Morgunblaðið - 22.01.2010, Side 40

Morgunblaðið - 22.01.2010, Side 40
FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 22. DAGUR ÁRSINS 2010 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana FÓLK Í FRÉTTUM»                       ! " #  $    $  ! %& '!&  !  ( )*+,-. */0,12 )*),*+ *-,/2. *),3-* )+,.)- )*),00 ),213- )3+,31 )+1,3)  456  4 *)" 7 8 5 */)/ )*+,+. */.,22 )*),.2 *-,)/. **,//+ )+,... )*),13 ),2320 )31,0+ )+3,-) *2-,..) %  9: )*1,/. */.,12 )*),33 *-,)+. **,/+* )+,+)1 )**,*2 ),23+. )33,). )+3,3) Heitast 8°C | Kaldast 3°C Sunnan 5-13 m/s og skúrir, léttir til norðaustanlands. Hiti 3 til 8 stig. »10 Inke Rosilo í Finn- landi setur Skugga- Baldur, skáldsögu Sjón, í brúðuleik- húsbúning í haust. »32 LEIKHÚS» Finnskar brúður FÓLK» Skoppa og Skrítla eru að- alsmenn vikunnar. »34 Njóta þeir listamenn sem búa til verk ætl- uð börnum sömu virðingar og þeir sem skapa fyrir full- orðna? »35 AF LISTUM» Börnin eiga gott skilið KVIKMYNDIR» Clooney, Cage og Chuck eru mættir í bíó. »36 FÓLK» Beckham komst í hann krappan í Mílanó. »33 Menning VEÐUR» 1. Klúðruðu stigi í lokin 2. Margir missa vinnuna á RÚV 3. Von á illviðri í dag 4. Fjölgun aðgerða á kynfærum …  Íslenska krónan veiktist um 0,1% »MEST LESIÐ Á mbl.is  Þorsteinn Hilmarsson, sem verið hefur upp- lýsingafulltrúi Landvirkjunar sl. 18 ár, hefur látið af störfum. Á heimasíðu Lands- virkjunar segir að framundan séu breytingar á starfsumhverfinu. Brýnt sé að efla og breyta ímynd Landsvirkjunar bæði gagnvart fjármögnunarfyrirtækjum, fjöl- miðlum og almenningi. Sam- komulag við Þorstein um starfslok hans sé liður í þessum breytingum og eru honum þökkuð vel unnin störf í þágu félagsins. FYRIRTÆKI Þorsteinn Hilmarsson hættir hjá Landsvirkjun  Íslendingarnir Hildur Guðna- dóttir, Jóhann Jó- hannsson og Bedroom Comm- unity-félagarnir Valgeir Sigurðsson og Ben Frost munu taka þátt í fjórða Nordic Night- kvöldinu sem fer fram í menningar- miðstöðinni í Hasselt í Belgíu hinn 9. febrúar. Fjölmargir skandinavískir hljómlistarmenn hafa komið fram á fyrri kvöldum en í þetta sinnið verð- ur litla Ísland sérstaklega í sviðsljós- inu. TÓNLIST Íslendingar á Nordic Night 4 í Belgíu  MIDEM-tón- listarráðstefnan hefst í Frakklandi um helgina. Fjög- ur íslenskt fyr- irtæki verða á staðnum; Gogo- yoko, IMX, STEF og Kimi Records. Eivör Pálsdóttir kemur fram á ráðstefnunni auk Hafdísar Huldar sem var valin af sérstakri MIDEM-nefnd til að spila. Hafdís kemur fram á tón- leikum fyrir alþjóðlega listamenn sem eru á uppleið og þykja lofa sérstaklega góðu. MIDEM er stærsta tónleikaráðstefna í heimi og því til mikils að vinna. TÓNLIST Hafdís Huld þykir lofa mjög góðu og spilar á MIDEM LJÓÐSKÁLDIÐ og rithöfundurinn Gerður Kristný tók í gær við Ljóð- staf Jóns úr Vör í athöfn í Salnum í Kópavogi en þetta var í níunda sinn sem tilkynnt er um vinningshafa í ljóðasamkeppninni. Ljóð Gerðar nefnist „Strandir“. Um 300 ljóð bárust í keppnina Að þessu sinni bárust um 300 ljóð í keppnina. Bjarni Gunnarsson hlaut einnig viðurkenningu fyrir ljóðið „Smíðar“. Efnt er til samkeppninnar á hverju ári og eru verðlaunin ætíð afhent á fæðingardegi Jóns úr Vör (1917-2000). Hugmyndin að verðlaununum er upphaflega komin frá félögum úr Ritlistarhópi Kópavogs. Þátttak- endum er gert að skila verkum inn undir dulnefni og hlýtur sigurveg- arinn vegleg peningaverðlaun og verðlaunagripinn, Ljóðstaf Jóns úr Vör, áletraðan með nafni sínu til varðveislu í eitt ár, auk eignargrips. Síðasti handhafi Ljóðstafsins, Anton Helgi Jónsson, las ljóð við at- höfnina