Morgunblaðið - 18.03.2010, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.03.2010, Blaðsíða 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2010 ✝ Halldór Ólafssonfæddist í Gimli, Hvallátrum hinn 15. nóvember 1932. Hann lést á Landspít- alanum að kvöldi 9. mars. Foreldrar Hall- dórs voru Anna Egg- ertsdóttir, f. 15.4. 1894, d. 16.5. 1962, og Ólafur H. Hall- dórsson, f. 1.9. 1893, d. 29.11. 1965. Systir Halldórs var Björg Ólafsdóttir, f. 7.11. 1927, d. 26.3. 1994. Árið 1955 kvæntist Halldór Öddu Sigurlínu Hartmannsdóttur frá Lyngholti, Ólafsfirði, f. 13.1. 1937, d. 2.1. 2008. Foreldrar henn- ar voru Hartmann Pálsson, f. 5.1. 1908, d. 5.7. 1983, og María Anna Magnúsdóttir, f. 17.11. 1909, d. 5.4. 1999. Halldór og Adda eignuðust sex 1972, saman eiga þau synina Oli- ver og Nickolaj. Halldór átti tvö langafabörn. Halldór ólst upp á Hvallátrum við Látrabjarg fram á unglingsár. Fimmtán ára gamall tók hann þátt í björgun enska togarans Dhoon, sem strandaði við Látrabjarg árið 1947. Að lokinni skólagöngu við Héraðsskólann á Núpi fékkst hann við ýmis störf fyrir vestan, en flutti síðan suður þar sem hann kynntist Öddu. Halldór og Adda hófu sinn hjúskap árið 1955 í Ólafsfirði, þar sem Halldór starf- aði lengi til sjós og með eigin trillu en síðar við ýmis verkamannastörf í landi. Árið 1971 fluttu Halldór og Adda með barnahópinn suður til Reykjavíkur, en frá árinu 1977 bjuggu þau í Kópavogi. Fyrir sunnan starfaði Halldór m.a. hjá Sólningu og Sambandinu, en síð- ustu starfsárin vann hann við af- greiðslu hjá Skeljungi og síðar hjá Olíufélaginu. Útför Halldórs fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 18. mars 2010, og hefst athöfnin kl. 13. börn. 1) Anna María, f. 7.3. 1955. 2) Ólaf- ur, f. 10.1. 1957, sam- býliskona hans er Anna Sigríður Pálmadóttir, f. 8.6. 1968, og saman eiga þau börnin Öddu Maríu, Daníel Ísak og Önnu Láru, fyrir átti Ólafur börnin Berg- þóru og Halldór. 3) Logi, f. 14.11. 1960, maki hans er Guð- finna Brynjólfsdóttir, f. 22.4. 1963, saman eiga þau börnin Hjördísi, Halldór Loga, Bryndísi og Svandísi. 4) Hartmann Páll, f. 19.1. 1969. 5) Ásdís, f. 18.4. 1970, maki hennar er Magnús Þór Hrafnkelsson, f. 29.11. 1968, saman eiga þau börn- in Sölva Má, Hlyn og Heiðu Maríu. 6) Auður, f. 28.11. 1973, maki hennar er Jens Letager, f. 4.1. Elsku pabbi. Takk fyrir allar góðu stundirnar með þér. Takk fyrir ástríkið sem þú veittir okkur. Þú varst stoð okkar og stytta. Þú varst allra manna hugljúfi. Betri föður er ekki hægt að hugsa sér. Mikið söknum við þín. Anna María, Ólafur, Logi, Hart- mann Páll, Ásdís og Auður. Það var á vordögum árið 1941 á Patreksfirði þar sem ég undirritaður 5 ára var að alast upp að ákveðið var að senda mig í sveit að Hvallátrum til hjónanna Önnu Eggertsdóttur og Ólafs Halldórssonar sem bjuggu á bænum Gimli ásamt börnum sínum Björgu og Halldóri. Ég kom að Látr- um með vélbátnum Kóp BA-222. Bátnum var lagt við akkeri og róið í land með pramma. Í lendingunni stóðu nokkrir krakkar í hóp og hjálp- uðu við að draga prammann á þurrt. Er ég stend þarna í sandinum ringl- aður með sjóriðu víkur sér piltur úr hópnum að mér og segir: „Þú átt að koma með mér, pabbi kemur og sæk- ir dótið þitt.