Morgunblaðið - 22.01.2010, Side 16
16 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2010
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
BJÖRGUNARSVEITIR héldu enn í
vonina um að finna fleiri á lífi í húsa-
rústum á hamfarasvæðinu á Haítí
eftir að tveimur börnum var bjargað
í höfuðborginni rúmri viku eftir að
öflugur jarðskjálfti reið yfir.
Björgunarmenn sögðu að ekki
væri útilokað að fleiri fyndust á lífi í
rústunum eftir skjálftann sem
mældist um 7 stig á Richters-
kvarða. Talið er að a.m.k. 75.000
manns hafi farist í náttúruhamför-
unum og um milljón manna missti
heimili sitt.
Björgunarmennirnir sögðu að
eftirskjálfti sem varð í fyrradag og
mældist 6,1 stig kynni í einhverjum
tilvikum að hjálpa þeim að bjarga
fólki úr rústunum. „Hugsanlegt er
að rústir hafi sigið vegna eftir-
skjálftans, en það er líka hugsanlegt
að fólk, sem var fast á milli steypu-
klumpa, hafi losnað,“ sagði franski
slökkviliðsmaðurinn Gilles Perroux.
Hjálparstarfið snýst nú einkum
um að sjá fórnarlömbum hamfar-
anna fyrir matvælum, vatni, lyfjum,
tjöldum og öðrum nauðsynjum en
björgunarmennirnir sögðust ekki
vera úrkula vonar um að finna fleiri
á lífi þótt líkurnar á því teldust litlar.
„Er einhver á lífi í rústunum átta
dögum eftir skjálftann? Við teljum
það, annars værum við ekki hérna. Á
meðan við erum hérna erum við von-
góðir,“ sagði annar franskur björg-
unarmaður, Fabrice Montagne.
Sérfræðingar sögðu að fólk gæti
enn verið á lífi í rústunum ef það hef-
ur ekki slasast alvarlega, hefur fund-
ið loftgat og eitthvað að borða og
drekka.
Fimm bjargað á tveimur dögum
Tvö börn voru dregin úr rústum
bygginga í höfuðborginni Port-au-
Prince á tæpum sólarhring. Fimm
ára piltur fannst í rústum heimilis
síns og nágrannar björguðu ellefu
ára stúlku í öðrum hluta borgar-
innar.
„Þetta er ekkert annað en krafta-
verk, hún lifnaði smám saman við,“
sagði Dominique Jan, skurðlæknir í
bráðabirgðasjúkrahúsi sem franskar
hjálparstofnanir komu upp.
Þremur var bjargað á þriðjudag,
þriggja vikna gömlu barni og tveim-
ur konum, 25 og 70 ára.
Talsmaður Sameinuðu þjóðanna
sagði að björgunarsveitirnar hefðu
bjargað alls um 120 manns úr rúst-
unum. Talið er að 250.000 manns
hafi slasast í skjálftanum og margir
þeirra hafa ekki fengið neina lækn-
ishjálp.
Endurreisnin gæti tekið 25 ár
Erlend ríki og alþjóðasamtök eru
farin að huga að endurreisn Haítí
eftir hamfarirnar og ætla að halda
fund um málið í Montreal á mánu-
daginn kemur. Dominique Strauss-
Kahn, yfirmaður Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, sagði að vinna þyrfti að
endurreisnaráætlun sem líkja mætti
við Marshall-áætlun Bandaríkja-
manna um endurreisn Evrópu eftir
síðari heimsstyrjöldina.
Sendiherra Haítí á Spáni, Yolette
Azor-Charles, sagði að endurreisnin
gæti tekið 25 ár. Hann kvaðst telja
að tala látinna kynni að fara í rúm
200.000 þegar björgunarsveitir
kæmust til þorpa sem eru enn
einangruð.
Um 4.000 bandarískir hermenn,
sem höfðu átt að fara til Mið-
Austurlanda og Evrópu, héldu til
Haítí í gær og gert er ráð fyrir því að
þeir verði komnir þangað um
helgina.
Alls hafa um 15.000 bandarískir
hermenn verði sendir til Haítí til að
aðstoða við hjálparstarfið.
„Ekkert annað
en kraftaverk“
Björgun tveggja barna vakti von um að fleiri fyndust á lífi
Reuters
Hjálparstarf Brasilískir friðargæsluliðar úthluta matvælum og vatni í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí.
Reuters
Björgun Barni bjargað úr rústum byggingar í Port-au-Prince.
TIL átaka kom milli örvæntingarfullra íbúa bæjarins Leogane, vestan við
Port-au-Prince, þegar tveir vörubílar komu þangað með matvæli í gær.
Hjálparstarfsmenn reyndu að úthluta einum matarpakka til hverrar fjöl-
skyldu en urðu að hætta því og leita aðstoðar bandarískra hermanna. Um
130 hermönnum tókst ekki að stilla til friðar og vörubílunum var ekið á
annan stað í bænum.
