Morgunblaðið - 22.01.2010, Blaðsíða 23
Minningar 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2010
✝ HildimundurBjörnsson fæddist
í Stykkishólmi 15.
janúar 1938. Hann
lést á sjúkrahúsinu á
Akranesi 13. janúar
sl.
Foreldrar hans
voru Björn Hildi-
mundarson verk-
stjóri, f. 1906, d.
1983, og Elísabet
Magnúsdóttir hús-
móðir, f. 1912, d.
1984. Systkini hans
eru Kristín, f. 1931,
maki Benedikt Lárusson; Guðrún,
f. 1934, d. 2009, maki Sveinn A.
Davíðsson; Elsa, f. 1935, maki Jó-
hann Hannesson; Viðar, f. 1943,
maki Kristín Ósk Sigurðardóttir.
Þór, Arnar, Írena Rut og Andrea
Dís voru afabörnin hans og auga-
steinar.
Hildimundur ólst upp í Stykkis-
hólmi og gekk þar í Barna- og
gagnfræðaskólann. Hann fór
snemma að vinna fyrir sér og um
leið og hann hafði aldur til tók
hann bílpróf og gerði akstur að
ævistarfi sínu. Hann eignaðist
snemma vörubíla og var með þá í
vegavinnu og öðrum verkefnum.
Hildimundur var snyrtimenni og
var til þess tekið hve vel hann
hugsaði um bíla sína og hús.
Hildimundur var mikill áhuga-
maður um íþróttir. Hann var fé-
lagi í Umf. Snæfelli og stundaði
frjálsar íþróttir frá unga aldri og
keppti fyrir hönd síns félags með
góðum árangri. Seinni árin átti
golfíþróttin allan hug hans á með-
an heilsan leyfði.
Útför hans fer fram frá Akra-
neskirkju 22. janúar kl. 14.
Hinn 4. apríl 1996
kvæntist Hildimund-
ur eftirlifandi eig-
inkonu sinni, Guð-
nýju Ernu
Þórarinsdóttur, f. 21.
september 1938. þau
bjuggu fyrst í Stykk-
ishólmi, fluttu í Borg-
arnes 2004 og til
Akraness 2007. Þeim
varð ekki barna auð-
ið, en börn Guðnýjar
Ernu eru: Einar Örn
Einarsson, f. 1963,
maki Preccha Nak-
suwan, Marta Ester Einarsdóttir,
f. 1969, unnusti Karl Sig-
urgeirsson, Elmar Björgvin Ein-
arsson, f. 1972, maki Elva Jóna
Gylfadóttir. Barnabörnin Einar
Hann kom inn í líf mitt þegar
dimmt var yfir og sorgin enn í hjarta
mínu. Þá birtist hann óvænt, ljós-
hærður, glaðvær og indæll.
Það var engin lognmolla í kring-
um hann, kappsamur og fylginn sér,
enda íþróttamaður frá æsku. Það
liðu ekki margir mánuðir þar til við
tókum þá ákvörðun að búa saman,
fyrstu árin í Hólminum kæra, en
þegar hann hætti rekstri vörubif-
reiðar sinnar var stefnan sett á
Borgarnes, þar sem við vorum nær
sælureitnum okkar við Langá og
golfvöllurinn á Hamri ekki langt
undan, þar áttum við yndislegar
stundir saman. Síðustu árin í íbúð-
inni okkar við Eyrarflöt á Akranesi.
Einnig eru ógleymanlegar ferð-
irnar okkar allar til Kanaríeyja, þar
sem við áttum góðar stundir með
kærum vinum.
En fyrir þremur árum kom vá-
gesturinn, sjúkdómurinn skæði.
Fyrst var talið að hann hefði verið
sigraður, en því miður, þrátt fyrir
óbilandi kjark og baráttuvilja hafði
sjúkdómurinn sigur í hetjulegri bar-
áttu.
Elsku Hilli minn, síðustu dagana
þína varstu umvafinn fjölskyldunni,
börnum, systkinum og elsta barna-
barninu, sem vék ekki frá þér fyrr
en yfir lauk. Þú sveifst á brott með
vængjum morgunroðans klukkan
sex að morgni. Andlát þitt var fagurt
og friðsælt, þjáningin horfin úr
svipnum, heilög stund sem við aldrei
gleymum. Þú varst ekki bara eig-
inmaður minn, þú varst minn besti
vinur. Þú studdir mig og styrktir,
varst mitt leiðarljós í gleði og sorg.
