Morgunblaðið - 18.03.2010, Blaðsíða 27
Minningar 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2010
✝ Grétar Árna-son fæddist á
Þórshöfn, Langa-
nesi hinn 6. októ-
ber 1946. Hann
lést á heimili sínu,
Hafnargötu 50,
Reykjanesbæ,
fimmtudaginn 4.
mars sl. Foreldrar
hans voru Árni
Baldur Baldvins-
son frá Húsavík, f.
7. ágúst 1925, d.
25. maí 1997, og
Þorgerður Lár-
usdóttir frá Heiði, Langanesi, f.
5. maí 1927, d. 30. mars 1990.
Grétar var elstur sex systkina,
þau eru í aldursröð Þráinn, f.
30. september 1948, Bára, f. 4.
maí 1950, Hrönn, f. 22. mars
1951, d. 2. júlí 2007, Elinóra
Ágústa, f. 28. maí 1957, og Arn-
þrúður Berglind, f. 6. mars
fyrir átti Ingunn dótturina Ásu,
þau slitu samvistir. Eftirlifandi
eiginkona Grétars er Þórdís
Herbertsdóttir, f. 13. desember
1947, en fyrir átti Þórdís dótt-
urina Önnu og dóttir hennar er
Þórdís Ásta. Grétar eignaðist
dótturina Sigrúnu Berglindi, f.
3. febrúar 1969, með Kristínu
Kristvinsdóttur, f. 22. nóvember
1943.
Grétar sleit barnsskónum á
Þórshöfn á Langanesi í stórum
hópi systkina og frændsystkina,
en ungur að árum flutti hann til
Keflavíkur, þar sem hann bjó til
dauðadags. Sjómennskan varð
hans ævistarf og stundaði hann
sjómennsku lengst af á Gunnari
Hámundarsyni GK-357 úr Garð-
inum eða alls 24 ár. Eftir að sjó-
mennskunni lauk starfaði hann
við mötuneyti varnarliðsins og
síðustu árin sem gangavörður í
Njarðvíkurskóla.
Útför Grétars fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag, 18.
mars 2010, og hefst athöfnin kl.
14.
1965.
Fyrsta eig-
inkona Grétars
var Jóna Hjálmtýs-
dóttur, f. 29. apríl
1942, d. 26. janúar
1992, en með
henni eignaðist
hann eina dóttur,
Lindu Þóru, hinn
15. apríl 1972.
Fyrir átti Jóna
þrjú börn, Sigurð,
Hjálmtý og Ásdísi.
Þau slitu sam-
vistir. Linda Þóra
á þrjú börn, þar af tvær dætur
með Gunnari Ásgeirssyni, þær
Bryndísi, f. 25. ágúst 1992, og
Heiðrúnu Evu, f. 23. september
1993. Og með Jóel Kristinssyni
eignaðist hún soninn Jóel Þór, f.
28. maí 2000. Önnur eiginkona
Grétars var Ingunn Ósk-
arsdóttir, f. 27. júní 1947, en
Elsku pabbi. Ég á svo erfitt með
að trúa því að þú sért farinn og að
ég eigi ekki eftir að sjá þig aftur.
Tíminn frá því að Linda systir
hringdi og lét mig vita að þú værir
dáinn hefur verið erfiður, tómleiki
og doði hefur verið allsráðandi.
Maður heldur alltaf að nógur sé
tíminn en svo reyndist ekki.
Ýmis minningabrot koma upp í
hugann, þú bílaáhugamaður með
meiru, stoltur að sýna mér nýjan
bíl og bjóða mér á rúntinn. Síðar
naut ég aðstoðar þinnar í mínum
fyrstu bíla- og íbúðarkaupum.
Þú varst mikill keppnismaður
sem tókst allt með trompi; hlaupa
nokkra kílómetra eftir langan og
erfiðan vinnudag, hvað munaði um
það. Tónlist var þér ofarlega í
huga, bæði að syngja sjálfur,
hlusta á ýmsa tónlistarmenn eða
fara á tónleika með Pavarotti og
fleirum. Ég mun alltaf hugsa til
þín þegar ég heyri í Pavarotti.
