Morgunblaðið - 05.02.2010, Qupperneq 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
JÓHANNA Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra sagði á fundi með José
Manuel Barroso, forseta fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, að í Icesave-málinu væri Ísland
fórnarlamb gallaðrar löggjafar og að
skuldabyrðinni væri ójafnskipt á
milli Íslands annars vegar og Breta-
lands og Hollands hins vegar.
Jóhanna sagði í samtali við Morg-
unblaðið að fundurinn með Barroso
hefði verið efnismikill og jákvæður.
Hann stóð í á aðra klukkustund. Með
á fundinum var Olli Rehn, stækk-
unarstjóri Evrópusambandsins en
hann tekur við stöðu fram-
kvæmdastjóra efnahags- og gjald-
eyrismála innan Evrópusambands-
ins í næstu viku.
„Ég fór mjög ítarlega yfir Ice-
save-málið og hvernig mjög margir á
Íslandi teldu að við værum fórn-
arlamb gallaðrar löggjafar og líka að
skuldabyrðinni væri ójafnskipt á
milli landanna. Ég fór yfir það hvaða
áhrif þetta hefði á greiðslugetu þjóð-
arinnar og heildaráhrif á heimilin og
atvinnulíf. Ég held að það hafi verið
mjög gott að við fórum mjög ítarlega
yfir þetta mál. Tilgangurinn með
þessari ferð var að auka skilning á
stöðu okkar og ég held að það hafi
tekist,“ sagði Jóhanna.
Ólíðandi að tengja Icesave
óskyldum málum
Jóhanna sagðist ekki geta svarað
því hvort Evrópusambandið myndi
hafa eitthvert frumkvæði í þessu
máli. „Þeir munu meta stöðuna og
það sem við fórum í gegnum. Við
munum verða í sambandi í framhald-
inu. Það er ýmislegt sem við rædd-
um um sem þeir vilja skoða.“
Jóhanna var spurð hvort við gæt-
um fengið hagstæðari lánskjör
vegna Icesave fyrir milligöngu Evr-
ópusambandsins. „Það hefur komið
fram áður, vilji þeirra til að aðstoða
okkar að því er það varðar. Ég kom
mjög inn á þetta á fundinum, en það
varð engin niðurstaða um það á
fundinum. Við sjáum svo í framhald-
inu hvað út úr því kemur.“
Á fundinum var rætt um efna-
hagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins fyrir Ísland. „Ég sagði á fund-
inum að það væri ólíðandi að það
væri verið að tengja endurskoðun á
efnahagsáætlun Íslands og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins við alls óskyld mál
eins og Icesave, að ég tali nú ekki um
Evrópusambandsaðild, og Barroso
fullvissaði mig um að það væri ekki
gert af hálfu Evrópusambandsins.“
Skuldabyrðinni af Icesave
ójafnt skipt á milli landanna
Reuters
Fundur Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB.
Framkvæmdastjórn ESB tekur aðildarumsókn Íslands fyrir seinna í febrúar
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra átti í gær fundi með
José Manuel Barroso, forseta
framkvæmdastjórnar ESB, í
Brussel. Á fundinum var rætt um
Icesave og aðild Íslands að ESB.
Á SÍÐASTA ári
voru seld yfir 103
þúsund tonn á
fiskmörkuðum
og er það um
21% af heildar-
aflanum. Á
heimasíðu Fisk-
markaðar Ís-
lands segir að
þetta hlutfall hafi ekki verið hærra
undanfarin ár, ef þá nokkurn tím-
ann.
Birtar eru töflur sem sýna þróun
síðustu ára á fiskmörkuðum og seg-
ir að þær séu birtar „af gefnu tilefni
vegna umræðna um að framboð
fisks á innlendum fiskmörkuðum sé
lítið og hái fyrirtækjum sem eru í
fiskvinnslu, en ekki jafnframt í út-
gerð.“ Þar segir ennfremur að stað-
hæfingar um að framboð á inn-
lendum fiskmörkuðum hafi dregist
saman séu úr lausu lofti gripnar.
Alls var í fyrra landað 33 þúsund
tonnum af þorski á fiskmörkuðum,
eða 17,5% af heildarþorskafla. Þá
var landað 26.500 tonnum af ýsu,
eða 32,3% af ýsuaflanum. aij@mbl.is
Miklu landað á
fiskmörkuðum
„ÞETTA kom okkur að óvörum og í
raun eins og köld vatnsgusa,“ segir
Guðmundur Sighvatsson skóla-
stjóri Austurbæjarskóla en hann
vék á dögunum nemanda í 6. bekk
úr skóla fyrir þjófnað. Um er að
ræða dreng á tólfta ári sem áður
hefur komist í kast við lögin og er
talinn neyta vímuefna, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins.
Fundað var með foreldrum og
hverfislögreglumanni á mið-
vikudagskvöld og farið yfir málið.
Stúlku í níunda bekk var einnig
vikið úr skólanum fyrir sömu sakir.
Samkvæmt sömu heimildum hefur
hún verið í neyslu eins og ungi pilt-
urinn.
