Morgunblaðið - 22.01.2010, Qupperneq 29
Dagbók 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2010
Sudoku
Frumstig
3 5 1 4
6 1
7 1 9 8
3 4
9 1 6
3 6 9
4 7 8
7 5
3
2 3
6
6 9 1 7
4
1 3 9
5 7 4 2
6 5
7 5 3 9
9 2 1 6
3 1
9 7 8 6
4 9 2
2 3
4 7
6 1
3 7 2
9 1 6 8 3
2 4
7 1 3 4 5 2 8 6 9
6 2 9 1 8 7 5 3 4
8 5 4 9 6 3 1 2 7
5 3 1 6 7 8 4 9 2
4 8 6 2 3 9 7 1 5
2 9 7 5 4 1 3 8 6
3 7 2 8 9 5 6 4 1
1 6 8 7 2 4 9 5 3
9 4 5 3 1 6 2 7 8
5 2 4 8 3 9 6 7 1
9 7 3 1 5 6 8 2 4
1 8 6 7 2 4 9 5 3
2 3 7 6 4 5 1 8 9
6 9 1 3 8 2 7 4 5
8 4 5 9 7 1 2 3 6
7 5 9 4 6 8 3 1 2
3 6 2 5 1 7 4 9 8
4 1 8 2 9 3 5 6 7
6 7 3 9 1 2 8 4 5
8 5 1 3 6 4 2 9 7
9 2 4 5 7 8 1 3 6
4 1 7 6 8 9 5 2 3
2 3 9 7 4 5 6 1 8
5 6 8 1 2 3 4 7 9
3 4 5 2 9 6 7 8 1
1 9 2 8 5 7 3 6 4
7 8 6 4 3 1 9 5 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 22. janúar, 22. dag-
ur ársins 2010
Orð dagsins: Því að ekkert er hulið,
sem eigi verður opinbert, né leynt, að
eigi verði það kunnugt og komi í ljós.
(Lk. 8, 17.)
Hvað er betra en að vaknasnemma, fara út í skyrtunni
einni, berlæraður og berfættur en í
annarri brókarskálminni og draga
hina á eftir sér, hoppa á öðrum fæti í
kringum blokkina og bjóða þorra
velkominn í garð?
x x x
Lengi hefur Víkverja dreymt umað fagna komu bóndadags með
þessum hætti bænda á árum áður,
hlaupa út í morgunsárið upp úr
miðjum janúar, helst í snjókomu, en
húsfreyjan hefur gjarnan haldið til
bónda síns þennan dag og því ekki
gefist ráðrúm til hlaupa á sprell-
anum.
x x x
Í Sögu daganna vitnar ÁrniBjörnsson í Ólaf Davíðsson sem
hafði eftir Ingibjörgu Schulesen að
þegar hún var sýslumannsfrú í Þing-
eyjarsýslu hefði hún verið vön að
baka jólaköku til bóndadagsins, en
Sigfús sýslumaður, maður hennar,
aftur veitt rauðvín með mat konu-
daginn.
Víkverja bíður líka gjarnan tilbúið
ýmislegt góðgæti við fyrsta hanagal
þennan morgun. Má þar nefna beik-
on og egg, ristað brauð, te með hun-
angi og súkkulaðiköku að ógleymd-
um hákarlinum, hvalnum og
hrútspungunum.
x x x
Víkverji á auðvelt með að sam-þykkja margt sem Árni segir í
bók sinni um þorrann og bóndadag,
ekki síst um atlotin og matinn. Til-
hugsunin um að geta hreinlega borð-
að á sig gat kætir Víkverja meira en
margt annað.
Þorrablótin eru af sama meiði.
Þorramaturinn flæðir út um allt og
víst er að Víkverji á eftir að njóta
lífsins sérstaklega vel næstu vik-
urnar.
Og ekki skemmir fyrir að við fáum
tækifæri til sigra Dani í Evrópu-
keppninni í handbolta í byrjun
þorra. Vissulega hefði það verið
skemmtilegra að kvöldi bóndadags,
krydd á góðan dag og svona örlítið
meiri karlmennska, en annar í
bóndadegi nægir. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 hvassviðri, 4
lipur, 7 tóg, 8 kærleik-
urinn, 9 blundur, 11
kropp, 13 hlífi, 14 spott-
ar, 15 fiðurfé, 17 sleit, 20
elska, 22 landspildu, 23
hlæja hálfkæfðum hlátri,
24 guðsþjónusta, 25 arða.
