Morgunblaðið - 05.02.2010, Síða 26
26 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010
✝ Birgir Elís Birg-isson fæddist í
Reykjavík 7. júní 1981.
Hann lést 29. janúar
2010.
Foreldrar hans eru
Birgir Guðmundsson
atvinnurekandi f. 25.
nóvember 1961 og
Guðrún Elísdóttir
sjúkraliði f. 12. júlí
1962. Foreldrar Birgis
eru Guðmundur J.
Óskarsson f. 6. ágúst
1936 og Sjöfn Kjart-
ansdóttir f. 8. sept-
ember 1938. Foreldrar Guðrúnar
eru Elís Adolphsson f. 26. mars
1938, d. 17. janúar 2006 og Birna
Júlíusdóttir f. 27. apríl 1937. Systk-
ini Birgis eru 1) Andri Steinn Birg-
isson f. 23. desember 1983, unnusta
hans er María Ólafsdóttir f. 31. mars
1986. Dóttir Andra
Steins er Emilía f. 30.
ágúst 2007. 2) Birna
Kolbrún Birgisdóttir
f. 1. júlí 1993.
Birgir Elís ólst upp í
Grafarvogi frá 5 ára
aldri og stundaði nám
við Foldaskóla. Hann
var mikið náttúrubarn
og fann sig hvergi bet-
ur en með veiðistöng-
ina sína við eitthvert
fallegt vatn. Birgir
hafði einnig mikinn
áhuga á mótorhjólum
og bílum. Eftir grunnskóla vann
hann hjá föður sínum í nokkur ár við
útkeyrslu og afgreiðslustörf við góð-
an orðstír.
Útför Birgis Elís fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, föstudaginn
5. febrúar, og hefst athöfnin kl. 13.
Það eru þung spor og erfið sem
við fjölskylda þín stígum í dag, elsku
Biggi okkar. Að fylgja þér til grafar
er svo óbærilegt sárt. Svo margar
fallegar minningar um yndislegan
son koma í þreyttan hugann. Þú sem
hafðir allt það fallegasta til að bera í
mannkostum einnar manneskju ert
farinn frá okkur. Alltaf svo góður,
vinalegur og elskulegur við alla,
bæði menn og dýr. Kurteis fram úr
hófi, tillitssamur, hjálpsamur, brot-
hættur og sérlega viðkvæmur.
Skarpgáfaður með stálminni eins og
uppflettirit hvort sem var um at-
burði eða þjóðmál.
Þrátt fyrir mikil veikindi allt þitt
líf hafðir þú einhvern yfirnáttúru-
legan styrk sem enginn skildi. Að
berjast við banvænan sjúkdóm í
æsku með öllum þeim þjáningum
sem honum fylgdu og á unglings-
árum við ógeðfelldan og oftast
óvinnandi sjúkdóm sem að lokum yf-
irbugaði þig. Það væri efni í heila
bók að rifja upp tímann og atburði
sem við áttum saman í þessari veg-
ferð, yndið okkar. En heilt yfir litið
erum við stolt af öllum þínum góðu
mannkostum. Það var svo gott að
við gátum tjáð hvort öðru væntum-
þykju og kærleika í síðasta samtal-
inu í síma fjórum dögum fyrir fráfall
þitt. Andri og Birna, systkini þín,
sem þú varst svo ótrúlega stoltur af,
eiga nú um sárt að binda. Við eigum
eftir að sakna alls þess góða og fal-
lega í fari þínu, elsku ljúfurinn okk-
ar. En við vissum líka hvað þú varst
orðinn ofurþreyttur á barningi síð-
ustu ára og unnum þér þeirrar
hvíldar sem þú nú hefur fengið. Ég
veit að afi þinn og englarnir taka vel
á móti þér, þú varst bara þannig.
Takk fyrir samfylgdina, elskulegur
sonur.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífs þíns nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Þín,
mamma og pabbi.