Mál barnanna hefur verið sent
barnaverndaryfirvöldum til úr-
vinnslu.
Morgunblaðið/Golli
Skólinn Börnin eru bæði nemendur
í Austurbæjarskóla í Reykjavík.
Grunnskólanemar
grunaðir um neyslu
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins mun taka fyrir umsókn
Íslands um aðild að Evrópusam-
bandinu síðar í þessum mánuði. Ef
umsóknin fær jákvæðar viðtökur
verður hún rædd á leiðtogafundi
Evrópusambandsins í mars. Þetta
kom fram á fundi Jóhönnu Sigurð-
ardóttur forsætisráðherra og José
Manuel Barroso, forseta fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, í Brussel í gær.
„Framkvæmdastjórnin tekur um-
sókn Íslands fyrir seinna í þessum
mánuði. Ef hún fær jákvæða af-
greiðslu þar fer þetta fyrir aðild-
arríkin og leiðtogafund vænt-
anlega í mars,“ sagði Jóhanna. „Ég
lagði mikla áherslu á að málið
fengi eðlilegan framgang eins og
fyrirhugað hafði verið. Ég veit auð-
vitað ekki hver verður niðurstaðan
í framkvæmdastjórninni, en við
fórum mjög hreinskiptið yfir það
mál.“
Jóhanna sagði að Ísland væri
búið að skila öllum þeim gögnum
sem Evrópusambandið hefði beðið
um í sambandi við umsókn Íslands.
ESB hefði ekki sett fram neina
kvörtun yfir því hvernig unnið
hefði verið að umsókninni og ekk-
ert væri því til fyrirstöðu að tekin
yrði ákvörðun í málinu. Forsætis-
ráðherra átti einnig fundi með yf-
irmönnum EFTA og ESA í Brussel.
Umsókn Íslands tekin fyrir í febrúarmánuði
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
TEKJUR Verkefnasjóðs sjávarút-
vegsins af svonefndum 5% afla fyrir
tímabilið frá janúar til nóvember-
loka 2009 eru um 534 m.kr. Tekjur
á sama tímabili 2008 námu um 443
milljónum króna. Mest af tekjum
sjóðsins rennur til verkefna á veg-
um Hafrannsóknastofnunar. Fyrstu
11 mánuðina í fyrra fóru 4.114 tonn
í VS-afla, en sama tímabil árið 2008
var magnið 3.128 tonn. Þorskur
vegur langþyngst í þessari ráðstöf-
un eða 3.700 tonn, en 1.815 tonn af
karfa fóru í VS-afla.
Samkvæmt lögum um stjórn fisk-
veiða er skipstjóra fiskiskips heim-
ilt að ákveða að allt að 0,5% af upp-
sjávarafla og 5% af öðrum
sjávararafla sem skipið veiðir á
hverju fiskveiðiári reiknist ekki til
aflamarks skipsins. Halda verður
afla aðgreindum um borð í skipinu
og selja á viðurkenndum uppboðs-
markaði. 20% af andvirði skiptast
milli útgerðar og áhafnar og 80%
renna í Verkefnasjóð sjávarútvegs-
ins.
Í lögum um Verkefnasjóðinn seg-
ir að verja skuli fé úr honum til
rannsókna og nýsköpunar á sviði
sjávarútvegs og til eftirlits með
fiskveiðum. Stjórn Verkefnasjóðs
sjávarútvegsins er tvískipt; annars
vegar er almenn deild og hins veg-
ar samkeppnisdeild.
Margar umsóknir
Verkefnasjóður, samkeppnis-
deild, auglýsti í desember sl. eftir
umsóknum um styrki, en ákveðið
var að veittir yrðu styrkir samtals
að fjárhæð 100 milljónir króna í ár.
Fimmtíu umsóknir bárust og er
umsótt styrkfjárhæð um 225 millj-
ónir. Stjórn samkeppnisdeildar hef-
ur þessar umsóknir nú til umfjöll-
unar. Í febrúar í fyrra var 74,2
milljónum króna úthlutað úr sam-
keppnisdeild.
VS-afli greiðir fyrir
mörg verkefni Hafró
Tekjur jukust um 90 milljónir fyrstu ellefu mánuðina í fyrra
Hafrannsóknastofnun fær lang-
mest úr almennri deild Verk-
efnasjóðsins, samtals 289 millj-
ónir króna í fyrra. Af stærstu
verkefnunum má nefna:
Kortlagning hafsbotnsins
– 37,4 milljónir.
Flugtalningar – 16 milljónir
Vistkerfi Íslands – 24,6 millj.
Makríll í íslenskri fiskveiði-
lögsögu – 41,5 milljónir.
Kortlagning búsvæða
– 22,7 milljónir.
Stofnmæling á marsíli við
Ísland – 12,8 milljónir.
Kjörhæfnisrannsóknir
– 22,3 milljónir
Ichthypophonus-sýking
– 20 milljónir.
Rannsóknaleiðangur Sú
lunnar á síldarmið – 33,6 millj.
Af ýmsum toga