Lóðrétt | 1 veikin, 2
heiðursmerki, 3 blíð, 4
falskur, 5 saddi, 6 trjá-
gróður, 10 rotin, 12 álít,
13 bókstafur, 15 útlim-
um, 16 ljóma, 18 nói, 19
fletja fisk, 20 kjána, 21
nirfilsleg.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kappleiks, 8 ræðin, 9 rifan, 10 nón, 11 stafa, 13
aginn, 15 músík, 18 hólar, 21 lár, 22 svera, 23 urtan, 24
skraddari.
Lóðrétt: 2 auðra, 3 panna, 4 eyrna, 5 kafli, 6 hrós, 7 un-
un, 12 frí, 14 gró, 15 masa, 16 sterk, 17 klaga, 18 hrund,
19 látir, 20 röng.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. c4 e6 2. Rc3 d5 3. d4 Rf6 4. Bf4 dxc4
5. e3 a6 6. Bxc4 b5 7. Be2 Bb7 8. Bf3
Dc8 9. Bxb7 Dxb7 10. Df3 Dxf3 11.
Rxf3 c5 12. dxc5 Bxc5 13. Ke2 Rbd7 14.
Hhc1 Ke7 15. Hc2 Bd6 16. Bxd6+
Kxd6 17. Hac1 Ke7 18. Rd4 Hhc8
Staðan kom upp á stórmeistaramóti
MP-banka og CCP en mótið var haldið
m.a. í tilefni af því að Taflfélag Reykja-
víkur verður síðar á árinu 110 ára.
Helgi Ólafsson (2.524) hafði hvítt gegn
Þresti Þórhallssyni (2.426). 19. Rd5+!
Kd8 20. Rc7! hvítur vinnur nú skipta-
mun og nokkru síðar skákinna. 20. …
Hxc7 21. Hxc7 Rd5 22. H7c2 e5 23.
Rc6+ Ke8 24. Hd2 R5b6 25. Ra5 Ke7
26. Hc7 f6 27. b3 h5 28. Ha7 Hc8 29.
Hxa6 Hc1 30. h4 e4 31. Ha7 Ke6 32.
Hb7 g5 33. b4 gxh4 34. Rb3 Hb1 35.
Rc5+ Rxc5 36. Hxb6+ og svartur gafst
upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Stillt af stað.
Norður
♠G972
♥1096
♦32
♣ÁD62
Vestur Austur
♠KD854 ♠106
♥D75 ♥ÁKG8432
♦64 ♦8
♣G95 ♣K43
Suður
♠Á3
♥–
♦ÁKD109753
♣1087
Suður spilar 5♦.
Oftast borgar sig að melda hratt
með langlit og setja þannig pressu á
andstæðingana, en á því er þó ein aug-
ljós undantekning: þegar slemma er
raunhæfur möguleiki. Þá er betra að
fara stillt af stað. Með hliðsjón af því
vöktu sunnanmenn Reykjavíkurmóts-
ins iðulega á 1♦, frekar en 5♦. Vildu
kanna spilið í rólegheitum. Eftir
nokkra baráttu við hjartalit austurs
enduðu sagnir almennt í 5♦. Sem er
óhagganlegt spil.
Út kemur hjarta, suður trompar og
aflúsar vörnina í tveimur umferðum.
Svínar svo ♣D. Nú á austur tvo kosti,
hvorugan góðan. Hann getur spilað
laufi, sem sagnhafi mætir með því að
dúkka. Spaðaþristur fer þá niður í frí-
lauf. Hinn kostur austurs er að spila
♠10. Sagnhafi hleypir, tekur öll tromp-
in og þvingar vestur í svörtu litunum.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú gerir miklar kröfur til þín og
finnst allt sem þú gerir þurfa að vera
meira og betra en hjá öðrum. Bættu úr
þessu og fáðu líka næga hreyfingu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það eru ekki allir sammála skoð-
unum þínum, en þær eru samt gott fram-
lag. Fátt er svo með öllu illt að ekki boði
nokkuð gott.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Vinur gæti komið til hjálpar í
dag. Finndu óskalistann sem þú hefur fal-
ið einhvers staðar og gáðu hvort eitthvað
rætist ekki í dag.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Óvænt tækifæri berst upp í hend-
urnar á þér og nú hefur þú enga afsökun
fyrir því að nýta þér það ekki. Hug-
myndir þínar um umbætur geta breytt
miklu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ekki reyna að segja öðrum hvernig
þeir eigi að vinna sín verk í dag. Hvort
sem samband þitt er gott eða slæmt við
foreldrana þá áttu eitthvað ósagt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Nú ert tíminn til að viðra vandamál
sem þú hefur lengi falið. Augu þín eru að
opnast fyrir því hver er vinur í raun.