Ég veit að þú fylgist með mér áfram,
eins og þú mátt.
Alfaðir geymi þig, ástin mín.
Guðný Erna.
Öllu er afmörkuð stund, allt undir
sólunni hefur sinn tíma. Hið for-
gengilega gengur sinn veg, en hið
andlega lifir áfram með okkur í
formi minninga og þakklætis, spor
sem markast í sálina og býr þar
innra og á sinn þátt í að móta okkur í
framtíðinni og hjálpar til að vinna á
sorginni og söknuðinum sem er í
hjörtum okkar sem eftir lifa.
Hann kom inn í líf fjölskyldunnar
eftir að móðir mín hafði misst föður
minn. Hann var velkominn og eft-
irminnileg stund þegar mamma og
Hilli giftu sig í Keflavíkurkirkju í
apríl 1996.
Við eigum honum margt að þakka.
Að færa móður okkar vonina á ný og
leiða hana úr hinum dimma dal, sem
sorgin býr eftir missi, var eins og
himnasending. Hann kom til dyr-
anna eins og hann var klæddur,
hreinn og beinn. Minningu föður
okkar sýndi hann sérstaka virðingu.
Hann tók við sælureitnum þeirra,
Birkihvammi, við Langá, og tók þar
til hendinni og sýndi staðnum natni
og umhyggju svo sómi er að. Þeir
voru sprottnir úr sama jarðvegi,
báðir annáluð snyrtimenni með allt
sitt, komnir af harðduglegu heiðar-
legu alþýðufólki. Trúmennska og
traust var hans aðalsmerki.
Um árabil fóru þau til Kanaríeyja
strax eftir áramót, og undu þar vel í
hópi góðra vina og félaga sem þau
eignuðust þar í sínum árvissu ferð-
um. Ég fór til þeirra fyrir ári til Kan-
aríeyja, en Hilli hafði þá veikst og lá
á sjúkrahúsi þar. Við sjúkrabeð hans
þar ræddum við saman á einlægum
nótum. Hann hafði áhyggjur af að
geta ekki farið á golfvöllinn aftur.
En ákveðinn var hann og keppnis-
maður. Golfið átti hug hans allan.
Hann náði sér á strik aftur og spilaði
í sumar, þótt ekki færi hann 18 hol-
urnar. Það var honum mikils virði að
geta skroppið á golfvöllinn.
Nú snemma á jólaföstu var ljóst
að meðferð dugði ekki. Hann tók því
með æðruleysi. Hann var heima svo
lengi sem hægt var, eins og hann
óskaði. Lokalegan var stutt á
sjúkrahúsinu á Akranesi, þar var
hann umvafinn fjölskyldunni okkar
ásamt systur hans og bróður. Alúð-
arþakkir til starfsfólks sjúkrahúss-
ins sem af einstakri nærgætni
hjúkrar og líknar í þessum erfiðu að-
stæðum fólks.
Fyrir hönd okkar systkinanna,
maka og barna vil ég þakka Hilla
samferðina. Hann var móður okkar
góður, þau áttu góð ár saman. Þau
voru svo lánsöm að vera ekki bara
hjón, heldur góðir vinir og félagar.
Það er ómetanlegt og dýrmætt.
Hann var úr Stykkishólmi og bjó þar
mestan part ævinnar. Um hríð
bjuggu þau Hilli og móðir okkar í
Borgarnesi, en síðan 2007 á Akra-
nesi, en þar fluttu þau hjónin inn í
fallega glænýja íbúð. Honum leið vel
á Akranesi, þar verður hann lagður
til hinstu hvílu við hlið föður okkar,
en leiðið hans hafði hann hugsað um,
ásamt móður okkar, af sinni um-
hyggju og drengskap til margra ára.
Dæm svo mildan dauða,
Drottinn, þínu barni,
eins og léttu laufi
lyfti blær frá hjarni,
eins og lítill lækur
ljúki sínu hjali,
þar sem lygn í leyni
liggur marinn svali.
(Matthías Jochumsson)
Blessuð sé minning Hildimundar
Björnssonar, með þökk og virðingu.
Einar Örn Einarsson.
Okkur systkinin langar að minn-
ast föðurbróður okkar, Hilla frænda,
en hann er nú horfinn á brott eftir
erfið veikindi.
