Morgunblaðið - 02.03.2010, Side 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2010
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
STUTTU eftir að yfirkjörstjórn
Norðausturkjördæmis kaus sér for-
mann í vetur var boðað til nýs fundar
í stjórninni þar sem var kosinn nýr
formaður. Svo virðist sem nefndin
hafi ekki fengið skilaboð um óform-
legt samkomulag stjórnarflokkanna
um hver ætti að verða formaður
kjörstjórnar.
Eftir þingkosningarnar var kjörin
ný yfirkjörstjórn í Norðausturkjör-
dæmi, en í henni sitja þrír menn til-
nefndir af stjórnarflokkunum og
tveir tilnefndir af stjórnarandstöðu-
flokkunum. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins höfðu stjórnar-
flokkarnir gert með sér óformlegt
samkomulag um að fulltrúi VG fengi
formennsku í yfirkjörstjórn í Norð-
austurkjördæmi og Reykjavíkur-
kjördæmi norður og í landskjör-
stjórn, en Samfylkingin fengi
formennsku í öðrum kjörstjórnum.
Upplýsingar um þetta bárust hins
vegar aldrei til yfirkjörstjórnar í
Norðausturkjördæmi.
Formaður þingflokks hringdi
Þegar kjörstjórnin kom saman í
vetur kaus hún Ingu Þöll Þórgnýs-
dóttur formann, en hún var tilnefnd
af Samfylkingu í kjörstjórnina. Eftir
þann fund hafði Björgvin G. Sigurðs-
son, formaður þingflokks Samfylk-
ingarinnar, samband við Ingu Þöll. Í
framhaldi af því var boðaður nýr
fundur í kjörstjórn þar sem Páll
Hlöðversson var kjörinn formaður
og Inga Þöll var kosin varaformaður.
Inga Þöll vildi ekki tjá sig um
þetta mál þegar eftir því var leitað,
en sagði að engin eftirmál yrðu
vegna þess af sinni hálfu.
Páll sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hann hefði verið búinn að
koma þeim skilaboðum til Ingu að
hann ætti að verða formaður kjör-
stjórnar. Skilaboð um þetta hefðu
hins vegar ekki borist til hennar frá
þingflokki Samfylkingarinnar fyrir
fyrri fund kjörstjórnar Norðaustur-
kjördæmis. Þau hefðu hins vegar
borist eftir fundinn og því hefði verið
boðað til nýs fundar þar sem skipt
hefði verið um formann.
Í lögum um kosningar til Alþingis
frá árinu 2000 segir: „Í hverju kjör-
dæmi er yfirkjörstjórn. Skal hún
skipuð fimm mönnum og jafnmörg-
um til vara og eru þeir kosnir af Al-
þingi á sama hátt og landskjörstjórn.
Kýs hún sér sjálf oddvita.“
Þó kjörstjórn eigi sjálf að kjósa
formann hafa flokkarnir haft afskipti
af því hver verður formaður.
Formaður nokkra daga
Stuttu eftir að yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis hafði kosið sér formann
var boðaður nýr fundur þar sem nýr formaður yfirkjörstjórnar var kosinn
Inga Þöll
Þórgnýsdóttir
Páll
Hlöðvesson
LÍKLEGT þykir að skemmdir hafi
orðið á nýja Þór sem er í þurrkví
skipasmíðastöðvar í Concepcion í
Chile. Erfitt er að meta tjónið, að
sögn Georgs Lárussonar, forstjóra
Landhelgisgæslunnar, þar sem enn
hefur enginn komist um borð enda
stöðin sjálf í rúst.
„Annað skip í dokkinni, 70 metra
langt hafrannsóknaskip í smíðum
var fyrir Chilemenn, barst út á sjó
og sökk þar,“ sagði Georg. „Þór hall-
ast um 30 gráður, það kom flóð-
bylgja á skipið og því eru leiddar lík-
ur að því að þarna hafi orðið
eitthvert tjón. Þá er helst giskað á að
komist hafi vatn inn í skipið og það
valdið tjóni á rafmagns- og tölvubún-
aði og öðru.“
Verið sé að kanna hvort hægt sé
að ljúka við Þór í annarri stöð sem
sjóherinn á. Samkvæmt samningi sé
skipið í eigu stöðvarinnar og því ólík-
legt að tjónið lendi á Landhelgis-
gæslunni þótt ljóst sé að tafir verði á
afhendingu skipsins.