Farðu þér hægt og berðu alla kosti vand-
lega saman áður en þú velur.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er alltaf smáspenna í sambandi
sem er einhvers virði. Vertu viðbúin/n því
að þurfa að standa fyrir máli þínu.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Heilsa og vellíðan hafa færst
neðar í forgangsröðinni vegna verkefna
sem hvíla á þér í vinnunni. Mundu að þú
átt bara einn líkama.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Samskipti við stofnanir eða hið
opinbera koma flatt upp á þig á einhvern
hátt. Takist þér að koma breytingum í
gegn heima þá ertu komin/n hálfa leið.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert tilbúin/n að takast á við
sjálfa/n þig og líta ekki undan. Hlustaðu á
þá sem til þín leita og þegar þú heyrir
rétta tóninn skaltu bregðast við án tafar.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Sýndu vinum og lífsförunaut
þolinmæði og leggðu eyrun við því sem
sagt er við þig. Hafðu það að leiðarljósi og
trúðu því að þú sért ábyrg/ur fyrir þinni
hamingju.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Veltu fyrir þér nýju sambandi,
helst með einhverjum sem þekkir til þín.
Taktu því með ró þótt einhver sé ekki
sammála þér.
Stjörnuspá
Guðmunda Elí-
asdóttir, söng-
kona og söng-
kennari, verður
níræð á morgun,
23. janúar. Af því
tilefni verður
hún, ættingjar
hennar, vinir og
velunnarar með
opið hús á afmælisdeginum í
Snorrabúð, tónleikasal Söngskól-
ans í Reykjavík, Snorrabraut 54,
frá kl. 15 til 18.
90 ára
Árni Árnason
frá Höskuld-
arnesi á Mel-
rakkasléttu er
níræður á morg-
un, 23. janúar.
Hann býður ætt-
ingjum og vinum
að gleðjast með
sér í salnum á
Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri,
frá klukkan 17 á afmælisdaginn.
90 ára
Í GEGNUM tíðina hefur ein helsta afmælisgjöf
Guðmundar Hrafnkelssonar verið góður árangur
handboltalandsliðsins, en um árabil var þessi fyrr-
verandi markvörður landsliðsins í keppni á afmæli
sínu, fjarri fjölskyldunni. Guðmundur er 45 ára í
dag og gerir ekki ráð fyrir að gera sér dagamun
en hann viti reyndar ekki hvort yfirmaðurinn í
Fjölsmiðjunni, þar sem hann starfar, Þorbjörn
Jensson, fyrrverandi landsliðsþjálfari, komi sér á
óvart. „Við bjuggum í Þýskalandi þegar ég var
fertugur og þá hélt ég veislu með fjölskyldunni,
vinum og liðinu en þetta verður bara rólegt með
fjölskyldunni núna, í mesta lagi ein kaka.“
Bóndadagurinn er í dag og Guðmundur segir að hann eigi eftir að
njóta þorrans. „Ég fer alltaf á þorrablót og það er æðislegt,“ segir
hann og bendir fyrst og fremst á þorramatinn í því sambandi.
Þegar Guðmundur var í landsliðinu og það á keppnisferðalagi á
þessum tímamótum var gjarnan afmæliskaffi. Nú er Guðmundur
fjarri góðu gamni en hugur hans er hjá silfurstrákunum í Austurríki
og hann bíður spenntur eftir viðureigninni við Dani á morgun. „það
verður spenna frá upphafi til enda,“ segir hann. steinthor@mbl.is
Guðmundur Hrafnkelsson 45 ára
Í skugga landsliðsins
22. janúar 1988
Paul Watson, leiðtoga Sea
Shephard, var vísað úr landi
en hann hafði komið daginn
áður. Samtökin sögðust hafa
sökkt hvalbátunum í Reykja-
víkurhöfn rúmu ári áður.
22. janúar 2009
Lögreglan beitti táragasi á
mótmælendur á Austurvelli kl.
00:27, í fyrsta sinn í fjölda ára.
Áður hafði fólk safnast saman
við Þjóðleikhúsið og Stjórn-
arráðið, en þar var grjóti kast-
að að lögreglunni. Einn lög-
reglumaður rotaðist.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is