Elsku Biggi minn. Þú fæddist á
hvítasunnudag árið 1981. Þú varst
skírður Birgir Elís eftir föður þínum
og afa. Þú greindist með alvarlegan
sjaldgæfan sjúkdóm, níu mánaða
gamall og varst í erfiðri lyfjameð-
ferð í fjögur ár sem gaf von einn
daginn en hrundi þann næsta. Með-
ferðin skilaði ekki árangri og var því
hætt.
Foreldrar þínir fóru með þig til
sólarlanda til að njóta tímans sem
þú áttir eftir. Ferðin var góð en þú
varst kominn með enn eitt æxlið. Þú
fórst nú í geislameðferð, braggaðist
og náðir þér á strik. Þú varst að
sigrast á sjúkdómnum. Varst þó oft
veikur á unglingsárunum, alltaf með
fötu við rúmið.
Síðar tók við annar vonskusjúk-
dómur sem tók völdin. Þú varðst
fórnarlamb.
Þú áttir bestu foreldra í heimi, og
tvö systkini, Andra Stein og Birnu
Kolbrúnu. Það er átakanlegt að
horfa upp á fjölskylduna kveðja son
og bróður. Þú ert nú laus úr viðjum
veikinda. Hvíldu í friði, vinurinn.
Elsku Guðrún mín, Biggi, Andri
Steinn, Birna Kolbrún og litla Em-
ilía. Það kemur nýr dagur, lifið held-
ur áfram.
Amma Birna.
Þegar ég sest niður til að minnast
Birgis Elís hrannast upp hlýjar og
ljúfar minningar löngu liðinna daga.
Hann Birgir minn var glæsilegur
maður, hávaxinn, svipsterkur með
dökkt yfirbragð og drengur góður.
Við eyddum mörgum góðum stund-
um saman í Bjarmalandinu og su-
mabústaðnum. Hann var alltaf svo
rólegur og yndislegur drengur og
sjálfum sér nógur.
Þessi blíði og fallegi drengur
þjáðist bróðurpartinn úr sínu lífi.
Hann fæddist veikur en sigraðist á
þeim vágesti. Síðar tók annar sjúk-
dómur við sem varð honum yfir-
sterkari. Nú er hann hjá Guði og þar
fær hann loksins hvíld og frið.
Elsku Birgir minn, guð geymi þig
Þín amma,
Sjöfn.
Elsku Biggi minn, ég þakka þér
fyrir okkar einkasamtal á Borgar-
spítalanum fyrir stuttu. Þar kvödd-
umst við hönd í hönd. Við kysstumst
og tárin runnu niður kinnarnar á
okkur báðum. Ég sagði við þig
„Sjáumst bráðum“ og þá svaraðir þú
„Nei, afi, ekki nærri strax“.
Guð veri með þér.
Kveðja,
Afi Gúbbi.
Elsku Biggi minn, ég veit af allri
sálu minni hvað þér þótti afskaplega
vænt um okkur fjölskylduna þína,
og okkur þótti það líka um þig, hvað
við áttum margar skemmtilegar
stundir þegar ég var lítil og þú
kenndir mér að teikna og spila á gít-
ar, fórst með mér í fótbolta og varst
svo góður við mig. Það var ekki til
neitt vont í þér, en svo veiktistu og
ég sá þig sjaldnar, talaði næstum
aldrei við þig og vissi ekkert hvar þú
varst. Lífið þitt varð erfitt og sárs-
aukafullt og enginn okkar gat rétt
svo ímyndað sér hvernig þér liði, við
gerðum allt sem við gátum fyrir þig
og sérstaklega þá mamma og pabbi.
Nú á ég aldrei eftir að sjá þig oftar
og það er alveg hrikalega erfitt að
sætta sig við það, elsku bróðir minn,
núna ertu kominn á betri stað og ég
veit að þér líður miklu betur núna
heldur en þér hefur nokkur tímann
liðið og ég er glöð fyrir það þótt
sorgin sé svo erfið og tárin geta ein-
faldlega ekki hætt að falla. Ég elska
þig og mér á alltaf eftir að þykja svo
vænt um þig. Ég veit að englarnir
munu taka mjög vel á móti þér. Ég
mun aldrei gleyma þér, elsku Birgir
Elís.