Það eru ótal margar minningar
sem renna í gegnum hugann á
stundum sem þessari. Í uppvexti
okkar bjó Hilli hjá ömmu og afa
þannig að tengsl okkar við hann
voru mjög mikil auk þess sem hann
var tíður gestur á heimili okkar. Það
var alltaf spennandi að koma við hjá
Hilla í skúrnum og fá að gramsa í
dótinu hans og ekki skemmdi fyrir
þegar maður fékk að skreppa með í
ferð á vörubílnum. Ekki var síður
spennandi að Hilli átti alltaf gulan
Wrigley’s og fylgdi ávallt hverri ferð
í það minnsta hálf plata. Skúrinn var
eins og ævintýraland fyrir okkur og
þar fundum við ýmislegt sem Hilli
hafði haldið upp á, svo sem sleða og
gömul tréskíði sem veittu okkur
mikla gleði í snjónum á veturna.
Hilli var iðulega hjá okkur á að-
fangadagskvöld og það var mikil til-
hlökkun þegar við sáum appelsínu-
gula Volvóinn (drossíuna eins og
hann kallaði fólksbílinn sinn) renna í
hlaðið og Hilli gekk inn með hvítan
poka fullan af gjöfum. Hann stytti
einnig biðina eftir pökkunum með
því að spila við okkur systkinin á
meðan mamma og pabbi vöskuðu
upp eftir matinn.
Nú ert þú kominn til ömmu og afa
og hafa þau tekið vel á móti þér,
amma eflaust með bolla til að spá í
og afi með spil við höndina. Við mun-
um alltaf minnast Hilla frænda með
hlýhug og sendum við Ernu og öðr-
um aðstandendum samúðarkveðjur
okkar.
Sigurður Ingi Viðarsson
og Elísabet Viðarsdóttir.
Í dag er kvaddur móðurbróðir
minn, Hildimundur Björnsson.
Kveðjustund fylgir söknuður en um
leið léttir yfir því að dauðastríðinu er
lokið.
Á þessari stundu er mér þó efst í
huga þakklæti fyrir samfylgdina.
Frá því ég fyrst man eftir mér var
Hilli fastur punktur í tilverunni. Í
fyrstu fjarlægur, eins og eldri
frændur eru oft í huga barna, á ung-
lingsárum náinn samstarfsmaður og
leiðbeinandi. Síðan þá, góður vinur
og félagi.
Hildimundur hafði mikinn áhuga
á íþróttum og var einn afreksmanna
Snæfellinga í frjálsíþróttum á 6. og
7. áratugnum en aðalgrein hans var
spjótkast.
Elstu minningar mínar um Hilla
eru frá því hann bjó ungur maður í
foreldrahúsum, nýbúinn að eignast
fyrsta vörubílinn. Okkur krökkun-
um þótti það nú aldeilis merkilegt og
ekki minnkaði virðingin þegar við
fórum í sumardvöl í vegavinnuna
með afa og ömmu. Þá var toppurinn
á tilverunni að fá að „sitja í“ nokkrar
ferðir með Hilla eða hinum bílstjór-
unum.
Það voru ekki bara við sem dáð-
umst að Hilla. Okkur systrasonum
hans varð það fljótlega ljóst að
amma hafði miklar mætur á syni sín-
um og eilíflega var hann viðmiðið
þegar við vorum annars vegar. Ef
við fórum illa með leikföng, ötuðum
okkur út eða rifum fötin okkar,
minnti amma okkur á fyrirmyndina.
Og það var rétt hjá ömmu, enginn
sem við þekktum var sami snyrti-
pinninn og Hilli. A.m.k. ekki neinn í
stétt vörubílstjóra.
Hilli var líka laginn með bíla sína
og tæki. Þegar við strákarnir vorum
á tippnum var það okkar verk að
beina bílstjórunum hvar þeir áttu að
sturta, tína grjót úr ofaníburðinum
og moka úr bílhlössunum. Mikilvæg-
ast var að þeir gætu sturtað þannig
á ferðinni að ofaníburðurinn dreifð-
ist jafnt svo að sem minnst væri að
moka. Við þekktum sterkar og veik-
ar hliðar hvers einasta bíls og bíl-
stjóra og á erfiðustu staðina var
Hilla einum treystandi.
Í vegavinnunni vann ég undir
hans stjórn og afa frá 13 ára aldri til
tvítugs. Við Hilli vorum oft tjald-
félagar og hann kenndi okkur strák-
unum að setja upp tjaldbúðir, að
kynda Aladdin-ofninn rétt, gera
tjaldið múshelt (sem var reyndar
meira áhugamál hans en okkar) og
handtökin við skóflur og kvíslar. Ár-
in í vegavinnunni með Hilla, afa og
ömmu og öðrum skemmtilegum
vinnufélögum, urðu mér dýrmætt
veganesti fyrir lífið og fyrir það verð
ég ævinlega þakklátur.
