Morgunblaðið - 22.01.2010, Síða 32

Morgunblaðið - 22.01.2010, Síða 32
32 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2010  Hún Leoncie okkar lætur ekki vaða yfir sig og tók fyrir stuttu bandaríska sjónvarpsstöð, sem var að nota lag hennar „Invisible Girl“ í leyfisleysi, í karphúsið. Orðrétt segir Leoncie í bréfi til ritstjórnar: „Leoncie sparkaði út úr youtube amerískri heimskri sjónvarpskonu fyrir að stela tónlist hennar og nota það án leyfis í 18 mánuði. STEF gat ekki hjálpað henni og voru lamaðir af ótta við að berjast við bandaríska sjónvarpsstöð. Þrautseigja Leoncie sigraði.“ Svo mörg voru þau orð. Leoncie lætur móðan mása … nema hvað Fólk Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Í GÆR var fagnað í höfuðstöðvum útgáfunnar Bjarts og þriggja hæða rjómaterta með marsip- anrós snædd með kaffinu. Tilefnið var und- irritun samnings um finnsk brúðuleikhúsréttindi eftir skáldsögunni Skugga-Baldur eftir Sjón. Það var skáldið sem bauð upp á tertuna. Brúðuleikhúsmaðurinn Inke Rosilo mun leiða brúðuleikhúsverkið en hann ku vera mikils- virtur í þeim leikhúsheimi. „Ég er mjög ánægður með að þetta er að fara á fjalirnar, það undirstrikar að sagan hefur víða skírskotun og er nógu „einföld“ í gerð sinni til að hægt sé að segja hana með ólíkum brögðum. Brúðuleikhúsið er eitt af elstu frásagnartækjum mannsins, enda uppruni þess við elda frum- mannsins, þegar hann rétti framhöndina og bjó til sögufígúrur úr skugga hennar á hellisvegg- inn. Það kæmi mér ekki á óvart að hugmyndin að Skugga-Baldri hafi orðið til á slíkri sögu- stund þótt hún hafi ekki ratað til mín og á bók fyrr en árið 2003,“ segir Sjón. Frumsýning á verkinu er áætluð í haust og verður verkið lík- lega fyrir tvo leikara og tónlistarmann. Skugga-Baldur er rómantísk skáldsaga sem gerist á Íslandi um miðja 19. öld. Aðalpersón- urnar eru presturinn Baldur, grasafræðingurinn Friðrik og vangefna stúlkan Abba sem tengist lífi og örlögum mannanna tveggja með af- drifaríkum hætti. Brúðuleikhús unnið eftir Skugga-Baldri Sjón Hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlanda- ráðs fyrir Skugga-Baldur árið 2003.  JAJAJA er norrænt klúbbakvöld sem sett var á laggirnar af ÚTÓN, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, og systurskrifstofum ann- ars staðar á Norðurlöndunum. Kvöldin fara fram mánaðarlega á Lexington í London. Fjórar íslensk- ar hljómsveitir hafa þegar komið fram þessi kvöld, Kira Kira, Blood- group, Sudden Weather Change og Leaves. Sá sem velur inn á næsta kvöld er Alexander Milas, ritstjóri Metal Hammer. Velur hann þrjár sveitir og verði íslensk hljómsveit fyrir valinu veitir ÚTÓN viðkom- andi ferðastyrk sem nemur allt að 150.000 krónum. ÚTÓN fer í samstarf við Metal Hammer  Hljómsveitin Sometime hefur gefið út þriðju smáskífu sína af plötunni Supercalifragilisticexpia- lidocious [2009 Re-Issue]. „Optimal Ending“ kemur út á netinu og inni- heldur fimm endurhljóðblandanir. Sveitin er um þessar mundir að taka upp aðra breiðskífu sína, sem kemur út með hækkandi sól. Sometime nýtir sér netið upp í topp „ÞAÐ er ekki komið í ljós hvað verður í ár og ekkert farið að ræða það,“ segir sjónvarpsmaðurinn Gísli Einarsson spurður hvort fleiri þættir verði gerðir af hinum sí- vinsæla Út og suður. „Það er niður- skurður og maður veit ekki hvað verður, eina sem ég get sagt er að það er nóg eftir af skemmtilegu fólki í landinu til að ræða við.“ Þegar hafa verið sýndar sjö þáttaraðir af Út og suður, hafa þær allar notið mikilla vinsælda, jafnvel fyrir utan landsteinana. „Það er búið að sýna þessa þætti í Svíþjóð eiginlega frá upphafi, svona einn og einn þátt. Ríkis- útvarpið er aðili að Samtökum nor- rænna sjónvarpsstöðva og hjá þeim er skiptimarkaður tvisvar á ári þar sem hver og einn kemur með þætti sem þeir eru að framleiða og svo velja menn úr og skiptast á þáttum. Ég veit að eitthvað hefur verið sýnt í Finnlandi og Noregi en að- allega í Svíþjóð. Ein skemmtileg saga í tengslum við þetta, sem hef- ur nú einhvers staðar heyrst, er þegar höfundur Einars Áskels, Gunilla Bergström, sá þátt af Út og suður þar sem ég ræddi við brúðu- gerðarmanninn Bernd Ogrodnik sem er búsettur í Borgarnesi. Það var lengi búið að djöflast í Berg- ström að gera eitthvað meira með Einar Áskel, kvikmynd eða leikrit, en hún hafði aldrei fundið réttu leiðina. Svo sá hún Út og suður í sænska sjónvarpinu og sá strax að Ogrodnik væri rétti maðurinn til að gera eitthvað með Einar Áskel og úr því varð brúðuleiksýning sem er búið að sýna í Þjóðleikhús- inu og víðar,“ segir Gísli. ingveldur@mbl.is