Morgunblaðið - 22.01.2010, Síða 14
14 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2010
Veljum
íslenskt
Ömmu
kl i ur
Ömmu
spelt
flatkökur
Ömmu
flatkökur
Ömubakstur ehf.
Kársnesbraut 96a | 200 Kópavogi | S : 545 7000
Með þorramatnum
Þetta helst ...
● HAGNAÐUR af rekstri bandaríska
bankans Goldman Sachs Group nam
4,8 milljörðum dala á síðasta fjórðungi
ársins 2009 og var 12,2 milljarðar dala
á árinu öllu, jafnvirði rúmlega 1.700
milljarða króna. Er þetta mun betri af-
koma en sérfræðingar höfðu spáð.
Bankinn upplýsti í afkomutilkynn-
ingu, að lagðir hefðu verið 16,2 millj-
arðar dala til hliðar til að greiða starfs-
fólki bónusa fyrir síðasta ár.
Tekur bankans námu 45,2 milljörðum
dala á síðasta ári, þar af 9,6 milljörðum
dala á síðasta fjórðungi.
Hagnaður hjá Goldman
● GENGIÐ var í vikunni frá kaupum
fjárfestingarfélagsins Saga Invest-
ments á Íslenskri erfðagreiningu af
deCODE, fyrrverandi móðurfélagi
þess. Íslensk erfðagreining mun
áfram starfa undir nafninu deCODE
genetics og selja vörur sínar og þjón-
ustu, m.a. deCODEme erfðagreining-
arpróf fyrir einstaklinga, deCODE Di-
agnostics greiningarpróf og
vísindaþjónustu deCODE.
Saga Investments LLC, er fjár-
festahópur sem leiddur er af Polaris
Ventures og ARCH Venture Part-
ners. Um er að ræða fjárfesta, sem
hafa áður verið í eigendahópi Ís-
lenskrar erfðagreiningar. Leggja þeir
áherslu á fjárfestingar á sviði líf-
tækni.
Fyrirtækinu verður framvegis
stjórnað af tveggja manna fram-
kvæmdastjórn sem mynduð er af Earl
Collier, fyrrverandi framkvæmdastjóra
hjá líftæknifyrirtækinu Genzyme Cor-
poration, sem hefur tekið við starfi
forstjóra, og Kára Stefánssyni sem er
starfandi stjórnarformaður og yf-
irmaður rannsóknasviðs.
Saga Investments búin
að taka við ÍE
Í nýrri greiningu frá H.F. Verðbréf-
um eru færð rök fyrir þeirri skoðun
að nýr samningur við bresk og hol-
lensk stjórnvöld vegna lausnar Ice-
save-deilunnar verði að byggja á
lækkun höfuðstóls sjálfrar skuldbind-
ingarinnar annars vegar og á að við-
bótartrygging Breta og Hollendinga
á innistæðum í heimalöndum þeirra
verði ekki jafnrétthá hinni lögbundu
innlánatryggingu hins vegar.
Greiningin birtist í útgáfu H.F.
Verðbréfa sem nefnist Píla. Þar kem-
ur fram að umræða um vexti af láninu
til ríkissjóðs hafi ef til vill verið full-
fyrirferðarmikil. Það sem mestu máli
skipti í þeim efnum sé að vextir sem
falla á skuld ríkissjóðs myndi ekki
kröfu á þrotabú Landsbankans held-
ur lendi þeir að fullu á íslenskum
skattgreiðendum. Jón Daníelsson,
lektor við London School of Econo-
mics, benti einmitt á þessa staðreynd
í Morgunblaðinu á dögunum og sýndu
útreikningar hans að vaxtabyrðin
næmi tugum milljarða á ári hverju.
Bretar og Hollendingar taki
þrotabú Landsbankans
Sérfræðingar H.F. Verðbréfa taka
undir það sjónarmið sem Martin
Wolf, einn ritstjóra Financial Times,
setti fram á dögunum um að Bretar
og Hollendingar tækju hreinlega yfir
það sem eftir stæði af gamla Lands-
bankanum og það yrði skilgreint sem
greiðsla fyrir þeirra framlag. Þar sem
gert er ráð fyrir að eignir bankans
muni standa undir 90% af forgangs-
kröfum ætti þessi lausn að vera
ásættanleg fyrir deiluaðila. Fram
kemur í greiningunni að þar sem
stærstur hluti þessara eigna sé er-
lendur ættu að vera hæg heimatökin
fyrir viðsemjendur Íslendinga við úr-
vinnslu þeirra.
„Illskiljanlegur áfangi“
Fram kemur í Pílunni að það hafi
verið „illskiljanlegur áfangi“ íslensku
samninganefndarinnar að fallast á
það að umframtryggingar breskra og
hollenskra stjórnvalda væru jafn-
réttháar og lögbundin lágmarks-
trygging, eins og Ragnar Hall lög-
maður hefur bent á. Þetta þýði að
lágmarkstryggingin innheimtist ekki
fyrst heldur skiptist hún jafnt á milli
Tryggingasjóðs annarsvegar og
Breta og Hollendinga hinsvegar og
njóta þeir síðarnefndu viðbótartrygg-
ingarinnar í þeim skiptum.
Sérfræðingar H.F. Verðbréfa telja
að ef ofangreint náist fram í nýjum
samningaviðræðum sé hægt að leysa
deiluna til frambúðar án þess að
„óréttmætar kvaðir“ verði lagðar á
Íslendinga. Enn fremur væri hægt að
líta á þá lausn til sönnunar á því að ís-
lensk stjórnvöld hefðu staðið við allar
sínar alþjóðlegar skuldbindingar í
málinu. ornarnar@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Icesave H.F. Verðbréf hafa greint
ný samningsmarkmið vegna Icesave.
