Morgunblaðið - 02.03.2010, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 02.03.2010, Qupperneq 17
17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2010 Hey í harðindum Heyrúlla hestamanns nokkurs fór á flakk um götur borgarinnar í gærkvöldi. Kristinn HINN 6. marz nk. á að fara fram þjóðar- atkvæðagreiðsla um lög nr. 1/ 2010 er fjalla um ríkisábyrgð á hinum svokölluðu Icesave-skuldum Landsbanka Íslands hf. sem forseti Ís- lands neitaði að stað- festa hinn 5. janúar 2010. Íslenzka þjóðin hefir áður gengið til þjóðaratkvæðagreiðslu um milli- ríkjasamning. Það var árið 1944 um Sambandslagasamninginn við Dani frá 1918. Þátttakan í þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu var 98,61% atkvæðisbærra manna og af þeim vildu 99,5%, fella Sambandslögin úr gildi og stofna Hið íslenzka lýð- veldi. Íslendingar! Höfum þessa miklu kosningaþátttöku forfeðra vorra í huga, er við rísum úr rekkju hinn 6. marz nk. Mánuðum saman hefir því verið haldið fram af hálfu ríkisstjórnar Íslands að við verðum að greiða Icesave-skuld þessa, ella setji fyr- irbæri er hún kallar „alþjóða- samfélagið“ oss út af „viðskipta- sakramentinu“ og hér fari allt í kalda kol, enda sé ekki unnt að ná betri samningum við Breta og Hol- lendinga en þeim er samn- inganefnin sáluga hafi marið svo snilldarlega í gegn hinn 6. júní 2009. En bíðum nú við, ef eitthvað er til, annars staðar en í áróð- ursheimi íslenzku ríkisstjórn- arinnar sem heitir „alþjóða- samfélagið“, hlýtur það þá ekki að fara að lögum? Verður þá ekki að kanna ræki- lega hvaða lög það eru sem leggja rígþunga greiðslubyrði á íslenzka skattgreiðendur vegna skulda er einkaaðiljar hafa stofnað til. Þetta var því miður ekki gert af hálfu ríkisstjórnarinnar (né af fyrri ríkisstjórn) þótt lagaskyldan sé vit- anlega grundvallaratriðið í þessu efni. Þetta var að sjálfsögðu skelfi- leg yfirsjón af hálfu ríkisstjórn- arinnar, sem verður að bæta úr. Það er ekki of seint því að hér er um grundvallaratriði að ræða, sem allt annað veltur á. Sem betur fer sváfu ekki allir á verðinum í þessu efni eins og rík- isstjórn Íslands. Þeir Lárus Blöndal hæstarétt- arlögmaður og Stefán Már Stef- ánsson prófessor hafa ritað margar greinar um þetta efni (síðar bætt- ist Sigurður Líndal prófessor í þeirra hóp) og birt í Morg- unblaðinu þar sem greiðsluskylda Íslendinga er véfengd með skýrum hætti og rökföstum. Í þessu sam- bandi má t.d. vitna til greina nefndra lögfræðinga í Morgun- blaðinu hinn 12., 13., 14. og 15. jan- úar 2010. Þessir menn eiga skilið þjóðarþakkir fyrir framtak sitt og ósérplægni í þessu máli. Einnig er rétt að vekja athygli á grein eftir Alain Lipietz, franskan hagfræðing og fyrrverandi þing- mann Evrópuþingsins, sem var eft- irlitsaðili í bæði skiptin er breyt- ingar voru gerðar á tilskipun Evrópusambandsins um inn- stæðutryggingar nr. 94/19 EC er birtist í Morgunblaðinu hinn 12. febrúar 2010. Vegna starfa sinna á Evrópuþinginu gerþekkir maður þessi ákvæði og gildissvið reglna Evrópusambandsins um inn- stæðutryggingar. Þá er og rétt að benda á hvað þeir Sören Wibe, prófessor og fyrrverandi