“ Þarna sá ég Dóra vin minn um all- an aldur í fyrsta sinn, þennan góða dreng sem í dag er kvaddur hinstu kveðju. Hann fylgdi mér heim að bænum þar sem Anna tók mér fagn- andi. Þarna eignaðist ég mitt annað heimili og dvaldi lungann úr bernsk- unni í faðmi þessarar góðu fjöl- skyldu. Dóri var handlaginn og hug- myndaríkur strákur og varð ungur snjall veiðimaður til sjós og lands. Fyrir fermingarpeningana keypti hann sér riffil og varð fljótt afkasta- mikil refaskytta. Það var í byrjun ágúst þegar ég var 12 ára og Dóri 15 segir hann við mig að loknum morg- unverði: „Nú er gott flug og skulum við fara út í Bjarg og veiða lunda.“ Veiðistaðurinn heitir Slakkahilla og er farið niður í hana á handvaði. Á hillunni er lundahvapp og var nú tek- ið til við veiðarnar. Dóri háfaði og ég sneri. Honum fannst ég ekki nægi- lega snöggur að snúa og kallaði: „Þú ert ekki að trekkja klukku, þú ert að snúa lunda úr hálsliðnum,“ og rak svo upp skellihlátur. Þarna var Dóri í essinu sínu, og er við höfðum lokið veiðinni og vorum komnir á brún sagði hann við mig: „Nú ert þú orð- inn alvöru Látramaður.“ Dóri var það sem kallað var í gamla daga að vera „snar“, það sýndi hann og sann- aði þegar hann ásamt föður sínum og öðrum sveitungum vann við hið fræga björgunarafrek við Látra- bjarg, þá var hann aðeins 16 ára gamall. Þó að Dóri hafi unnið þar stórkostlegt afrek steig það honum ekki til höfuðs og hélt sig gjarnan til hlés ef þetta mál bar á góma. Þó að Dóri væri hláturmildur og léttur í lundu var hann samt undir niðri alvörumaður og menn sem fóru með raup og gaspur fóru í taugarnar á honum. Dóri ólst upp við mikið ást- ríki foreldra sinna og þegar hann kvæntist ungur maður varð hann fljótt mikill fjölskyldumaður og var hagur fjölskyldunnar ávallt í fyrir- rúmi. Kona Dóra, Adda Hartmanns- dóttir frá Ólafsfirði, lést fyrir tveim árum úr illvígum sjúkdómi. Þau bjuggu í Ólafsfirði fyrstu búskapar- árin. Fluttu svo til Reykjavíkur en bjuggu lengst af á Sæbólsbraut 28 í Kópavogi. Þau eignuðust 6 börn sem öll syrgja föður sinn í dag. Það var mér til góðs að vera send- ur að Látrum, Anna og Ólafur voru einstaklega góðir og þolinmóðir upp- alendur og ég elskaði þau sem og allt fólkið á Látrum. Dóra vin minn kveð ég með söknuði og óska börnum hans og barnabörnum alls velfarn- aðar. Grétar Ólafsson. Það fyrnir yfir flesta atburði í tím- ans rás. Sumir eru þó svo sögulega sterkir, að þeir lifa um aldir í þjóð- arvitundinni. Björgunarafrekið við Látrabjarg 1947 var slíkur atburður. Í fámennu og afskekktu byggðar- lagi, þar sem fólk hafði mann fram af manni alist upp við það að bjóða náttúruöflunum birginn til þess að framfleyta sér og sínum, og sótti m.a. björg í bú í ógnvekjandi og nán- ast ókleif fuglabjörgin, var drýgð einstæð hetjudáð, sem vakti athygli langt út fyrir landsteinana, en sjálft afreksfólkið vildi sem minnst úr því gera. Halldór Ólafsson frá Hvallátrum var einn þeirra hlédrægu afreks- manna sem þarna áttu hlut að máli. Hann var þá aðeins 15 ára gamall. Ég treysti mér ekki til þess að lýsa því sem Halldór gekk í gegnum, það hefur Óttar Sveinsson gert á ógleymanlegan hátt í bók sinni, Út- kall Látrabjarg. Ég kynntist Hall- dóri veturinn 1948-49 á Núpsskóla og við vorum í allnánu sambandi fyrstu árin þar á eftir. Hann var hæglátur, yfirvegaður og æðrulaus; bar öll merki þeirra sérstæðu, ís- lensku aðstæðna sem höfðu mótað hann strax í bernsku. Það sem hann hafði lagt af mörkum við björgunina var ekkert til að tala um. Það var verk sem þurfti að vinna. Hann hafði gert skyldu sína, um það þurfti ekki að fara fleiri orðum. Málið var af- greitt. Halldór var hógvær hetja. Kynni okkar voru mér mikils virði. Ég þakka forsjóninni fyrir þau. Fjöl- skyldu hans bið ég allrar