Morgunblaðið - 02.03.2010, Síða 28
28 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2010
Fólk
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„ÉG hef verið aðdáandi Carpenters síðan ég var
fjórtán ára, ég varð strax ofsalega hrifin af þeim
og þá sérstaklega af söngkonunni Karen Carpen-
ter, hún var það flottasta sem ég hafði heyrt í. Ég
söng einmitt í fyrsta skipti sóló þegar ég var 14
ára í söngvakeppni Samfés og tók þá Carpenters-
lag, tvö ár í röð, þannig að þau eru búin að fylgja
mér í öll þessi ár,“ segir Regína Ósk Óskarsdóttir
söngkona sem mun halda Carpenters-tónleika í
Salnum í Kópavogi að kvöldi 18. mars næstkom-
andi.
„Það er búið að vera á stefnuskránni í mörg ár
að halda svona tónleika en hef aldrei lagt í það
fyrr en núna,“ bætir Regína við.
Karen Carpenters hefði orðið 60 ára í dag, 2.
mars, en hún lést í febrúar 1983, 32 ára að aldri.
„Hún var jafngömul og ég er í dag þegar hún
dó, þetta var sorgarsaga. Ég var búin að ákveða
að halda þessa tónleika þegar ég áttaði mig á að
hún ætti stórafmæli á árinu og meira að segja í
mars, þessu var ætlað að verða,“ segir Regína.
„Þegar ég var yngri fannst mér Karen svo æð-
isleg og ég reyndi að syngja alveg eins og hún eða
þangað til að ég skildi að maður þarf að finna sína
eigin rödd.“ Á efnisskrá Carpenters-tónleikana í
Salnum er tuttugu og eitt lag, öll þeirra bestu að
sögn Regínu. „Það liggur svo mikið eftir þau enda
voru þau á fullu í tónlistinni frá 1969 til ’83. Á efn-
isskránni eru uppáhaldslögin mín og lög sem
verða líka að vera með, annars finnst mér þetta
allt gott. Ég er með mikið af ballöðum en líka
hresst inni á milli, Carpenters-systkinin voru mik-
ið í því að taka lög annarra og endurútsetja og
gerðu þau þannig að sínum,“ segir Regína.
Hljómsveitin sem leikur undir hjá Regínu á tón-
leikunum er skipuð: Pálma Sigurhjartarsyni,
Hannesi Friðbjarnarsyni, Friðriki Sturlusyni, Ein-
ari Þór Jóhannssyni og Haraldi V. Sveinbjörns-
syni. „Þegar hljómsveitin var sett saman var skil-
yrði að þeir gætu raddað og fíluðu tónlistina og
þeir uppfylltu þau skilyrði. Ég er nefnilega ekki
með bakraddir. Okkur finnst gaman að vinna
saman, þetta er ástríðuverkefni fyrir mér og þeir
eru með mér í þessu,“ segir Regína að lokum.
Hef verið Carpenters-aðdáandi frá 14 ára aldri
Í uppáhaldi Regína hefur lengi hlustað á Car-
penters og féll ung fyrir töfrum Karenar.
Það er ekki mikill frumleiki á
Ríkisútvarpinu þegar kemur að
nafnavali á útvarpsþætti, vísan í
nöfn þáttastjórnenda, upphafsstafir
eða eftirnöfn, virðist vera tískan
þar á bæ.
Heiða Ólafsdóttir og Margrét
Erla Maack stýra þættinum H og M,
Atli Þór Albertsson og Jóhann
Gunnar Jóhannsson eru með þátt-
inn Frá A til J og Bergsson og Blön-
dal er stýrt af Felix Bergssyni og
Margréti Blöndal. Svo ekki sé talað
um Morgunstund með KK, Færi-
bandið með Bubba Morthens, Helg-
arútgáfuna með Guðna Má Henn-
ingssyni og Sirrý á sunnudags-
morgnum. Spurning hvenær Popp-
landi verður breytt í Óla Palla-
land.
Verður það Óla
Palla-land næst?
Upp úr skotgröfunum – umræða
um framtíð íslenskrar kvikmynda-
gerðar nefnist fundur sem nem-
endur áfangans BÍÓ213 í Fjöl-
brautaskólanum við Ármúla hafa
efnt til í dag í skólanum.
