Morgunblaðið - 22.01.2010, Síða 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2010
Útsölulok
10%
aukaafsláttu
r
af öllum útsö
luvörum
Gildir fimmtudag til sunnudags
Aukaafsláttur reiknast af útsöluverði
STEFÁN Ragnar Jónsson líffræð-
ingur varði doktorsritgerð sína „The
Antiretroviral APOBEC3 Proteins of
Artiodactyls“ (Retróveiruhindrinn
APOBEC3 í klaufdýrum) frá Lækna-
deild á heilbrigðisvísindasviði Há-
skóla Íslands 9. október sl.
Leiðbeinendur Stefáns voru dr.
Valgerður Andrésdóttir, vísinda-
maður á Tilraunastöð HÍ í meinafræði
að Keldum og dr. Reuben S. Harris,
dósent, Department of Biochemistry,
Biophysics and Molecular Biology, University of Minne-
sota. Aðrir í doktorsnefnd voru dr. Ólafur S. Andrésson,
prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ, dr. Ei-
ríkur Steingrímsson, prófessor við Læknadeild HÍ og
Guðmundur Pétursson, prófessor emeritus, Til-
raunastöð HÍ í meinafræði að Keldum.
Stefán fæddist árið 1977. Hann lauk stúdentsprófi frá
náttúrufræðibraut MK árið 1997 og B.Sc. gráðu í líffræði
frá HÍ í júní 2000. Hann hóf meistaranám við Lækna-
deild HÍ árið 2001 og doktorsnám við sömu deild 2004.
Foreldrar Stefáns eru Jón Kr. Stefánsson lyfjafræð-
ingur og Hanna G. Ragnarsdóttir vefnaðarkennari.
Doktor í líf- og
læknavísindum
Stefán Ragnar
Jónsson
Finnar
tengja AGS
við Icesave
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTI Finn-
lands tekur undir yfirlýsingar Sig-
bjørns Johnsens, fjármálaráðherra
Noregs, í Morgunblaðinu í gær
varðandi tengsl endurskoðunar
efnahagsáætlunar Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins og Icesave.
Í svari við fyrirspurn Morg-
unblaðsins vísar talsmaður finnska
fjármálaráðuneytisins í lánaskil-
mála og segir að Norðurlöndin
þurfi að fá jákvæða umsögn frá
AGS áður en næsti hluti lánanna
verði greiddur út.
Finnar muni fagna því ef breiður
stuðningur verði í stjórn AGS við
endurskoðun efnahagsáætlunar-
innar. Það kalli hins vegar á að Ís-
land standi við skuldbindingar
landsins varðandi innistæðutrygg-
ingar samkvæmt EES-samn-
ingnum.
„Það er starfsfólks Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins að ákveða hvenær
rétt er að kynna næstu endur-
skoðun í stjórninni. Bæði AGS og
Ísland þurfa stuðning
alþjóðasamfélagsins til að halda
áfram. Þótt það séu engin formleg
tengsl milli áætlunar AGS og Ice-
save-samninga virðist eins og með-
höndlun á Icesave-málinu myndi
gegna hlutverki í þessu tilliti.“
egol@mbl.is
Hafa sömu afstöðu
og Norðmenn
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
ENN eru líklega um tveir mánuðir
þar til farið verður í útboð á fram-
kvæmdum við sjóvarnargarð í Vík í
Mýrdal.
Fjaran fyrir neðan bæinn er nú
komin inn fyrir svokallaða eftirlits-
línu á samfelldum 750 metra kafla.
Er því talin brýn nauðsyn á að hefja
framkvæmdir frekari flóðvarnir með
því að hækka flóðvarnargarð vestan
Víkurár, sem gerður var árið 1994,
og styrkja hann. Einungis nokkrir
tugir metra eru frá ströndinni að
íþróttavelli bæjarins, en í meðalári
fara sjö til tíu metrar, þó að mun
meira geti farið á ári hverju. Mest
landbrot er yfir vetrarmánuðina.
verður stofnunin tilbúin í útboðið
fljótlega eftir að slík heimild er feng-
in, líklega nokkrum vikum eftir þann
tímapunkt.
Hundrað milljónir króna hafa ver-
ið settar í það á fjárlögum þessa árs
að gera varnargarðinn sem í heild
verður 750 metra langur. Áætlað er
að kostnaður við alla þá lengd verði
233 milljónir, á verðlagi október
2009, að því er segir í skriflegu svari
Kristjáns L. Möller samgönguráð-
herra við fyrirspurn á Alþingi fyrir
jól. Að sögn Kristjáns Helgasonar er
gert ráð fyrir því að til komi fram-
haldsfjárveiting til þess að klára
verkið.
