Morgunblaðið - 17.02.2010, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2010
Þegar grönsið gekk á skít-ugum skónum yfir málminní upphafi tíunda áratug-
arins héldu margir að sú göfuga
stefna ætti sér ekki viðreisnar von
í rokkheimum. Það var rangt. Eft-
ir að hafa vankast um stund náði
málmurinn fljótt vopnum sínum
aftur, einkum vestur í Bandaríkj-
unum, og blómstrar nú sem aldrei
fyrr. Það eru ekki bara gömlu
brýnin, svo sem Metallica, Iron
Maiden og Slayer, sem halda
merkinu á lofti heldur hafa nýjar
sveitir sprottið upp eins og gor-
kúlur, nostrað við formið og aukið
við það eftir föngum. Má þar
nefna Lamb of God, Mastodon,
Avenged Sevenfold og Killswitch
Engage.
Eitt athyglisverðasta málm-
bandið nú um stundir er Trivium,
sem á lögheimili í Orlando, Flór-
ída. Það er ekki tilviljun að sjón-
um er hér beint að þeirri sveit en
hún sendi einmitt frá sér nýtt lag í
byrjun vikunnar, „Shattering the
Skies Above“, sem eingöngu verð-
ur að finna í tölvuleiknum God of
War III.
Nýja lagið sætir tíðindum í
tvennum skilningi, annars vegar
þykir það afturhvarf til róta Trivi-
um í málmkjarnanum, svo sem
sveitin birtist á annarri breiðskífu
sinni, Ascendency frá 2005, sem
skaut henni upp á stjörnuhim-
ininn. Hins vegar er kynntur til
sögunnar nýr trymbill, Nick Aug-
usto, sem leysir af hólmi síðasta
stofnmeðlim Trivium, sem enn var
um borð, Travis Smith. Sú skýring
er gefin á brotthvarfi Smiths að
hann vilji verja meiri tíma með
fjölskyldu sinni.
Eins og margar sveitir semheyra til bandarísku nýbylgj-
unni í þungarokki hefur Trivium
rokkað milli undirgreina, einkum
málmkjarna og þrass, auk þess
sem grunnt hefur verið á svart-
málminum. Þrátt fyrir þungt upp-
legg hefur tónlist sveitarinnar
lengst af verið melódísk.
Leiðtogi Trivium, Matthew
Kiichi Heafy, söngvari og gít-
arleikari, er undrabarn í tónlist.
Hann var aðeins þrettán ára þeg-
ar hann gekk í bandið sem gít-
arleikari en ekki leið á löngu uns
hann var búinn að ryðja söngv-
aranum úr vegi. Heafy varð 24
ára í síðasta mánuði en á að baki
fjórar breiðskífur með Trivium,
þar af komu þrjár út áður en hann
varð 21 árs.
Söngstíll Heafys er tvískiptur.
Hann byrjaði á því að rymja óg-
urlega á fyrstu tveimur plötunum
en á Crusade (2006) mýkti hann
upp í hálsinum. Platan fékk góða
dóma en sumum þótti Trivium þar
stíga fullmikið í vænginn við Met-
allica, sem er einn helsti áhrifa-
valdur sveitarinnar.
Á nýjustu breiðskífu Trivium,
Shogun (2008), skiptir Heafy óhik-
að milli stíla með góðum árangri.
Rymur og syngur á víxl. Platan
féll í frjóa jörð og eru flestir sam-
mála um að hún sé besta verk
Trivium til þessa – sveitin hafi
endanlega fundið sinn stíl. Tón-
smíðarnar eru þéttari og marg-
slungnari en áður og heildar-
myndin sterkari. Auk Heafys
leggja Corey Beaulieu gítarleikari
(sem gekk í bandið 2003) og Paolo
Gregoletto bassaleikari (sem slóst
í hópinn 2004) sitt af mörkum við
lagasmíðar.
Á Shogun var nýr upptökustjóri
kynntur til sögunnar, Nick Raskul-
inecz, sem er líklega best þekktur
fyrir samstarf sitt við Dave Grohl
og félaga í Foo Fighters.