blessunar. Örlygur Hálfdanarson. Halldór Ólafsson HINSTA KVEÐJA Elsku afi minn. Vonandi líður þér betur núna, þú varst orðinn svo veik- ur. En nú ertu kominn til ömmu og þeirra sem þér þykir vænt um. Blessuð sé minning þín, hvíla skaltu í friði. Þín afastelpa, Anna Lára Ólafsdóttir. ✝ Yndislegur eiginmaður minn, besti vinur, faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS JÓHANN MAGNÚSSON skipstjóri frá Hrísey, Birkiási 35, Garðabæ, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 15. mars. Anna Björg Björgvinsdóttir, Grétar Þór Magnússon, Hrönn Hreiðarsdóttir, Magnús Snorri Magnússon, Jóhanna Rós F. Hjaltalín, Linda Sólveig Magnúsdóttir, G. Freyr Guðmundsson, Arnheiður Fanney Magnúsdóttir,Guðmundur R. Bjarnason, Haraldur Róbert Magnússon, Hrafnhildur Björnsdóttir og barnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn og vinur, EINAR ÞORSTEINSSON, Gullsmára 5, andaðist sunnudaginn 14. mars. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Sæunn Mýrdal Sigurjónsdóttir. ✝ Ástkær faðir, tengdafaðir og afi, PÁLL ÓLAFSSON bóndi, Brautarholti, Kjalarnesi, andaðist á Landspítalanum þriðjudaginn 16. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Guðrún Pálsdóttir, Sveinn G. Segatta, Ásta Pálsdóttir, Gunnar Páll Pálsson, Þórdís Pálsdóttir, Ingibjörg Pálsdóttir, Bjarni Pálsson, Ólöf Hildur Pálsdóttir, Sigurður Valgeir Guðjónsson og barnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, MAGNEA HARALDSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum þriðjudaginn 16. mars. Útförin verður auglýst síðar. Jón G. Baldvinsson, Baldvin Baldvinsson, Ása Hildur Baldvinsdóttir, Vagn Boysen, Sigrún Baldvinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi, langafi og langalangafi, EINAR SIGGEIRSSON, Hörpulundi 5, Garðabæ, sem lést á Hrafnistu Hafnarfirði að morgni föstu- dagsins 12. mars, verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn 19. mars kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeir sem vildu minnast hans láti FAAS, Félag aðstandenda alzheimers- sjúklinga, njóta þess. Sími 533-1088 og heimasíða: www.alzheimer.is María Theódóra Jónsdóttir, Birgir Ævar Einarsson, Kristín Guðmundsdóttir, Elínborg Einarsdóttir, Karl Hallgrímsson, Matthías Einarsson, Aðalheiður Magnúsdóttir, Guðmundur Einarsson, Hrefna Einarsdóttir, Jón Dan Einarsson, Ásta Hrönn Stefánsdóttir, Einar Einarsson, Hildur Pálsdóttir, Friðrik Einarsson, Kristín S. Ingimarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður, faðir, sonur, bróðir, mágur og vinur, SVEINN BJARKI SIGURÐSSON, Goðheimum 23, Reykjavík, lést þriðjudaginn 9. mars. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 19. mars kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarreikning barna hans, 515-14-404200, kt. 040974-3939. Ragna Eiríksdóttir, Alexander Freyr, Sólveig Embla og Ásta Eir Sveinsbörn, Sigurður Þórir Sigurðsson, Ásta Björk Sveinbjörnsdóttir, Rúnar Sigurðsson, Stefanía Ragnarsdóttir, Erlendur Eiríksson, Ilmur Eir Sæmundsdóttir. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, JOLEE MARGARET CRANE, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudaginn 5. mars, verður jarðsungin frá Krists- kirkju Landakoti föstudaginn 19. mars kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Blindrafélagið, líknar- og vinafélagið Bergmál og Karmelsystur í Hafnarfirði. Ingileif Helga Leifsdóttir, Linda Hersteinsdóttir, Ásthildur Emma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.