Morgunblaðið - 18.03.2010, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2010
Eftir Svanbjörgu H. Einarsdóttur
svanbjorg@mbl.is
FÉLAGAR í Tangófélaginu opna
faðminn og bjóða upp á tangómara-
þon um helgina til styrktar átaki
Krabbameinsfélags Íslands, Mottu
mars – Karlmenn og krabbamein.
Hany Hadaya, forsvarsmaður
maraþonsins, segir tangó vera lífs-
stíl sem auðvelt sé að ánetjast. Ólíkt
flestum „fíknum“ er tangóinn aftur
á móti heilsusamlegur og fallegur.
„Tangómaraþon er því kærkomin
gleði fyrir tangóunnendur og enn
betra er síðan að geta látið gott af
sér leiða dansandi. Þar að auki hef-
ur vísindalega verið sýnt fram á að
tangó er bráðhollur fyrir huga og
líkama.“
Þriggja mínútna saga
Dansaður verður argentínskur
tangó sem Hany segir sérlega
skemmtilegt að dansa og horfa á.
„Tangó er tjáning sem byggist á
ákveðnum sporum og kerfi sem er
spunnið saman. Hver dans er sam-
tal dansaranna og er í raun þriggja
mínútna saga sem aldrei verður
sögð aftur.“ Hany segir mikinn mun
vera á evrópskum og argentínskum
dansi. „Evrópski tangóinn, þar með
talið sá finnski, er miklu stífari og
líkist dansinum mars. Argentínski
tangóinn er mýkri og glæsilegri og
því miklu vinsælli.“
Ástríðufull einbeiting
Um fimmtán manns koma frá út-
löndum til að taka þátt í tangómara-
þoninu. Hany segir að fyrir marga
snúist lífið hreinlega um tangó.
„Margir dansa tangó flest kvöld vik-
unnar og fara í pílagrímsferðir til
Argentínu. Þá eru tangómaraþon
mikið í tísku núna og fullt af fólki
sem ferðast heimshorna á milli til að
dansa.“
Hany hlær þegar hann er spurður
hvort þetta verði sveitt og ástríðu-
þrungin skemmtun. „Sannleikurinn
er sá að tangódansarar taka ekki
einu sinni eftir því að verið sé að
fylgjast með þeim því það sem virkar
sem ástríða er frekar einbeiting
dansaranna við að stíga ekki á tærn-
ar hvort á öðru!“ Tangóplötusnúðar
frá Svíþjóð og Danmörku munu sjá
um tónlistina, en þeir hafa sérhæft
sig í tangótónlist. Hany segir tangó-
tónlistina afar heillandi. „Tónlistin
frá gullaldartímabili tangósins 1920-
40 er einstök og verður mikið spiluð
en einnig mun hljóma íslensk tangó-
tónlist.“
Fyrstu sporin í maraþoninu verða
stigin á föstudagskvöld í Iðnó kl. 20
og dansinn mun duna fram undir
morgun. Á laugardeginum sveiflast
fyrstu pörin frá hádegi til sjö um
kvöldið og klukkan 20.30 verður
dansinum haldið áfram fram til
fimm um morguninn í Iðnó. Frá
sunnudagshádegi dunar dansinn á
ný til klukkan 19 í Ráðhúsi Reykja-
víkur.
Þeir sem ekki treysta sér í dans-
inn geta keypt sér sérhannaðan
tangómaraþonbol á 3.500 krónur,
notið þess að horfa á tangóspunann,
hlusta á tónlistina og styrkt í leið-
inni gott málefni.
Tangó er tjáning og lífsstíll
Tangómaraþon til styrktar átakinu Mottu mars – Karlmenn og krabbamein
Dansað alla helgina Tangóunnendur frá öðrum löndum mættir í dansinn
Morgunblaðið/Golli
Hollur tangó Dansarar í Tangófélaginu á æfingu fyrir tangómaraþonið sem fram fer í Reykjavík um helgina.
Í HNOTSKURN
»Dansað alla helgina í Iðnóog Ráðhúsinu.
»Aðgangseyrir er fallegurbolur sem kostar 3.500 kr.
Allur ágóði rennur til Krabba-
meinsfélagsins.
»Tangófélagið er tíu ára ogeru dansfélagar um 100.
»Dansað flest kvöld vik-unnar. www.tango.is.
„ÞAÐ er jákvætt að öll strandríkin
komi nú í fyrsta skiptið saman til að
ræða framtíðarstjórn á makrílstofn-
inum,“ segir Steinar Ingi Matthías-
son, skrifstofustjóri í sjávar-
útvegsráðuneytinu.
Hann hefur síðustu tvo daga setið
fund um heildarstjórnun makríl-
veiða í norska bænum Álasundi
ásamt fulltrúum frá Evrópusam-
bandinu, Noregi og Færeyjum, auk
þess sem Rússar eiga áheyrnarfull-
trúa. Fundinum lýkur í dag og að
sögn Steinars er ráðgert að boðað
verði til framhaldsfundar, en ólík-
legt megi telja að endanleg niður-
staða í málinu fáist í dag.
Meðal þess sem rætt er um er
aflahámark, skipting afla, aðgang að
lögsögu og eftirlit með veiðum. „Við
förum fram á sanngjarna hlutdeild,“
segir Steinar, en Íslendingar hyggj-
ast veiða 130 þúsund tonn af makríl
á þessu ári.
Komin að
samninga-
borðinu
Býst við framhalds-
fundi um makrílinn
REKTORAR íslenskra háskóla
lýsa yfir þungum áhyggjum af
áætlunum um enn frekari niður-
skurð til háskólamenntunar í land-
inu. Þeir benda á að opinber fram-
lög til háskólastigsins séu
hlutfallslega miklu lægri hér en á
hinum Norðurlöndunum.
Rektorarnir telja augljóst að
stórlega skert fjárframlög geri að
engu uppbyggingu síðustu ára og
veiki háskólakerfið einmitt nú þeg-
ar brýnt sé að beita því til við-
reisnar og endurbyggingar. Í sam-
eiginlegri yfirlýsingu benda
rektorar á að háskólarnir gegni
lykilhlutverki í uppbyggingu og
framþróun á öllum sviðum atvinnu-
lífs og menningar.
Áhyggjur af
niðurskurði í
háskólunum
HUGMYNDIR eru uppi um stofnun
Grænlandsseturs í Bolungarvík.
Áformað er að stofna undirbún-
ingsfélag um stofnun setursins í
Náttúrugripasafni Bolungarvíkur á
laugardaginn kl. 11.
Að sögn Jónasar Guðmunds-
sonar, sýslumanns og hvatamanns
að stofnun undirbúningsfélagsins,
yrði setrinu ætlað að safna fróðleik
og munum tengdum Grænlandi og
samskiptum Íslands og Grænlands í
fortíð, nútíð og framtíð. Standa að
kynningum og sýningarhaldi er
tengjast Grænlandi, stuðla að aukn-
um samskiptum íbúa landanna og
eftir föngum að stunda rannsóknir
tengdar grænlenskum málefnum.
Jónas bendir á að Bolungarvík sé sá
byggði staður hérlendis sem er
hvað næstur Grænlandi, en loftlín-
an á milli er 315 kílómetrar. Því
þyki rétt að miða við að setrinu
verði ætlaður staður í Bolungarvík.
Allir sem áhuga hafa eru vel-
komnir á stofnfundinn og geta þar
gerst félagar. bjb@mbl.is
Grænlandssetur
í Bolungarvík?
Grænland Ísbjörninn uppstoppaði í
Náttúrugripasafni Bolungarvíkur.