Ef marka má nýja lagið munrymja meira í Heafy á næstu
plötu Trivium, alltént lýsti hann
því yfir á dögunum að Shattering
the Skies Above gæfi fyrirheit um
það sem koma skal frá sveitinni.
Heafy er af japönsku bergi brot-
inn og leitar gjarnan í arfleifðina
við ljóðagerðina. Eins og svo
margir þungarokkarar er hann
líka forfallinn áhugamaður um
goðafræði, einkum gríska, og
hverslags forynjur. Sá áhugi end-
urspeglast í tilkomumiklum laga-
heitum, svo sem „Of Prometheus
and the Crucifix“, „Torn Between
Scylla and Charybdis“ og „Into
the Mouth of Hell We March“ á
Shogun. Í tveimur síðarnefndu
lögunum er hermt af kvíðanum
sem Ódysseifur fylltist þegar hann
þurfti að velja á milli ófreskjunnar
ellegar hringiðunnar Kharybdis
og sex höfða sæskrímslisins
Skylla.
Svo erum við, dauðlegir menn,
að mikla fyrir okkur vandamálin!
orri@mbl.is
Glímt við sex höfða sæskrímsli
»Heafy varð 24 ára ísíðasta mánuði en á
að baki fjórar breið-
skífur með Trivium, þar
af komu þrjár út áður en
hann varð 21 árs.
Ófreskjur Sex höfða sæskrímslið Skylla er Matt Heafy hugleikið.
AF MÁLMI
Orri Páll Ormarsson
Trivium Matthew Kiichi Heafy og félagar í Orlandosveitinni Trivium í ham.
Sýnd kl. 10:20
HHH
„Gibson hefur
engu gleymt”
Þ.Þ. - FBL
Fráskilin... með fríðindum
Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:20
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Sýnd kl. 6
Sýnd kl. 8 og 10:10 Sýnd kl. 5:40
PERCY JACKSON LEGGUR Á SIG
MIKIÐ FERÐALAG TIL AÐ BJARGA
HEIMINUM FRÁ TORTÍMINGU GUÐANNA!
HHH
H.S.S. - MBL
HHH
„Flottur stíll, góðar
brellur, afbragðs
förðun og MIKIÐ blóð.
Ég fékk semsagt allt
sem bjóst við og gekk
alls ekki út ósáttur.”
T.V. -Kvikmyndir.is
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
The Wolfman kl. 10:50 B.i. 16 ára Skýjað með kjötbollum... 3D kl. 3:30 - 5:50 LEYFÐ
Edge of the Darkness kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára Skýjað með kjötbollum... 2D kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ
PJ / The Lightning Thief kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 10 ára Avatar 3D kl. 8 B.i.10 ára
PJ / The Lightning Thief kl. 5:30 - 10:50 LÚXUS Alvin og Íkornarnir kl. 3:30 LEYFÐ
SÝND HÁSKÓLABÍÓISÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Nú með
íslenskum
texta
HHHHH
-H.K., Bylgjan
HHHHH
-H.S., MBL
HHHH+
-Ó.H.T., Rás 2
HHHHH
-V.J.V., FBL
HHHHH
-T.V., Kvikmyndir.is
HHHH
-Á.J., DV
111.000 MANNS!
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
ÓSKARSTILNEFNINGAR
M.A. BESTA MYND OG BESTI LEIKSTJÓRI9
HHH
H.S.S. - MBL
HHH
„Gibson hefur
engu gleymt”
Þ.Þ. - FBL
SÝND Í SMÁRABÍÓI
HHH
„Kom mér þægilega
á óvart... Stórfín fjöl-
skylduafþreying.”
T.V. - Kvikmyndir.is
HHH
Mel Gibson er
svo sannarlega
kominn aftur...“
E. E. - DV
HHH
Mel Gibson er
svo sannarlega
kominn aftur...“
E. E. - DV
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
-bara lúxus
Sími 553 2075
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.isáskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!