Meðal þeirra sem hafa staðfest
komu sína eru; Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra, Páll Magn-
ússon útvarpsstjóri, Ragnar Braga-
son leikstjóri og Hrönn Kristins-
dóttir framleiðandi.
Fundarstjórar/þáttastjórnendur
eru Þorfinnur Ómarsson og Gylfi
Þór Sigurðsson, nemandi við skól-
ann.
Markmið fundarins er að stuðla
að málefnalegri umræðu um fram-
tíð kvikmyndagerðar hérlendis.
Fundurinn verður tekinn upp, unn-
inn og síðan sýndur fullkláraður á
heimasíðu skólans. Nemendurnir
sem standa að fundinum eru undir
handleiðslu Þórs Elís Pálssonar
kvikmyndagerðamanns sem kennir
við skólann.
Fundurinn verður haldinn í and-
dyri Fjölbrautaskólans við Ármúla í
dag kl. 12 og stendur í 40-50 mín-
útur.
Upp úr skotgröfunum í
Fjölbraut við Ármúla
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
„ÞAÐ eru tuttugu og fimm ár liðin
síðan mynd Friðriks Þórs var fyrst
sýnd,“ segir kvikmyndagerðarmað-
urinn Eysteinn Guðni Guðnason
spurður um ástæður þess að hann
ákvað að ráðast í endurgerð þessarar
frægu myndar. Mynd Friðriks var
sýnd árið 1985 og þar fer áhorfandinn
eftir þjóðvegi 1 á 80 mínútum. Mynd
Friðriks var unnin þannig að mynda-
vél var fest á þak bíls sem síðan tók
einn ramma með reglulegu millibili.
„Ég útskrifaðist úr Kvikmynda-
skóla Íslands árið 2005 og þessi hug-
mynd er búinn að vera í hausnum í
nokkurn tíma. Svo skellti ég mér í
þetta haustið 2009 en ákvað að víkka
hugmyndina aðeins út. Þannig að
myndin er tveir rammar, þar sem ein
myndavél vísaði fram en hin aftur á
bak. Myndin verður þess vegna sýnd
á tveimur veggjum sem snúa hvor á
móti öðrum. Þetta er ný upplifun fyr-
ir áhorfendur, þeir geta bæði ímynd-
að sér að þeir séu í bílnum eða þá ráð-
ið því hvernig þeir snúa. Þá keyrði ég
norður fyrir en Friðrik keyrði suður
fyrir.“
Eysteinn segir lengd myndarinnar,
sem er 66 mínútur, vera þannig að
ferðalagið verður nógu hratt til að
vera áhugavert, en það er ekki það
hratt að fólk missi af einhverju.
Veðurguðirnir gengu svo í lið með
Eysteini og buðu upp á sýnishorn af
öllu því sem hið margbrotna íslenska
veðurfar hefur upp á að bjóða.
„Ég tók einn ramma á tíu metra
fresti og náði blessunarlega ekta ís-
lensku veðri. Það var þungskýjað,
það snjóaði, það kom sólskin, rigning,
þoka o.s.frv.“
Keyrði út af
Ekki gekk þó slysalaust að koma
verkefninu í höfn.
„Jú, jú … það var hefðbundinn
vandræðagangur ef svo má segja.
Ýmisleg tæknileg atriði sem þurfti að
leysa. Svo prófaði ég að nota raf-
magnsbíl en það gekk ekki upp.
Þannig að ég kolefnisjafnaði ferðina í
staðinn. Svo keyrði ég allsvakalega út
af rétt hjá Akureyri. Ég var ekki einn
á ferð, með í för voru þrír rússneskir
krakkar sem voru í heimsókn hjá vini
mínum. Þau voru með þér þessa fjóra
daga sem ferðalagið tók og voru mér
til halds og trausts. Það var ekki
slæmt að hafa smáfélagsskap.“
Hringurinn II er fyrsta mynd Ey-
steins í fullri lengd, en hann segist að-
eins hafa komið að myndbandagerð.