Þín systir,
Birna Kolbrún.
Elsku bróðir.
Það var mjög erfitt þegar pabbi
hringdi í mig á föstudagskvöldið og
sagði mér að þú værir farinn frá
okkur. Það er ótrúlegt hvað þú hef-
ur náð langt þrátt fyrir öll erfiðu
veikindin frá fæðingu en það sem
var leiðinlegast var að við fórum
hvort í sína áttina mjög snemma á
unglingsaldri. Það er mjög erfitt að
sætta sig við þetta en ég veit að þú
ert kominn á betri stað núna og líð-
ur vel og getur hvílst í friði.
Ég var hjá mömmu og pabba í
kvöld og þau voru með mynd af þér
sem Emilía fékk. Það var ótrúlega
skrýtið að sjá hvað hún passaði
myndina vel, því að vanalega
krumpar hún þær og hendir þeim
frá sér. Þegar hún hélt á myndinni
og horfði á þig þá fór hún að syngja
lag sem átti mjög vel um þig, þar
sem fiskar koma fyrir í einni laglín-
unni og þú sem hafðir svo gaman af
því að veiða. Hún söng þá línu aftur
og aftur, eins og hún væri að tileinka
þér lagið. Núna ertu kominn á hvíld-
arstað og afi á eftir að taka vel á
móti þér og hugsa vel um þig. Mér
þykir ótrúlega vænt um þig og ég
hlakka til að vera með þér á ný þeg-
ar að því kemur. Þinn bróðir, Andri
Steinn.
Um kinnarnar renna tárin,
til marks um öll árin.
Hjartað heldur um sárin,
en rauðleit augun fela hárin.
(Afródíta/1988.)
Þinn bróðir,
Andri Steinn.
Elsku Biggi minn, þegar ég hugsa
til þín þá birtast mér ótal margar
góðar minningar frá þeim tíma sem
við vorum sem mest saman. Á þeim
tíma vorum við nánast óaðskiljanleg
á reiðhjólinu hennar mömmu þinn-
ar. Þú sóttir mig oft og skutlaðir
mér heim eins og við værum á
krossaranum þínum.
Þú passaðir alltaf vel upp á mig
og sagðir að ef einhver kæmi nokk-
urn tímann illa fram við mig eða
gerði mér eitthvað illt þá væri þér
að mæta, Þessi orð þín eru mér afar
kær.
Allir sem þig þekkja vita hversu
góður strákur þú varst, þú vildir
alltaf gera öllum til geðs og gast
ekki sagt nei við neinn og fyrir það
áttu góða vini sem munu minnast
þín og sakna um alla tíð.
Eftir að leiðir okkar skildust rák-
umst við nokkrum sinnum á hvort
annað og alltaf fannst mér jafn gott
að sjá þig og tala við þig. Seinast
þegar ég sá þig þá brotnuðum við
bæði niður og töluðum lengi um
gömlu góðu tímana.
Kæri vinur, þín verður sárt sakn-
að og munu minningar okkar lifa
með mér það sem eftir er, ég gleymi
þér aldrei og tímunum okkar saman.
Gott er þó að hugsa til þess að þú
ert kominn í hvíld eftir erfiða bar-
áttu.
Elsku Biggi, Guðrún, Andri og
Birna, megi Guð vera með ykkur og
veita ykkur styrk á þessum erfiðu
tímum
Kveðja,
Ólöf Lára Ágústsdóttir.
Elsku Biggi minn, hvað get ég
sagt, það er samt svo margt, en mér
er orða vant.
Þegar við kynntumst í æsku
smullum við saman, þú hefur verið
minn besti vinur alla tíð.
