Morgunblaðið - 02.03.2010, Side 15

Morgunblaðið - 02.03.2010, Side 15
Daglegt líf 15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2010 Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Ölduselsskóli í Reykjavíksigraði í 2. riðli Skóla-hreysti í liðinni viku ogkeppir í úrslitum í fyrsta sinn. „Við stefnum á fyrsta sætið í úrslitakeppninni,“ segir Jóna Valdís Benjamínsdóttir full sjálfstrausts eftir góða byrjun. Skólahreysti er keppni grunn- skólanema í kraftagreinum og hraðaþraut og er hvert lið skipað fjórum nemendum og tveimur til vara. Keppendur Ölduselsskóla stunda íþróttir af kappi og segja að þess vegna komi þeir vel undirbúnir til leiks en hafi ekki æft sérstaklega fyrir keppnina. Sara Glóð Jóns- dóttir, Jóna Valdís Benjamínsdóttir og Garðar Guðmundsson eru í fim- leikum og Gísli Haraldsson er júdó- maður. Vinsæl keppni Keppnin hófst sl. fimmtudag og var keppt í fimm greinum. Með Ölduselsskóla í riðli voru Rimaskóli, Árbæjarskóli, Víkurskóli, Folda- skóli, Engjaskóli, Borgaskóli, Selja- skóli, Fellaskóli, Húsaskóli, Breið- holtsskóli, Hólabrekkuskóli, Ingunnarskóli, Norðlingaskóli, Hamraskóli og Sæmundarskóli. Ölduselsskóli sigraði í tveimur þrautum, en varð síðan í 3., 4. og 8. sæti en í 1. sæti samanlagt með 83,0 stig og tryggði sér þar með sæti í úr- slitakeppninni 29. apríl. Á fimmtu- dag heldur keppnin áfram og keppa þá grunnskólar á Austurlandi á Eg- ilsstöðum. Keppnin fór fyrst fram 2005 og þá sigraði Hjallaskóli í Kópavogi. Sala- skóli í Kópavogi fagnaði sigri ári síð- ar, síðan Lindaskóli í Kópavogi 2007, þá Hagaskóli í Reykjavík og svo Heiðarskóli í Reykjanesbæ í fyrra. Að þessu sinni eru 120 skólar skráðir til leiks og hafa aldrei verið fleiri. Tvisvar fengið ostakörfu Garðar keppir nú í Skólahreysti þriðja árið í röð og er í fyrsta sinn kominn í úrslit. Hann segir að liðið núna sé sterkara en undanfarin ár og fyrir vikið sé keppnin skemmti- legri í ár. Undanfarin tvö ár lenti Ölduselsskóli í 3. sæti í sínum riðli og fór Garðar þá heim með ostakörfu að launum en nú vill hann meira. „Þetta er síðasta árið mitt og ég vil gera gott úr því,“ segir hann. Jóna Valdís er í skólaliðinu í annað sinn. „Þetta er gaman og þetta er skemmtilegra en í fyrra vegna þess að við erum komin í úrslit,“ segir hún og bætir við að hugsunin um að geta unnið hafi haft mikið að segja. Sara Glóð tekur í sama streng, segir keppnina skemmtilega og stuð- ið mikið. „Þegar allir öskra á mann fær maður aukakraft,“ segir hún og vísar til þess að andrúmsloftið í keppninni sé rafmagnað. Liðið sé sterkara en í fyrra og því komi ár- angurinn ekki á óvart. „Við erum með gott lið,“ segir hún. Gísli hefur æft júdó í þrjú ár og segir að það gagnist sér vel í keppn- inni. „Þetta er mjög skemmtilegt,“ segir hann. Gísli var áður í Klébergs- skóla á Kjalarnesi og keppti fyrir hann í grunnskólamótinu í fótbolta í haust sem leið en hann er ekki frá því að þessi keppni sé skemmtilegri. Stefnan sett á fyrsta sæti  Krakkarnir í liði Ölduselsskóla í Reykjavík æfa fimleika og júdó og eru til alls líklegir í úrslita- keppni Skólahreysti í lok apríl  Mikið stuð á áhorfendabekkjunum virkar hvetjandi á keppendur Morgunblaðið/Ernir Æfing Krakkarnir í liði Ölduselsskóla taka vel á því í skólanum og á æfingum í fimleikum og júdói með íþróttafélögum sínum. Skólahreystilið Ölduselsskóla Frá vinstri: Gísli Haraldsson, Sara Glóð Jónsdóttir, Garðar Guðmundsson og Jóna Valdís Benjamínsdóttir. Skólahreysti byrjaði með látum í liðinni viku og tveir skólar, Öldu- selsskóli og Austurbæj- arskóli, tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni. Næst leiða skólar á Austurlandi saman hesta sína á Egils- stöðum á fimmtudag. Íþróttakennararnir Eyjólfur Kol- beinsson og Sigrún Siggeirs- dóttir sjá um undirbúning liðs Ölduselsskóla í Skólahreysti. Þau eru mjög ánægð með liðið og hrósa keppnishöldurum, en hjónin Andrés Guðmundsson og Lára B. Helgadóttir hafa haldið utan um keppnina frá byrjun. „Það er mjög vel að öllu staðið,“ segir Sigrún og Eyjólf- ur bætir við að mikið sé lagt í keppnina. Þau segja það mjög jákvætt að skólar þurfi ekki að greiða þátttökugjald og að- gangur að keppninni sé ókeyp- is. Það eina sem þau finna að er riðlaskiptingin. „Við keppum alltaf við sömu skólana,“ segir Sigrún og spyr hvort ekki megi setja alla skóla Reykjavíkur í einn pott og draga síðan í riðla frekar en að skipta í riðla eftir hverfum. Eyjólfur segir að krakkarnir haldi áfram að æfa með úrslita- keppnina í huga. Það hjálpi mikið að þeir æfi með sínum íþróttafélögum en þegar nær dregur verði keppnisgreinarnar í Skólahreysti æfðar sér- staklega í skólanum. Ölduselsskóli er í úrslitum í fyrsta sinn og segja kennar- arnir það mikil tilhlökkunarefni fyrir alla viðkomandi að takast á við nýja áskorun. Vel að keppninni staðið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.