Morgunblaðið - 05.02.2010, Side 30
30 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
GETTU
HVAÐ!
HVAÐ? ÉG ER MEÐSVOLÍTIÐ
ÓVÆNT
HANDA LÍSU
SVOLÍTIÐ SEM ÞÚ ÁTT
ALDREI EFTIR AÐ FINNA
FYRST SVO ER
(ROP) ÞÁ ER ÉG MEÐ
SVOLÍTIÐ ÓVÆNT
HANDA ÞÉR
HVAÐ? ÉG FÉKK BÓKMEÐ ÞEKKTUM
TILVITNUNUM
ÚFF
HVAÐ ÁTTU VIÐ MEÐ
„ÞEKKTUM“ TILVITNUNUM? EF
ÞÆR ERU SVONA ÞEKKTAR, AF
HVERJU HEF ÉG ALDREI HEYRT
ÞESSA TILVITNUN ÁÐUR?
EF HÚN VÆRI ÞEKKT ÞÁ
HEFÐI ÉG HEYRT HANA
ÁÐUR, EKKI SATT?
HVERNIG GETA ÞEIR SAGT
AÐ HÚN SÉ ÞEKKT?!?
„ÉG VEIT
BARA EITT OG
ÞAÐ ER AÐ ÉG
VEIT EKKI
NEITT“
ÞÚ ERT
AFTUR SEINN Í
KVÖLDMATINN!
HVAÐA AFSÖKUN HEFUR
ÞÚ Í ÞETTA SKIPTIÐ?
HELDUR ÞÚ AÐ
VIÐ GETUM
KÆRT ÞAU FYRIR
HÖFUNDA-
RÉTTARBROT?
ÞETTA ER FRÁBÆRT!
ÉG ER AÐ HJÓLA Í VINNUNA!
ÚFF! ÉG ER EKKI Í JAFN
GÓÐU FORMI OG ÉG HÉLT
EN MÉR Á SAMT EFTIR
AÐ TAKAST ÞETTA
BLESS BLESS!
SJÁUMST
Í KVÖLD!
EN ÉG Á
AUÐVITAÐ
FREKAR LANGT
EFTIR...
KOMINN TÍMI
TIL AÐ LÁTA
TIL SKARA
SKRÍÐA!
HVERNIG
ÆTLAR ÞÚ AÐ
NÁ FLJÚGANDI
MANNI?
GÓÐ SPURNING.
ÉG ÞARF AÐ GETA
SVEIFLAÐ MÉR TIL HANS...
OG ÞARNA
KEMUR LAUSNIN
Holtamannabók III
EKKI náðist að ljúka
við og gefa út fyrir
síðustu jól Holta-
mannabók III sem er
ábúendatal yfir allar
fjölskyldur sem hafa
búið í Djúpárhreppi
(Þykkvabæ). Ágætar
líkur eru á því að
bókin komi út á vor-
dögum 2010. Margar
myndir verða í bók-
inni. Vel hefur gengið
að safna myndum –
en nokkrar myndir
vantar þrátt fyrir
það.
Í haust sem leið var auglýst
eftir myndum í bókina og enn er
leitað til lesenda Morgunblaðs-
ins. Ekki hefur tekist að finna
mynd af Gísla Bjarnasyni bónda
í Vesturholtum. Gísli var fæddur
17. júní 1863 og lést 6. ágúst
1936. Hann og Jónína Margrét
Ólafsdóttir (1873–1943) kona
hans bjuggu lengi í Vest-
urholtum. Gísli var natinn við
skepnur og ígildi dýralæknis
meðal sveitunga sinna í Þykkva-
bænum á sinni tíð. Einn afkom-
andi Gísla telur sig muna það
rétt að frásögn og mynd af Gísla
og læknisverkum hans hafi kom-
ist á prent í ævisögu annars
Sunnlendings. Þrátt fyrir leit
hefur hún ekki fundist.
Þeir sem eiga eða geta vísað á
mynd og/eða þessa áðurnefnda
frásögn af Gísla Bjarnasyni í
Vesturholtum vinsamlega snúi
sér til Eyglóar Yngvadóttur, Ön-
nuparti, Þykkvabæ, s.
487-5617 / 861-5618.
Þorgils Jónasson
Ábending
ÉG spyr mig nú eftir
að Alþingi er búið að
vera í fríi, þó ekki
löngu: Hvað eruð þið
þingmenn að gera
með því að opna
þing? Þið eruð búnir
að vera með munninn
upp á gátt í þá veru
að það þurfi að slá
skjaldborg um hin
skuldugu heimili
landsins sem bera
skuldir útrásaraumingja. Manni
hryllir við að hlusta á hvað þið er-
uð allir utanveltu við ykkar tal um
hjálp til þeirra sem eru að missa
aleigu sína. Nú eruð þið óðamála
um umhverfismál og friðlýsingar.