Allir þessir veiðitúrar sem höfum
farið í saman. Mömmur okkar
keyrðu okkur upp að Elliðavatni eða
upp að þeim veiðivötnum sem okkur
langaði að veiða í á morgnana og
náðu í okkur á kvöldin. Ungir vorum
við búnir að fara að veiða í Laxá í
Kjós og Rangá og þar sem von var á
lax fórum við með pabba þínum sem
var duglegur að fara með okkur.
Betri félaga var ekki hægt að hugsa
sér.
Við vorum ekki gamlir þegar við
fengum áhuga á mótorhjólum og ég
fékk mitt aðeins á undan þér og vor-
um við mikið saman á því fyrst.
Ekki löngu seinna fór ég með pabba
þínum að ná í þitt fyrsta hjól, það
fannst þér ekki leiðinlegt. Margar
góðar stundir áttum við saman við
að skrúfa sundur og saman í bíl-
skúrnum heima og fengum oft
skammir fyrir að halda skúrnum
uppteknum og að ganga ekki frá, en
við vorum búnir að setja í gang og
farnir. Það er svo margt, elsku Biggi
minn, sem við höfum gert saman að
það er hægt að skrifa endalaust um
það.
Allir sem þekktu Birgi vita hversu
góður drengur hann var, hann var
hlýr og góður vinur vina sinna, hann
var alltaf tilbúinn að gera allt fyrir
alla, alveg sama hvað það var. Nú
kveðjum við góðan dreng sem fall-
inn er frá, en minning hans lifir í
hjörtum okkar allra.
Guð sá að þú varst þreyttur
og þrótt var ekki að fá,
því setti hann þig í faðm sér
og sagði: „Dvel mér hjá“.
Harmþrungin við horfðum
þig hverfa á annan stað,
hve heitt sem við þér unnum
ei hindrað gátum það.
Hjarta, úr gulli hannað,
hætt var nú að slá
og vinnulúnar hendur
verki horfnar frá.
Guð sundur hjörtu kremur
því sanna okkur vill hann
til sín hann aðeins nemur
sinn allra besta mann.
(Þýð. Á. Kr. Þorsteinsson.),#
Elsku Birgir, Guðrún Andri og
Birna. Ég sendi ykkur mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Svanur Örn Þrastarson.
Elsku Biggi minn, nú ertu farinn.
Þú varst einn af mínum bestu vinum
og ég er gífurlega þakklátur fyrir
okkar skemmtilegu samverustundir
þegar við vorum ungir og saklausir
strákar í Grafarvoginum. Þú varst
aðdáunarvert lítillátur og góður
strákur. Þú gafst mikið frá þér til
allra þinna bestu vina. Ég gæti
skrifað 100 blaðsíður um allt það
skemmtilega sem við gerðum sam-
an, sem var svo ótrúlega mikið. Ég
trúi því ekki að þú sért farinn. Ég
sakna þín sárt og mun hugsa til þín.
Ég er viss um að himnafaðirinn
geymir þig og hugsar um þig.
Þinn vinur,
Helgi.
Elsku yndislegi Biggi minn. Ég
man þegar ég sá þig fyrst. Þú sast
þarna í sófanum og varst að tala við
eitthvert fólk. Ég horfði beint í aug-
un á þér og var greinilega ekkert
feimin við það. Ég settist hjá ykkur
og fylgdist með þér. Eftir þetta
hékk ég mikið með þér og varð auð-
skiljanlega mjög hrifin af þér. Það
var allt svo yndislegt við þig og þú
vildir allt fyrir alla gera og varst svo
góður við alla. Ég man þegar
mamma fékk að tala við þennan nýja
kærasta minn í símann og henni
byrjaði strax að þykja vænt um þig.
Hún vildi strax hitta þig og taka ut-
an um þig.
Maður spyr stundum af hverju
bestu sálirnar séu teknar. Þú ert ein
besta sál sem ég hef nokkurn tím-
ann kynnst. Ég hef hugsað um þig á
hverjum einasta degi frá því að ég
kynntist þér. Þú áttir hjartað mitt
svo lengi, elsku besti Biggi minn. Ég
hef saknað þín endalaust og mun
sakna þín endalaust. Guð geymi þig
fyrir okkur. Hvíldu í friði, elsku gull-
ið mitt.