Í sama svari samgönguráðherra
segir að verkið muni taka sex til átta
mánuði frá því að það er boðið út.
Sem stendur er tillaga til breyt-
ingar á aðalskipulagi í auglýsingu og
stendur frestur til að gera athuga-
semdir við hana til 2. febrúar.
Að sögn Sveins Pálssonar sveitar-
stjóra, sem jafnframt er skipulags-
fulltrúi Mýrdalshrepps, fer það eftir
eðli og umfangi athugasemda hversu
langan tíma tekur að fara yfir þær en
gera megi ráð fyrir að því verði lokið
um miðjan febrúar. Þá tekur við af-
greiðsla skipulagsins hjá skipulags-
stofnun og umhverfisráðherra, auk
þess sem sveitarfélagið þarf að sam-
þykkja heimild til að fara í fram-
kvæmdina.
Útboð eftir að heimild fæst
Að sögn Kristjáns Helgasonar,
deildarstjóra hjá Siglingastofnun,
Brimgarður bíður útboðs
Skipulagsmál í sveitarfélaginu þurfa að klárast áður en hægt er að fara í útboð Bara nokkrir tugir
metra í íþróttamannvirki og landbrot í meðalári hátt í tíu metrar 100 milljónir í verkið á þessu ári
Sjóvarnargarður í Vík
Strand
lína 19
19
Fyrirhugaður sjóvarnargarður
Bakki 2009
Strandlína 2009
Strandlína
1990
Strandlína 19
71
Íþr
ótt
avö
llu
r
Sk
óli
og
íþr
ótt
am
an
nvi
rki
233
141
103
305
55
114
24
RITAÐ var undir samstarfssamning í gær milli Hugmyndahúss Háskól-
anna og Faxaflóahafna um verkefnið Útgerðina. Samstarfið felst í því að
Faxaflóahafnir láta Hugmyndahúsinu í té afnot efri hæðar Bakkaskemmu
við Grandagarð til loka ársins 2010. Um er að ræða ríflega tvö þúsund fer-
metra húsnæði. Útgerðin er tilraunaverkefni sem ætlað er að rjúfa landa-
mæri tækni, vísinda og skapandi greina. Meðal þess sem aðstaðan mun
hýsa er leik-, dans- og sönglist, ásamt frumkvöðlasetri. Þar verður útskrif-
uðum stúdentum boðið upp á verkefni og aðstöðu til nýsköpunar. Hug-
myndahús háskólanna er upphaflega samstarfsverkefni Listaháskólans og
Háskólans í Reykjavík. Að undirskrift lokinni í gær brugðu nokkrir sviðs-
listanemar á kreik með þeim Ingibjörgu Grétu Gísladóttur verkefnisstjóra
og Júlíusi Vífli Ingvarssyni, stjórnarformanni Faxaflóahafna.
Morgunblaðið/RAX
HUGMYNDAHÚS UNGA FÓLKSINS Í ÚTGERÐINNI
FORSETI Íslands Ólafur Ragnar
Grímsson átti í vikunni fund með for-
seta Maldíveyja, Mohamed Nasheed,
í Abu Dhabi, en báðir sóttu Heims-
þing hreinnar orku sem þar var
haldið.
Á fundi forsetanna ræddu þeir
samstarf þessara tveggja eyþjóða.
Bæði löndin tengjast loftslagsbreyt-
ingum á afgerandi hátt sem kemur
fram í bráðnun jökla og hugs-
anlegum breytingum á hafstraumum
við strendur Íslands og hækkun sjávarborðs við Maldí-
veyjar. Samvinna landanna gæti orðið áhrifarík í al-
þjóðlegri baráttu gegn loftslagsbreytingum.
Loftslagsbreytingar ógna þjóðaröryggi Maldíveyja
þar eð hækkun sjávarborðs, m.a. vegna bráðnunar íss á
norðurslóðum, getur sökkt eyjunum á næstu áratugum.
Fundaði með forseta Maldíveyja
um samstarf tveggja eyþjóða
Ólafur Ragnar
Grímsson
RANGHERMT var í blaðinu í gær að Elías Blöndal væri
skiptastjóri í þrotabúi Bobby Fischer. Hið rétta er að
skiptastjórinn er Eiríkur Elías Þorláksson hrl. Beðist er
velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT
Rangt nafn