Morgunblaðið - 05.02.2010, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 05.02.2010, Qupperneq 18
18 UmræðanBRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010 FÉLAGAR mínir í Samtökum um betri byggð hafa bent mér á að skrifa ekki of fræði- legan texta, til þess að ná til almennings með okkar boðskap. Í grein sem ég skrif- aði og Erlingur gagn- rýnir mig fyrir, var ég með dæmisögu um tvær eins fjölskyldur, Ú og V. Þar er sýnt fram á að fjölskyldan sem bjó í Vatnsmýrinni (Ú) sparaði sér annan fjölskyldubílinn (1,5 milljónir kr/ári), en varð að borga 0,2 millj- ónum kr. meira á ári, vegna hærri lóð- arleigu, heldur en fjölskyldan í Úlf- arsárdal (Ú). Niðurstaðan var að það var 1,3 milljónum kr/ári ódýrara að búa í blokkaríbúð í Vatnsmýrinni en í eins íbúð í Úlfarsárdalnum. Vegna þessarar gagnrýni frá Er- lingi ætla ég að gerist fræðilegri, ef það mætti verða til þess að hann átt- aði sig á því hversu borg í Vatnsmýri er góð fyrir þjóðarbúið, eins og flestir sæmilega skynsamir menn eru löngu búnir að skilja! Samkvæmt könnun, sem gerð var við H.Í. er það a.m.k. 215 milljarða kr. virði fyrir þjóðarbúið að byggja borg í Vatnsmýrinni fyrir u.þ.b. 25 þúsund íbúa og 17 þúsund störf. Þessir 215 milljarðar skiptast þannig að 105 milljarðar kr. eru verðmæti bygging- arlóðanna, 20 milljarðar kr. eru vegna tvínýtingar útivistarsvæðanna í ná- grenninu (þarf ekki að búa til ný úti- vistarsvæði) og 90 milljarðar kr., vegna þess að fasteignir og lóðir munu hækka að meðaltali 15% í borg- inni vestan Kringlumýrarbrautar (sem þýðir um 4 milljónir kr. á með- alíbúð). Þar sem ríkið á um þriðjung lóðanna undir flugvellinum (ca. 35 milljónir kr. virði), er auðvelt fyrir það að fjármagna nýjan flug- völl í jaðri höfuðborg- arsvæðisins (eins og t.d. á Hólmsheiði) en eiga samt um 20 milljarða kr. í afgang. Ef lagður er saman fjöldi þeirra sem fljúga innanlands einu sinni á ári eða oftar eða hafa annan beinan hag af því að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni, þá er þar um 10% landsmanna að ræða, en 90% hafa einhvern skaða af því. Í ,,þokkalega þróuðu lýðræðisríki“ eiga almannahagsmunir að ríkja, en sérhagsmunir að víkja. Þetta vonda ástand í Vatnsmýrinni sýnir sennilega ásamt ýmsu öðru, að Ísland er ekki ,,þokkalega þróað lýð- ræðisríki“, sbr. það hvernig kreppan kom mun þyngra niður á okkur, en flestum ríkjum í öllum heiminum. Er nú ekki kominn tími til þess, að Ísland breytist í ,,þokkalega þróað lýðræðisríki“ og Íslendingar byrji á því sem er svo auðskilið, einfalt í framkvæmd og bullandi þjóðhagslega arðsamt, þ.e.a.s. að byggja borg í Vatnsmýrinni, en krefjast þess þó fyrst að samgönguráðherrann finni miðstöð innanlandsflugsins heppilegri stað? Eftir Gunnar H. Gunnarsson » Þetta vonda ástand í Vatnsmýrinni sýnir sennilega ásamt ýmsu öðru, að Ísland er ekki ,,þokkalega þróað lýð- ræðisríki“. Gunnar H. Gunnarsson Höfundur er verkfræðingur. Byggð verður borg í Vatnsmýri Í FJÖLMIÐLUM hefur undanfarið verið fjallað talvert um breytingar á vinnulagi til þess að fólk fái vist- unarmat fyrir hjúkr- unarheimili og komu þær til framkvæmda fyrir tveimur árum. Þær gera ráð fyrir að öll úrræði séu reynd áður en vistunarmat er samþykkt. Má þar nefna heimilisaðstoð, heimahjúkrun, sjúkraþjálfun og dagdeildir. Slíkar reglur henta ekki öllum, nema síður sé, einkum ekki þeim sem þjást af heilabilun