í gærkvöldi. Í dómnefndinni að þessu sinni sátu skáldin og rithöfundarnir Ingi- björg Haraldsdóttir, Sigþrúður Gunnarsdóttir og Þórarinn Eldjárn. Morgunblaðið/Golli Með stafinn Gerður Kristný hamp- ar Ljóðstaf Jóns úr Vör í gærkvöldi. Gerður Kristný hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör ÖNNUR sólóplata Ólafar Arnalds, Innundir skinni, kemur út í vor og þá samtímis á Íslandi, í Evrópu og Bandaríkjunum. Ólöf mun frum- flytja efni af plötunni væntanlegu í Þjóðmenningarhúsinu annað kvöld. Viðtökur við fyrstu sólóplötu hennar, Við og við, voru afar góðar bæði hér heima og í Bandaríkjunum og gáfu virt, bandarísk tímarit henni góða dóma. „Í Ameríku er mikið grúskað í tónlist frá alls konar löndum og það hefur til dæmis aldrei verið fyrir- staða að ég syng á íslensku. Þar hef- ur verið svona „folk“-vakning og það náttúrlega hjálpar,“ segir Ólöf um þessar viðtökur. | 32 Íslenskan ekki fyrir NÓG hefur verið að gera hjá hinum 77 ára blóma- bónda Emil Gunnlaugssyni í vikunni enda eykst blómasalan mikið í kringum bóndadaginn. Emil rekur garðyrkjustöðina Land og syni á Flúðum ásamt sonum sínum. „Okkur veitir ekkert af svona dögum svo menn taki við sér, í þessu svartnætti sem nú er. Það er orðið svo dýrt brennivínið að það er miklu betra að gefa blóm.“ Emil hefur verið lengi í bransanum en hann reisti fyrsta gróðurhúsið á Flúðum árið 1955. Síðan hefur hann og þeir feðgar stækkað stöðina og byggt nýja. Alls eru þeir nú með ræktun á um 6.000 m². Þeir skera nú rósir á hverjum einasta degi ársins og alls nemur framleiðslan um 20.000 rósum á viku. Á Íslandi eru ræktuð blóm í gróðurhúsum sem eru alls um 45.000 fermetrar og skiptist markaðurinn á milli 15 til 20 framleiðenda. Um helmingur dreifir í gegnum Grænan markað, blómaheildsalan Samasem dreifir fyrir nokkra og sumir framleiðendur dreifa blómum sínum sjálfir til verslana. „Okkur veitir ekkert af svona dögum“ Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is ÞEGAR þetta er lesið hafa sjálfsagt margir karlmenn fengið einhvern glaðning frá spúsu sinni, enda er bóndadagurinn runninn upp, en hin- ir eiga það væntanlega eftir. Sumir eru gladdir með blómum en að sögn Sigurðar Moritzsonar hjá Grænum markaði, sem dreifir innlendum blómum í blómabúðir, eru helmingi fleiri blóm send í búðir í vikunni fyr- ir bóndadaginn en venjulega. Hann er þó aðeins hálfdrættingur á við konudaginn en í aðdraganda hans tvöfaldast blómasendingarnar. „Okkar tilfinning er sú að konur hafi frekar keypt blóm með öðru sem þær gera en karlarnir geri sér frek- ar sérstaka ferð út í blómabúð á konudaginn og kaupi stærri vendi.“ Aukist eftir 1990 Blómagjafir til karlmanna á bóndadaginn eru tiltölulega nýjar af nálinni. Sigurður segir að fyrstu auglýsingarnar um að blóm ætti að gefa á bóndadegi hafi birst upp úr 1980. „Síðan fer þetta ekkert að aukast neitt fyrr en upp úr 1990, en það tengist því að á árum áður var svo lítið framleitt af íslenskum blóm- um yfir vetrartímann. Upp úr 1990 var farið að lýsa garðyrkjustöðv- arnar. Síðan hefur sala á þessum degi aukist jafnt og þétt.“ Fyrir 1990 hafi mest verið selt af túlipönum sem þurfi ekki lýsingu en síðan hafi rósir og liljur rutt sér til rúms, þótt túlipanar séu enn vin- sælir. Bóndadagur er hálfdrættingur Salan eykst um helming á bónda- daginn en tvöfald- ast á konudaginn Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Blómlegur Emil Gunnlaugsson reisti fyrsta gróðurhúsið árið 1955 en byrjaði að rækta blóm fyrir um 45 árum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.