Ég ólst ekki upp hjá þér en samt
var gott samband okkar á milli og
ég veit að þú fylgdist með því sem
gerðist í mínu lífi. Stundum leið
langur tími á milli samfunda okkar
en það var alltaf jafngaman að
hittast. Þá var ýmislegt rætt og
skemmtilegt að komast að því hvað
við vorum lík á svo mörgum svið-
um.
Ég er þakklát fyrir kvöldstund-
ina þegar við hittumst hjá mér í
byrjun janúar, þá komuð þið Dísa
til mín í mat og sátuð óvenju lengi
og spjölluðuð um allt milli himins
og jarðar. Því miður var það í síð-
asta skipti sem ég sá þig á lífi og
síðasta sinn sem ég heyrði í þér
var þegar þú hringdir í mig á af-
mælinu mínu og við spjölluðum
saman góða stund. Þegar minn
tími kemur veit ég að þú munt
taka vel á móti mér og þá höldum
við áfram spjallinu.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Megi Guð geyma þig, pabbi
minn.
Þín dóttir,
Sigrún Berglind.
Það er þá fyrst er við höfum stigið
niður í djúp sorgarinnar sem við
skiljum hve flókið mannlífið er. Þá
finnum við samkenndina með þeim
sem lifa og þjást, dáumst að þol-
gæði þeirra og þrautseigju,
og getum auðsýnt þeim sem þarfn-
ast þess hlýhug, góðvild og vináttu.
(Pam Brown)
Elsku besti pabbi minn og afi
okkar.
Við kveðjum í dag einstakan
mann sem var hlýr, auðmjúkur og
ósérhlífinn maður með fallegt
hjartalag. Þú varst hógvær og sást
alltaf það besta í mannfólkinu og
sagðir alltaf að allir væru jafnir
fyrir guði. Vinnusamur varstu og
gerðir allt af natni og kappsemi og
barst virðingu fyrir öllum, líka litla
manninum. Við geymum fallegar
minningar hjá okkur um ókomna
framtíð um yndislegan pabba og
afa. Við erum stolt af að vera frá
þér komin og varðveitum styrk
þinn og metnað í öllu sem þú gerð-
ir fyrir okkur.
Guð geymi þig að eilífu pabbi
minn og afi okkar.
Þín dóttir,
Linda Þóra og afabörnin
Bryndís, Heiðrún Eva og
Jóel Þór.
Þegar ég kom heim frá Malasíu
fimmtudaginn 4. mars þá var mað-
ur fullur tilhlökkunar að hitta ætt-
ingja og vini. En það voru erfið tíð-
indi sem frændur mínir báru mér
þegar þeir tóku á móti mér á flug-
vellinum, Grétar frændi var dáinn.
Ég hafði hringt í Grétar frá Mal-
asíu tæpri viku fyrr og áttum við
frændur gott spjall sem fyrr. Við
ræddum daginn og veginn og jú,
fótboltann, þar var frændi á
heimavelli, enda mikill Arsenal-
maður.
Þegar ég var ungur pjakkur fór
ég ófáar ferðir með Grétari frænda
í Reykjavíkina. Við fórum í laug-
arnar og svo var pulsa og kók á
eftir, nú eða Múlakaffi ef við vor-
um flottir á því. Ef við fórum ekki
til Reykjavíkur þá fórum við í
gömlu sundhöllina í Keflavík, og
oft fórum við í keppni og frændi
leyfði mér yfirleitt að vinna.
Grétar var mikill áhugamaður
um bíla, og ég minnist þess þegar
ég fór með honum allavega í tví-
gang að skoða nýja bílinn á toll-
afgreiðslusvæðinu í Reykjavík. Það
var grái Fiatinn og síðar rauði
Audiinn, þetta fannst mér litla
snáðanum nú aldeilis spennandi.
„Passaðu þig á bílunum!“ Þetta
eru orð sem frændi var vanur að
segja við mig og okkur öll og verða
ævinlega tengd minningu hans í
huga mér. Honum var mjög um-
hugað um hag og heilsu allra sem í
kringum hann voru.
Ég átti ógleymanlegar stundir
með Grétari þegar við fórum til
London vorið 2008. Ferðinni var
heitið á Emirates, nýjan heimavöll
Arsenal, og þar sáum við Arsenal-
Liverpool sem gerðu jafntefli 1-1
og vorum við mjög sáttir við að
skipta stigunum á milli okkar.