og eru oft líkamlega vel á sig komnir. Það veldur gjarnan mik- illi streitu fyrir þessa einstaklinga að fá inn á heimili sitt stöðugt nýtt starfsfólk, ekki síður veldur það streitu fyrir aðstandendur. Landssamband eldri borgara er að berjast fyrir því um þessar mund- ir að fólk fái að ráða til sín einhvern einn aðila til þess að aðstoða við dag- legt líf og það er rétt stefna. Einnig er veruleg þörf á að koma á fót heim- ili fyrir skammtímavistanir fólks með heilabilun á fyrri stigum. Það er tiltölulega ódýrt úr- ræði og myndi hjálpa fjölskyldum þúsunda fólks sem þjást af þess- um erfiða sjúkdómi.Að auki eigum við að hverfa frá þeirri stefnu að byggja stór hjúkr- unarheimili, heldur leggja áherslu á minni og heimilislegri ein- ingar eins og hinar Norðurlandaþjóðirnar eru að gera. Vistunarmats- nefndin fyrir Reykjavíkursvæðið hefur farið offari varðandi það að neita fólki um vistunarmat og það hefur einkum bitnað á fólki með heilabilun og aðstandendum. Ástæð- an er að fækka biðsjúklingum á Landspítala en það er ljóst að vandamálin hverfa ekki með svona starfsaðferðum. Tölur Landlækn- isembættisins segja allt sem segja þarf og það er ljóst að víða er erfitt á mörgum heimilum á Reykjavík- ursvæðinu vegna þessa. Vistunarmat og fólk með heilabilun Eftir Hönnu Láru Steinsson Hanna Lára Steinsson » Vinnulag vistunar- matsnefndar Reykjavíkursvæðisins bitnar einkum á fólki með heilabilun og að- standendum. Höfundur er félagsráðgjafi MA, MS og framkvæmdastjóri Bjarmalundar, ráð- gjafarstofu um Alzheimer og öldrun. ÉG TRÚÐI varla eigin eyrum þegar það boð var látið út ganga að leggja ætti niður landshlutaútvarpið, og það aðeins fáum vik- um eftir að skipan þess fyrir norðan og austan var breytt til að tryggja framtíð þess! „Það er dýrt að vera Íslendingur“ er haft eftir Hall- dóri Kiljan þegar blaðasnápur var að reyna að snupra hann, sósíalistann, fyrir að eiga fokdýran og flottan amerískan bíl. Eftir höfðatölureglunni er efa- laust dýrt að halda úti svæðisstöðv- unum, en þær skipta íbúa lands- byggðarinnar mjög miklu máli. Við vitum að niðurskurður á sér stað í að- alstöðvum RUV. Það ber að harma, en þar er líka af miklu að taka og þjónusta við Reykjavíkursvæðið eða almenna borgara breytist vænt- anlega lítið. Á Austurlandi er þessu öðruvísi farið. Þegar ég flutti austur árið 1979 starfaði ég um nokkur ár sem kvik- myndatökumaður og fréttaritari sjónvarpsins, og hljóp til þegar eitt- hvað var fréttnæmt. Fréttir mínar voru oftast skornar niður við trog og sjálfur fékk ég stundum skömm í hattinn fyrir það að hafa ekki gert viðburðum, sem heima fyrir þóttu merkilegir, nógu góð skil! Launin voru sáralítil því greiðsla til mín fór eftir sekúndufjölda fréttarinnar nið- urskorinnar. Segja má að um hálf- gerða þegnskylduvinnu hafi verið að ræða. Mér fannst mikilvægt að minna á mannlífið hér eystra, því þótt oft sé sagt „Aldrei gleymist Austurland“ fannst mér það oft nánast öfugmæli. Ekki hygg ég að margir Austfirð- ingar fylli þann flokk sem átti hlut að hruninu og því þeim mun sárara að sú viðreisn á fjölmiðlasviðinu, sem ég hef upplifað síðastliðin 30 ár verði að engu gerð. Öflug fjölmiðlun af lands- byggðinni er einn þeirra þátta, sem stuðla gegn byggðaflótta og efla stöð- ugleika í byggð landsins. Áhrif fjöl- miðla til góðs eða ills eru gríðarleg, ekki síst á unga fólkið. Það er mín skoðun, að sóknin í