þingmað- ur á Evrópuþinginu, og Arne Hyttnes, forstjóri Innstæðutrygg- ingasjóðsins norska, hafa um þetta efni að segja (Mbl. 4. og 18. febr- úar 2010.) Í greinum þessum ber allt að sama brunni: Lagaheimildir skortir til að leggja greiðslubyrði vegna Icesave-skuldanna á íslenzka ríkið. Þessu til frekari áréttingar ber að hafa í huga að hvorki Bretar né Hol- lendingar hafa þorað að vísa máli þessu til dómstóla til endan- legrar úrlausnar svo sem venja er til þá tveir deila og ekki næst samkomulag þeirra í milli. Og það sem meira er, Evr- ópusambandið hefir nú sjálft ákveðið að gerbreyta tilskip- unum sínum um innstæðutrygg- ingar þar sem núgildandi reglur eru ófullnægjandi á þessu sviði. Allt segir þetta sína sögu og er málstað Íslands til geysilegs styrks þótt enn daufheyrist ríkisstjórn Ís- lands við þessum álitum og þrá- stagist á því að við verðum að taka á okkur sanngjarna greiðslubyrði vegna Icesave-skuldanna. En menn hljóta þá að spyrja sig: Hvar er sanngirnin í þessu máli þegar lagagrundvöllurinn brestur? Allt veraldlegt vald í lýðræð- isríki er frá þegnunum komið. Þessu valdi beita þegnarnir ýmist með óbeinni fulltrúakosningu, eða beinni kosningu við þjóðarat- kvæðagreiðslu. Í þessum kosn- ingum liggur valdið beint hjá þegnunum. Valdi þessu fylgir ekki aðeins réttur til afskipta af þjóð- máli heldur einnig þegnskylda til að fara með þetta vald þannig að það styrki lýðræði og farsæld með þjóðinni. Satt er það að við Íslendingar erum fáir og smáir, sem þjóð, en við erum firnasterkir er við stönd- um saman. Það sýndum við í Þorskastríðunum. Þá stóðum við saman sem einn maður og sigr- uðum Breta. Því miður hefir rík- isstjórnin ekki reynt, svo sannfær- andi sé, að þjappa þjóðinni saman í þessu máli. Við þegnarnir verðum því að sjá um það sjálfir, treysta bræðraböndin og mynda eina órofa heild í þessu þjóðþrifamáli. Þá munum við sigrast á þeirri lög- leysu sem hér er höfð í frammi. Við Íslendingar eigum nú við gríðarlega efnahagsörðugleika að etja. Dettur nokkrum í hug að það verði auðveldara að vinna sig út úr þessum vanda með því að taka að auki á sig drápsklyfjar Icesave – og það án lagaskyldu? Sagt er að hver þjóð hafi þá rík- isstjórn sem hún á skilið. Góðir Íslendingar! Við skulum öll mæta á kjörstað hinn 6. marz nk. og fella – já kolfella – þennan nauðungarsamning um Icesave, rétt eins og forfeður okkar felldu Sambandslagasamninginn árið 1944, og sýna þannig og sanna, gagnvart okkur sjálfum og um- heimi öllum, að við eigum ekki þessa ríkisstjórn skilið og neitum alfarið að beygja okkur undir skuldaok nýlendukúgaranna. Þegar þessu þjóðþrifaverki er lokið tjáum við Bretum og Hol- lendingum að málið hafi nú hlotið þá lýðræðislegu meðferð sem stjórnarskrá hins íslenzka lýðveldis frá 1944 mæli fyrir um. Frekari samningaviðræður séu því þýðing- arlausar en ef þessi ríki telji sig eiga einhvern lögvarinn kröfurétt á hendur íslenzka ríkinu vegna Ice- save skuli þau sækja þann rétt fyr- ir dómi. Varnarþing hins íslenzka lýðveldis sé hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Eftir Magnús Thoroddsen » Við skulum öll mæta á