Morgunblaðið - 17.02.2010, Síða 35
Menning 35FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2010
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN í
Berlín, Berlinale, fer nú
fram í sextugasta skipti.
Hún var sett á fimmtu-
daginn með sýningu á
opnunarmynd hátíð-
arinnar, Tuan Yuan eftir
Wang Quan’an. Berlinale
stendur til 21. febrúar
þegar Silfur- og Gullbirn-
irnir verða afhentir. Það
er aðaldómnefnd hátíð-
arinnar sem ákveður
hvaða mynd hlýtur þessi
eftirsóttu verðlaun, en
hana skipa: Werner Her-
zog, Francesca Comencini,
Nuruddin Farah, Cornelia
Froboess, José Maria
Morales, Yu Nan og
Renée Zellweger.
Þrjár íslenskar myndir
eru sýndar á markaðs-
ýningum hátíðarinnar. Um
er að ræða myndirnar Al-
gjör Sveppi og leitin að
Villa, Bjarnfreðarson og
Reykjavik Whale Watch-
ing Massacre.
Eins og fyrr flykkjast
stjörnurnar núna til Berl-
ínar til að kynna myndir
sínar og sýna sig og sjá
aðra.
Situr í dómnefnd Renee
Zellweger mætti á opnunina.
Gaman Pierce Brosnan, Olivia Williams og
Ewan McGregor mættu á frumsýningu The
Ghost Writer sem þau fara öll með hlutverk í.
Leikarar og leikstjórinn Sir Ben Kingsley,
Michelle Williams, Martin Scorsese og Leonardo
DiCaprio kynna myndina Shutter Island.
Berlínar-
hátíðin
sextug
Sætur Ungi leikarinn
Bora Altas mætti með
bangsann sinn á blaða-
mannafund fyrir
myndina Bal.
Reuters
Rauð Greta Gerwig og Ben
Stiller á leið á sýningu á
myndinni Greenberg.