Eftirvinnslan á myndinni er síðan bú-
in að standa síðan hún var tekin upp.
„Þetta konsept er einfalt þannig
séð en ég sat á 132 tímum af efni, þar
sem ég var með tvo ramma.“
Upprunaleg mynd Friðriks hefur
ekki komið út á mynddiski og segir
Eysteinn að það væri gaman að sjá
það gerast.
„Ég sá hana í Þjóðmenningarhús-
inu en ég veit ekkert um stöðu mála
hvað útgáfur varðar. Það væri gaman
að standa að einhvers konar sam-
útgáfu, þar sem báðar myndirnar
væru.“
Eysteinn segir að eðlilega hafi ým-
islegt breyst þegar hann keyrði þenn-
an hring; nýjar sjoppur og nýjar
beygjur poppi upp hér og hvar.
„Stærsti munurinn lá í Hvalfjarð-
argöngunum. Svo er nýr vegur rétt
hjá Staðarskála, en ég ólst upp þar í
nágrenninu.“
Brennu-Njáls saga 2?
„Ætli það verði ekki bara Brennu-
Njáls saga 2?“ segir Eysteinn rú-
skinn þegar hann er spurður út í
framtíðarverkefni. Hér vísar hann í
fræga stuttmynd Friðriks frá 1980
þar sem fólk fylgdist með nefndri bók
brenna til ösku.
„Nei, það er ekkert í pípunum sos-
um. Ég hef ekkert heyrt í Friðriki
með þetta en vona að hann mæti á
sýninguna.“
Ferðalag á hljóðhraða
Hringurinn II frumsýnd í kvöld Endurgerð á mynd Friðriks Þórs,
Hringurinn Sýnd á tveimur húsveggjum, sem snúa hvor á móti öðrum
Frumraun Hringurinn II er fyrsta mynd Eysteins Guðna Guðnasonar.
Myndin er gefin út undir
svokölluðu Creative Com-
mons-leyfi. Um er að ræða
samtök sem stuðla að
frjálsri notkun á höfundar-
verki einhvers aðila með
hans samþykki. Markmiðið
er að ýta undir samstarf og
sköpun.
„Það má hver sem er taka
myndina og vinna með hana
eins og honum sýnist, svo
fremi að mín sé getið sem
upprunalegs höfundar. Þetta
fyrirbæri eða vinnuaðferð
hefur gengið afar vel erlend-
is og þannig fékk ég Finna,
Doc & Lena Selyanina, til að
búa til tónlist fyrir til-
stuðlan Creative Commons.
Í raun nokkurs konar al-
þjóðlegt samstarf. Ég hefði
aldrei haft bolmagn til að
kaupa tónlist af einhverjum
ráðsettum höfundum. Menn
deila verkum þarna frjálst
og meðvitað og þú stýrir því
sjálfur hversu miklar hömlur
þú setur.“
„Creative Commons“
Miðasala á tónleikana er hafin á heimasíðunum
www.salurinn.is og www.midi.is og í síma
570 0400.
Fræðslukvöld ÚTÓN um höf-
undaréttartekjur og samninga
verður haldið í kvöld í Norræna
húsinu. Farið verður djúpt ofan í
saumana á höfundaréttarsamn-
ingum (publishing) og hvað ber að
hafa í huga við samningagerð. M.a.
mun Keith Harris, sem starfar hjá
PPL (Innheimtusamtök flytjenda
og framleiðenda í Bretlandi) og er
umboðsmaður Stevie Wonder, tala
og einnig Ólafur Arnalds. Skráning
á kvöldið fer fram hjá thorey@ut-
flutningsrad.is.
Fræðslukvöld ÚTÓN um
höfundaréttartekjur
Maus Eysteinn þurfti að huga að ýmsu í ferðinni. Íslandsskot Veðurguðirnir voru Eysteini hliðhollir.
Sýningin hefst kl. 20 og verður á
tveimur húsveggjum á móti hvor
öðrum á Laugavegi 159 (á milli
Hlemms og Fíladelfíu). Þar geta
gangandi vegfarendur sem og
ökumenn komið við lengur eða
skemur.
www.facebook.com/HringurinnII