Morgunblaðið - 22.01.2010, Síða 31
Menning 31FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2010
KARLAKÓRINN Hreimur í
Þingeyjarsýslu heldur tónleika
í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
á morgun klukkan 16.
Stjórnandi kórsins er Aladár
Rácz en undirleik á píanó ann-
ast Tuuli Rahni. Gestasöngvari
er Baldvin Kristinn Baldvins-
son og Sigurður Á. Þórarins-
son syngur einsöng en tvísöng
syngja þeir Ásmundur Krist-
jánsson og Baldur Baldvins-
son.
Á söngskránni er fjölbreytt úrval laga eftir er-
lenda og innlenda höfunda.
Karlakórinn Hreimur hefur nú starfað í 35 ár
og gefið út nokkra hljómdiska.
Tónlist
Hreimur syngur
í Víðistaðakirkju
Hreimur
á tónleikum.
SÖNGHÓPURINN Hljóm-
eyki flytur íslenska kirkju-
tónlist í Skálholtsdómkirkju á
morgun. Tónleikarnir hefjast
klukkan 16.
Á efnisskránni eru íslensk
kórverk sem flutt hafa verið á
liðnum árum af Hljómeyki á
Sumartónleikum í Skálholti,
en Hljómeyki hefur frá árinu
1986 haldið eina tónleika á
hverju sumri þar sem frum-
flutt hafa verið ný íslensk kórverk.
Tónleikarnir eru liður í sýningunni End-
urreisn Skálholts sem stendur fram í apríl á
þessu ári.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.
Tónlist
Hljómeyki heldur
tónleika í Skálholti
Sönghópurinn
Hljómeyki.
FÉLAGAR í kór Rétttrún-
aðarkirkjunnar á Íslandi og
hópur barna sem rekja ættir til
Serbíu koma fram á tónleikum
og danssýningu í MÍR-salnum,
Hverfisgötu 105, á morgun og
hefst dagskráin klukkan 17.
Söngvararnir eru félagar í
„Manasija“, litlum kór sem
stofnaður var fyrir rúmum
fimm árum í þeim tilgangi að
leiða messusöng hjá nýstofn-
uðum söfnuði Rétttrúnaðarkirkjunnar. Börnin
sem fram koma eru á aldrinum 7-11 ára og hafa
sótt námskeið í „serbneska“ skólanum sem hóf
störf í september sl. Stjórnandi kórsins og skólans
er Nebojsa Colic.
Menningardagskrá
Sungið og dansað
í MÍR-salnum
Frá athöfn í Rétt-
trúnaðarkirkju.
Eins getur það ekki
verið slæmt fyrir
unglinga landsins að kynn-
ast níðskáldinu … 35
»
VERK seljast en fólk tekur sér góð-
an tíma í að taka ákvörðun um
kaup,“ sagði einn galleristanna á
London Art Fair-listkaupstefnunni,
sem lauk um liðna helgi. Sam-
kvæmt The Art Newspaper voru
áhrif efnahagslægðarinnar augljós
á kaupstefnunni, en þetta var í 22.
sinn sem London Art Fair er haldin.
116 gallerí voru með að þessu sinni,
sem er nokkur fækkun milli ára.
Áhugi gesta var þó sambærilegur,
en 3.700 manns mættu á fyrsta degi
til að skoða listina. Fólk var þó
frekar að skoða en að íhuga kaup
að þessu sinni. „Það var svo mikið
að gera í fyrra að þá vorum við
fjögur að aðstoða fólk, en nú sit ég
hér og skrifa fyrirlestur. Það hefði
ég ekki getað í fyrra,“ sagði einn
galleristinn. Margir galleristar
sögðust hafa selt þrjú til fimm verk,
á verðbilinu 2.000 til 25.000 pund,
sem er nokkru lægra verð en sást á
síðustu árum. Eitt og eitt verk dýr-
ari víðkunnra listamanna seldist.
Reuters
Á listkaupstefnunni Margir skoð-
uðu listina, færri keyptu.
Kreppu-
hljóð á
kaupstefnu
Talsvert lægra verð
á London Art Fair
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„HÁRBEITT ádeila á tíðarandann í
dag,“ segir í auglýsingu um leik-
verkið Góðir Íslendingar sem verður
frumsýnt á nýja sviði Borgarleik-
hússins í kvöld.
Þetta er nýtt íslenskt verk eftir þá
Hall Ingólfsson, Jón Pál Eyjólfsson
og Jón Atla Jónasson sem voru með
annað ádeiluverk á fjölunum síðasta
vetur, Þú ert hér.
Góðir Íslendingar er ádeila á ís-
lenskt samfélag og hvernig við
glímum við afleiðingar efnahags-
hrunsins. En hvernig birtist ádeilan
í verkinu?
„Hún er kannski ekki beinskeytt,
hún birtist í þeirri umræðu sem fer
fram á sviðinu og hvernig fólk tekst
á við málin,“ svarar Hallur Ingólfs-
son, einn höfunda. „Þú ert hér
fjallaði um þessa stórkostlegu yfir-
breiðslu sem fór fram í fjölmiðlum í
kjölfar hrunsins, þessa orðræðu sem
fór af stað þegar menn voru að
reyna að firra sig ábyrgð.