Þarna var gamall draumur okkar
að rætast en við höfðum í mörg ár
talað um að við ættum nú eftir að
fara saman á leik í ensku til að sjá
liðin okkar spila. Með okkur í för
voru Þráinn frændi, bróðir Grét-
ars, og Sæmundur heitinn Sæ-
mundsson frændi okkar. Frábær
ferð þar sem við sáum líka Queen-
söngleikinn „We will rock you“ og
Grétar frændi hafði svo sannarlega
gaman af því enda mikill áhuga-
maður um söng og tónlist.
Elsku frændi, það er erfitt að
horfast í augu við að þú sért farinn
en minningarnar fara aldrei og
þær eru margar og fyrir þær
þakka ég þér.
Elsku Dísa, Linda, Sigrún og
Anna. Megi Guð gefa ykkur styrk
á þessum erfiðu tímum.
Þorgeir Jón Júlíusson.
Grétar Árnason
HINSTA KVEÐJA
Til þín afi minn … afi, afi, afi,
afi, afi, afi, afi, afi, afi, afi, afi,
afi, afi, afi, afi. Ég sakna þín.
Ég vildi að ég gæti haldið utan
um þig aftur. Ég vildi að ég
gæti kysst þig aftur.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Ástarkveðja.
Þín afadóttir,
Þórdís Ásta.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
HARALDUR HARALDSSON
húsasmíðameistari,
verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju föstudaginn
19. mars kl. 15.00.
Ingibjörg Tómasdóttir,
Alda Kolbrún Haraldsdóttir, Guðmundur Sveinsson,
Anna Ragnheiður Haraldsdóttir, Grímur Kolbeinsson,
Inga Margrét Haraldsdóttir, Karl Pétursson,
Haraldur Óskar Haraldsson, Guðrún Pétursdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
FRÍÐA HJALTESTED,
Droplaugarstöðum,
Snorrabraut 58,
áður Rauðagerði 8,
Reykjavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum
miðvikudaginn 10. mars, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju föstudaginn 19. mars kl. 11.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Droplaugarstaða.
Stefán Hjaltested, Anna R. Möller,
Sigríður Hjaltested, Elmar Geirsson,
Grétar Mar Hjaltested, Sigrún Gróa Kærnested,
Margrét H. Hjaltested, Halldór Ó. Sigurðsson,
Lárus Hjaltested, Dóra Björk Scott,
Davíð Hjaltested, Sigrún Ingvarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir
og afi,
INGIMAR K. SVEINBJÖRNSSON
fyrrv. flugstjóri,
Þinghólsbraut 70,
Kópavogi,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
föstudaginn 12. mars, verður jarðsunginn frá
Kópavogskirkju föstudaginn 19. mars kl. 13.00.
Helga Zoëga,
Ólafur Þór Ingimarsson, Agnes Eyþórsdóttir,
Halldóra Ingimarsdóttir, Haukur Margeirsson,
Guðmundur S. Ingimarsson, Inga Rannveig Guðrúnardóttir,
Einar G. Sveinbjörnsson
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐRÚN ELÍN ÓLAFSDÓTTIR,
Lönguhlíð 7,
Bíldudal,
verður jarðsungin frá Bíldudalskirkju laugar-
daginn 20. mars kl. 14.00.
Ólafía Björnsdóttir, Jón Ingimarsson,
Magnús Kr. Björnsson,
Sindri Már Björnsson, Tone Solbakk,
Hlynur Vigfús Björnsson, Klara Harðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓHANNES MAGNÚS GUÐMUNDSSON
bóndi,
Ánabrekku,
Borgarhreppi,
verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju laugar-
daginn 20. mars kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi.
Ása Ólafsdóttir,
Kolbrún Jóhannesdóttir,
Ragnheiður Valdís Jóhannesdóttir, Stefán Magnús Ólafsson,
Hjördís Smith, Ólafur Þórður Harðarson,
afa- og langafabörn.
✝
Útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
ÖNNU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Skógarseli 43,
fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 19. mars
kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
María Helgadóttir, Friðrik G. Gunnarsson,
Helgi Helgason,
Inga Lára Helgadóttir, Ólafur Haukur Jónsson,
Björk Helgadóttir, Sigurður Hauksson,
Guðmundur Rúnar Helgason,
barnabörn og langömmubörn.