Þegar Hilli fór seinna að spila golf
varð það til þess að treysta á ný sam-
band okkar. Það var eins með golfið
og frjálsíþróttirnar, Hilli náði fljótt
góðum tökum á því. Keppnisskapið
var það sama og í gegnum golfið
eignaðist hann fjölda nýrra vina.
Hilli var orðinn fullorðinn þegar
hann giftist Ernu sem þá var ekkja
og átti uppkomin börn. Þau voru
samhent, áttu lengi sumarhús og
land sem þau höfðu mikið yndi af að
sinna og ferðuðust mikið saman. Þau
höfðu nýlega fest kaup á íbúð á
Akranesi þar sem þau ætluðu að
eyða saman ævikvöldinu en enginn
veit sína ævi fyrr en öll er.
Ernu og fjölskyldu hennar send-
um við Unnur samúðarkveðjur og
einnig eftirlifandi systkinum Hildi-
mundar. Minningin um góðan dreng
og traustan frænda lifir.
Eyþór Benediktsson.
Hildimundur Björnsson
V i n n i n g a s k r á
38. útdráttur 21. janúar2010
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
2 7 7 3 6
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
7 6 3 5 1 8 4 0 0 5 1 7 0 6 5 6 3 8 4
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
4075 32344 45330 47724 57152 59328
28942 44106 47002 55719 57468 62364
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
132 6773 13163 25367 35818 51389 64717 75817
665 7707 13355 25387 37359 55111 64878 75995
1017 7800 14942 27305 39368 56458 65669 76767
1329 8151 15623 28690 39543 57527 68968 77183
1824 9045 16117 28978 39710 58629 69876 77642
2516 9694 16872 30271 41728 58909 71055 77650
2900 9919 17325 30549 42087 58923 71487 77905
3258 10089 19089 30998 43886 60414 72162 79258
4325 11099 19106 31970 45481 61322 73230 79706
4619 11121 19132 33232 46381 62800 73317
4755 11558 21656 33773 46467 63134 74247
4887 12844 24106 33849 48008 63276 74823
6316 13002 25344 35135 49839 63580 75329
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
40 9266 20175 29981 38857 50628 61473 70616
180 10184 20284 30469 39686 50916 61767 71044
181 10566 20890 30576 41444 50946 62495 71369
368 10720 20999 30778 41504 51264 63615 71689
477 11357 21052 31200 42073 51979 63886 71983
769 12312 21163 31407 42128 52452 64141 72346
858 12369 21735 31900 42137 52973 64372 72427
1306 12471 21908 32129 42264 53528 65013 72755
1397 13049 22491 32409 43032 53577 65499 72821
1542 13082 22744 32664 43925 53696 65861 72966
1693 13304 23033 32679 44139 54104 65966 73265
1929 13860 23286 33238 44329 54161 66092 73524
2025 13916 23599 33441 45075 54642 66345 73544
2374 14157 23614 33915 45868 54785 66447 73563
2459 14209 23620 34052 45879 54895 67178 73625
2757 14241 24423 34885 46138 55109 67202 73741
3051 14512 24479 35175 46513 55410 67581 74305
4121 14527 26070 35258 46515 55443 67603 74658
4379 15586 26338 35295 46984 56534 67819 75426
4578 15935 26454 35556 47635 56660 67860 76802
4685 16506 27266 35560 47932 56989 68186 77104
5325 16600 27627 36088 48145 57418 68664 77342
6169 17293 27739 36325 48164 57529 68669 77627
6271 18005 27857 36364 48508 57812 69185 78630
6585 18251 27880 36625 48848 58216 69897 78925
7013 18803 27999 36947 48890 58226 69909 79071
7639 19249 28152 37108 48951 59457 69924
8118 19888 28292 37237 48959 60043 70015
8138 19898 28307 37669 49154 60084 70156
8754 19998 28836 37817 49390 60478 70211
8793 20053 28873 38098 50143 61205 70421
9246 20071 29271 38279 50544 61284 70584
Næsti útdráttur ferfram 28. jan 2010
Heimasíða á Interneti: www.das.
✝
Bróðir minn,
KRISTINN ÓLAFSSON
fyrrv. bóndi og landpóstur,
Hænuvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Patreksfjarðar miðviku-
daginn 20. janúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Dagbjört Una Ólafsdóttir.