Góðir Íslendingar fjallar um fólkið
sem hefur fengið skellinn og er að
leita einhvers konar réttlætis eða
skýringa en fær hvorugt, en fær hins
vegar ábyrgðina, skuldina, í hausinn.
Þetta er um okkur, ekki orsakirnar.“
Hallur segir að þeir hafi unnið
verkið upp úr spuna og alls konar
heimildum. „Við fylgdumst með fjöl-
miðlum og skoðuðum hvað fólk var
að segja, lásum umræðuna á blogg-
inu og fésbókinni, skoðuðum þessi
tól sem við höfum til að ná hvert til
annars og útvarpa skoðunum okkar.
Við vorum ekki með neina niður-
stöðu þegar við fórum af stað og vor-
um ekki að leita að neinum skot-
mörkum, niðurstaðan á sviðinu
verður til úr vinnunni.
Við rýnum í íslenskan samtíma í
verkinu. Ég held að það sé alltaf þörf
fyrir það að listin skoði það sem er í
gangi hverju sinni, þetta verk er
sprottið upp úr okkar umhverfi hér
eins og það er,“ segir Hallur.
Góðir Íslendingar frumsýndir í kvöld
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Góðir Íslendingar Íslendingar með fangið fullt af gluggaumslögum.
Í HNOTSKURN
» Leikarar í verkinu eruhöfundarnir þrír; Hallur
Ingólfsson, Jón Páll Eyjólfsson
og Jón Atli Jónasson, auk
Bergs Þórs Ingólfssonar, Dóru
Jóhannsdóttur, Halldórs
Gylfasonar og Halldóru Geir-
harðsdóttur.
» Í Góðum Íslendingum erverið að skoða sjálfsmynd
íslensku þjóðarinnar sem birt-
ist m.a. í því hvernig við kom-
um fram og tjáum okkur á
veraldarvefnum og í lífinu yf-
irleitt.
Um fólkið sem
fékk skellinn
www.borgarleikhus.is
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
HELGI Hóseasson, sem kallaður hefur verið „mótmæl-
andi Íslands“, lést sl. haust 89 ára að aldri. Hann var
þekktur fyrir mótmæli sín gegn kirkju og yfirvöldum,
en hann stóð flesta daga með mótmælaskilti sitt á horni
Langholtsvegar og Holtavegar. Skiltin voru mörg eft-
irminnileg eins og gefur að sjá á sýningu sem opnuð
verður í Norræna húsinu næstkomandi laugardag.
Sveinn Þórhallsson í Galleríi Turpentine skipuleggur
sýninguna en sýningarstjóri er Guðmundur Arnarson.
Sveinn segist hafa keypt ríflega tuttugu mótmælaskilti
af ættingja Helga skömmu fyrir andát hans og þau skilti
verða sýnd í Norræna húsinu á laugardag. Hann segist
líta á skiltin sem fullmótuð listaverk „og mig hafði lengi
langað til að eignast skilti þegar mér buðust þessi skilti.
Fyrir mér eru þetta innsetningar, sterkar tilvísanir í
ákveðin hugtök sem Helgi velti fyrir sér og glímdi við.“
Sveinn segir að líkt og með alþýðulist þá túlki hver
þetta fyrir sig en fyrir honum sé listagildið ótvírætt þó
að Helgi hafi eflaust ekki haft það í huga, þegar skiltin
voru gerð, að hann væri að skapa listaverk. Aðspurður
hvort Helgi hafi vitað af því að hann keypti skiltin segist
hann ekki vita það, en kaupin hafi átt sér stað ekki löngu
áður en Helgi lést.
Sýningin í Norræna húsinu er ekki sölusýning, en
Sveinn segist sjálfsagt eiga eftir að selja einhver skilt-
anna þegar fram líður.
Sýningin verður opnuð á laugardag kl. 15 og stendur
til 15. febrúar. Aðgangur er ókeypis.
Mótmælaskilti Helga Hóseassonar til sýnis
Innsetningar með
ótvírætt listagildi
Listaverk Biblía Helga Hóseassonar er í kassa á sýning-
unni innan um mótmælaskilti sem hann bjó til.
Morgunblaðið/Heiddi
WWW.OPERA.IS MIDASALA@OPERA.IS S. 511 4200
LOKASÝNING!
LAUGARDAGINN 23. JANÚAR KL. 20
Fimm stjörnu sýning – „Sigur í Óperunni“ – JVJ, DV
„…Söng- og leiktúlkun ofan af sviði færðist í æðra veldi.“ – RÖP, Mbl.
„Ótrúlega gaman – Hvílíkir söngvarar og túlkendur“ – SA, tmm.is
„Skemmtileg kvöldstund“ – PBB, Fbl.
„Hrífandi og bragðgóður drykkur“ – PÁÁ, eyjan.is