Morgunblaðið - 18.03.2010, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.03.2010, Blaðsíða 36
36 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2010 Fólk Í KVÖLD hefst þriggja kvölda tónleikahátíð í Nýlenduvöruverslun Hemma og Valda við Laugaveg. Tilefnið er eins árs afmæli tónleika- raðarinnar Grapevine Grassroots sem haldin hefur verið einu sinni í mánuði síðastliðið ár. Arnljótur Sigurðsson, forstöðumaður tón- leikaraðarinnar, segir um fimmtíu hljómsveitir hafa spilað á fyrsta árinu, en að jafnaði komi fram þrjár til fjórar hljómsveitir hverju sinni. Er þetta í annað sinn sem haldin er Grass- roots-hátíð en sú fyrri fór fram samhliða tón- leikahátíðinni Réttum sem fram fór í fyrra. Á af- mælishátíðinni spilar rjóminn af þeim sem hafa komið fram á árinu og því úr nógu að moða. Markmið tónleikanna er að veita ungum og upprennandi hljómsveitum færi á að koma fram og gefa í leiðinni gestum færi á að heyra það sem er að gerast undir yfirborðinu í tónlist hér á landi. Á næstu dögum munu hljómsveitir á borð við Felonious Monk, NOLO, Pascal Pinon, Báru- járn og DLX ATX koma fram en þær vöktu allar mikla athygli á árinu sem leið. Munu átta aðrar hljómsveitir stíga á svið að þessu sinni. Grassroots-tónleikaröðin var oft með fyrstu tónleikum margra þeirra hljómsveita sem þar hafa spilað og því frábær stökkpallur fyrir ung- ar hljómsveitir að sögn Arnljóts. Á hátíðinni verða einnig til sýnis auglýsingar sem gerðar voru af upprennandi myndlistarfólki fyrir hverja tónleika á árinu og birtust í Reykja- vík Grapevine og víðar. matthiasarni@mbl.is Grasrótarhátíð Grapevine fagnar árs afmæli Morgunblaðið/Ómar Forstöðumaðurinn Arnljótur Sigurðsson.  Menn gefast ekki upp á útgáfu tímarita í kreppunni og nú eru tvö tímarit á leiðinni, eitt um knatt- spyrnu og annað um grafíska hönn- un. Hið fyrrnefnda ber titilinn GOAL og kemur út í dag. „Á mark- aðinn hefur klárlega vantað alvöru fótboltatímarit og höfum við fulla trú á því að nú sé eitt slíkt komið fram,“ segir í tölvupósti um GOAL. Þar mun Lionel Messi m.a. koma við sögu. Að sama skapi mætti segja að klárlega hafi vantað tíma- rit um grafíska hönnun og nú er það komið, Mæna, en það kemur út á laugardaginn og vefurinn mæna- .is verður opnaður um leið. Mæna er að vísu ársrit um grafíska hönn- un og fylgir því sýnishorn af verk- um útskriftarnema í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands. Útskriftarnemar Listaháskólans 2010 hanna Mænuna og verður nýtt rit hannað árlega, enda ársrit. Rit um knattspyrnu og grafíska hönnun  Hönnunarhátíðin Hönnunar- Mars hefst í dag með viðburðum víða um borg. Opnunarveisla verð- ur haldin í Höfðatorgi (turninum í Höfðatúni) kl. 20.30, þrjár sýningar opnaðar þar, og á Laugavegi munu vöruhönnuðir gæða tóm rými jafnt sem verslunarrými nýju lífi, allt niður að Kvosinni. Í Kling & Bang verður opnuð sýningin Álagafjötr- ar, innsetning ljósmyndarans Sögu Sigurðardóttur og fatahönnuðarins og tískuteiknarans Hildar Yeomen. Á Skólavörðustíg verður sýning á skartgripum hjá Ófeigi gull- smiðju og í Fógetastofu, Aðalstræti 10, verður opnuð sýning á leirlist og leirmunum kl. 16.30. Þá verður haldið sk. „Face- hunter-partí“ í versluninni kron- kron á Laugavegi kl. 19. Þar verða Facehunter-bækur til sölu (sjá face- hunter.blogspot.com) og nýir Kron by kronkron-skór til sýnis. „Goodie bags og happdrætti ;) Allir vel- komnir!