Morgunblaðið - 02.03.2010, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 02.03.2010, Qupperneq 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2010 Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is ÞETTA er búið að vera ævintýri lík- ast í vetur,“ segir Þórgnýr Dýrfjörð, forstöðumaður Akureyrarstofu, um aðsóknina í bæinn að undanförnu. Ferðamenn og aðrir gestir á Akur- eyri hafa skipt þúsundum undan- farnar vikur og sem fyrr hafa skíða- brekkurnar í Hlíðarfjalli haft mesta aðdráttaraflið, auk Vetrarleika ÍSÍ og fleiri viðburða. Líklega hefur gestafjöldi í bænum aldrei verið meiri en um liðna helgi en þá var gríðarleg aðsókn í Hlíðar- fjallinu, um 1.600 manns hvorn dag, laugardag og sunnudag, og til við- bótar fóru fram fjölmenn íþróttamót meðal ungmenna; Goðamót Þórs í knattspyrnu og skautamót, þar sem þátttakendafjöldi skipti hundruðum, að viðbættum foreldrum og öðru fylgdarliði. Allt gistirými hefur verið full- bókað, matsölustaðir og kaffihús full út að dyrum, mikil aðsókn í sund- laugarnar og fullbókað í flestar sýn- ingar hjá Leikfélagi Akureyrar til vors, svo nokkur dæmi séu tekin. Um helgar hafa biðraðir verið al- geng sjón í bænum. Ævintýrið rétt að byrja Það er í raun sama við hvaða rekstraraðila er talað, allir tala um aukin viðskipti í vetur og þakka það ekki síst aðsókninni í Hlíðarfjall. Ak- ureyringar sjá fyrir sér áframhald- andi gósentíð fram yfir páska og hina árlegu Andrésar Andar-leika kringum sumardaginn fyrsta. Æv- intýri vetrarins er því rétt hafið. Starfsmaður Sundlaugar Akureyrar segir helgarvaktina hafa verið „býsna fjöruga“ líkt og fyrri helgar í vetur. Aðsóknin hafi dreifst betur yfir daginn en oft áður, þegar sund- laugin hefur fyllst síðdegis þegar Hlíðarfjalli er lokað. María Sigurðardóttir leikhússtjóri er hæstánægð með aðsóknina í vetur og segir áberandi hvað sunnanmenn og aðrir aðkomumenn séu fjölmenn- ir í röðum leikhúsgesta. Hallgrímur Arason, veitinga- maður á Bautanum, hefur svipaða sögu að segja. „Þetta er búið að vera mjög líflegt og við getum alls ekki kvartað, veitingamenn á Akureyri, eftir janúar og febrúar sem annars hafa verið frekar daufir.“ Óðinn Svan Geirsson, verslunar- stjóri Bónuss á Akureyri, segist hafa orðið var við mikla aukningu í veltu undanfarnar vikur. Erfitt sé þó að vera strax með lengri samanburð þar sem Bónus hafi nýlega bætt við sig verslun á Akureyri. Frá því að verslanirnar urðu tvær segir Óðinn veltuna hafa aukist um 30%. Febrúar var „frábær“ „Febrúarmánuður var frábær og ekki síst öskudagsvikan þegar margir voru í vetrarfríi í bænum. Fólk virðist nota mikið matvöru- verslanir þegar það er hérna og dvelur þá í heimahúsum eða orlofs- húsum. Traffíkin var gríðarleg um helgina, sjálfur ætlaði ég að fara út að borða en það var bara ekki hægt, sama hvar maður kom,“ segir Óðinn Svan. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akureyri Hlíðarfjall hefur verið helsta aðdráttarafl ferðamanna í vetur. „Ævintýri líkast í vetur“  Sjaldan verið fleiri vetrargestir á Akureyri en um helgina  Hlíðarfjall laðar til sín skíðafólk í þúsundatali og aðrir njóta góðs af  Sjá fram á góða tíð fram yfir páska Í HNOTSKURN »Fyrir utan mikla aðsókn íHlíðarfjall um helgina voru margir gestir mættir á aðra viðburði í bænum. »Fjölsótt knattspyrnumótvar hjá Þórsurum, hið ár- lega Goðamót, sem laðaði til sín fjölda ungra knattspyrnu- drengja og aðstandendur þeirra. »Skautamót fór einnig framauk viðburða á ýmsum sviðum íþrótta, menningar og lista. „Mér sýnist aðsóknin í fjallið vera um 50% meiri en á sama tíma í fyrra,“ segir staðarhaldarinn í Hlíðarfjalli, Guðmundur Karl Jóns- son, sem brosir sínu breiðasta þessa dagana. Snjónum hefur kyngt niður síðustu vikur. Þegar götur voru svo gott sem auðar á Akureyri, sannaði snjófram- leiðslukerfið sig í janúar. Frá því fyrir áramót hefur aðeins þurft að loka í örfáa daga. Til marks um aðsóknina þá eru sex dagar í vetur komnir á lista yfir 20 aðsópsmestu dagana frá því mælingar hófust í Hlíðarfjalli. „Traffíkin byrjaði milli jóla og nýárs og hefur verið nær látlaus síðan þó að við höfum á tímabili ekkert haft sérstaklega gott veður. Þetta er eig- inlega fyrsti góði dagurinn í dag þegar ekki sést ský á himni og sólin skín á allt og alla,“ sagði Guðmundur Karl er rætt var við hann í gær. Þá var töluverð umferð upp fjallið, miðað við fyrsta virka dag vikunnar. Um helg- ar eru ferðamenn langfjölmennastir í fjallinu en heimamenn velja sér frekar góðan dag, ekki síst þegar snjóað hefur mikið. „Með hækkandi sól og góðu veðri sjáum við fram á áframhaldandi aukningu með góðri mæt- ingu heimamanna, enda nægur snjór og aðstæður allar eins og best verð- ur á kosið,“ segir Guðmundur Karl. bjb@mbl.is Aukningin í Hlíðarfjalli um 50% milli ára Hlíðarfjall Á skíðum skemmti ég mér. Rafhitarar í skip, hús og sumarhús Neysluvatnshitarar Hitöld (element), hitastillar, hitastýringar og flest annað til rafhitunar. Við erum sérfræðingar í öllu sem við kemur rafhitun. Kaplahrauni 7a • Hafnarfirði, Sími 565 3265 • Fax 565 3260 rafhitun@rafhitun.is • www.rifhitun.is Rafhitun www.feminin.is • feminin@feminin.is Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Nýjar vörur Str. 38-56 www.rita.is Eddufelli 2, sími 557 1730 Bæjarlind 6, sími 554 7030 Leggings - með blúndu - með rennilás - með tölum - rykktar og flottar Verð frá 1.990 - 8.900 kr Íslensk verðbréf: · Traust og ábyrgt fjármálafyrirtæki · 23 ára reynsla í ávöxtun fjármuna · Eignastýring á 95 milljörðum fyrir viðskiptavini EIGNASAFN 2 hefur skilað 13.1% ávöxtun síðustu 12 mánuði.* EIGNASAFN 2 er góð ávöxtunarleið fyrir þá sem vilja stöðuga ávöxtun og litla áhættu. Eignasamsetning EIGNASAFNS 2 (28. febrúar 2010): Hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 460 4700 eða kynntu þér málið á www.iv.is Íslensk verðbréf bjóða upp á fjögur önnur eignasöfn með mismunandi fjárfestingarstefnur sem henta bæði einstaklingum sem og öðrum fjárfestum. 46% RÍKISSKULDABRÉF 54% INNLÁN Strandgata 3 600 Akureyri I Sigtún 42 105 Reykjavík Sími: 460 4700 I www.iv.is I iv@iv.is*Miðað við 28. febrúar 2010. Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.