Embættismenn Sameinuðu þjóðanna sögðu í gær að minnst hálf milljón
manna svæfi undir berum himni í höfuðborginni einni. Braskarar hafa not-
fært sér neyðarástandið í borginni og verð á öllu frá matvælum til sím-
korta hefur rokið upp úr öllu valdi.
Barist um mat á hamfarasvæðinu
ÁRÁSUM sjóræningja fjölgaði á liðnu ári í 406 og árásirnar hafa ekki verið
jafnmargar í sex ár, eða frá árinu 2003 þegar sjóræningjar gerðu alls 445
árásir í heiminum.
Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Skrifstofu alþjóðlegra siglingamála
(IMB). Alls var 49 skipum rænt á liðnu ári, reynt var að ræna 84 og skotið
var á 120 skip. Alls voru 1.052 skipverjar teknir í gíslingu, 68 særðust og
átta skipverjar biðu bana í árásunum.
Árásunum fjölgaði um nær helming undan strönd Sómalíu þar sem sjó-
ræningjar réðust á alls 217 skip. Þeim tókst að ræna 47 skipum og 867 skip-
verjar voru teknir í gíslingu.
Önnur hafsvæði við Afríku eru einnig „mjög hættuleg“, að sögn IMB,
sem segir að skýrt hafi verið frá 28 árásum undan strönd Nígeríu.
Árásum sjóræningja fjölgar
Heimild: ICC
SVÆÐI ÞAR SEM
TVEIR ÞRIÐJU
TILKYNNTRA ÁRÁSA
ÁTTU SÉR STAÐ
Aden-
flói
116
Sómalía
80 Bangladess 17
Nígería 28
Malasía 16
Indónesía 15
Rauðahaf 15
TILKYNNTAR ÁRÁSIR
Á ÁRINU 2009
Árásum sjóræningja fjölgaði á liðnu ári úr 293 í 406, samkvæmt árlegri
skýrslu Skrifstofu alþjóðlegra siglingamála (IMB), en hún er deild í
Alþjóðaverslunarráðinu (ICC) og safnar upplýsingum um sjórán og
árásir á skip á heimshöfunum.
SJÓRÁN Í HEIMINUM
A
fr
ík
a
26
4
Ameríka
37
Indland/
Pakistan
29
Austurlönd fjær
23
Suðaustur-
Asía
45
Önnur
svæði
8
0
100
200
300
400
500
2005 2006 2007 2008 2009
276
239
263
293
406
TILKYNNTAR ÁRÁSIR Í HEIMINUM Á ÁRI
69
38
3229
24212118
13 14 14 16
20
45
59
64
FJÖLDI SKIPA, SEM URÐU FYRIR ÁRÁSUM ÁRIÐ 2009, EFTIR RÍKJUM
Fánaríki Ríki þar sem skipin eru gerð út
0
10
20
30
40
50
60
70
80
0
10
20
30
40
50
60
70
80
Ty
rk
la
nd
Br
et
la
nd
Ja
pa
n
H
on
g
Ko
ng
Si
ng
ap
úr
G
rik
kl
an
d
Þý
sk
al
an
d
Ký
pu
r
Ba
ha
m
a-
ey
ja
r
H
on
g
Ko
ng
M
al
ta
An
tíg
va
/B
ar
bú
da
M
ar
sh
al
l-e
yj
ar
Si
ng
ap
úr
Lí
be
ría
Pa
na
m
a
HILLARY Clinton, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, gagnrýndi
Kína og fleiri lönd fyrir ritskoðun á
netinu og hvatti til þess að fólk fengi
óhindraðan aðgang að netinu í ræðu
sem hún flutti í Washington í gær.
„Við þurfum að skapa heim þar
sem aðgangur að tölvunetum og
upplýsingum færir fólk saman og
víkkar skilgreiningu okkar á sam-
félaginu,“ sagði Clinton í ræðu um
upplýsingafrelsi á netinu.
Rannsaki ásakanir Google
Áður hafði netfyrirtækið Google
hótað að hætta starfsemi sinni í Kína
ef þarlend stjórnvöld létu ekki af rit-
skoðun á netinu. Fyrirtækið sakaði
einnig kínversk stjórnvöld um að
hafa staðið fyrir árásum tölvuþrjóta
með það að markmiði að afla upplýs-
inga úr tölvupósti
manna sem hafa
barist fyrir
mannréttindum í
Kína.
Clinton hvatti
stjórnvöld í Kína
til að „rannsaka
ýtarlega árás-
irnar sem leiddu
til þessara ásak-
ana“. „Við viljum að rannsóknin og
niðurstöður hennar verði gegnsæj-
ar,“ bætti hún við.
Clinton sagði að refsa bæri ríkjum
sem stunduðu ritskoðun á netinu.
„Ríki eða einstaklingar sem taka
þátt í árásum á netinu ættu að
standa frammi fyrir eftirmálum og
alþjóðlegri fordæmingu,“ sagði
utanríkisráðherrann.
Clinton gagnrýnir
ritskoðun á netinu
Hillary Clinton