Morgunblaðið - 17.02.2010, Page 13
Fréttir 13VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2010
VALNEFND á
vegum Banka-
sýslu ríkisins hef-
ur skilað stjórn
Bankasýslunnar
tillögum að
stjórnarmönnum
ríkisbankans
NBI, en ný stjórn
verður kjörin á
aðalfundi bank-
ans fyrir árið 2008 sem hefur ekki
ennþá verið haldinn. Stefnt er að því
að halda aðalfundinn í þessari viku.
Valnefndinni er skylt að skila 2-3
tillögum fyrir hvert stjórnarsæti
sem íslenska ríkið á í stjórnum fjár-
málafyrirtækja. Kristín Rafnar, for-
maður valnefndar, sagði í samtali við
Morgunblaðið að allar tillögur sem
bárust hefðu fengið vandlega yf-
irferð. Um 300 tillögur hefðu borist
þegar valnefnd hóf undirbúning að
tilnefningum í stjórn NBI, en ís-
lenskir sem erlendir aðilar gáfu kost
á sér. thg@mbl.is
Kristín Rafnar.
Valnefnd
hefur skil-
að tillögum
Stefnt að aðalfundi
NBI í þessari viku
HEIMSSÝNINGIN Í SJANGHÆ
Viðtöl um viðskiptamöguleika
P
IP
A
R
/
P
IP
A
R
/
A
•
AAVAVVVV
TB
V
TB
V
AAA00
S
Í00
•
10
0
•
10
0
4
6
5
4
6
5
Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • www.utflutningsrad.is
Heimssýningin EXPO 2010 verður opnuð í Sjanghæ í Kína
þann 1. maí nk. Af því tilefni verður Hreinn Pálsson,
framkvæmdastjóri Íslands í verkefninu, til viðtals
föstudaginn 19. febrúar.
Viðtölin eru ætluð þeim sem vilja ræða
viðskiptamöguleika í tengslum við sýninguna.
Ísland mun fyrst og fremst leggja áherslu á þekkingariðnað,
orku- og ferðamál undir yfirskriftinni „Hrein orka –
heilbrigt líferni“.
Að auki verður leitast við að skapa grundvöll fyrir íslensk
fyrirtæki til að afla tengsla, upplýsinga og viðskipta-
sambanda í Kína og kynna íslenska menningu. Sýningin
mun standa yfir frá 1. maí til loka október 2010 og er
áætlað að um 70 milljónir gesta muni heimsækja
sýningarsvæðið á þeim tíma.
Fundirnir verða haldnir á skrifstofu Útflutningsráðs Íslands
í Borgartúni 35 og má bóka þá í síma 511 4000 eða með
tölvupósti, utflutningsrad@utflutningsrad.is.
Nánari upplýsingar veita:
Hreinn Pálsson, hreinn.palsson@utn.stjr.is og Andri
Marteinsson, andri@utflutningsrad.is.
Eftir Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
EAMONN Butler, framkvæmda-
stjóri hugveitunnar Adam Smith
Institute, segir að íslensk stjórnvöld
eigi að reyna að draga viðræður um
lausn Icesave-deilunnar á langinn og
freista þess að næsta ríkisstjórn
Bretlands sýni aðstöðu Íslendinga
meiri skilning. Butler segist enn-
fremur vera afar sár út í ríkisstjórn
Breta vegna framferðis hennar gegn
Íslendingum vegna Icesave.
Í nýjustu bók sinni, The Rotten
State of Britain sem kom út í byrjun
þessa árs, fer Butler á gagnrýninn
hátt yfir valdatíð Verkamannflokks-
ins og nefnir sérstaklega beitingu
hryðjuverkalaganna gegn íslensku
bönkunum og stjórnvöldum haustið
2008 sem dæmi um hvernig þeim
hefur verið misbeitt af stjórnvöldum
frá því að þau tóku gildi. Butler segir
að það hafi verið heimskulegt af
breskum stjórnvöldum að stugga
með þessum hætti við einum ein-
arðasta bandamanni sem Bretar
eiga í Evrópu.
Dómstólaleið vegna
hryðjuverkalaga ófær
Hinsvegar telur hann að þessi
misbeiting breyti engu um samn-
ingsstöðu íslenskra stjórnvalda í
dag. Tækifærið til þess að sanna að
ríkisstjórn Gordons Brown misbeitti
hryðjuverkalögunum fyrir annað-
hvort dómstólum í Bretlandi eða evr-
ópskum dómstól er runnið okkur úr
greipum. Samt sem áður telur hann
þessa staðreynd styrkja siðferðilega
vígstöðu íslenska málstaðarins þar
sem augljóst sé að þessi aðgerð hafi
gert vonda stöðu íslenska hagkerf-
isins enn verri haustið 2008.
Fastur tónn í orði en
skilningur á borði
Aðspurður hvaða innlegg íslensk
stjórnvöld ættu að koma með að
borðinu í nýjum viðræðum við bresk
og hollensk stjórnvöld um lausn Ice-
save-deilunnar segir Butler að ein-
faldlega eigi að draga málin á lang-
inn. Það sé hugsanlegt að ríkisstjórn
Íhaldsflokksins muni sýna sjónar-
miðum íslenskra stjórnvalda meiri
skilning en núverandi ríkisstjórn.
