Morgunblaðið - 02.03.2010, Side 1

Morgunblaðið - 02.03.2010, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2. M A R S 2 0 1 0 STOFNAÐ 1913 50. tölublað 98. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «NÝSKÖPUNARVERÐLAUN SJÓSALTAÐUR OG FITULAUS HEILSUBITI «SKÓLAHREYSTI Fá aukakraft úr öskrum hinna 6  Breytingar á skattalögum hafa það í för með sér að fjöldi erlendra eignarhaldsfélaga er að flytja úr landi en skatttekjur af starfsemi þessara félaga hefur numið millj- örðum króna undanfarin ár. Um er að ræða félög sem þjónað hafa hlut- verki nokkurs konar innan- húsbanka í erlendum fyrirtækja- samstæðum. Taka þau lán, t.d. með skuldabréfaútgáfu, og lána til ann- arra fyrirtækja í samstæðunni. Vaxtagreiðslur þeirra munu nú bera skatt. »12 Morgunblaðið/Ásdís Lagabreytingar fæla á brott skattgreiðendur  Lítið eftirlit er með því hvort hita- og loftræstikerfi virka eða eðlilega sé staðið að hönnun og uppsetningu þeirra. Þetta kemur fram í úttekt Lagnafélags Íslands. Félagið skoðaði 35 byggingar og fengu loftræstikerfin einkunn á bilinu 0 til 10. Meðaleinkunn kerf- anna var 5. Í meirihluta húsanna lágu ekki fyrir staðfestar teikningar af loft- ræstikerfunum og lokaúttekt hafði aðeins verið gerð á 4 kerfum. »8 Lítið eftirlit með því hvort loftræstikerfin virka  Breytingar á ástandi efna- hagsmála koma skýrt fram í starfsemi við höfnina. Á síð- asta ári fækkaði skipakomum til hafna Faxaflóa- hafna. Þangað kom 451 flutningaskip í stað 574. Fækkunin nemur fimmtungi. Aftur á móti fjölgaði togurum og öðrum fiskiskipum úr 625 í 711 eða um 13%. Tekjur Faxaflóahafna drógust mjög saman frá árinu á undan vegna samdráttar í almennum inn- flutningi. »16 Fimmtungi færri flutn- ingaskip til Faxaflóahafna „VIÐ vorum á rangri leið með það sem við vorum að reyna að gera. Við vorum að gera tilraun til að breyta vinnufyrirkomulagi í fjögurra daga vinnuviku, úr fimm daga vinnuviku, og það mætir mikilli andstöðu. Menn vilja þetta ekki, allavega á þeim kjörum sem buðust,“ segir Kristján Kristinsson, formaður samninga- nefndar Flugvirkjafélags Íslands, eftir að félagsmenn felldu í gær- kvöldi kjarasamning sem gerður var við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd Icelandair. Alls mættu um 100 á fundinn og taldi Kristján að 94 hefðu kosið nei. Verkfall er boðað 22. mars. Flugvirkjar kolfella nýjan kjarasamning Andstaða við fjögurra daga vinnuviku FRYSTING breska fjármálaeftir- litsins, FSA, á eignum Landsbank- ans á Bretlandi er enn í gildi og ekki ljóst hvenær henni verður aflétt. Þetta kemur fram í fyrirspurn Morgunblaðsins um þær kvaðir, sem FSA setti Landsbankanum 3. októ- ber 2008, fimm dögum áður en bresk stjórnvöld beittu hryðjuverkalögum til að frysta eignir bankans. Hryðju- verkalögunum var aflétt í sumar. Samkvæmt kröfum FSA bar Landsbankanum að geyma að lág- marki 20% af innistæðum á óbundn- um reikningum í breskum pundum á reikningi hjá Englandsbanka. Sagð- ist FSA vera að vernda hagsmuni viðskiptavina bankans. Af sömu ástæðu var þetta gert með leynd. Í febrúar kom fram í Morgun- blaðinu að stór hluti af afborgunum lána, sem Landsbankinn hefði veitt fyrirtækjum og einstaklingum á Bretlandi, hefði farið á vaxtalausan innlánsreikning í Englandsbanka frá því að eignir bankans hefðu verið frystar haustið 2008 og næmi upp- hæðin nærri 200 milljörðum króna. kbl@mbl.is Í frosti um óráðinn tíma Milljarðar án vaxta í Englandsbanka Reuters Frystikistan Skjöldur á Englands- banka. Þar liggur fé Landsbanka. Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynurorri@mbl.is ÞÓTT tvísýnt hafi verið um framhald Icesave-við- ræðna fram eftir degi í gær komust þær á skrið síðdegis í gær þannig að meiri bjartsýni ríkir nú um framhald málsins. Enn er þó mikil óvissa um framhaldið. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráð- herra segist telja að Íslendingar hafi aldrei fyrr átt jafn gott tækifæri til að ná hagstæðri niður- stöðu í málinu og muni ekki heldur fá slíkt tæki- færi aftur. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins stendur til að hópur embættismanna og ráðgjafa, sem ekki eru í samninganefndinni, fundi með Bretum fyrir hádegi í dag. Í framhaldi af því muni samninga- nefndirnar mögulega funda. Bretar munu hafa óskað eftir því í gær að samninganefndirnar fund- uðu í dag en þar sem Bretar þóttu senda misvís- andi skilaboð var ákveðið að áðurnefndur hópur myndi fyrst funda með þeim. Steingrímur ræddi í gær bæði við bankamála- ráðherra Bretlands og settan fjármálaráðherra Hollendinga. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins var það ekki síst eftir þær samræður sem vonir vöknuðu um jákvætt framhald. Fram eftir degi gengu viðræður hins vegar treglega og leit lengi vel út fyrir að hluti samn- inganefndarinnar myndi halda til Íslands í gær- kvöldi og Lee Buchheit til Bandaríkjanna. Fundur fyrir hádegi en óvissa um framhaldið  Viðræður komust á skrið | 2 Í HNOTSKURN » Íslenska samninganefndin hélt tilLondon á laugardag eftir að hafa haldið þaðan með lítið í farteskinu daginn áður. » Ekki hafa enn átt sér stað neinirformlegir samningafundir frá því nefndin kom til London á laugardag. » Fjármálaráðherra ræddi í gær viðbankamálaráðherra Breta og settan fjármálaráðherra Hollands. Búist er við formlegum fundum í dag. „VIÐ höfum verið í sambandi við fjölskyldurnar allt frá því skjálftinn reið yfir. Sömuleiðis erum við með sérfræðing sem veitir þeim áfalla- hjálp,“ sagði Georg Lárusson, for- stjóri Landhelgisgæslunnar, um að- stoð við ættingja tveggja starfs- manna gæslunnar sem bíða þess nú að komast heim frá Chile eftir risa- skjálftann í landinu á laugardag. Mennirnir, Ragnar Ingólfsson og Unnþór Torfason, dvelja hjá fjöl- skyldu konu í borginni Concepcion en hún er gift dönskum samstarfs- manni þeirra og segir Georg þá njóta góðs af þeim tengslum. Þeir hafa kvartað undan skorti á matvælum enda verslanir flestar galtómar eftir að þjófar og örvingl- að fólk lét þar greipar sópa. Ragnar og Unnþór eru að sögn Georgs vopnaðir, að líkindum með skotvopnum, til að verjast glæpa- gengjum. Vonast er til að þeir fái flug á fimmtudag. Skálmöld ríkir í mörgum borgum Chile. | 4 og 13 Fjölskyldur starfsmanna Landhelgisgæslunnar í Concepcion fá áfallahjálp Vopnaðir og við öllu búnir Reuters Á verði Hermaður vaktar gatnamót í Concepcion. Borið hefur á íkveikjum. Minnst 723 fórust í jarðskjálftanum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.