fjölmenni, úr hin- um dreifðu byggðum, þangað sem fjölmennið er mest, sé mögnuð á öld- um ljósvakans. Þar sem ekkert er um að vera er ekkert gaman! Þetta er ekki aðeins bundið við okkar land heldur þróun á heimsvísu, sem víða um lönd er reynt að hamla gegn. Öflugt sjónvarp og útvarp frá landshlutunum er veigamikill þáttur í að efla byggð. Því verður ekki trúað að stöðvar RUV á landsbyggðinni verði skornar niður við trog. VILHJÁLMUR EINARSSON, fyrrv. skólameistari ME. Útvarp allra landsmanna Frá Vilhjálmi Einarssyni Vilhjálmur Einarsson ÁTAKSVERKEFNIÐ Lífshlaupið á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hófst 3. febrúar í þriðja sinn. Verkefnið felst í því að hvetja landsmenn til þess að hreyfa sig sér til ánægju og heilsubótar. Sam- starfsaðilar verk- efnisins eru mennta- og menn- ingarmálaráðu- neytið, heilbrigð- isráðuneytið, Lýðheilsustöð, Rás 2, Skýrr og Ávaxtabíllinn. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á www.lifs- hlaupid.is. Mikilvægi hreyfingar Rannsóknir staðfesta mikilvægi hreyfingar fyrir heilsu manna og því er brýn þörf á að hvetja fólk til hreyf- ingar. Allir þurfa að hreyfa sig, börn þurfa að ná 60 mínútum á dag og full- orðnir að minnsta kosti 30 mínútum á dag. Vinnuveitendur, leggist á árarn- ar með okkur hjá ÍSÍ og hvetjið starfsmenn ykkar til hreyfingar. Jafnframt eru sveitarstjórnir og rík- isvaldið minnt á að hafa nauðsyn hreyfingar í huga þegar kemur að ákvörðunum um m.a. skólastarf, skipulag og framkvæmdir. Þeir sem eru duglegir að hreyfa sig bæta heilsuna og auka sjálfsöryggið. Bætt heilsa lækkar kostnað við heil- brigðiskerfið, fækkar veikindadögum og eykur því þjóðarhag. Gleðin í fyrirrúmi Hver man ekki eftir ánægjunni í æsku yfir því að komast út til leikja? Eftirvæntingin og gleðin vegna leikj- anna, útiverunnar og samverunnar með öðrum var alltaf mikil. Það er von okkar sem stöndum að Lífshlaup- inu að sem flestir nái að öðlast aftur eftirvæntinguna og gleðina af að fara út til þess að hreyfa sig. Það er mik- ilvægt fyrir þá sem hafa haft hægt um sig og ætla að fara að hreyfa sig aftur að velja sér eitthvað sem þeim finnst skemmtilegt að gera. Þá eru mun meiri líkur á að áframhald verði á hreyfingunni. Landsmenn eru hvattir til þess að sameinast í baráttu sinni við sófann. Drífum okkur út og hreyfum okkur. Ferska loftið bíður. HAFSTEINN PÁLSSON, formaður almenningsíþróttasviðs ÍSÍ. Lífshlaupið 2010 Frá Hafsteini Pálssyni Hafsteinn Pálsson Netgreinar Vandinn fjórir milljarðar en ekki sjö | Kristín Fjóla Bergþórsdóttir og Sigurður Magnússon Meira: mbl.is/greinar –– Meira fyrir lesendur PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16 mánudaginn 15. febrúar. Best er að panta sem fyrst til að tryggja sér góðan stað í blaðinu! NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Morgunblaðið gefur út stórglæsilegt sérblað, LIFUN, sem fjallar um tísku og förðun, föstudaginn 19.febrúar. Í blaðinu verður fjallað um tískuna vorið 2010 í förðun, snyrtingu og fatnaði, fylgihluti auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira. ÍS L E N S K A /S IA .I S /M O R 48 90 9 1/ 10 MEÐAL EFNIS: Förðunarvörur Förðun Húðin, krem og meðferð Snyrting Kventíska Herratíska Fylgihlutir Skartgripir Árshátíðatískan Vortískan Og fullt af öðru spennandi efni Ert þú í tísku? FYRIR 15. FEBRÚAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.