Ég votta fjölskyldu þinni alla
mína samúð og Guð veri með ykkur
á þessari erfiðu stundu. Mér þykir
endalaust vænt um ykkur.
Þín,
Særún.
Elsku Biggi minn, mikið vildi ég
að ég væri ekki að skrifa kveðju til
þín hér og nú, það er allt of snemmt,
þú hefðir orðið 29 ára nú í sumar,
sem er enginn aldur. En þú þurftir
að þola mikið á stuttri ævi. Ég man
svo vel þegar þú komst til okkar
fyrst heim með Svani, svo prúður og
fallegur drengur, svo frétti ég að þú
hefðir fengið krabbamein í tvígang
og komist yfir það sem var krafta-
verk. Ég á svo margar minningar
um öll árin sem þú varst heimagang-
ur hjá mér og Þresti og það mynd-
uðust strax sterk vinabönd milli þín
og Svans okkar. Þið voruð alltaf að
veiða við Gullinbrú og ég var að
kafna í laxi frá ykkur. Á endanum
gat ég ekki tekið við meiru, þá fékk
pabbi minn laxinn frá ykkur.
Þó ég væri orðin södd á veiðunum
ykkar þá fór ég með ykkur austur í
Rangá og gaf ykkur þar dag. Það
var yndislegur dagur og þótt þið
veidduð ekki neitt voruð þið svo
glaðir. Ég ráfaði fram og aftur eftir
bakkanum og fylgdist með ykkur og
það var unun að horfa á ykkur, þetta
fannst ykkur alveg rosalega gaman
þótt enginn hafi náðst í þetta sinn.
Ég man þegar þú fékkst fyrsta
bílinn þinn, þá komst þú og bauðst
mér í bíltúr um hverfið, þú varst svo
glaður og stoltur og ætlaðir að passa
hann vel og lofaðir mér að fara var-
lega í umferðinni. Elsku Biggi minn,
ég get sagt svo margt, þau eru svo
mörg gullkornin sem við eigum í
minningunni sem ylja okkur um
hjartarætur. Guð geymi þig, elsku
vinur.
Enginn lái öðrum frekt,
einn þó nái falla.
Hver einn gái að sinni sekt,
syndin þjáir alla.
(Skáld-Rósa.)
Guðrún, Birgir, Andri og Birna.
Innilegar samúðarkveðjur til ykk-
ar. Guð gefi ykkur styrk.
Kveðja,
Karen og Þröstur.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
svefnsins draumar koma fljótt.
svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Ég votta fjölskyldu og vinum
samúð mína.
Sigríður Steinunn
Þrastardóttir.
Ég kynntist Bigga fyrir 8 árum
síðan. Ég man hvað mér þótti þeir
bræðurnir vera ólíkir þótt aðeins
væru rúm 2 ár voru á milli þeirra.
En þegar á leið þá sá ég að þeir áttu
marga líka eiginleika. Biggi var svo
góður og ljúfur strákur og þótti
mjög vænt um fjölskylduna sína.
Mér þótti svo vænt um það þegar
hann kom upp á fæðingardeild þeg-
ar Emilía litla frænka hans fæddist
til að fá að sjá hana og hafði hann
alltaf gaman af að því að fylgjast
með henni þegar þau hittust. Hann
var besti strákur sem tók of margar
rangar ákvarðanir sem leiddu hann
á þann stað sem hann er á núna. Ég
veit að Elís afi hans er með honum
og það veitir mér huggun. Hann er á
góðum stað núna hjá Guði sem vakir
yfir honum og honum líður vel í
hvíldinni. Við eigum margar góðar
minningar með honum sem við mun-
um geyma vel í hjarta okkar og ég
mun sjá til þess að Emilía muni allt-
af vita um Bigga stóra frænda sinn
sem þótti svo vænt um hana.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Birgir Elís Birgisson