Morgunblaðið/Golli Gísli Einarsson Tilbúinn í hvað sem er með hund og heykvísl. Út og suður fer víða  Brúðuleiksýning um Einar Áskel varð til vegna sýningar á Út og suður í Svíþjóð  Framtíð þáttarins óljós Eftir Hólmfríði Gísladóttur holmfridurg@mbl.is Í VOR kemur út önnur sólóplata tón- listarkonunnar Ólafar Arnalds. Plat- an, sem bar vinnutitilinn Ókídókí, hefur fengið nafnið innundir skinni. Fjöldi tónlistarmanna leggur henni lið á plötunni, þeirra á meðal Kjartan Sveinsson, Davíð Þór Jónsson og Skúli Sverrisson. Næstkomandi laug- ardag kl. 20 ætlar Ólöf að frumflytja efni af plötunni á tónleikum í Þjóð- menningarhúsinu. Á tónleikunum spilar Davíð Þór með henni á flyg- ilinn, en hann mun einnig hita upp með eigin efni. Verður til í kollinum Fyrri plata Ólafar, Við og Við, hlaut gríðarlega góðar viðtökur, bæði hér heima og í Bandaríkjunum. NME, Vanity Fair og The New York Times gáfu henni mjög góða dóma og eMusic valdi hana sem eina af 100 bestu plötum áratugarins. Ólöf segir engar róttækar breytingar hafa orðið á tónlist sinni frá fyrri plötunni. „Ég er ekki að taka neina meðvitaða stefnu eða teygja mig í áttina að ein- hverju. Ég er bara að skila einhverju frá mér sem verður til í kollinum. Þetta er bara mín tónlist. Ég er nátt- úrlega að vinna með fleiri tónlist- armönnum núna en grunnurinn í lög- unum er alltaf samfelldar, lifandi upptökur af mér og að minnsta kosti einum öðrum að spila. Í raun er þetta sama stefnan og á hinni plötunni en með fleiri hljóðfæraleikurum,“ segir Ólöf og nefnir það einnig að á nýju plötunni verði þrjú laganna sungin á ensku. Innundir skinni kemur út samtímis á Íslandi, í Evrópu, Bandaríkjunum og Ástralíu. En af hverju heldur hún að viðtökurnar erlendis hafi verið eins góðar og raun ber vitni? „Í Am- eríku er mikið grúskað í tónlist frá alls konar löndum og það hefur til dæmis aldrei verið til fyrirstöðu að ég syng á íslensku. Þar er búin að vera svona folk-vakning í gangi og það náttúrlega hjálpar. Það getur líka verið að fólk sé forvitið fyrir því að þetta eru svona lifandi tökur. Og í spilamennskunni eru tónleikarnir mínir sjaldnast eins, það getur margt óvænt gerst og ég er ekkert með fyr- irfram ákveðna röð á því sem ég ætla að gera heldur les ég stemninguna og fer eftir því. Þetta er svona frásagn- ar-nálgun við það að koma fram og taka upp. Það er svo mikið þannig núna að allt er ákveðið og fólk leggur upp með ákveðna hluti og gerir þá alltaf í sömu röð og allir tónleikar eru eins. Sem er bara frábært líka en fólki finnst hitt kannski forvitnilegt.“ Ólöf er að vonum ánægð með þá at- hygli sem tónlist hennar hefur vakið erlendis og segist hafa mikinn áhuga á því að fylgja þessu eftir með tón- leikahaldi. Hún gerir ráð fyrir því að verða mjög upptekin við að spila út árið en er jafnframt farin að huga að næstu plötu. „Á meðan ég bíð eftir að þessi plata komi út er ég bara að setja kraftana í að skrifa þá næstu. Hún er að fæðast í huganum, þetta er svona sveimandi yfir mér núna. Ég geng alltaf svolítið lengi með lög í huganum áður en ég byrja að prófa hljóðfæri eða syngja eða skrifa texta. Svo er það þannig hjá mér að ef ég gleymi lögunum, þá voru þau hvort eð er ekki nógu góð,“ segir hún og hlær. Hugurinn enn heima Og hvað sem líður stórum draum- um og gylliboðum þá er hugurinn líka heima. „Ég á tveggja ára gamlan son og vil náttúrlega ekki vera lengi í burtu í einu. Ég held að ég vilji búa á Íslandi áfram, alla vega næstu árin því mér finnst þetta svo góður staður til að ala upp börn. Ég finn það alveg toga í mig að flytja eitthvað annað en ég verð að fá þá næringu einhvern veginn öðruvísi, fara í styttri tíma. Að flytja búferlum er alla vega ekki á fimm ára planinu. Eins og er.“ Innundir skinni Ólafar  Önnur sólóplata Ólafar Arnalds kemur út í vor  Fyrri platan, Við og við, hefur hlotið mjög góðar viðtökur  Frumflytur nýju plötuna á morgun Bjart framundan Fyrsta sólóplata Ólafar hefur hlotið gríðarlega góðar við- tökur, bæði hér heima og erlendis og sú næsta kemur út í vor. Á nýju plötunni verða útsetningar og hljóðfæranotkun fjölbreyttari, en auk Ólafar sáu Davíð Þór Jóns- son og Skúli Sverrisson að mestu leyti um hljóðfæraleikinn. Hingað til hefur Ólöf eingöngu sungið á íslensku en á innundir skinni verða þrjú laganna sungin á ensku. Fyrri plata Ólafar, Við og við, hefur vakið mikla athygli erlendis og nýja platan verður gefin út sam- tímis hér heima og úti. Ólöf sér fram á stíft tónleikahald í kjölfarið. Meiri fjölbreytni á nýju plötunni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.