Morgunblaðið - 05.02.2010, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
S
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
DENZEL WASHINGTON OG GARY OLDMAN
ERU FRÁBÆRIR Í ÞESSARI MÖGNUÐU SPENNUMYND
Í ANDA I AM LEGEND OG MAD MAX
SVEPPI – BJÖRGVIN FRANS – GÓI
FRÁBÆR TEIKNIMYND
ÞAR SEM SVEPPI FER Á KOST-
UM Í HLUTVERKI LEMMA
Frá höfundi SHREK
Sýnd með íslensku tali
SÝND Í ÁLFABAKKA,KRINGLUNNI, KEFLAVÍK OG SELFOSS
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA Á MIDI.IS
HHHH
„IT’S PROBABLY THE MOST PURELY FUN
FILM EXPERIENCE I’VE HAD ALL YEAR. SEE
IT AS SOON AS YOU CAN“
- WWW.JOBLO.COM
HHH
„BÍÓMYND SEM UNDIR-
RITAÐUR GETUR MÆLT
MEÐ...“
„SENNILEGA EINHVER
ÖFLUGASTA BYRJUN SEM
ÉG HEF SÉÐ...“
- KVIKMYNDIR.IS – T.V.
HHHH
-NEW YORK DAILY NEWS
HHH
„FYNDIN OG VEL LEIKIN“
- S.V. – MBL.
Besti leikarinn,
Robert Downey Jr.
TILNEFND TIL
2 ÓSKARS-
VERÐLAUNA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA
HHHH
"Einstök skemmtun"
Ebert
HHHH
"Ein besta mynd ársins"
New York Observer
HHHH
"Frábær!"
Wall Street Journal
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
THEBOOKOFELI kl. 8D - 10:30D 16 DIGITAL SHERLOCKHOLMES kl. 5:20 - 8 - 10:40 12
THEBOOKOFELI - LÚXUSSALUR kl. 5:30 - 8 - 10:30 L BJARNFREÐARSON kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:30 L
ANEDUCATION kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:30 L PLANET51 m. ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 L
WHERETHEWILDTHINGSARE kl. 3:40 -5:50 7
UPINTHEAIR kl. 8 - 10:20 L
SPARBÍÓ 600krkr á allar sýningar merktar með appelsínugulu
MAYBE I SHOULD HAVE kl.5:50D -8D L
THE BOOK OF ELI kl.5:50D -8:10D -10:10D 16
IT´S COMPLICATED kl.8 -10:30 12
SHERLOCK HOLMES kl.10:40 12
PLANET 51 m. ísl. tali kl.3:40D L
BJARNFREÐARSON kl.3:40-5:50 L
PRINSESSAN OG FROSKURINN m. ísl. tali kl.3:40 L
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
„ÉG segi bara fínt,“ segir Einar Egilsson, eða
M.E.G.A. úr Steed Lord. Þó að blaðamaður
hringi að kvöldlagi í nöprum norðangarra er
sól og sumar hjá Einari, þannig séð, en hann
er að tala frá Los Angeles þar sem hann býr
ásamt tveimur öðrum meðlimum Steed Lord,
þeim Svölu Björgvinsdóttur (Kali) og bróður
sínum Edda (Demo). Fjórði meðlimurinn og
þriðji bróðirinn, Elli (A.C.), býr hins vegar í
London. Ástæða símtalsins er að sveitin leik-
ur nú hlutverk í nýjustu auglýsingaherferð
fataframleiðandans WESC ásamt leikurum
eins og Peter Stormare og Jason Lee og fleiri
listamönnum. Um er að ræða vorlínu fyr-
irtækisins.
Túr í mars
„Við erum svokallaðir WESC-aktífistar
ásamt fleirum,“ útskýrir Einar. „Við unnum
lagakeppni sem fyrirtækið hélt árið 2007 og
vorum í kjölfarið fengin til að spila í partíi
sem það stóð fyrir í London.“
Auglýsingin er tekin upp í sólríkum garði í
Mulholland Drive þar sem má sjá sundlaug,
brosandi fólk, mat, drykk, hljóðfæri – og
Steed Lord.
„Þetta er mjög skemmtilegt fyrirtæki og
þeir ráða listamenn sem þeir fíla sem aktíf-
ista. Þetta eru málarar, ljóðskáld, tónlist-
armenn og líka brettahetjur en fyrirtækið,
sem er sænskt, var upphaflega „skeit“-merki.
Jason Lee er einmitt gamall skeitari.“
Einar lætur vel af sér þarna í sólinni og
segir sveitina önnum kafna við að semja efni
fyrir nýja plötu. Fyrsta plata hennar, Truth
Serum, kom út 2008 og fyrir síðustu jól kom
út The Truth Serum Remix Project þar sem
er að finna 22 endurhljóðblandanir á lögum
Steed Lord eftir hina og þessa listamenn. Sex
laga EP plata er nú klár til útgáfu og fyrsta
smáskífan kemur út í enda mánaðar. Túr um
Bandaríkin er svo áætlaður í mars.
„Við spilum mikið í Bandaríkjunum og í
mars förum við í tónleikaferðalag og komum
m.a. við á South by Soutwest hátíðinni. Re-
mix-platan hefur þá verið að fara vel en við
gáfum hana út á netinu á okkar eigin merki í
gegnum iTunes og fleira. Okkur fannst gott
að geta komið út svona hreinni klúbbaplötu
sem er meira svona plötusnúðaplata en hefð-
bundin útgáfa.“
Alltaf togað
Lífið leikur við Einar og félaga um þessar
mundir og hann er hæstánægður með að þau
hafi stokkið á það að flytja út en þarna hafa
þau verið síðan í ágúst.
„Þetta er alveg æðislegt, yndislegt bara.
Það er mjög afslappandi að vera hérna og gott
að vinna tónlist. Við erum komin með nýjan
umboðsmann sem er að vinna að framgangi
okkar hér. Það hefur alltaf togað í okkur að
flytja út, mörg okkar bjuggu lengi hérna þeg-
ar við vorum lítil. Þannig að við kýldum bara á
þetta og sjáum svo sannarlega ekki eftir því.“
Svöl Steed Lord í auglýsingunni, að tjá sig um eðli og eigindir WESC.
„Þetta er alveg æðislegt, yndislegt bara …“
Hljómsveitin Steed Lord kemur fram í nýjustu auglýsingaherferð fatarisans WESC
Sveitin er komin með nýjan umboðsmann og leggur lokahönd á nýja plötu í Los Angeles