaklega vel en
það sem er meðal annars svo hress-
andi við þessa mynd er að útlit leik-
aranna er venjulegt, bæði
barnanna og þeirra eldri (sumir
kannski fremur kómískir í útliti en
það gerir þetta bara enn betra, þeir
passa fullkomlega í hlutverkin).
Kvikmyndir með leikurum semeru eins og steyptir í mót,
með ofurhvíttaðar tennur, sílikon-
barm eða bótoxvarir, eru alltaf
mun minna sannfærandi en þær
sem skarta leikurum með venjulegt
útlit. Það er auðveldara fyrir Jón
Jónsson að samsama sig við venju-
legt fólk, fólk sem er mátulega
ófullkomið eins og við öll hin sem
fylgjumst með úti í sal.
Það er sárt til þess að hugsa
hversu lítið brot af öllum þeim úr-
valsmyndum sem búnar eru til í
öðrum löndum en Bandaríkjunum
rata í kvikmyndahúsin hér á Ís-
landi.
Meira af kvikmyndahátíðum
takk.
Meira af myndum sem lyfta okk-
ur upp, auðga andann og örva fleiri
en eina stöð í heilanum.
Okkur veitir ekki af, kreppu-
kraminni þjóð. khk@mbl.is
Frábærir franskir strákar
» Það er auðveldarafyrir Jón Jónsson að
samsama sig við venju-
legt fólk, fólk sem er
mátulega ófullkomið
eins og við öll hin sem
fylgjumst með úti í sal.
AF KVIKMYNDUM
Kristín Heiða Kristinsdóttir
Litrík Nikulás ásamt foreldrum sínum. Dásamleg fjölskylda.
Alvin og Íkornarnir kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ Avatar 3D kl. 4:40 - 7 - 8 - 10:20 B.i.10 ára
Did you hear about the Morgans kl. 4:40 - 8 - 10:20 B.i. 7 ára Avatar 2D kl. 4:40 - 8 Lúxus
Mamma Gógó kl. 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Missið ekki af þessari byltingarkenndu stórmynd frá James Cameron leikstjóra Titanic.
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
HHHHH
-H.K., Bylgjan
HHHHH
-H.S., MBL
YFIR
90.000
MANNS
ÍSLENSKT TAL
Sýnd kl. 6
Sýnd kl. 6 og 9 (POWERSÝNING)
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 8 og 10:10
POWE
RSÝN
ING
Á STÆ
RSTA
DIGIT
AL
TJALD
I LAN
DSINS
KL. 9
HHH
„Myndin er mann-
leg og fyndin“
-S.V., MBL
Þú færð 5%
endurgreitt
í Smárabíó
2 GOLDEN GLOBEVERÐLAUNBESTA MYNDBESTI LEIKSTJÓRI HHHH+-Ó.H.T., Rás 2HHHHH-V.J.V., FBLHHHHH-T.V., Kvikmyndir.is HHHH-Á.J., DV
YFIR
90.000
MANNS
HHHH
- Hilmar Karlsson,
Frjáls verslun
HHHHH
-Hulda G. Geirsdóttir, Poppland/Rás 2
HHHH
- Hjördís Stefánsdóttir, Morgunblaðið
HHHH
- Dr. Gunni, Fréttablaðið
H
nd!”
ri
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
-bara lúxus
Sími 553 2075
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.isKreditkorti tengdu Aukakrónum!