„Við erum búin að fara yfir samn-
inginn og teljum að ábyrgðin sé hjá
skipasmíðastöðinni sem er í eigu
flota Chile,“ segir Georg. Að öllu
jöfnu gildi ákveðinn neyðarréttur,
force majeure, þegar náttúruham-
farir valdi tjóni og það skiptist milli
aðila. En samningsákvæði virðist
færa ábyrgðina að öllu leyti á stöðina
að því undanskildu að hún borgi ekki
skaðabætur ef afhending tefjist.
Georg náði loks tali af starfs-
mönnum Gæslunnar í Concepcion í
gær og lýstu þeir algerri skálmöld á
svæðinu. Starfsmennirnir eru vopn-
aðir, þeir halda nú kyrru fyrir í húsi
eins af fjórum Dönum sem einnig
starfa fyrir Gæsluna. kjon@mbl.is
Óvíst um
tjón á
varðskipi
Nær tilbúið Varðskipið Þór, sem
átti að verða tilbúið í lok mars.
Alger skálmöld sögð
ríkja í Concepcion
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
STÆRSTI jarðskjálfti sem mælst hefur, eftir að farið
var að reyna að mæla stærðina með tækjum fyrir rúmri
öld, var skjálftinn mikli í Chile árið 1960, hann mældist
9,6 stig. Var þá, að sögn Páls Einarssonar jarðeðlisfræð-
ings, notaður svonefndur vægis-
stærðarkvarði sem í reynd hefur að
mestu tekið við af Richters-kvarða.
Páll segir að stóru skjálftarnir árið
2000 og 2008 hafi verið verðmæt
reynsla hérlendis, íslensk hús hafi
staðið sig býsna vel. „Þau hrundu
ekki og það skiptir meginmáli í sam-
bandi við manntjón. Ég held að ís-
lensk verkfræðingastétt hafi komið
mjög vel út úr þessum prófum,“
segir Páll. Þegar skjálftar verða
mjög stórir hættir Richters-kvarðinn að sýna aukningu.
Hann dugar sæmilega vel upp í sex stig en upp úr því fer
hann að verða erfiður og sýnir of lítið, að sögn Páls.
Hann minnir á rugling sem kom upp hérlendis árið 2000,
en þá var stærð stóra skjálftans á Suðurlandi í fyrstu
vanmetin. Skýringin hafi verið að ekki hafi verið beitt
réttum kvarða. Þetta geti verið alvarlegt mál, varnar-
viðbrögð séu miðuð við stærðina og slæmt ef þau séu of
umfangslítil i upphafi.
Upptök ekki á litlum og afmörkuðum stað
Hann segir að stöðugt berist upplýsingar um skjálft-
ann í Chile en nokkur vissa sé nú um stærðina, 8,8 stig á
vægisstærðarkvarða. „Fyrst var talið að upptakasvæðið,
búturinn af flekaskilunum sem brast, væri 500 km langt,
en nú er talað um nær 700 km. Hámarksfærslan á mis-
genginu er metin rúmlega sjö metrar.
Í erlendum fréttaskeytum er alltaf talað um upptök
þessara stóru skjálfta sem einn punkt, t.d. svo og svo
langt frá Santiago eða Concepcion. En upptökin eru á
misgengi sem er mjög langt þannig að þau eru ekki í
reynd svona langt frá þessum borgum eins og stundum
er gefið í skyn. Skjálftinn byrjar að vísu á einum punkti
en síðan breiðist hreyfingin út eftir misgenginu. Þetta er
stundum misskilið. Ef framrúða brotnar í bílnum byrjar
það líka á einhverjum punkti en breiðist svo út.“
Íslensk hús stóðu sig vel
í Suðurlandsskjálftum
Richters-kvarði ekki lengur notaður til að mæla stærð
stórra skjálfta þar sem hann dugar aðeins upp í sex stig
JÓHANNA Sig-
urðardóttir for-
sætisráðherra
sagði á Alþingi í
gær, að menn
hlytu að velta því
fyrir sér hvort
þjóðaratkvæða-
greiðsla um Ice-
save-lögin væri
ekki í raun mark-
laus í ljósi þess að
þegar liggi fyrir tilboð frá Bretum
og Hollendingum, sem feli í sér 70
milljarða króna lægri greiðslubyrði
en Icesave-lögin gera ráð fyrir.