“ segir um partí þetta á Facebook. Allt á suðupunkti. Blásið til hönnunarhá- tíðar víða um borg Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is ÓRAR heitir nýtt verk dansflokks- ins Spiral, í samvinnu við Svein- björgu Þórhallsdóttur danshöfund, Gianluca Vincentini, listrænan stjórnanda Spiral, sem einnig sér um sviðshönnun og lýsingu, og Ró- bert Reynisson hljóðmyndar- hönnuð. Í Órum er farið með áhorf- endur í ferðalag þar sem þeir upplifa andrúmsloftið milli svefns og vöku, eins og dansflokkurinn lýsir því. Þeir stigi inn í draumaver- öld þar sem ævintýri hugans geti skyndilega breyst í átakanlega martröð. Sýningarstaðurinn hæfir efninu, hið grófa rými leikhússins Norðurpólsins á Seltjarnarnesi. „Okkur langaði að kanna draum- heiminn, hvað gerist þegar fólk sofnar og hvert draumarnir færa okkur, við blöndum við þetta æv- intýrum,“ segir Gianluca. Draumar geti vissulega verið fallegir en að sama skapi geti þeir snúist í hræði- legar martraðir. Gianluca segir áhorfendur leidda í gegnum verkið, þeir gangi milli rýma með ólíkum myndum eða ór- um, rýmin muni vekja með áhorf- andanum ólíkar tilfinningar. „Í heildina eru þetta fimm eða sex rými sem við notum og hvert þeirra er með sérstakri sviðsmynd,“ segir Gianluca. Sjö konur og þrír karlar dansa í sýningunni en sýningardagar eru fjórir: 18., 21., 25. og 28. mars. Þrjár sýningar eru hvern dag og án hlés, um leið og einn hópur áhorf- enda hefur gengið í gegnum Óra tekur annar við. Miðasala fer fram á midi.is. Spiral Túlkar hugaróra með kraftmiklum dansi í Norðurpólnum. Fallegir draumar og hræðilegar martraðir  Dansflokkurinn Spiral frumsýnir í dag dansverkið Óra Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÞETTA varð stærra en við þorð- um að vona,“ segir Ingibjörg Finn- bogadóttir, framkvæmdastjóri Reykjavik Fashion Festival, RFF, sem fer fram um helgina í fyrsta sinn. Tuttugu og tveir hönnuðir munu sýna á tískuhátíðinni, stórir og litlir til helminga að sögn Ingibjargar. „Í upphafi vorum við að vonast til að fá svona tíu til fimmtán umsókn- ir frá hönnuðum en við fengum fjörutíu umsóknir. Af þeim völdum við tuttugu og tvo fatahönnuði til þátttöku. Níu munu sýna á föstu- dagskvöldið og þrettán á laug- ardeginum,“ segir Ingibjörg. Minni hönnuðir eru með átta inn- komur á sýningunum og þeir stærri með átján. „Síðasta sýningin á laugardagskvöldið er sú stærsta og þá verða um áttatíu innkomur hjá fjórum hönnuðum sem eru með um átta mínútur hver til að sýna.“ Reykjavik Fashion Festival er lokaður viðburður í þetta skiptið, aðeins fyrir boðsgesti, aðstand- endur og fjölmiðlamenn. „Áhugi að utan hefur farið fram úr öllum von- um og það er von á hátt í tuttugu manns frá erlendum fjölmiðlum alls staðar að úr heiminum. Markmiðið með RFF er að koma íslenskri hönnun út fyrir landsteinana og virðist það ætla að hafast,“ segir Ingibjörg og bætir við að tónleika- dagskrá á Kaffibarnum og Nasa í tengslum við hátíðina sé opin al- menningi. „Við erum að vinna heimildar- mynd um hátíðina sem við vonumst til að íslenskir ljósvakamiðlar sjái sér hag í að sýna og almenningur fái með henni tækifæri til að sjá hvað fór þarna fram. Þetta er bara upphafið en við vonum að þetta verði miklu stærri viðburður og opnari í framtíðinni,“ segir Ingi- björg. RFF er hluti af Hönnunar- Mars sem fer líka fram um helgina og segist Ingibjörg sjá fyrir sér að tískuhátíðin verði árlegur við- burður samhliða HönnunarMars upp frá þessu. Þátttakandi Farmers Market tekur þátt í Reykjavik Fashion Festival og sýnir þar nýjust línu sína. Þessi herrapeysa er hluti af henni. Tuttugu og tveir hönnuðir sýna  Reykjavik Fashion Festival fer fram í fyrsta skipti um helgina  Markmiðið að koma íslenskri hönnun út fyrir landsteinana  Von á fjölda erlendra miðla Tískuhátíðin hefst kl. 20 annað kvöld í O. Johnson & Kaaber- húsinu í Sætúni. Það eru sýningar frá E-label, Royal Extreme, Emami og Sruli Recht sem hefja hátíðina. Kl. 20.45 sýnir Mundi og kl. 21.30 er sýning frá Skaparanum, ELM, Thelmu Björk og Go With Jan. Á laugardagskvöldinu, 20. mars, hefst kvöldið kl. 20 á sýningu frá Bliki, Lúka, Sonju Bent, Hildi Yeoman og Farmers Market. Kl. 21 er sýning frá Nikita, 8045, Kalda og Áróru. Reykjavik Fashion Festi- val lýkur svo á sýningum frá Birnu, Spaksmannsspjörum, GuSt og Andersen & Lauth sem hefjast kl. 22. Dagskrá RFF www.rff.is Ingibjörg Finnbogadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.