Morgunblaðið - 22.01.2010, Qupperneq 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2010
Stöðugt bætist í hóp þeirra erlendustjórnmálamanna og sérfræð-
inga sem telja Íslendinga órétti beitta
í Icesave-málinu.
ÍMorgunblaðinu var í gær rætt viðErkki Tuomioja, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Finnlands og doktor í
félagsfræði.
Tuomioja hefur fylgst vel með Ice-save-málinu og skrifað um það.
Hann segist skilja tregðu Íslendinga
til að samþykkja samninginn sem sé
„bersýnilega ósanngjarn“.
Og hann heldur áfram: „Ef eitt-hvert annað ríki hefði þurft að
búa við samskonar þrýsting og upp-
hæðir á hvert mannsbarn yrði brugð-
ist hart við því. Það yrði útilokað að
ná slíkri kröfu fram.“
Í fyrradag var rætt við Jan Kregel,fyrrverandi stefnumótunarstjóra
hjá efnahags- og félagsmáladeild SÞ
og prófessor við Johns Hopkins-
háskóla og víðar.
Kregel segir frá því að hann hafiveitt Norðurlöndunum ráðgjöf
um hvað beri að gera í Icesave-
málinu og að hann hafi ráðlagt aðra
leið en aðstoð Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins.
Kregel segir að Íslandi beri enginskýr lagaleg skylda til að greiða
Icesave-reikninginn sem Bretar og
Hollendingar hafa gert kröfu um.
Hann telur auk þess að framkoma
stjórnvalda í þessum löndum gagn-
vart Íslandi sé ólögleg.
Á sama tíma og sjónarmiðin erlend-is þróast í þessa átt halda íslensk
stjórnvöld sig við að „Ísland muni
standa við skuldbindingar sínar“.
Ósanngjarn samningur
og ólögleg framganga
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 5 rigning Lúxemborg 1 þoka Algarve 16 skýjað
Bolungarvík 6 alskýjað Brussel 3 skýjað Madríd 9 heiðskírt
Akureyri 6 alskýjað Dublin 8 súld Barcelona 12 heiðskírt
Egilsstaðir 7 súld Glasgow 5 léttskýjað Mallorca 13 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 6 rigning London 5 léttskýjað Róm 10 léttskýjað
Nuuk -10 léttskýjað París 7 skýjað Aþena 9 skýjað
Þórshöfn 6 skýjað Amsterdam 3 súld Winnipeg -6 snjókoma
Ósló -4 snjóél Hamborg -6 heiðskírt Montreal -5 alskýjað
Kaupmannahöfn 0 skýjað Berlín -7 skýjað New York 2 heiðskírt
Stokkhólmur -2 skýjað Vín -7 snjókoma Chicago 0 alskýjað
Helsinki -16 snjókoma Moskva -15 heiðskírt Orlando 22 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
22. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4.17 1,1 10.27 3,3 16.46 1,0 22.57 3,2 10:37 16:42
ÍSAFJÖRÐUR 0.09 1,8 6.17 0,7 12.21 1,9 18.54 0,6 11:04 16:25
SIGLUFJÖRÐUR 2.52 1,1 8.43 0,4 15.08 1,1 21.09 0,4 10:48 16:07
DJÚPIVOGUR 1.28 0,5 7.28 1,7 13.46 0,5 19.55 1,7 10:12 16:06
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á laugardag og sunnudag
Sunnan- og suðaustanátt, 8-15
m/s um landið sunnan- og
vestanvert og rigning með köfl-
um og hiti 2 til 7 stig. Heldur
hægari annars staðar, bjartviðri
og hiti kringum frostmark.
Á mánudag
Útlit fyrir sunnan hvassviðri
með talsverðri rigningu, en úr-
komuminna norðaustan til. Hiti
5 til 10 stig.
Á þriðjudag og miðvikudag
Suðvestlæg átt með vætu, en
úrkomulítið norðaustanlands.
Kólnar heldur.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Sunnan 5-13 m/s og skúrir,
léttir til norðaustanlands. Hiti 3
til 8 stig.
FJÖGUR íslensk bókaforlög hafa í
samvinnu við Eymundsson ákveðið
að gefa sjö nýja bókartitla að sölu-
verðmæti um 4,5 milljónir króna til
stuðnings rústabjörgunarsveit
Landsbjargar við að endurnýja bún-
að sem sveitin skildi eftir á Haítí.
Bækurnar verða seldar í Eymunds-
son um allt land nú um helgina og er
þetta upphaf átaks sem nefnist
„Bókaþjóðin styður fólkið á Haítí“.
Allir fjármunir sem koma inn fyrir
sölu á þessum bókum renna óskertir
til að endurnýja búnað sveitarinnar.
Jafnframt hefur Eymundsson
ákveðið að bæta 10% af allri sölu ís-
lenskra barnabóka í verslunum sín-
um þessa daga við söfnunarupphæð-
ina. Útgáfufélögin eru Forlagið,
Bjartur & Veröld, Opna og Upp-
heimar. Íslenska utanríkisráðu-
neytið hefur ákveðið að greiða fimm
milljónir fyrir þann búnað sem
rústabjörgunarsveit Landsbjargar
skildi eftir en markmiðið er að bóka-
þjóðin bjargi því sem upp á vantar.
Félagar í rústabjörgunarsveit
Landsbjargar hleypa átakinu af stað
í Eymundsson Austurstræti kl. 14 í
dag, föstudag. Bækurnar sem um
ræðir eru Sagan og Ísland í aldanna
rás 1700-1799 frá Forlaginu, Ás-
gerður Búadóttir – Veftir og Elías
B. Halldórsson frá Uppheimum,
Myndlist í þrjátíu þúsund ár og Jökl-
ar á Íslandi frá Opnu og Svavar
Guðnason frá Bjarti & Veröld.
Gefa bækur til að endurnýja búnaðinn
Rústabjörgunarsveit Landsbjargar
hleypir átakinu af stað í dag
Á Haítí Þrekvirki voru unnin.
LÖGREGLUNNI á höfuðborgar-
svæðinu voru tilkynnt sjö innbrot
á þriðjudag. Dekkjum og felgum
var stolið úr tveimur geymslum í
Vogunum og í sama hverfi hurfu
varahlutir og fartölvur af verk-
stæði.
Fartölvu var líka stolið úr húsi í
Árbæ og í Hlíðunum var innbrots-
þjófur einnig á ferðinni en sá tók
bæði myndavél og skartgripi. Sími
og veski var tekið úr bíl í Breið-
holti og í Háaleitishverfi var einn-
ig brotist inn í bíl en sá sem það
gerði hafði lítið upp úr krafsinu en
viðkomandi, karl á þrítugsaldri,
var handtekinn skammt frá vett-
vangi. Einnig hafa komið upp
nokkur hnuplmál í vikunni, í
Smáralind, Korputorgi og víðar.
Sjö innbrot tilkynnt