Sagði hún að þetta yrði þá í raun
þjóðaratkvæðagreiðsla um samning,
sem enginn væri að berjast fyrir.
Ekki eru þó áform um annað en að
þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram
næstkomandi laugardag, sagði Jó-
hann.
Bjarni Benediktsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, spurði Jó-
hönnu um málið í ljósi þess að aðeins
eru 5 dagar í ætlaða atkvæða-
greiðslu.
Rúmlega tvö þúsund kosið
utan kjörfundar
Síðdegis í gær höfuð 2.341 greitt
atkvæði í utankjörfundaratkvæða-
greiðslu vegna þjóðaratkvæða-
greiðslunnar. Flestir kjósendanna
eru úr Reykjavíkurkjördæmunum
tveimur og Suðvesturkjördæmi.
Marklaus
atkvæða-
greiðsla?
Jóhanna
Sigurðardóttir
Þegar sagðar eru fréttir af stórum jarðskjálftum er
oftast talað um stærð á Richters-kvarða sem Char-
les Richter hannaði árið 1935 til að mæla í grófum
dráttum orkumagnið í skjálfta. En meðal jarð-
skjálftafræðinga hefur hann á síðustu árum vikið að
mestu fyrir öðrum aðferðum sem eru nákvæmari.
Fréttamiðlar, hér á landi sem annars staðar, eru
þó oft fastheldnir og tala yfirleitt um Richters-
kvarða þótt í reynd sé verið að nota aðrar aðferðir.
Einfaldast er líklega að tala núna bara um stærð
skjálfta í stigum án þess að nefna Richter en fleira
en stærðin ræður að sjálfsögðu því hve mikil áhrifin
verða, m.a. hve djúpt í jörðu hreyfingin er.
Íhaldssamir fréttamiðlar
Morgunblaðið/
Neyð Borgin Concepcion í Chile varð illa úti í skjálftanum, hér er fólk að ná sér í vatn í lögnum sem safna vatni úr jarðvegi.
Páll Einarsson
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÞETTA er vandasamt en mjög ögr-
andi verkefni. Ég er búin að vinna
fyrir Fjármálaeftirlitið í nokkra
mánuði og hef
kynnst því fólki
sem þar er og
þeim verkefnum
sem eru á borð-
um. Þetta eru
vandasöm verk-
efni en áhuga-
verð. Það er mik-
ið verk að vinna,“
segir Lilja Ólafs-
dóttir héraðs-
dómslögmaður um skipun sína í
stöðu formanns stjórnar Fjármála-
eftirlitsins (FME).
Lilja tekur við af Gunnari Har-
aldssyni hagfræðingi sem óskaði
lausnar frá störfum 15. febrúar en
hann hefur senn störf hjá Efnahags-
og framfarastofnuninni (OECD).
Láti gott af sér leiða
Lilja hlakkar til að hefja störf.
„Þetta er mjög áhugavert verk-
efni og ég hlakka til að taka þátt í því
og láta gott af mér leiða. Við stefn-
um á að efla störf eftirlitsins og það
starf er þegar hafið. Mér er sýnt gíf-
urlega mikið traust.“
Lilja er starfandi lögmaður í
Reykjavík og hefur meðal annars
starfað sem lögfræðilegur ráðgjafi
stjórnar Fjármálaeftirlitsins frá því
í júní 2009. Lilja hefur starfað sem
yfirlögfræðingur hjá EFTA í Genf
og sem ráðgjafi og samningamaður í
alþjóðaviðskiptum.
Hún var samningamaður Íslands
um laga og stofnanamál við gerð
EES-samningsins en í upphafi
starfsferils síns starfaði Lilja sem
dómarafulltrúi og síðar sem lögmað-
ur. Lilja lauk lagaprófi frá Háskóla
Íslands árið 1982 og svo LLM-prófi
frá Yale-háskóla í Bandaríkjunum
1983, að því er segir í tilkynningu.
„Sýnt
gífurlegt
traust“
Lilja Ólafsdóttir
hefur störf hjá FME
Lilja Ólafsdóttir