Það er gott fyrir ríkið að eiga frið-
lýstan landskika til þess að hafa
þar athvarf fyrir alla þá sem
verða heimilislausir á þessu ári og
í náinni framtíð. Þið bendið því
bara til heiða, svo eruð þið stikkfrí
um framhald. Ég vil koma með
ábendingu til ykkar allra sem sitja
þingið. Breytið hugsanagangi ykk-
ar, farið að vinna fyrir þetta heim-
ilis- og eignalausa fólk eða bara
komið ykkur af þingi og farið á
skak á litlum trillum og látið fólk-
ið um framhaldið.
Kristjana Vagnsdóttir
Ást er…
… að hlaupa í heimahöfn.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Smíðastofa kl. 9, bingó ( 2.
og 4. föstudag í mán.).
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, kerta-
skreyting, handavinna, spilað í sal.
Dalbraut 18-20 | Harmonikka og söngur
klukkan 14.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
boccia kl. 10.45, listamaður mánaðarins.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Bók-
menntahópur kl. 13, umsjón Ólafur Sig-
urgeirsson, dansleikur á sunnudag kl.
20, Klassík leikur fyrir dansi.
Félag kennara á eftirlaunum | Fræðslu-
og skemmtifundur á Grand Hotel v. Sig-
tún laugardag kl. 13.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl.
9.30/13, málm- og silfursmíði kl. 9.30,
jóga kl. 10.50, spænska kl. 13, félagsvist
kl. 20.30.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Opnar vinnustofur í Jónshúsi kl. 9.30,
námskeið í almennri handavinnu og fé-
lagsvist FEBG kl. 13,
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
opnaðar kl. 9, m.a. bókband, prjónakaffi
kl. 10, stafganga kl. 10.30, spilasalur op-
inn frá hádegi, kóræfing kl. 14.30. Uppl.
á staðnum og s. 575-7720.
Háteigskirkja - starf eldri borgara |
Brids-aðstoð kl. 13 á föstud. í Setrinu
Hraunsel | Rabb kl. 9, leikfimi kl. 11.30,
brids kl. 12, www.febh.is.
Hvassaleiti 56-58 | Leikfimi kl. 9 og 10
hjá Birgi, vinnustofa kl. 9, postulín,
myndlist kl. 13, böðun fyrir hádegi, hár-
snyrting.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir. Þorrablót,
húsið opnað kl. 17. Munið tónlist-
arkvöldið nk. miðvikud. með Trausta
Ólafssyni; kynning á Dieter Fischer-
Dieskau. Næstkomandi föstudag kl.
14.30 flytur Soffíuhópur ljóðadagskrá til-
einkaða skáldinu Þórarni Eldjárn; Gælur,
fælur og þvælur.
Íþróttafélagið Glóð | Boccia í Gjábakka
kl. 13, uppl. í s. 554-2780, glod.is.
Korpúlfar Grafarvogi | Listasmiðja, gler
og tréskurður, á Korpúlfsstöðum kl. 13.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða-
klúbbur kl. 10, leikfimi kl. 11, opið hús
vist/brids aðra hvora viku kl. 13, bingó
aðra hvora viku kl. 13.30. Hárgreiðslu-
stofa opin s. 862-7097, fótaaðgerða-
stofa opin s. 552-7522.
Vesturgata 7 | Skartgripagerð/
kortagerð, glerbræðsla og spænska kl.
9, enska kl. 10.45, sungið við flygilinn kl.
13,30, tölvukennsla kl. 14, dansað í að-
alsal kl. 14.30. Laust á byrjendanámsk. í
spænsku á þriðjudag kl. 10.45, kennari
Elba Altuna, upplýsingar og skráning í s.
535-2740.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, leir-
mótun, handavinnustofan opin, morg-
unstund, leikfimi og bingó kl. 13.30, fínir
vinningar.
Áfram er haldið með kveðskap um
Esjuna. Jón Ingvar Jónsson orti vísu,
sem hann nefnir „Við sundin blá“:
Sumarkvöld við sundin blá
seint úr minni líða
er ég sveittur á þér lá
Esjan barmafríða.
Jón Arnljótsson var ekki lengi að
kveikja á þessari hugsun:
Það sem Esjan þola má,
þó hún engu segi frá;
Alveg stöðugt uppáfar,
eins um dag og næturnar.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir á
Sandi í Aðaldal kunni enga vísu um
Esjuna og fór því út að austurglugg-
anum „að líta á okkar Esju sem köll-
uð er Fjall. En það var svo mikið
tungl að óvart byrjaði vísan svona:
Kringum tungl er bjartur baugur
brosir napurt þessi kall.
En vísan átti nú að vera um Esj-
una svo ég botnaði með henni.
Esja er miklu hærri haugur
en Húsavíkurfjall.“
Sigríður Hjálmarsdóttir frá
Haugsnesi orti á sínum tíma:
Esjan bláa undra hlý.
Ævaforn í háttum.
Hún er minning mína í
meitluð sterkum dráttum.
Loks Þórbergur Þórðarson:
Esjan er engilfögur
utan úr Reykjavík.
Hún ljómar sem litfríð stúlka
í ljósgrænni sumarflík.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af sumri og Esjunni