Butler segir að íhaldsmenn myndu
vissulega kveða fast að orði í opin-
berri umræðu um málið en fullyrðir
að þeir geri sér grein fyrir hversu
heimskulega ríkisstjórn Brown hef-
ur hagað sér í málinu og hvernig
kröfur hennar leggi drápsklyfjar á
íslenska hagkerfið.
Íhaldsmenn séu líklegri til þess að
átta sig á að mun meiri líkur séu á að
íslensk stjórnvöld geti staðið í skil-
um á Icesave eftir að búið er að end-
urreisa hagkerfið og fjármálakerfi
landsins.
Ráðlegt að reyna
að tefja Icesave
Eamonn Butler segir íhaldsmenn sýna meiri skilning
Morgunblaðið/Kristinn
Icesave Butler ráðleggur Íslendingum að draga Icesave-viðræður á lang-
inn, eða þar til væntanleg stjórn Íhaldsflokksins í Bretlandi tekur við.
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
Eiginfjárinnspýting iðnaðarráðu-
neytisins breytir engu um útlána-
heimildir Byggðastofnunar, sem
haldast óbreyttar í þremur millj-
örðum króna á þessu ári. Í síðasta
birta uppgjöri Byggðastofnunar,
sem var fyrir fyrstu sex mánuði
ársins 2009, kom fram að eigið fé
stofnunarinnar væri neikvætt um
4,74%. Lágmarkskröfur Fjármála-
eftirlitsins (FME) um eiginfjár-
hlutfall hljóða upp á 8%, og í kjöl-
far birtingar uppgjörsins fékk
Byggðastofnun frest til 8. desem-
ber síðastliðins til að koma eigin-
fjárstöðunni á réttan kjöl. Aðal-
steinn Þorsteinsson, forstjóri
Byggðastofnunar, sagði í samtali
við Morgunblaðið að ekki hefði tek-
ist að uppfylla lágmarkskröfur fyr-
ir tilskilinn frest, og því hefði verið
þörf á framlengingu um óákveðinn
tíma.
Efnahagur tvöfaldaðist
Við fall krónunnar tvöfaldaðist
efnahagsreikningur Byggðastofn-
unar, en gengistryggð lán stofn-
unarinnar nema tæplega 14 millj-
örðum króna. Erlendar skuldir
Byggðastofnunar eru hins vegar
tæplega tveimur milljörðum hærri,
sem kallaði á hátt framlag á af-
skriftareikning. Aðalsteinn segir
að þrátt fyrir þetta hafi stofnuninni
ekki verið bráðavandi á höndum,
og lausafjárstaðan góð. Vandinn
hafi falist í efnahagsreikningnum.
„Við þurftum þessa eiginfjáraukn-
ingu til að geta haldið lánastarf-
seminni áfram, og í ákvörðun Al-
þingis felst yfirlýsing um að
starfsemi Byggðastofnunar skuli
haldið áfram. Það er álit okkar að
3,6 milljarðar skili eiginfjárhlutfalli
nærri 10%,“ segir Aðalsteinn, sem
reiknar ekki með að mikið verði
um ný útlán á þessu ári. „Frekar á
ég von á að við verðum meira í því
að styðja við núverandi viðskipta-
vini okkar,“ segir hann. Með fjár-
veitingu ríkisins samkvæmt fjár-
lögum til Byggðastofnunar nemur
heildarframlag ríkisins í ár tæp-
lega fjórum milljörðum króna. Um
er að ræða langhæsta framlag rík-
isins til Byggðastofnunar fyrr og
síðar, en næsthæsta framlagið var
á árinu 2001 þegar heildarupphæð
nam 616 milljónum króna.
Uppreiknað á verðlagi ársins
2009 hafa framlög ríkisins til
Byggðastofnunar numið 13,1 millj-
arði króna, ef talin er með eig-
infjáraukning iðnaðarráðuneytisins
á dögunum. Aðalsteinn segir ljóst
að stofnunin sé algerlega háð fram-
lagi ríkisins, enda starfi hún á jaðri
lánamarkaðarins. Byggðastofnun
hefur verið rekin með tapi frá
árinu 2002 þrátt fyrir hundruð
milljóna framlög ríkisins, að und-
anskildum tveimur árum þar sem
árið endaði rétt yfir núllinu.
Skilar ekki útlánaaukningu
Í ákvörðun stjórnvalda um eiginfjáraukningu Byggðastofnunar fólst að starf-
seminni skyldi haldið áfram 3,6 milljarðar færa eiginfjárhlutfall nærri 10%
Afkoma Byggðastofnunar og ríkisstyrkir frá 1997
4.000
3.000
2.000
1.000
0
-1.000
-2.000
M
ill
jó
ni
r
kr
ón
a
1997 2010
Framlag ríkisins
Afkoma
Eamonn Butler er einn þeirra fjölmörgu Breta sem lögðu pening inn á Ice-
save-reikning á sínum tíma. Hann segist hafa átt að geta sagt sér að 7%
vextir á innlánsreikningi væru sennilega of góð kjör til að geta staðist, en
hann hafi ekki gert það og þar af leiðandi sé við hans eigið dómgreind-
arleysi að sakast.
Butler segist ekki skilja af hverju breskir og íslenskir skattgreiðendur
eigi að bera kostnaðinn af því dómgreindarleysi.
Lagði inn á Icesave gegn betri vitund