Morgunblaðið - 17.02.2010, Side 15
Daglegt líf 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2010
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Mikill íþróttaáhugi er íRéttarholtsskóla oglausleg könnun bendirtil þess að í hópi nem-
enda séu 26 Íslandsmeistarar frá
fyrra ári í badminton, fótbolta,
frjálsum íþróttum, júdó, siglingum
og skylmingum. Þar af eru þrír
nemendur í sama bekk, 9. KI, og
allir í mismunandi einstaklings-
íþróttagreinum.
Stefnir á landsliðið
Sara Högnadóttir byrjaði að æfa
badminton níu ára og varði í fyrra
Íslandsmeistaratitil sinn með Mar-
gréti Jóhannsdóttur í tvíliðaleik
stúlkna. Hún segist hafa byrjað að
æfa badminton hjá TBR með
frænda sínum en systir hans hafi
komið þeim á bragðið.
„Ég stefni að því að komast í
landsliðið,“ segir Sara sem verður
15 ára í haust. Hún var valinn í
unglingalandsliðið sem keppti á
Evrópumótinu í Slóveníu í nóv-
ember á nýliðnu ári og var það
fyrsta keppnisferðin hennar til út-
landa. „Þetta var mjög gaman og
mikil reynsla,“ segir hún.
Ólympíuleikarnir 2016
Böðvar Freyr Stefnisson verður
15 ára í næsta mánuði og er Ís-
landsmeistari í skylmingum með
höggsverði. Hann hefur æft skylm-
ingar hjá Skylmingafélagi Reykja-
víkur frá því hann var níu ára og
æfir fimm til sex sinnum í viku.
Hann er nýkominn úr keppnisferð
til Englands og hefur þrisvar farið
í keppnisferðir með landsliðinu til
útlanda. Hann var meðal annars í
fimmta sæti í unglingaflokki 15 ára
og yngri á Norðurlandamótinu í
skylmingum með höggsverði í Sví-
þjóð fyrir um ári. Árið 2007 vann
hann til bronsverðlauna í sama
flokki, þegar Norðurlandamótið
fór fram í Danmörku, og til silf-
urverðlauna þegar keppnin fór
fram á Íslandi 2008.
„Ég stefni að því að keppa meira
í útlöndum,“ segir Böðvar Freyr
sem ákvað að reyna fyrir sér í
skylmingum vegna þess að hann
vildi víkka sjóndeildarhringinn.
Aron Brandsson er Íslands-
meistari í júdó, en hann verður 15
ára í sumarbyrjun. Hann hefur æft
júdó hjá Júdófélagi Reykjavíkur
frá átta ára aldri og æfir undir
handleiðslu Bjarna Friðrikssonar,
bronshafa á Ólympíuleikunum
1984. „Hann er besti þjálfari sem
ég hef haft,“ segir Aron og bætir
við að hann ætli að feta í fótspor
meistarans. „Markmiðið er að
keppa á Ólympíuleikunum 2016,“
segir þessi ungi og efnilegi íþrótta-
maður.
Morgunblaðið/Ernir
Skrefi framar Kennarinn Kim Magnús Nielsen, margfaldur Íslandsmeistari í skvassi, með ungu meisturunum í einstaklingsgreinunum og bekkjarfélag-
arnir fyrir aftan. Frá vinstri: Kim, Sara Högnadóttir, Böðvar Freyr Stefnisson og Aron Brandsson.
Þrír Íslandsmeistarar í mis-
munandi greinum í sama bekk
Mikill íþróttaáhugi hjá nemendum og kennurum í Réttarholtsskóla og 26 nemar Íslandsmeistarar
Hilmar Hilmarsson, skólastjóri Réttarholtsskóla, segir ánægjulegt að
hafa afreksfólk í íþróttum í skólanum og það sé hvatning til annarra.
Skólinn leggi enda mikið upp úr íþróttastarfinu og í 9. og 10. bekk geti
nemendur valið sér íþróttagreinar eins og til dæmis badminton, líkams-
rækt og íþróttafræði. Síðan geti nemendur fengið þátttöku í íþróttum ut-
an skólans metna sem valgrein rétt eins og í listgreinum.
Hilmar leggur áherslu á að hugsanlegur niðurskurður í kennslu bitni
ekki á íþróttakennslunni enda sé aðstaða til íþróttakennslu góð í skól-
anum og afreksfólk innanhúss, jafnt á meðal nemenda sem kennara.
Íþróttir sem valgrein
Eftir Atla Vigfússon
Þingeyjarsýsla | Árleg folaldasýn-
ing Hrossaræktarfélags Þing-
eyinga var haldin í reiðskálanum í
Saltvík laugardaginn 13. febrúar.
Þar var margt fólk samankomið til
þess að velja efnilegustu folöld hér-
aðsins sem fæddust á síðasta ári.
Á sýningunni voru 35 folöld sem
kepptu, 19 hestar og 16 hryssur.
Dómarar voru á staðnum og
völdu þrjá bestu hestana og þrjár
bestu hryssurnar. Veitt voru þrenn
verðlaun í hvorum flokki og var
það trésmíðafyrirtækið Norðurpóll
sem gaf bikarana.
Þá var einnig valið fallegasta fol-
ald sýningarinnar og fengu eig-
endur þess farandbikar sem Dýra-
læknaþjónustan á Húsavík gaf
fyrir nokkrum árum. Dómarar
völdu eftirtalin folöld til verðlauna:
Hestar:
1. Jondalon frá Norðurhlíð. Eig-
andi: Agnar Kristjánsson. For-
eldrar: Vökull frá Bergsstöðum og
Von frá Eyvindarmúla.
2. Hringur frá Laxamýri. Eig-
andi: Elfa Mjöll Jónsdóttir o.fl.
Foreldrar: Álfur frá Húsavík og
Dögun frá Hjalla.
3. Seggur frá Bergsstöðum: Eig-
andi: Benedikt Arnbjörnsson. For-
eldrar: Moli frá Skriðu og Bylting
frá Bergsstöðum.
Hryssur:
1. Alda frá Saltvík. Eigandi:
Bjarni Páll Vilhjálmsson. For-
eldrar: Adam frá Ásmundarstöðum
og Ör frá Saltvík.
2. Hamingja frá Garði. Eigandi:
Katharina Krebs. Ræktandi: Guð-
mundur Skarphéðinsson og Enrice
Ernst. Foreldrar: Þorri frá Þúfu
og Sædís frá Garði.
3. Herðubreið frá Húsavík. Eig-
andi: Gísli Haraldsson. Foreldrar:
Adam frá Ásmundarstöðum og
Hrauna frá Húsavík.
Folald sýningarinnar var valið af
gestum en það var Hringur frá
Laxamýri sem varð í öðru sæti að
mati dómara.
Hringur, Hamingja og Herðubreið hlutu verðlaun
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Verðlaun Ánægði með verðlaun. F.v. Agnar Kristjánsson, Hulda Ósk Jóns-
dóttir, Elfa Mjöll Jónsdóttir, Atli Björn Atlason og Benedikt Arnbjörnsson.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Ánægð Elfa Mjöll Jónsdóttir, Atli Björn Atlason og Hulda Ósk Jónsdóttir
með Hring sem var glæsilegasta folaldið og móður hans sem heitir Dögun.