kjörstað hinn 6. marz nk. og fella – já kolfella – þennan nauð- ungarsamning um Ice- save … Magnús Thoroddsen Höfundur er fyrrv. hæstaréttarlögmaður. Þjóðaratkvæða- greiðslan 6. marz Í ALLRI framleiðslu er markaðsstarf sá þáttur sem er hvað oft- ast vanmetinn. Einu gildir hvort um ræðir landbúnað, áliðnað eða sjávarútveg. Í sjávar- útvegi nútímans eru mikil tengsl á milli fiskimiða og markaðar. Sá sem stýrir veið- unum er yfirleitt í beinu sambandi við kaupendur, hvort heldur þeir eru hér á landi, í Evrópu eða enn lengra í burtu. Þegar kemur að ákvörðun um við- skipti horfa kaupendur til áreið- anleika seljanda þar sem m.a. er litið til aflaheimilda sjávarútvegsfyrir- tækja, hver fjárhagsstaða þeirra er, hvernig skipakosti fyrirtækið ræður yfir og hvernig er staðið að vinnslu afurðanna. Séu þessir þættir allir eins og kaupendur gera kröfur um eru þeir oft tilbúnir að gera lang- tímasamninga, þar sem greitt er hærra verð fyrir afurðirnar en geng- ur og gerist. Með samhæfðri og öfl- ugri virðiskeðju veiða, vinnslu og markaðssetningar hámörkum við arðinn af auðlindinni öllum til hags- bóta. Afhendingaröryggi teflt í tvísýnu Það sem einkennir markaðinn í dag er hversu vel upplýstur hann er um alla þætti. Erlendir kaupendur vita vel af hugmyndum stjórnvalda um upp- töku aflaheimilda. Þessi áform grafa und- an afhendingaröryggi afurða sem aftur leiðir til þess að þeir leita hófanna hjá öðrum seljendum til þess að tryggja sér afurðir. Um leið þrýstir þetta verðinu einnig niður. Allir tapa ef við fáum ekki hæsta mögulega verð fyrir afurðir okkar; hlutur sjómanna lækkar, framlegð fyrirtækjanna lækkar og skatt- tekjur ríkis og sveitarfélaga dragast saman. Lykilorðið í markaðsstarfi í dag er „Ábyrgar fiskveiðar.“ Við fullyrðum við kaupendur að við umgöngumst fiskistofnana af ábyrgð, veiðum ekki meira en stofnarnir þola. Erlendir kaupendur nýta sér þessa vissu í öllu kynningarstarfi og auglýsingum til neytenda. Við skýrum einnig út fyrir kaupendum hvernig fiskveiðistjórn- unarkerfið ýtir undir ábyrgar fisk- veiðar. Ef talið er að of mikið hafi verið veitt úr stofni og draga þurfi fyrir vikið úr veiðum þá sé það í okk- ar þágu enda skili það sér til baka þegar stofnarnir stækka á ný. Ímynd Íslands ógnað Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp sjávarútvegsráðherra, þar sem kveðið er á um heimild hans til að leyfa veiðar á 4.000 tonnum af skötu- sel utan aflamarks á þessu og næsta fiskveiðiári eða sem nemur 80% um- fram ráðleggingar fiskifræðinga. Þetta frumvarp sjávarútvegs- ráðherra og hugmyndir stjórnvalda um upptöku aflaheimilda munu ekki aðeins raska erlendu markaðsstarfi sem unnið hefur verið um margra ára skeið heldur einnig grafa undan ímynd Íslands sem ábyrg fisk- veiðiþjóð. Eftir Sverri Pétursson »Með samhæfðri og öflugri virðiskeðju veiða, vinnslu og mark- aðssetningar, hámörk- um við arðinn af auð- lindinni öllum til hagsbóta. Sverrir Pétursson Höfundur er útgerðarstjóri hjá Hrað- frystihúsinu-Gunnvöru hf. á Ísafirði. Fyrningarleiðin vegur að markaðsstarfi í sjávarútvegi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.