Viðsemjendur taki
þrotabú Landsbankans
H.F. Verðbréf greina ný samningsmarkmið vegna Icesave
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
EKKI er tekið tillit til viðskiptavildar
eða hlutfalls hennar af heildareignum
tryggingafélaga við ákvarðanir Fjár-
málaeftirlitsins um hvort veita eigi
slíkum fyrirtækjum starfsleyfi. Þetta
segir Lárus Ásgeirsson, forstjóri Sjó-
vár, í samtali við Morgunblaðið. Í gær
var greint frá því í blaðinu að heildar-
viðskiptavild Sjóvár samkvæmt stofn-
efnahagsreikningi sem fylgir með út-
boðsgögnum félagsins nemi 14,4
milljörðum, en eigið fé félagsins er
16,6 milljarðar.
„Viðskiptavildin verður til við end-
urreisn félagsins þegar efnahags-
reikningurinn er stilltur af. Þegar sótt
er um starfsleyfið kemur viðskipta-
vildin ekki inn á borð hjá Fjármálaeft-
irlitinu, eingöngu efnislegar eignir
liggja til grundvallar eignamatinu,“
segir Lárus. Við mat á gjaldþoli séu
óefnislegar eignir dregnar frá og það
sama eigi við um bótaskuldina: „Við-
skiptavildin kemur aldrei inn í trygg-
ingafræðilega útreikninga á getu fé-
lagsins til að standa undir skuldbind-
ingum sínum,“ segir hann.
Sala mun endurspegla yfirverð
„Að lokum er það virði félagsins í
sölu sem mun endurspegla hversu
mikið yfirverð er inni í félaginu, en
viðskiptavildin varð til þegar nýjar
eignir voru settar inn í félagið,“ segir
Lárus.
Lárus vill ekki tjá sig um þær tölur
sem koma fram í útboðsgögnum fé-
lagsins sem er nú auglýst til sölu.
Hann nefnir þó að þar sé um stofn-
efnahagsreikning félagsins að ræða
og bætir við að Sjóvá sé í fullum
rekstri og hagnaður sé af vátrygg-
ingastarfsemi: „Sá hagnaður bætist
við eigið fé félagsins í hverjum mán-
uði,“ segir forstjórinn.
Sömu endurtryggingakjör
Að sögn Lárusar lauk Sjóvá samn-
ingagerð við endurtryggjendur í
kringum áramótin. „Við erum að
semja um sömu kjör og fyrir ári,“ seg-
ir hann og bætir við að viðskiptavinir
Sjóvár þurfi engar áhyggjur að hafa
af sínum hag.
FME tekur ekki tillit
til viðskiptavildar
Sjóvá semur um endurtryggingar á sömu kjörum og áður
Endurtryggingar Forstjóri Sjóvar, Lárus Árnason, segir að samningum um
endurtryggingar hafi verið lokið um áramót og kjör haldist óbreytt.
Morgunblaðið/Kristinn
Forstjóri Sjóvár segir einungis
efnislegar eignir liggja til grund-
vallar leyfisveitingu Fjármálaeft-
irlitsins. Viðskiptavild hafi orðið
til við færslu nýrra eigna á efna-
hagsreikning félagsins.
Samkvæmt lögum um vátrygg-
ingastarfsemi þurfa trygginga-
félög að uppfylla kröfur um lág-
marksgjaldþol til að fá
starfsleyfi. Lágmarksgjaldþol er
reiknað með hliðsjón af eigna-
safni og bótaskuld fyrirtæk-
isins. Um leið og eigið fé trygg-
ingafyrirtækja er orðið lægra en
lágmarksgjaldþol þurfa trygg-
ingafélög að auka við eignir sín-
ar. Þó að aðeins þurfi að upp-
fylla lágmarksgjaldþol er
algengt að eigið fé trygginga-
fyrirtækja sé margöld sú upp-
hæð. Ekki hafa fengist upplýs-
ingar um lágmarksgjaldþol
Sjóvár.
Lágmarksgjaldþol
BANDARÍSKAR hlutabréfa-
vísitölur lækkuðu hratt í gær eftir
að Barack Obama Bandaríkja-
forseti kynnti drög að nýjum
reglum um fjármálafyrirtæki.
Reglunum er ætlað að draga úr
áhættusækni, m.a. með því að
banna bönkum að stunda viðskipti
fyrir eigin reikning og banna þeim
að fjárfesta í vogunarsjóðum.
Í síðustu viku greindi rík-
isstjórnin frá því að til stæði að
rukka gjald af allt að 50 fjármála-
fyrirtækjum til að standa undir
tapi af björgunaraðgerðum síðasta
árs.
Þessar tvær aðgerðir munu
draga úr hagnaðarmöguleikum
bandarískra banka og brugðust
fjárfestar því við með áðurnefnd-
um hætti. Lækkuðu bréf JP Morg-
an og Morgan Stanley um ríflega
fimm prósent í gær.
Gengi banka
lækkar
LANDIC Property Ísland hefur
skipt um nafn og mun nú bera heit-
ið Reitir fasteignafélag. Í tilkynn-
ingu segir að undanfarið ár hafi
verið unnið að því að verja íslenska
starfsemi félagsins og losa um er-
lendar eignir og veðskuldir. Rekst-
ur íslenska eignasafnsins sé nú
tryggður og standi traustum fótum.
Reitir verða sjálfstætt félag í
meirihlutaeigu íslenskra banka.
Samningarnir tryggja áframhald-
andi rekstrargrundvöll innlends
fasteignasafns í sjálfstæðu félagi,
að því er segir í tilkynningunni.
Landic skiptir
um nafn