Morgunblaðið - 02.03.2010, Side 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2010
vinnsluleyfi en drógu umsóknir sín-
ar til baka. Í samskiptum við þessi
fyrirtæki hafi ýmsar ábendingar
komið fram sem gagnlegar séu í
undirbúningi fyrir framhald leyfis-
veitinga til olíuleitar á Íslandi. Und-
irbúningur að sýnatöku botnsets á
Drekasvæðinu stendur nú yfir á
vegum stjórnvalda. Stefnt er að því
að setkjarnar af yfirborði hafs-
botnsins verði teknir á völdum stöð-
um á svæðinu í sumar. Ráðuneytið
segir að greiningar á olíu- og gas-
innihaldi þeirra geti varpað skýr-
KATRÍN Júlíusdóttir iðnaðarráð-
herra hefur ákveðið að 2. útboð sér-
leyfa til rannsókna og vinnslu kol-
vetnis á Drekasvæðinu muni fara
fram árið 2011 á tímabilinu 1. ágúst
til 1. desember.
Fram kemur í tilkynningu frá
iðnaðarráðuneytinu að Orkustofn-
un hafi verið í sambandi við olíufé-
lög, sem sýndu fyrsta útboði til olíu-
leitar á Drekasvæðinu áhuga en
sóttu ekki um. Einnig hafi verið
rætt við forsvarsmenn þeirra fyrir-
tækja sem sóttu um rannsóknar- og
ara ljósi á móðurberg og mynd-
unarskilyrði olíu á svæðinu sem
dragi úr óvissu og auðveldi ákvarð-
anatöku hjá væntanlegum þátttak-
endum í útboðinu.
Sérleyfi til rannsóknar og
vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu
voru boðin út á fyrri hluta síðasta
árs og bárust þá tvær umsóknir, frá
norsku félögunum Aker Explora-
tion og Sagex Petroleum. Bæði fyr-
irtækin drógu hins vegar umsókn-
irnar til baka og kvörtuðu m.a. yfir
háum sköttum.
Útboð á Drekasvæðinu verður
endurtekið seinni hluta næsta árs
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Útboð Tilboð opnuð í rannsóknarleyfi í fyrra. Tilboðin voru dregin til baka.
VEFRITIÐ
smugan.is hefur
hafið göngu sína
á ný eftir að hafa
legið í dvala um
nokkurt skeið en
„vefritið er um-
ræðu og frétta-
vettvangur fyrir
vinstrafólk og
umhverfis- og
jafnréttissinna,“
eins og það er orðað í tilkynningu.
Nýr ritstjóri Smugunnar er Þóra
Kristín Ásgeirsdóttir, formaður
Blaðamannafélags Íslands, Ásgeir
H. Ingólfsson sér um menningar-
umfjöllun og Ingólfur V. Júlíusson
um ljósmyndir. Fjöldi pistlahöf-
unda mun leggja vefritinu lið.
Smugan.is hefur
göngu sína eftir að
hafa legið í dvala
Þóra Kristín
Ásgeirsdóttir
LÝÐHEILSUFÉLAG læknanema
efnir til blóðgjafamánaðar Háskóla
Íslands nú í mars og er það í annað
skipti sem félagið stendur fyrir slíku
átaki, í samvinnu við Blóðbankann,
Vodafone og Stúdentaráð HÍ.
Tilgangur blóðgjafamánaðar HÍ
er að hvetja háskólanema til að gefa
blóð í nafni nemendafélags síns eða
námsgreinar. Söfnunin fer aðallega
fram í Blóðbankanum, en blóð-
bankabíllinn mun einnig mæta á há-
skólasvæðið; 3. mars á bílastæðinu
við Háskólabíó, og 15. mars við
Odda.
Það nemendafélag sem gefur
hlutfallslega mest blóð hlýtur far-
andbikar blóðgjafamánaðarins að
launum.
Blóðgjafamánuður
Háskóla Íslands
Morgunblaðið/G.Rúnar
Blóð Blóðbankinn þarf um 70 blóð-
gjafir á dag til að anna eftirspurn.
FORSETI Ís-
lands, Ólafur
Ragnar Gríms-
son, hefur sent
forseta Chile,
Michelle Bache-
let, samúðar-
kveðjur frá sér
og íslensku þjóð-
inni vegna jarð-
skjálftanna.
Í kveðjunni
lýsir forseti þeirri von að samstaða
Chilebúa og alþjóðlegur stuðningur
muni draga úr þeim hörmungum
sem jarðskjálftarnir hafa haft í för
með sér. Hugur okkar sé með fjöl-
skyldum og vinum þeirra sem lét-
ust.
Samúðarkveðja frá
forsetanum til Chile
Ólafur Ragnar
Grímsson